Fréttir - Eyjafréttir - 10.12.1998, Blaðsíða 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 10. desember 1998
Skólakórarnir
með jólatónleika
Svanhíldur verslunarstjóri, sem er lengsi til vinstri á myndinni, býður viðskiptavinum K/í upp á stórbætta verslun á Tanganum.
Af tækni og sálnasölu
tudcqi
Þriðjudaginn 15. des. kl. 20.00 verða jólatónleikar í Bæjarleikhúsinu.
Þar koma fram Kórar Hamarsskóla undir stjórn Báru Grímsdóttur,
Kór Barnaskólans undir stjórn Michelle R. Gaskell og sönghópur frá
Rauðagerði undir stjórn Eyvindar Steinarssonar.
Sungin verða skemmtileg lög. Hver kór mun syngja sérstaklega, m.a.
mun Hamarsskólakórinn syngja tólf jólalög í syrpu. Allir kóramir munu
síðan syngja saman. Undirleikarar em þeir Eyvindur Steinarsson og Viktor
Ragnarsson.
Rétt er að vekja athygli á því að á sams konar tónleikum, sem haldnir vom
sl. vor, var húsfyllir og urðu margir að standa.
Það hefur ekki farið fram hjá
bæjarbúum að mikið var að snúast
í KÁ-Tanganum um helgina. Öllum
hillum og tækjum var hent út og
nýtt sett í staðinn. A mánu-
dagsmorguninn fengu viðskipta-
vinir að sjá breytinguna sem lýsti
sér í nánast nýrri búð.
Svanhildur Guðlaugsdóttir, verslun-
arstjóri KA í Vestmannaeyjum, segir
að nýtt skipulag og nýjar hillur geri
það að verkum að húsnæðið nýtist
betur og verslunin hafi stækkað þrátt
fyrir að grunnflöturinn sé sá sami.
„Stærsta breytingin er sú að í staðinn
fyrir kælirýmið em komnir kælar fyrir
hvern vömllokk fyrir sig. Þá emm við
með fjóra hillurekka í stað þriggja
áður. Fatadeildin hefur verið stækkuð
um helming og nú höfum við meira
pláss fyrir vörur sem tengdar eru
einstökum árstíðum eða hátíðum eins
og jólum og p^dffm. Þá verðum við
með barnahom og aðstöðu fyrir þá
sem vilja borða heita matinn frá okkur
í versluninni," sagði Svanhildur.
Kjötborðið hefur tekið miklum
framförum undanfarnar vikur og
verður áfram lögð áhersla á að sinna
þeim þætti í matvömnni. „Einnig
verður bætt við í ferskvöru eins og
mjólk og ostum og kjöti."
Nú gæti margur haldið að
verslunarplássið hafi verið stækkað en
svo er alls ekki. Svanhildur segir að
ástæðan sé bætt nýting með grynnri
hillum og meiri skipulagningu. „Eg er
mjög ánægð með hve vel hefur tekist
og viðbrögð viðskiptavina eftir fyrsta
daginn vom frábær. Breytingin gefur
okkur kost á að auka þjónustu og
vöruúrval og síðast en ekki síst er
hægt að gera ýmislegt til að gleðja
viðskiptavinina með uppákomum af
ýmsu tagi,“ sagði Svanhildur að
lokum.
Sigurgeir Jónsson
skrifar
Á morgun, föstudag mun höf-
undur hinna vinsælu Utkalls-
bóka, Óttar Sveinsson, árita nýju
bókina sína, Utkall - Fallið fram
af fjalli. Hún hefur m.a. að
geyma frásögn af því er fimm
Eyjamenn voru nálægt því að
drukkna við Bjarnarey í júlí á
síðasta ári.
Óttar verður í Bókabúðinni við
Heiðarveg frá kl. 15-17 og mun
ekki aðeins árita nýju bókina, sem
verður á sérstöku tilboðsverði,
heldur einnig eldri Útkallsbækur
sem fólki er velkomið að koma
með til að láta höfundinn skrifa í
fyrir sig. „Eg hlakka til að koma til
Vestmannaeyja og hitta fólk þar,
ekki síst vegna þess að það var
mjög ánægjulegt að vinna með
fjölmörgum Eyjamönnum við gerð
kaflans „Hringdu í tíu tuttugu og
einn." Hann er í sérstöku uppáhaldi
hjá mér því fimmmenningamir,
sem komust Iífs af og þeir sem
björguðu þeim voru einstaklega
liprir í samstarfi eins og Eyjafólki
er gjaman lagið,” sagði Öttar í
samtali við Fréttir.
Fimmmenningamir, sem björg-
uðust, þeir Pétur Steingrímsson,
Jens K.M. Jóhannesson, Björgvin
Arnaldsson, Ómar Stefánsson og
Gylfi Gíslason eru væntanlegir í
búðina meðan Óttar verður að árita
á morgun.
Til
ham-
ingju
60 ára er í dag
Esther Valdi-
marsdóttir. Hún tekur á móti gestum
laugardaginn 12. des. að Hrauntúni 23
eftirkl. 20.
Tanginn fær andlitslyfdngu
„Utkalls
Óttar“
áritar í
Eyjum
Brátt eru aldamót, ekki nema rúmt ár í það þó
svo að sumir vilji halda sig við að ný öld hefjist
ekki l'yrr en árið 2001. Líklega munu fleslir
miða hátíðahöld við það þegar talan 2000 biilist
og skrifari fylgir þeim hópi að málum, ennþá að
minnsta kosti.
Gífurlegar tækniframfarir hafa átt sér stað á
þessari öld, þó sérstaklega síðari hluta hennar.
Skrifara er til efs að á nokkm tímabili í allri
veraldarsögunni hafi önnureins tæknibylting átt
sér stað. Þá rifjast upp fyrir honum þegar einka-
leyfaskrifstofan bandaríska hugðist loka og
hætta starfsemi sinni. Hann minnir að það hafi
verið árið 1936. Ástæðan var sú að forsvars-
menn þeirrar ágætu skrifstofu töldu að búið væri
að finna upp allt það sem hægt væri að finna upp
íveröldinni. Toppnum væri náð. Ennhefurþó
sín ögnin af hverju bæst við og á væntanlega
enn eftir að bætast við. Hugviti manna virðast
engin takmörk sett.
Það sem okkur þóttu stórkostlegar uppgötvanir
fyrir nokkmm ámm, þykir okkur svo sjálfsagður
hlutur í dag að vart tekur því að minnast á það.
Skrifari man þegar fyrstu vasareiknamir komu á
markað og leystu af hólmi reiknistokkinn og
hugareikninginn. Skrifari eignaðist sinn fyrsta
vasareikni árið 1974 og gat sá, auk alls almenns
reiknings, einnig fundið kvaðratrót og prósentur.
Þessi vasatölva þætti ekki ýkja merkileg í dag en
fyrir 25 ámm jaðraði hún við byltingu.
Hverjum skyldi líka hafa dottið í hug á þeim
tíma að unnt yrði að senda bæði texta og myndir
símleiðis milli landa. I dag finnst mönnum svo
sjálfsagt að senda slfkt á faxi eða á neti að sú
tækni ristir ekki dýpra en sjálfvirka kaffikannan
í eldhúsinu sem öllum finnst löngu sjálfsögð.
Hverjum skyldi líka hafa dottið í hug að menn
gætu verið að tala í síma á öllum hugsanlegum
stöðum, í bílnum, úti í sjó, á göngu úti á götu, á
klósettinu o.s.frv.
Aðalgallinn við alla þessa tækni er sá að hún er
háð orku sem nefnist rafmagn. Ef rafmagnið
dettur út, hvort sem er frá rafveitu eða frá raf-
hlöðu, þá fer allt í kerfi og ekkert gengur upp
fyrr en búið er að gera við eða endumýja batterí.
Hver kannast ekki við þá örvæntingu sem um
sig grípur í þjóðfélaginu ef rafmagnið dettur út?
Allt lamast, greiðslukerfi í verslunum og
bönkum, og ekkert hægt að gera fyiT en straum-
ur er kominn á að nýju. Svo til ekkert er unnt að
gera handvirkt í dag, svo háð emm við hinni
nýju tækni.
Skrifari veltir því oft fyrir sér hvað muni koma
næst í tæknivæðingunni. Eflaust verður kerfið
þannig í framtíðinni að ekkert þarf að óttast þótt
rafmagn detti út, nýir orkugjafar eða örgjörvar
munu sjá til þess. Óg skrifari þykist þess fullviss
að flutningatækni framtíðarinnar verði með
öðmm hætti en við nú þekkjum, bæði í vöm- og
farþegaflutningi. Hann er þess allavega fullviss
að einkaleyfastofur munu halda áfram að taka á
móti nýjum uppfinningum til að gera okkur lífið
léttara.
Allt atvinnumynstur hefur líka gjörbreyst á
síðustu ámm. Æ færri vinna við það sem kalla
má erfiðisvinnu og alltaf Ijölgar þeim sem starfa
við hvers kyns þjónustu. Æ fleiri möguleikar
em líka í boði fyrir þá sem vilja ávaxta fé sitt á
sem hagkvæmastan máta. Það em ekki mörg ár
síðan eini möguleikinn fyrir almenning var að
leggja aurana sína inn á bankabók og bíða þess
að einhverjir vextir kæmu ofan á þá, nú eða þá
að verðbólgan æti þá upp eins og algengara var.
Stundum fréttist af vafasömum mönnum í
útlandinu sem höfðu það að atvinnu að kaupa og
selja hlutabréf og lifðu góðu lífi. Sú atvinnu-
grein var oftar en ekki kölluð spákaupmennska
og flestum sem þótti eitthvað óheiðarlegt við
hana. Nú er öldin önnur. Almenningi gefst nú
nær ótakmarkaður kostur á að leggja fé sitt í
hvers kyns ávöxtunartækifæri og æ fleiri sem
nýta sér það.
Hið nýjasta á hlutabréfamarkaðinum er
svokallaður kennitölubisness. Undanfama daga
hafa tvö af stærstu fjármáIafyrirtækjum landsins
keppst við að fá lánaðar kennitölur fólks til
kaupa á hlutabréfum. Ef marka má frásagnir í
blöðum er hægt að hagnast ágætlega á slíkri
greiðasemi.
Gegnum tíðina hafa menn alltaf verið að selja
eitthvað af sjálfum.sér í von um ábata. í
Biblíunni segir frá því þegar Esaú seldi
frumburðarrétt sinn fyrir baunadisk og taldi sig
hagnast á því. Þegar kom fram á miðaldir vom
uppi sögur um að menn seldu sál sína þeim í
neðra og hlutu að launum einhver veraldleg
gæði. Og á síðustu ámm hafa komið upp tilfelli
þar sem fjármálasnillingar í Afríku vilja fá
lánaða bankareikninga Islendinga gegn vænum
fúlgum. Þetta nýjasta kennitölufár minnir
skrifara um margt á þessa fomu og nýju
gjöminga. Skrifari er búinn að hafa sína kenni-
tölu í allmörg ár og hún er orðinn fastur liður í
hans persónuleika. I öllum viðskiptum er hann
mun oftar spurður um kennitöluna en það nafn
sem honum var gefið fyrir rúmri hálfri öld og
það styrkir hann mjög í þeirri trú að kennitalan
sé á leið með að verða hluti af sálarlífi hans. Af
þeim sökum er hann mjög ófús til að lána
þennan part af sjálfum sér, jafnvel þótt gull og
grænir skógar séu í boði. Slíka vændismennsku
vill hann ekki stunda. Kannski er þetta bara
vottur um mikla íhaldssemi en skrifari er
íhaldssamur, hefur alltaf verið það og mun
líklega alltaf verða það. Og honum finnst
íhaldssemi í meðalhófi vera dyggð. Aftur á móti
finnst honum afturhaldssemi löstur.
Skrifari hefur sem sé ekki hugsað sér að selja
sál sína að sinni, hvorki skoðanir sínar né annað
sem sálartötrinu fylgir. Og þar er kennitalan
meðtalin.
Sigurg.