Fréttir - Eyjafréttir - 10.12.1998, Qupperneq 14
22
Fréttir
Fimmtudagur 10. desember 1998
Tískusýning í
LANDAKIRKJA
Fimmtudaginn 10. desember
Kl. 17. TTT - kirkjustarf 10-12
ára barna. Kökuskreytingar og
málun. Síðasti funduríTTTíyrir
jól.
Kl. 20:30. Opið hús fyrir unglinga
KFUM og -K húsinu.
Sunnudagur 13. desember
Lúsíumessa.
Kl. II. Bamaguðsþjónusta.
Helgileikur barna úr ð.bekk
Hamarsskóla. Litlir lærisveinar,
mikill söngur, bæn og sögur.
Hirðakertið tendrað.
Kl. 14. Guðsþjónusta. Koma má
ábendingum um fyrirbænir til
prestanna.
Bamastund á sama tíma. Mola-
sopi á eftir í safnaðarheimilinu.
Kl. 20:30. Æskulýðsfundur í
Landakirkju.
Þriðjudagur 15. desember
Kl. 16. Kirkjuprakkarar (7-9 ára).
Lokafundur fyrir jól. Kökur og
huggulegt.
Miðvikudagur 16. desember
Kl. 10. Foreldramorgunn. Sam-
vera foreldra með ungum bömum
sínum.
Kl. 12.05. Bænar- og kyrrðar-
stund í hádeginu.
Síðasta fræðslustund fermingar-
barna fyrir jól.
Næsti biblíulestur verður mið-
vikudagskvöldið 13. janúar á
næsta ári.
Fimmtudagur 17. desember
Kl. 11. Helgistund í Hraun-
búðum. Öllum opin. Korna má
ábendingum um fyrirbænir til
prestanna fyrir stundina.
Kl. 20:30. Opið hús fyrir unglinga
í KFUM og -K húsinu.
Viðtalstími prestanna er á
mánudögum kl. 17-18 og þriðju-
daga til föstudagakl. 11-12
árdegis fram að áramótum.
Síminn á skrifstofum sóknar-
prests og prests er 481 2916.
Bréfsíminn (faxið) hefur fengið
nýtlnúmer481 1845.
Netfang Landakirkju er
kirkja@eyjar.is netfang sóknar-
prestsins, sr.Kristjáns Bjömssonar
er klerkur@eyjar.is og netfang
prestsins, sr. Bám Friðriksdóltur,
er barafrid@eyjar.is
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20.30 Biblíulestur
Föstudagur
Kl. 16.30 Styrktarbasar fyrir
Lindina.
Kl. 17.30 Barnastarfið 6-9 ára.
Kl. 20.30 Unglingamir í ljósi
Biblíunnar.
Laugardagur
Kl. 20.30 Bænasamkoma í umsjá
Unu Amadóttur.
Sunnudagur
Kl. 15.00 Vakningarsamkoma.
Trú þú á Drottin Jesú. Endur-
koma hans er í nánd.
Þriðjudagur
Kl. 17.30 Krakkakirkjan 3-7 ára.
Hjartanlega velkomin.
Jesús Kristur mætir.
Aðventkirkjan
Laugardagur 5. dcsember
Kl. 10. Biblíurannsókn.
Kl. 11. Guðsþjónusta. mikill söngur
og tónlist.
Kl. 17. Aðventustund með söng og
tónlist.
Allir velkomnir.
Biblían talar:
Sími 481-1585
„Þetta er í annað skiptið sem við
tökum okkur til og höldum
tískusýningu með þessum hætti.
Fyrir tveimur árum vorum við í
Flugstöðinni en nú var það
tækjahús flugvallarins,“ segir
Gunnar Ingi Gíslason kaupmaður
í Smart sem hélt tískusýningu með
skemmtiatriðum á föstudags-
kvöldið í fyrrnefndu húsi.
Tækjahúsið er stærsta bygging-
in við flugvöllinn og þar er hátt til
lofts og vítt til veggja og þó ótrúegt
sé hentar húsið ekki illa til
uppákoma eins og Gunnar Ingi og
Auður Ásgeirsdóttir í Smart buðu
upp á.
Um 400 manns mættu til að
fylgjast með því sem þarna var
boðið upp á auk þess að þiggja
léttar veitingar. I boði var lifandi
tónlist, krakkar úr Hamarsskóla
sýndu 10 kjóla úr Newmans Ovvn
fatahönnunarkeppninni,
íslandsmeistarinn í vaxtarækt,
Smári Harðarsson sýndi hvað í
honum býr og fólk úr Hressó sýndi
listir sínar. Að lokum var svo
kynning á jólalínunni í dömu- og
herrafatnaði.
Sýningin tókst í alla staði vel og
var Gunnar Ingi að vonum
ánægður með hvernig til tókst.
„En ég vil að það komi fram að við
Auður eigum ekki allan heiðurinn
því margir komu að verki hjá
okkur. Er ég þakklátur öllum sem
þar komu að verki, sýningarfólki
og öðrum sem aðstoðuðu við
undirbúninginn. Dagmar
Skúladóttir sá um tískusýninguna,
Jónína Magnúsdóttir útbjó
snitturnar, Rúnar Karlsson sá um
tónlist, Ellý og Kiddi sáu um
þjónustu, Hárgreiðslustofa
Guðbjargar sá um hárgreiðslu,
Aníta um snyrtingu og Jón Ingi á
Lundanum kom líka við sögu.
Þessu fólki vil ég öllu þakka fyrir
þeirra framlag,“ sagði Gunnar
Ingi að lokum.
Glæsilegra getur það ekki orðið.
Bingó verður í Þórsheimilinu í kvöld fimmtudaginn
10. desember kl 20:30. Vinningar: 5000 kr gjafabréf
frá Eðalsport og Axel Ó; 4000 króna gjafabréf frá
Miðbæ, Bókabúðinni, Gullbúðinni og Oddinum;
3000 kr. gjafabréf frá Fótó og Eyjablómi; 20.000 kr.
úttekt í Vöruvali og 5000 kr. peningapottur.
Unglingaráð ÍBV
tækjageymslu
Þannig eiga ungu mennirnir að klæðast í uetur. Myndir Sigfús Gunnar.
Auður, Dagmar og Gunnar höfðu fulla ástæðu til að fagna í lok sýningarinnar.
Kór Landakirkju:
Ingveldur Yr syngur
á j ólatónleikunum
Kór Landakirkju heldur sína
árlegu jólatónleika í Landakirkju
sunnudaginn 13. desember kl.
20.30.
Efnisskrá verður fjölbreytt og flutt
verða verk eftir innlenda og erlenda
höfunda, m.a. Helga S. Ólafsson,
G.F. Handel, L. Luzze o.fl.
Einsöngvari á tónleikunum verður
Ingveldur Yr Jónsdóttir en hún mun
koma fram með Kór Landakirkju
og einnig flytja einsöngslög við
undirleik Guðmundar H.
Guðjónssonar, orgelleikara og
stjómanda kórsins. Þá koma fram á
tónleikunum Védís Guðmunds-
dóttir, sem leikur á þverflautu og
Elísa Guðjónsdóttir sem leikur á
altflautu. Aðgöngumiðar verða
seldir við innganginn og kosta kr.
800.