Fréttir - Eyjafréttir - 10.12.1998, Síða 15
Fimmtudagur 10. desember 1998
Fréttir
23
Nissandeildin: IBV 23 - Fram 22
Stórleikur hiá ÍBV
-Sigmar Þrösturtryggói sigurinn í lok leiktímans
Eyjamenn fengu topplið Fram í
heimsókn, síðastliðið fimmtudags-
kvöld. Fram og Afturelding hafa
verið hvað sterkust í Nissan-
deildinni í vetur og með sigri gegn
IBV hefðu Framarar tryggt sér
farseðilinn á Norðurlandamót fé-
lagsliða, sem nú hefur verið sett á
laggirnar. Leikur Eyjamanna hef-
ur aftur á móti verið mjög
sveiflukenndur það sem af er og
hefur IBV ekki unnið neinn útileik
á tímabilinu, en á heimavelli hafa
þeir verið mjög sterkir og ekki
tapað stigi. Ahorfendur urðu ekki
fyrir vonbrigðum með sína menn á
fimmtudaginn, enda léku Eyja-
menn við hvern sinn fingur og
unnu.
Framarar byrjuðu af miklum krafti
og ætluðu sér ekki að lenda í vand-
ræðum með heimamenn. Guðmundur
Guðmundsson, þjálfari Fram, var eins
og hann á að sér að vera, upptrekktur
og æstur. Ahorfendur höfðu lúmskt
gaman af tilþrifum Guðmundar í fyrri
hálfleik, enda ekki á hverjum degi sem
sltkur skemmtikraftur kemur hingað
til Eyja. Þegar um 12 mínútur vom
liðnar af leiknum var staðan, 5-8 og
bæði lið að spila virkilega vel.
Sigurður Bragason spilaði sem
leikstjómandi í þessum leik og náði
hann mjög vel saman við Svavar á
línunni. Eyjamenn spiluðu nokkuð
góða vöm í fyrri hálfleik, einbeitingin
var góð, sem og baráttan. Sóknin var
mjög frísk og voru þeir Svavar og
Guffi í miklu stuði. Framarar léku
einnig agaðan bolta og var Eyja-
maðurinn, Gunnar Berg Viktorsson,
nokkuð ógnandi meðan hans naut við,
en hann þurfti að yfirgefa völlinn
vegna meiðsla. Framarar héldu
forystunni út hálfleikinn og var staðan
í leikhléi, 12-13.
Gestimir byrjuðu betur í sfðari
hálfleik og héldu tveggja til þriggja
marka forskoti mest allan tímann.
Sigmar Þröstur og Guðfinnur héldu þó
Eyjamönnum alltaf inni í leiknum og
lokamínútumar vom æsispennandi.
Þegar 3 mínútur vom eftir var staðan
20-21, og allt á suðupunkti í höllinni.
En með glæsilegum endaspretti náðu
Eyjamenn að komast í 23-22 og
aðeins örfáar sekúndur eftir. Þá fengu
Framarar mjög umdeilt vítakast og
leiktíminn rann út. Allt trylltist í
höllinni og fengu fjórir Eyjamenn að
líta á rauða spjaldið á þessum síðustu
sekúndum. Framarar tóku vftakastið,
en Sigmar Þröstur kórónaði frábæran
leik með því að verja og tryggja ÍBV
sigurinn, 23 - 22.
ÍBV átti sannkallaðan stórleik á
fimmtudaginn. Guðfinnur var óstöðv-
andi, Svavar átti sinn besta leik á
tímabilinu, Sigurður lagði upp ófá
mörkin og Sigmar Þröstur kemur
manni endalaust á óvart. En að
sjálfsögðu var það liðsheildin sem að
skóp þennan sigur.
„ Þetta var mikill baráttuleikur. Við
spiluðum mjög skynsamlega og
hleyptum þeim aldrei langt frá okkur.
Mér fannst sóknin hjá okkur sann-
færandi allann leikinn og vömin var
mjög góð í seinni hálfleik. Þetta var
ljúfur sigur og sérstaklega er það
þægilegt að vera taplausir á heima-
velli,“ sagði Guðfinnur Krist-
mannsson, sem átti stórleik og skoraði
11 mörk.
Mörk ÍBV: Guðfinnur 11/5, Svavar
6, Sigurður 3, Valgarð 2, Davíð I.
Varin skot: Sigmar Þröstur 20/3.
Stuðningsmenn IBV í Eyjum hafa stutt sína menn dyggilega í vetur og
eiga sinn hlut í velgengninni á heimavelli.
JF w} 1 ■ í
w
Bikarkeppni HSÍ: ÍBV Old boys
Vörnin varð IBV að falli
ÍBVb fékk lið Völsungs frá Húsavík
í heimsókn, í 16-liða úrslitum
bikarkeppni HSI. Leikmenn IBVb
og flest allir Vestmannaeyingar,
höfðu beðið eftir þessum Ieik með
mikilli eftirvæntingu, sérstaklega í
Ijósi þess að sæti í 8-liða úrslitum
var í húfi.
Eyjamenn byrjuðu mjög illa í
ÍBV og ÍR mættust í 1. deild kvenna
á laugardaginn. Leikið var í Eyjum
og bjuggust flestir við öruggum
sigri IBV á nýliðum ÍR. Enda varð
sú raunin og urðu lokatölurnar 24 -
18 ÍBVÍvil.
Eyjastúlkur náðu ekki að hrista
gestina af sér í byrjun og voru í
töluverðum vandræðum allann fyrri
hálfleikinn. Vamarleikurinn var lé-
legur og sóknin var mjög ósann-
færandi. Mótstaða ÍR-inga setti ÍBV
þessum leik, lentu strax fjómm
mörkum undir, 1 -5 og eftir það var á
brattann að sækja. Vömin var eins og
gatasigti hjá heimamönnum og sóknin
gekk engan veginn upp, meðan
gestimir héldu sínu striki. Staðan í
hálfleik var, 12-15. I síðari hálfleik
fóm Eyjamenn aðeins að vakna til
lífsins og þegar um 15 mínútur vom
eitthvað út af laginu, en þrátt fyrir það
höfðu Eyjastúlkur tveggja marka
forystu í hálfleik, 13-11. IBV byrjaði
seinni hálfleikinn af mun meiri krafti,
hraðaupphlaupin gengu upp og með
þeim náðu heimamenn að leggja
gmnn að sigrinum. Vömin small
saman og sóknarleikurinn var mun
yfirvegaðri. Lokatölur leiksins urðu
þvi, 27-23.
Eyjastelpur em alls ekki að spila vel
þessa dagana. Mikið andleysi ríkir í
liðnar af hálfleiknum, náði ÍBV að
jafna, 21 - 21. Ahorfendur fóm þá
heldur að færast í aukana og héldu að
nú væri þetta loksins komið. En
eitthvað fór úthaldið að segja til sín hjá
okkar mönnum, því að gestimir settu í
annan gír, en heimamenn sátu eftir.
Það fór svo að lokum að Völsungur
sigraði með þremur mörkum, 27-30,
liðinu og samstaðan er í algjöru
lágmarki, sem sýnir sig best að liðið
lendir í vandræðum með afspymu-
slakt lið eins og nýliða ÍR.
Amela og Ingibjörg vom bestar í
liði ÍBV og einnig náðu Elísa og Hind
vel saman á vinstri vængnum.
Mörk ÍBV: Ingibjörg 9/1, Amela
8/2, Elísa 4, Hind 3/1, Guðbjörg 2,
Eyrún 1
Varinskot: Petra8
og b-lið IBV því úr leik að þessu sinni.
Vöm ÍBV varð þeim að falli í
þessum leik og líkamlegt ástand
manna tók sinn toll f lokin. Óskar
Freyr og Sigurður Ari vom bestu
menn ÍBV í þessum leik og Birkir
Kristinsson, landsliðsmaður Islands í
knattspymu, sýndi skemmtilega takta
í markinu. Þess má geta að í lið ÍBV
vantaði marga góða menn, eins og
Jóhann Benónýsson, Helga Bragason,
Þorstein Viktorsson og Þór Valtýsson,
og munaði um minna.
„Eg verð að segja það að ég er mjög
óánægður með stjómina, þá Eyþór og
Jóa. Það var mjög lítill undirbúningur
fyrir þennan leik og sumir héma vom
látnir vita í morgun (laugardag) að
þeir ættu að spila leikinn. En um
leikinn sjálfan, þá vom þeir bara betri
og byrjuðu betur. Við komumst
aðeins inn í leikinn í síðari hálfleik, en
líkamlega formið varð okkur að falli,“
sagði Óskar Freyr Brynjarsson, einn
besti maður IB V í leiknum.
Mörk ÍBV: Óskar Freyr 7/4,
Sigurður Ari 6, Sindri 3, Valdimar 3,
Sigurður F. 3/1, Sigurður I. 2,
Þorvarður 1, Davíð 2/1.
Varin skot: Birkir 7, Magnús 5,
Viðar 1.
Meistaradeild kvenna: Haukar 24 - IBV 18
Sisur sesn IR
Aðalfundur KFS
Aðalfundur Knattspyrnufélagsins
KFS, verður haldinn næstkomandi
sunnudag, 13. desember, í Ásgarði
og hefst hann klukkan 13.30. Von-
andi sjá flestir sérfært um að mæta.
Stjórnin
Þriðji flokkur kvenna
Helgina 27. - 29. nóvember fór
fram fjölliðamót 3. fiokks kvenna
og var leikið í Reykjavík. Slelp-
umar unnu einn og töpuðu einurn
fyrri daginn, en seinni daginn léku
þær einum manni færri, einhverra
hluta vegna, og töpuðu þá báðum
sínum leikjum. Urslit leikjanna
urðu þannig:
Valur-ÍBV 12-11
MörkÍBV: Hind 5, Edda 3, Anna
Rós 2, Kolbmn 2 og Aníta I.
ÍR-ÍBV 10-14
MörkÍBV: Hind 6, Anna Rós 2,
Aníta 2, Elfa 2, Eyrún 2.
ÍBV-FH 10-16
MörkÍBV: Eyrún 4, Hind 2, Aníta
2, AnnaRós l.Elfa 1.
ÍBV - Fylkir 15-17
MÖrk ÍBV: Hind 5, Eyrún 4,
Kolbrím 3, Elfa 2, Anna Rós 1.
Bikarleiknum
frestað
Bikarleikur ÍBV og HK, sem fara
átti fram á sunnudaginn, en var
frestað vegna veðurs, mun fara iram
miðvikudaginn 16. desember
klukkan 20:00. Þá hefur seinni
leikur ÍBV og Selfoss, í KÁ-
bikamum verið settur á föstudaginn
18. desember klukkan 20:00.
Leikurinn fer fram á Selfossi.
Allt óvíst með Birki
Vestmannaeyingurinn Birkir
Kristinsson, landsliðsmarkvörður,
er milli skipa í knattspymunni eins
og er, eða á lausu. Uppi hafa verið
sögur um að hann kynni að leika
hér á landi á næsta ári og þá jafnvel
með IBV. Jóhannes Ólafsson, hjá
knattspymudeild ÍBV, sagði að víst
væri þessi möguleiki fyrir hendi,
ýmislegt væri í skoðun. Aftur á
móti væri ekkert að segja eins og
væri. „Boltinn er hjá Birki og það
er hans að taka ákvarðanir.
Fulltrúar margra liða hafa rætt við
hann, þar á meðal IBV. En ekkert
er ákveðið ennþá,“ sagði Jóhannes
Ólafsson.
Framundan
Laugardagur 12. desember
Kl. 20.00 KA - ÍBV
Sunnudagur 13. deseniher
Kl. 20.00 HK - ÍBV
Óstaðfest met?
Á bls. 2 í blaðinu í dag er greint frá
fundi bæjarráðs sl. mánudag. Á þeim
fundi vom alls tekin fyrir átta mál.
Auk þeirra tveggja mála sem sagt er
frá á bls. 2 var tekið fyrir bréf frá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga um
framsetningu ársreikninga sveitarfé-
laga, bréf frá Stígamótum þar sem
óskað er eftir styrk, bréf írá úrskurð-
amefnd um upplýsingamál vegna
kæmmála Odds Júlíussonar, samn-
ingamál, og fundargerðir frá skóla-
málaráði og skipulagsnefnd. Fundur
bæjarráðs var settur kl. 16 á mánudag
og honum lauk kl. 16.15. Þessi átta
mál vom sem sagt afgreidd á 15 mín-
útum sléttum og er það óneitanlega
snaggaralegt. Einhverjir myndu
segja að hér væri um met að ræða.