Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 14.01.1999, Qupperneq 1

Fréttir - Eyjafréttir - 14.01.1999, Qupperneq 1
Slysavarnaskóli sjómanna var með námskeið fyrir sjómenn í síðustu viku þar sem m.a. var æfð björgun með þyrlu. Bls. 16. Menningarfé til Eyja Á dögunum gaf menntamála- ráðherra út yfirlýsingu um sam- þykkt ríkistjórnarinnar um að útdeila einum milljarði á næstu misserum til fimm staða á landinu hvar af einn er Vestmannaeyjar, til eflingar menningarstarfsemi á landsbyggðinni. Sigurður Einarsson formaður bæjar- ráðs segir að hann skilji þetta sem viljayfirlýsingu n'kistjórnarinnar. „Það er gert ráð fyrir því að þetta fé renni til bygginga menningarhúsa, eða til lagfæringar og eða uppbyggingar eldra húsnæðis. Þetta kemur á sama tíma og samþykkt um byggingu tón- listarhúss í Reykjavík og er kannski tóbak í friðarpípuna milli lands- byggðarinnar og höfuðborgarsvæð- isins að auki. Bæjarráð samþykkti þakkir og hefur komið þeim á framfæri við ráðherra ríkisstjóm- arinnar." Sigurður segir að mennta- málaráðherra muni skipa nelnd í framhaldi af þessari yftrlýsingu þar sem hugmyndimar verði þróaðar frekar. „Hvernig framhaldið verður og með hvaða hætti verður farið með þetta fé í Vestmannaeyjum get ég ekkert um sagt á þessu stigi málsins. Hins vegar er það ljóst að þetta er gott tækifæri fyrir Vestmannaeyinga. Þess vegna verður þetta fé notað með þeim hætti að það skili árangri og verði í samræmi við vilja ríkisstjórnarinnar. Það er alls ekki tímabært að tjá sig um þetta mál í smáatriðum, eða hvort farið verður í nýbyggingu eða endumýjun eldra húsnæðis." Fiórír lífeyríssjóðir kanna hagkvæmni á samruna: Frumkvæðifl kom frá Eyjum Á föstudaginn undirrituðu stjórnir Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja, Líf- eyrissjóðs Austurlands, Lífeyris- sjóðs verkalýðsfélaga á Norður- landi vestra og Lífeyrissjóðs Norðurlands viljayfirlýsingu um að könnuð verði hagræðing af samruna þessara sjóða. Frumkvæði að samrunaviðræðum lífeyrissjóð- anna kemur frá Vestmannaeyjum og segir Magnús Kristinsson, formaður stjórnar Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja að menn hafi ekki marga kosti í stöðunni þegar litið er til framtíðar. „Þessir lífeyrissjóðir þurfa að eflast ætli þeir að standa við skuldbindingar sínar og tryggja félögum sínum sem bestan lífeyri. Umhverfið er að breytast, verður erfiðara fyrir minni sjóðina. Með tilkomu séreignadeilda þarf mikið fjármagn til að ná sem hagstæðastri fjármögnun. Við gátum ekki farið einir af stað með okkar eigin séreignadeild og erum þess vegna með sameiginlega séreigna- deild með Lífeyrissjóði Norðurlands," segir Magnús. Hann segir að fyrsta skefið hafi verið að leita eftir samstarfi við lífeyrissjóði í Rangárvallasýslu og á Selfossi en þar á bæ haft enginn áhugi verið. „Það er deginum ljósara að lífeyrissjóðir eiga eftir að stækka um leið og þeim fækkar og við hefðum með tímanum runnið inn í einhvem af stóru sjóðunum í Reykjavík. Þetta er sú staðreynd sem við stóðum frammi fyrir eins og aðrir lífeyrissjóðir á landsbyggðinni. Með þessum viðræðum erum við að hafa áhrif á þróunina." Magnús segir að í sínum huga snúist málið ekki um persónur eða hvar aðalstöðvar sameiginlegs lífeyrissjóðs verða. Aftur á móti verði að tryggja að fjármagni úr sjóðunum verði beint inn á hvert svæði eins og stjóm Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja hefur haft að leiðarljósi. „Það ganga allir óbundnir til þessara samninga en mikið yrði ég hamingjusamur ef í vor lægju fyrir samþykktir um samruna sjóðanna," sagði Magnús að lokum. Hver var arkítekt Listaskólans? Þorgerður Jóhannsdóttir, oddviti minnihlutans í bæjarráði, hefur verið iðin við að bóka og koma með fyrirspumir á bæjarráðsfundum. Á síðasta fundi bæjarráðs var engin undantekning þar á. Þorgerður benti á að á gögnum Vestmannaeyjabæjar á Intemetinu væru allnokkrar vitleysur og bað um að þær yrðu leiðréttar og réttum upplýsingum haldið við. Þá óskaði Þorgerður eftir upp- lýsingum um hver verið hefði innanhússarkitekt við Listaskólann. Ekki fékkst svar við því á fundinum. þótt þar væm þrír aðalforkólfar sjálfstæðismanna en Þorgerður sagðist vonast til að fá svar á mánudaginn kemur. Þorgerður spurði líka hvort könnun hefði farið fram um vaming frá vernduðum vinnustöðum en 4. des. sl. var samþykkl að slík könnun færi fram. Ekki fékkst heldur svar við þeirri fyrirspurn og sagðist Þorgerður vænta svars við henni líka á mánudag. Á þessum sama fundi lagði Þorgerður einnig fram umbeðnar upplýsingar til formanns bæjarráðs sem hann óskaði eftir á fyrri fundi ráðsins um störf og uppbyggingu Sigurgeirs Scheving til ferðamála. Þetta kom fram vegna uppsagnar á samningi við þá aðila sem haft hafa aðgengi til kvik- myndasýninga í Félagsheimilinu. Þorgerður sagði að sér hefði þótt lítið gert úr 16 ára starfi Sigurgeirs að ferðamálum, sérstaklega þar sem aldrei hefði komið athugasemd um þau. En Sigurgeir hefði tekið saman skýrslu um störf sín og hefði hún verið afhent formanni bæjarráðs eins og um var beðið. Hasssmygtið á Breka: Gæsluvarðhaldið skal standa Að sögn Karls Gauta Hjaltasonar sýslumanns er úrskurður fallinn í Hæstarétti í kærumáli kvennanna tveggja sem úrskurðaðar voru í gæsluvarðhald vegna hassmálsins sem upp kom í síðustu viku. Samkvæmt úrskurði Hæstaréttar sem birtur var rétt fyrir hádegi í gær staðfestir hann gæsluvarðhaldið yftr hassdömunum. Karl Gauti sagði auk þess að rannsókn málsins miðaði vel áfram. „Þetta er umfangsmikið mál," segir Karl Gauti. „í kílóum metið er þetta stærsta fíkniefnamál sem upp hefur komið á landinu á undanfömum missemm." Karl Gauti segir að í framhaldi af þessu máli verði fíkniefnasölum og eiturlyfjasmyglumm engin grið gefin í Vestmannaeyjum. „Við höfum unnið markvist að fíkniefnamálum í haust og fundur þessa hass á dögunum er tvímælalaust árangur af því.“ Fréttir em með ítarlega umljöllun um stöðu fíkniefnamála í Vestmanna- eyjum í blaðinu í dag þar sem rætt er við fjölda manns sem afskipti hafa af slíkum málum, hvort heldur í forvamarstarfi eða löggæslu. (sjá bls. 14 og 15). Verbúðir í notkun á ný Vinnslustöðin er að taka ver- búðirnar í notkun á ný eftir tíu ára hlé. Sighvatur Bjamason lramkvæmda- sjóri Vinnslustöðvarinnar segir að Vinnslustöðin geri ráð fyrir að um íjömtíu manns ntuni verða í vinnu hjá stöðinni fram á vor vegna loðnuvertíðarinnar. „Viðgerumráð fyrir að þetta verði aðallega Skandinavar sem koma hingað til vinnu vegna loðnuvinnslunnar auk bolfiskvinnslunnar, en það hefur reynst erfitt að fá heimamenn til starfa og enn þá vantar töluvert af karlmönnum í vinnu hjá okkur. Þetta er líka hluti af breyltum tíðar- anda í sambandi við vinnutíma land- vinnslufólks og einhvern veginn verðum við að mæta þessum nýju kröfum." Sighvatur segir að nú sé Kap á loðnu fyrir austan land og að hún hafi landað 180 tonnum á Eskifirði fyrr í vikunni. „Sighvatur Bjamason VE kernur um aðra helgi eftir breytingar í Póllandi og hann mun hefja loðnuveiðar strax." > Vetraráœtlun Herjólfs Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f. RÉTTINGAR OG SPRAUTUN: Flötum 20 - Sími 481 1535 VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ: Græðisbraut 1 - sími 481 Mán - lau Sunnudaga 1-f eriólfur Frá Eyjum Frá Þorl.höfn kl. 08.15 kl. 14.00 kl. 12.00 kl. 18.00 Sími 4812800 Fax 4812991

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.