Fréttir - Eyjafréttir - 21.01.1999, Blaðsíða 20
FLUTNINGAR - VESTMANNAEYJUM
Daglegar hrtlr hvarf á land sem er•
Vöruafgreiðsla
Sldldingavegi 4 Sími 481 3440
Vöruafgreiðsla í Reykjavík
Aðalflutnlngar Höðinsgötu 3
Sími S81 3030
Það var mikið um dýrðir á árlegri skemmtun eldri borgara sem Kvenfélagið Líkn hélt í Akóges
á föstudagskvöldið. Þarvoru mættm.a. Diddi, Fríða, Rebekka, Kristín , Perla og Kiddý.
Síldarvertíð lokið hjá ísfélaginu:
011 sfldin íárfór í frysdngu
„Síldarævintýrinu er lokið í ár,“
segir Einar Bjarnason verkstjóri
hjá Isfélaginu. Einar segir að
þokkalega hafi gengið á þessari
vertíð. „Þetta var falleg og góð sfld
hráefnislega séð sérstaklega eftir
áramót. Við vorum að klára að
flaka og frysta það síðasta sem kom
á land til vinnslu hjá okkur í gær.
Við náðum því sem við máttum
veiða, eða 2400 tonn og það fór allt
í frystingu.“
Einar segir að ísfélagið hafí aðeins
gert út eitt skip, Antares á þessari
sfldarvertíð. „Við stóðum hins vegar
ágætlega að vígi, því Antares var
gerður út bæði á nót og flottroll. Hins
vegar veiddist miklu meira í nótina.“
Einar segir að ágætis veiði hafi verið
í bolfiskinum það sem af er og að
staðan í bolfiskkvótanum sé þokkaleg.
„Það eru þrjú skip á þeim veiðum
núna, Bergey, Alsey og Heimaey og
þau hafa verið að fá mjög þokkalegan
afla, auk þess sem alltaf sé eitthvað
keypt á markaði. Þessi afli hefur farið
jafnt í frystingu og stærri þorskurinn í
salt.“
Af loðnuveiðum segir Einar allt gott
og að undirbúningur sé í fullum gangi
svo allt verði klárt þegar loðnan fer að
færa sig austur og suður með landinu.
„Að öllum líkindum munu Antares,
Guðmundur, Gígja og Sigurður fara
til loðnuveiða og við erum bjarsýnir á
að loðnan fari að sýna sig upp úr
miðjum febrúar hér við Eyjar, en þá á
hún að vera komin í gott frysting-
arhæft ástand,“ segir Einar.
Sviðs-
stjórar fá
launa-
hækkun
Samhliða því að tekið er í
notkun nýtt skipurit fyrir Vest-
mannaeyjabæ var ákveðið að
veita ellefu embættismönnum
bæjarins launahækkanir.
Nema þær um 12,8 prósent að
meðaltali, eða frá 5 prósentum upp
í 22 prósent. Páll Einarsson bæjar-
ritari segir þetta viðleitni til að
koma til móts við starfsmennina.
Þeir sem fá þessar launahækkanii
eru nteðal annars þeir sem gegna
störfum sviðsstjóra samkvæml
hinu nýja skipuriti.
Sjá nánar um skipuritið bls. 18
Utskrift
I gær útskrifuðust 26 manns af
grunnnámskeiði fiskverkunar-
fólks sem haldið hefur verið
síðustu vikur í Vestmanna-
eyjum.
Þar með hafa 946 manns lokið
námskeiðum fiskverkunarfólks í
Vestmannaeyjum á þeim tæplega
tólf árum síðan námskeiðin hófust.
________________________________________■
Sendibílaakstur innanbæjar,
Vilhjálmur Bergsteinsson
SGMÐÍPEMABÍLl.
0481-2943,
10 897-1178
Sambýlis-
konan
laus úr
haldi
Konurnar tvær, sem handtekn-
ar voru, grunaðar um aðild að
hassmálinu sem upp kom um
næstsíðustu helgi, eru nú báðar
lausar úr gæsluvarðhaldi.
Sú fyrri losnaði í síðustu viku en
sambýliskona mannsins sem enn
situr inni, var látin laus á þriðjudag.
Hennar þáttur er talinn full-
rannsakaður en hún neitar allri
aðild að innflutningnum. En
karlmaðurinn, sem er í haldi vegna
innflutningsins, situr enn inni.
Gæsluvarðhaldsúrskurður hans
rennur út hinn 31. janúar en varð-
haldið gæti orðið styttra, teljist
málið fullrannsakað fyrir þann
tíma.
Foktjón á 30
stöðum
Talsvert tjón varð í norðan-
bálinu á laugardagsmorguninn.
Ekki varð neins staðar mikið tjón
en samkvæmt upplýsingum trygg-
ingafélaganna bárust tilkynningar
um tjón á 30 stöðum.
Sjá bls. 8.
EDET salemispappír, munstraður, 8 rúllur í pakka Kr.244 187 pkn.
EDET eldhúsbréf, 2 stk. Kr149 99 pk.
GEUALf A kaffi 500 gr. Kr.369 399 pk.
GEVALÍA kaffi 250 gr. Kr. 218 158 pk.
DAJM ORANGE Kr115 69stk.
KttTLU rasp, gullið Kr134 109 pk.
KÖTLU kartöflumús Kf.99 73 pk.
WASA hrökkbrauð, Sport og Delicate Kr137 119 pk.
WASAhrökkbrauð Kr165 139 pk.