Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 21.01.1999, Blaðsíða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 21.01.1999, Blaðsíða 16
16 Ekgfctir Fimmtudagur 21. janúar 1999 Nýlt skipurit hjá Vestmannaeyjabæ: Stjórnsýslu skípt upp í fjögur svið Bæjarstjórn hel'ur hefur samþykkt nýtt skipurit fyrir Vestmannaeyja- bæ og stofnanir hans og tók það gildi l'rá og með 1. janúar á þessu ári. Páll Einarsson bæjarritari segir að ekki hafi verið fenginn neinn sér- fræðingur til þess að leggja drög að þessari útfærslu skipuritsins. „Þetta var samþykkt einhuga af meiri- hlutanum, en minnihlutinn sat hjá við atkvæðagreiðslu málsins. Við höfum byggt þetta upp á svipaðan hátt og önnur sveitarfélög hafa verið að gera hjá sér. Ég get nefnt Garðabæ og Mosfellsbæ sem dæmi um það.“ Skipuritinu er skipt í fjögur svið (málailokka) ásamt því að stofnanir með sjálfstæðan fjárhag em utan þessara sviða ( málaflokka). Sviðin eru I. Fjármál- og stjórnsýsla. Undir það svið heyra meðal annars almenn stjóm og hagsýsla, bókhald, tölvur og starl'smannamál og er bæjarritari sviðsstjóri þar. 2. Félagsþjónusta sem hefur með málefni fatlaðra að gera, heilbrigðismál, íþrótta- og jafnréttis- mál, svo eitthvað sé nefnt og sviðsstjóri er félagsmálastjóri. 3. Fræðslu- og menningarmál, hvar undir eru meðal annars skólarnir og safnamál, sviðsstjóri er skóla- og menningamálafulltrúi. 4. Tækni- og umhverfissvið, en undir það svið heyra meðal annars bæjarskipulag, umhverftsmál og hreinlætismál, sviðs- stjóri þar er bæjartæknifræðingur. Utan þessara sviða eru svo stofnanir með sjálfstæðan fjárhag eins og Bæjarveitur, Hafnarsjóður og féiags- legar íbúðir. Yfir öllu þessu er svo bæjarstjórn og bæjarstjóri. Hliðar- greinar kerfisins em svo bæjarráð hvar undir em hinar ýmsu nefndir og ráð. samþykkti ráðið að bæjarstjóra verði með tillögur að innra skipulagi hvers þar um fyrir 15. febrúar næstkomandi Við afgreiðslu málsins í bæjarráði falið í samráði við sviðsstjóra að koma sviðs fyrir sig og beri að skila tillögum Aðventsöfnuðurinn í Vestmanna- eyjum 75 ára þann 26. janúar Þann 26. janúar n.k. verða 75 ár frá stofnun Aðventsafnaðarins í Vest- mannaeyjum. Söfnuðurinn er í litlu kirkjunni við Brekastíg. Við miðbik aldarinnar voru safnaðarmeðlimir vel á annað hundrað. Má nú muna fífil sinn fegri Er söfnuðurinn nú að líða undir lok? Mikil breytingvarð eftir gos. Afturför átti sér stað eftir þennan viðburð þar eð margir safnaðarmeðlimir komu ekki aftur. Þróttmikið starf Boðun á vegum safnaðarins hófst um 1922 og við lok ársins 1924 vom safnaðarmeðlimimir orðnir um 60 talsins. Tveimur árum síðar, árið 1926, hafði söfnuðurinn komið upp kirjubyggingunni sem nú stendur við Brekastíginn. Aftur tveimur áram síðar, eða 1928, hóf söfnuðurinn rekstur bamaskóla sem var starfræktur í um hálfa öld. Bamaskólinn sem rekinn var frá 1928 hætti fljótlega eftir gos því bamafjöldi safnaðarins hafði dregist töluvert saman. Þó að töluverður Ijöldi nemenda skólans haft ætíð verið frá fjölskyldum utan safnaðarins var það samt megintilgangur skólans að sjá bömum safnaðarfólks fyrir kristilegri menntun. Eftir þetta rak söfnuðurinn skóladagheimili í húsakynnum sínum í samvinnu við bæjarstjóm Vest- mannaeyja. Sá rekstur er nú alfarið í höndum ítæjarins. Sumir bæjarbúar gætu ímyndað sér að bráðlega muni þessi söfnuður í litlu kirkjunni á Brekastíg hafa mnnið sitt skeið og sé að líða undir lok. Ekki afgreiða hann of fljótt! Hann stendur á traustbyggðum gmnni. Stofninn er sterkur! Það er eitthvað sérstakt við þennan söfnuð! Hann er hluti heimskirkju Aðventista sem er ein þeirra mótmælendakirkna sem vaxa örast á heimsmælikvarða. Búa yfir ntiklum þrótti. Hvers vegna skyldi þetta vera? Tilgangur safnaðarins Hver er leyndardómurinn að baki þessum þrótti? Hlutverk safnaðarins og trúmennska við hann. Boðskap- urinn er nútímalegur: Persónulegt samfélag við Jesú Krist sem tekur til alls lífs einstaklingsins. Hann lætur gott af sér leiða. Hann helgar líf sitt Drottni með því að fara vel með líkama sinn hvað snertir mataræði og annað sem að góðri heilsu snýr. Hann fómar af tíma sínum og tjármunum til þess að riki Drottins megi dafna. Eitt meginmarkmið er að láta gott af sér leiða Baðhúsið sem stóð við Bámgötuna, og fáir muna núorðið nema þeir elstu, var byggt í tvennum tilgangi. Til að vera fyrsta samkomuhús safnaðarins og til þess að hýsa nuddstofu sem var rekin um árabil af danskri konu, Heidi Hinriksen, og öðmm. Systrafélagið Alfa leitaðist við að hjálpa þar sem neyðin var stærst. Bnrnaskólinn og Skóladagheimilið Hjálparstarf aðventista sem í sam- vinnu við ADRA Intemational (Adventist Development and Relief Agency - Alþjóða þróunar og líknarstofnun aðventista) veitir fé til þróunar- og líknarstarfs í þriðja heiminum. Hjálparstarf aðventista Gegnum árin hefur söfnuðurinn gengist fyrir söfnun til hjálpar bágstöddum í þriðja heiminum og ætíð notið einmuna undirtekta af hálfu Vestmannaeyinga. Þrátt fyrir að söfnuðurin sé nú fámennur tókst að gera átak í söfuninni í ár og vill söfnuðurinn koma á framfæri inni- legum þökkum til þeira bæjarbúa sem sáu sér fært að leggja söfnuninni lið að þessu sinni með framlögum sínum. Söfnuðurinn hefur allt frá fyrstu tíð notið hlýhugar og velvilja frá for- ráðamönnum svo og almennum þegnum þessa bæjarfélags. Stuðnings við söfnunarstarfið, rekstur skólans og skóladagheimilisins. Talað um kreddur þessa safnaðar. Samt mætt skilningi og hlýhug Söfnuðurinn er orðinn fámennur núna, en sama óskin er enn megin- uppistaða safnaðarhaldsins; þrá eftir að láta gott af sér leiða og að geta verið mannbætandi afl í byggðar- laginu. Gera fólk að betri þjóðfé- lagsþegnum. Og svo beina sjónum þeirra til enn betra samfélags en þess sem við njótum hér á þessari jörð. Þessi jörð er ekki endanleg heim- kynni mannsins. Hann á eitthvað betra í vændurn. Gemmst reiðubúin að verða þegnar þess ríkis. Ævarandi vinátta við Guð Um þessar mundir vinnur söfnuður- inn að því að þýða og texta mynd- bönd með sérstöku efni fyrir ungt fólk Frétt frá Aðventistum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.