Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 21.01.1999, Blaðsíða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 21.01.1999, Blaðsíða 14
14 Fréttir Fimmtudagur 21. janúar 1999 Þetta er hug- sj ónastarf -Hlíf Sigurjónsdóttir nemi í mann- fræði skráir muni á Byggðasafninu Hlíf segir að starfið sé fólgið í skráningu á munum safnsins og þetta sé suona hálfgert happa og glappa dæmi. Hlíf Gylfadóttir er að ljúka BA prófi í mannfræði við Háskóla íslands og vinnur nú í fullu starfi í fjóra mánuði í k jallara Byggðasafnsins við skráningu á munum safnsins. Hlíf er Vestmannaeyingur, dóttir Lilju Þorsteinsdóttur og Gylfa Sigurjónssonar fyrrverandi bankastarfsmanns í Islandsbanka og hefur verið á flakki milli lands og Eyja frá því að hún hóf menntaskólanám í Reykjavík og varð stúdent 1986 frá Fjölbrautaskólanum við Armúla af viðskiptabraut, en einnig á meðan hún var við nám í Háskólanum. Hlíf grúfir sig yflr ýmsa pappíra og bækur og yfir mig kemur baðstofufílingur að sjá hana þarna, ef ekki væri fyrir rafmagnsljósin í loftinu, lítið útvarpstæki og síma. Hlíf segir að hún hafí tekið sér nokkurn tíma til að komast að hvaða nám hana langaði í eftir að hún lauk stúdentspróli. „Þegar ég fór að hugsa um þetta endaði ég í félagsvís- indadeildinni. Ég ætlaði að læra félagsfræði, en tók einn kúrs í mannfræði og féll fyrir því fagi og sneri mér alfarið að því. Þetta er bara eitthvað sem hefur verið einhvers staðar í undirmeðvitundinni frá því ég var krakki. Þegar ég liugsa til baka þá eru það margar mannfræðitengdar bækur sem Itafa verið uppáhalds- bækurnar mínar í gegnum líðina. Þetta er því ekkert skrítið, það tók bara dálítinn tíma að upgötva það.“ Saga mannsins frá upphafí Um hvað fjallar mannfræðin? „Það er kannski dálítið erfitt að segja það í stuttu máli, en mannfræðin er saga mannsins frá upphafi. Hún fjallar bæði um þróunar- og menn- ingarsögu hans. Þannig má segja að mannfræðingar skoði allt sem viðkemur manninum, samfélagið sem hann býr í og þróun hans í því samfélagi. Mannfræðin, finnst mér, er blanda af félagsvísindununt og svo- lítið meira. Formlega er hægt að segja að mannfræðin fjalli um sögu mannsins sem lífveru í tengslum við aðrar tegundir, umhverfí og menningu, og hvað maðurinn sem lífvera tekur sér fyrir hendur í því umhverfi sem hann lifír í. Mann- fræðin skarast því oft við önnur fög og mannfræðingar nota oft bæði aðferðir og hugtök sem tíðkast í öðrum greinunt innan félagsvísindanna." Hlíf segir að þetta starf sem hún hefur nú með höndum á Byggða- safninu tengist kannski sagnfræðinni meira en mannfræðinni. „Mér hefur alltaf þótt sagnfræði skemmtileg og þegar maður blandar saman sagnfræði og mannlegri hegðun, verður þetta ennþá skemmtilegra. Það er hægt að skoða svo marga hluti í tengslum við samskipti fólks, hvernig það hagar sér og hvers vegna. Þetta byggist kannski mest á almennri forvitni og það er oft hægt að segja að þó ntannfræðin hafí ekki komið fram sem formleg vísindagrein fyrr en um miðja síðustu öld hafí fyrsti mannfræðingurinn verið forvitinn ferðalangur, sem skráði lýsingar á því samfélagi sem hann heimsótti. Kaupmenn sem sigldu til fjarlægra landa og skráðu lýsingar á fólkinu sem þeir hittu og lifn- aðarháttum þess, það er hægt að segja að þeir hafi verið fyrri tíma mann- fræðingar. I því tilliti hefur mann- fræðin fylgt okkur frá upphafi þó hún hafi ekki verið flokkuð sem vísindagrein fyrr en mörgum öldum síðar.“ Eyjamenn áhugaverðir út frá mannfræðinni Eru Vestmannaeyingar áhugaverðir út frá mannfræðinni? „Já, það er ekki spurning. Það eru margir áhugasamir um rannsóknir sem tengjast sjó, sjávarútvegi, lífí fólks í sjávarsamfélögum og þær breytingar sem hafa orðið á lífi fólks og tilveru á síðustu áratugum. Það eru mannfræðingar sem hafa áhuga á efnum tengdum sjávarútvegi og ég man eftir í fljótu bragði Gísla Pálssyni sem er Vestmannaeyingur og hefur stundað mikið af rannsóknum tengdum sjávarútvegi og Unni Dís Skaptadóttur sem einnig hefur stundað rannsóknir í tengslum við fólk í sjávarplássum.“ Nú ertu að byrja að skrifa BA ritgerð þína þessa dagana og viða að þér heimildum. Unt hvað ætlar þú að skrifa? „Já, það er rétt. Mig langar til að kynna ntér siði og venjur sent tengjast sjómennsku. Ritgerðin er hins vegar rétt á byrjunarstigi núna og ég að hefjast handa við að safna að mér gögnum. Ég ætla nú að leyfa efninu að stjóma því sjálft hvaða póll verður tekinn í hæðina, vegna þess að siðir og venjur geta verið mismunandi eftir bátum og einstaklingum. Það má tengja þetta við allt mögulegt til dæmis hvaðan menn em ættaðir, hvort þeir hafa vanist á ákveðna siði þar sem þeir hafa verið til sjós, fjölskyldan, því að hér eru menn sem em af ættum sem hafa stundað sjómennsku í margar kynslóðir. Verklag sem menn koma sér upp og siðir sem spretta af því og svo framvegis." Getur þetta tengst hjátrú? , Já alveg eins. Hún getur verið hluti af svona rannsókn. Siðir og venjur em svo breitt hugtak að það gefur kannski möguleika á fleiri flötum. En eins og ég segi er þetta allt á vinnslustigi." Snúum okkur aðeins að Byggða- safninu og vinnu þinni sem snýr að því. Þú situr hér dúðuð í þykkar peysur, skrifar í einhverjar kompur og flettir bókurn og spjöldum. I hverju er starfíð fólgið og hvemig kom það til? „Starfið er fólgið í skráningu á munum safnsins og þetta var svona hálfgert happa og glappa dæmi. Ég frétti það utan af mér að einhver hugmynd væri í gangi um að koma skráningu muna safnsins á skipulagt form. Ég lét í ljós áhuga á að fá að taka þátt í þessu, ef fjárveiting fengist til verksins, vegna þess að mér þótti þetta spennandi. Það gekk upp og ég vaið mjög ánægð. Ég er búin að vera í eina viku við þetta og rétt að komast inn í starfið, en þetta er fjögurra mánaða verkefni í fullu starfí. Hvort tekst að klára þetta á þeim tíma verður bara að koma í Ijós. Það er kannski ekki auðhlaupið að vinna þetta verk, því hér er fullt af hlutum sem em ónúmeraðir, svo að ég verð að byija á að fínna söguna á bak við þá og setja þá inn í kerfið.“ Nútímaleg skráning Hvernig er ástandið á skráningu ntuna safnsins frá þínum sjónarhóli eftir vikustarf? „Það er ekki hægt að tala um neina nútíma skráningu (tölvuskráningu) á munum safnsins. En til þess var ég ráðin, að bæta úr því.“ Hlíf segir að Ragnhildur Vig- fúsdóttir sagnfræðingur og safnfræð- ingur hafí geil úttekt á safninu árið 1992 að beiðni Menningarmála- nefndar. „Ég kem bara að skrán- ingarpartinum í þessari lotu. En í þessari úttekt sem gerð var á safninu em settar fram ýmsar hugmyndir um hvað mætti gera í sambandi við sýningar, auglýsingar á því og sér- hæfingu þannig að safnið yrði meira einkennandi fyrir Vestmannaeyjar, því að þetta er sjávarpláss með mjög langa sögu tengda sjónum og sjósókn, en það er stungið upp á sérhæfðari sýningum tengdum sjónum og að fólk sem heimsækir safnið geti gengið í gegnum söguna og haft gagn og gaman af því um leið. Safnið hefur hins vegar mjög takmarkað pláss. En vegna þess mætti setja upp smærri sýningar, eins og bent er á í úttekt Ragnhildar í tengsluin við Pósthúsið, Heilbrigðisstofnunina, Flugstöðina eða Herjólf. Það mætti hæglega setja upp sýningarskápa á þessum stöðum sem tengjast sögu jxiira. Það yrði líka auglýsing fyrir Byggðasafnið í leið- inni. I dag tekur fólk ekki eftir nema hlutimir séu auglýstir. Mér dettur ekki í hug að leita uppi byggðasafn sem ég veit ekki af. Þeir sem eru að koma hingað verða að vita af því sem hér er í boði um leið og þeir koma á flugvöllinn eða á afgreiðslu Herjólfs. Þetta er spuming urn að sem flestir sjái strax hvað er í boði.“ Fannstúenaóuinnandi Hvemig vinnur þú þessa skráningu? „Fyrsta daginn settist ég nú bara niður og hugsaði: „O, guð minn góður, þetta er óvinnandi,“ segir Hlíf og hlær. „Svo fór ég að skoða hvað væri til skráð. Þau gögn sem ég hef úr að vinna em minjaskrá. ársskýrslur og dagbækur safnsins. Ég byrjaði á að fara í minjaskránna og bera hana saman við spjaldskrá sem er til og glöggva mig á henni því að þama eru mjög miklar og gagnlegar upplýs- ingar. Svo er ég búin að ganga um safnið til þess að átta mig á þeirn hlutum sem þar eru og fá einhverja mynd af skipulaginu, þannig að ég geti gengið að því hvar hlutimir em. Einnig hef ég skoðað spjaldskrána, sem inniheldur upplýsingar um hluti sem hafa komið inn í safnið frá 1986, en þá er maður kominn með nokkuð heillega mynd, en þetta em allt hlutir sem þurfa að fá númer og svo þarf ég að finna hvar þeir em, því að margir hlutir em ekki í salnum heldur í geymslu. Þetta er því ekki sjálfgefið. Ég skoða því spjaldskrá, dagbækur og ársskýrslur, þar ættu að koma fram allar upplýsingar sem ég þarf að nota unt gjafir til safnsins. Þetta nóta ég svo hjá mér og reyni að koma í eina heild. Þetta er því dálítið pappírsflóð." Hlíf segir að vinna við þetta starf sé Rokkarnir eru Hagnaðir en sóma sér uel á safninu.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.