Fréttir - Eyjafréttir - 29.06.2000, Side 1
27. árgangur • Vestmannaeyjum 29.júní 2000 • 26. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími:481 3310 • Fax:481 1293
FJÖR á íþróttahátíð leikskólanna.
Nýir sjálfvirkir
jarðskjálftamælar
innan tveggja vikna
-Líklega hefur styrkur 17. júnískjálftans verið 4 til 4,5 í Eyjum
Á fundinum sem Almannavarna-
nefnd Vestmannaeyja boðaði til
síðastliðinn fímmtudag varð fólki
nokkuð tíðrætt um uppsetningu og
staðsetningu jarðskjálftamæla í
Vestmannaeyjum.
Kom fram á fundinum að í dag eru
tveir jarðskjálftamælar í Eyjum, annar
þeirra er staðsettur austur á Nýja-
hrauni og er á vegum Náttúrustofu
Suðurlands en hinn er staðsettur á
Stórhöfða og er á vegum Raun-
vísindastofnunar Háskóla íslands.
Þótti það nokkrum undrum sæta
meðal fundarmanna að engar upplýs-
ingar lægju fyrir um stærð skjálftanna
frá Eyjum. Kom fram í máli Armanns
Höskuldssonar, eldfjallafræðings og
forstöðumanns Náttúrustofu Suður-
lands, að styrkur skjálftanna sé alltaf
mestur við upptökin og að síðan dragi
úr áhrifunum eftir því sem tjær dregur
upptökum þeirra. Að teknu tilliti til
þess taldi Armann ekki óvarlegt að
áætla að skjálftamir á dögunum hafi
mælst um 4 til 4,5 stig á Richters-
kvarða í Eyjum. „Þetta eru ekki
sjálfvirkir mælar og það er ekki lesið
reglulega af þeim, nema upp komi
eitthvað sérstakt. Hins vegar þá nemur
jarðskjálftamælinetið uppi á landi ef
mikil og óvenjuleg hreyfmg verður í
Eyjum, þannig að það er fylgst með
hreyfmgum jarðskorpunnar hér.“
Um stöðu jarðskjálftamælinga í
Eyjum nú sagði Ármann að innan
tveggja vikna yrði búið að setja upp
þá jarðskjálftamæla sem beðið hefði
verið eftir frá því í janúar. „Þetta er
sjálfvirkt kerfi sem sett verður upp og
saman stendur af einum jarðskjálfta-
mæli sem staðsettur verður undir Litla
Klifi og svo GPS staðsetningartæki
sem verður komið fyrir í Helga-
fellshrauni. En GPS-mælirinn mælir
staðsetningu Heimaeyjar upp á brot úr
millimetra."
Ármann sagði að því miður hefðu
ýmis atriði valdið því að ekki væri
búið að setja mælana upp. í raun er
allt tilbúið fýrir uppsetningu mælanna
og því ætti ekki að taka langan tíma að
koma þeim fyrir þegar þeir koma til
Eyja. „Þessi dráttur helgast af önnum,
fýrst vegna Heklugoss fyrr á árinu,
vegna nauðsynlegrar viðhaldsvinnu
við mælana sem þegar eru í notkun,
svo vegna þeirra jarðhræringa sem
skekið hafa Suðurland að undanfömu.
En við vonum að nú fari að finnast
tími til að klára þetta mál og mælamir
vonandi komnir upp innan tveggja
vikna. Tilvera mælanna hér í Eyjum
mun að sjálfsögðu auka öryggi okkar
Eyjamanna."
Ármann vildi koma því að ekkert
beint samhengi væri á milli þeirra
Suðurlandsskjálfta og eldvirkni í
Eyjum út af fyrir sig. „Það verður hins
vegar að líta á hreyfmgar jarðskorp-
unnar í stærra samhengi. Það sem er
að gerast í jarðskjálftunum á Suður-
landi er í samgengi við jarðskorpu
hreyfingar á norðurhveli jarðar, megin
hreyfingin er gliðnun á gosbeltum
landsins, sem hefur aftur áhrif á þessar
hreyfingar á Suðurlandi. Allt er þetta
eðlilegt og vísindamönnum kunnugt.
Hins vegar ber að hafa í huga að
íslensk jarðskorpa er til muna þynnri
og heitari en jarðskorpan á megin-
löndunum og þess vegna fáum við
aldrei eins sterka jarðskjálfta og þar
geta orðið. En auðvitað er ekkert
óeðlilegt við að fólki bregði með
tilheyrandi áhrifum á sálarlífið,“ sagði
Armann.
F
Rífandi gangur í frystingunni hjá Isfélaginu
Mikill kraftur hefur verið í bol-
fískvinnslunni í Isfélaginu og hafa
ekki fleiri starfað við frystinguna en
einmitt nú. Um er að ræða fisk af
eigin skipum félagsins og eins hefur
verið mikið framboð á fiskmörk-
uðum hér og uppi á landi og það
hefur Isfélagið nýtt sér. Er fram-
leiðslan að skila ágætri framlegð
fyrir félagið.
Jón Ólafur Svansson, framleiðslu-
stjóri Isfélagsins, segir að í dag starfi
um 130 starfsmenn við frystinguna og
hafi starfsfólk ekki verið fleira við
bolfiskvinnsluna hjá félaginu í annan
tíma. „Við höfum fengið mikinn karfa
og höfum við getað nýtt humar-
krakkana við lausfrystinn," segir Jón
Ólafur.
„I sumar hefur verið góð sigling hjá
okkur bæði í humri og bolfiski.
Humarkvótinn okkar er tólf tonn af
skottum og hann er búinn. Bolfisk-
vinnslan heldur áfram á fullu fram að
miðvikudegi fyrir þjóðhátíð en þá
lokum við í fjórar vikur vegna
sumarleyfa.“
Bolfiskskip Isfélagsins hafa verið að
í sumar en auk þess hefur mikið verið
keypt á fiskmörkuðum. „Við höfum
keypt mikinn fisk á mörkuðum, bæði
hér og uppi á landi enda nægt fram-
boð og gott verð. Ástæðan er held ég
mikið fiskirí og að sumarfrí eru farin
að segja til sín en þá setja frystihús,
sem eru með skip í beinum við-
skiptum, fisk á markað til að hafa
undan."
Jón Ólafur segir afkomuna góða í
frystingunni og framleiðslan fer
aðallega á markað í Evrópu og
Bandaríkjunum. „Það er ágætis
framlegð hjá okkur annars værum við
ekki að þessu af svona miklum krafti.
Karfinn fer mest á Evrópu en þorskur,
ýsa og ufsi fara á Bandaríkjamarkað.“
í dag vinna 130 manns í frystingunni í ísfélaginu.
ÖRVGGI
á öllum svcium1
TM-ÖRYGGI
FYRIR
FJÖLSKYLDUNA
Sameinar öll Iryggsngamálin
á einfaldan og
hagkvæman hátt
Bílaverkstæðið Bragginn s.f.
Réttingar og sprautun
Flötum 20 - Sími 4811535
Viögerðir og smurstöö
m
Sumaráætlun
Frá Eyjum Frá Þorlákshöfn
Alladaga. kl. 08.15 kl. 12.00
Aukaferðir fimmtud., föstud. og sunnud.
kl. 15.30 kl. 19.00
4f^HerjóHur
Sími 481 2800 - Fax 481 2991