Fréttir - Eyjafréttir - 29.06.2000, Blaðsíða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 29. júní 2000
fréttir
Svæðin vöktuð
AIls voru 180 færslur í dagbók
lögreglunnar í sl. viku og er það
heldur meira en í vikunni á undan.
M.a. stóð lögregla í ströngu við að
fylgjast með þeim svæðum þar sem
búast mátti við hruni eftir jarð-
skjálftana þann 17. og 21. júní sl.
Verða sömu svæði lokuð þangað til
annað verður ákveðið.
Þrjár árásir
Þijár líkamsárásir voru tilkynntar til
lögreglu eftir helgina en kærur
liggja ekki lyrir. Þá var kærður
þjófnaður á reiðhjóli en því var
stolið l'rá ísfélaginu þann 20. júní.
Rúðubrot og
skemmdir
Sex eignaspjöll voru kærð til lög-
reglu í vikunni. í fjórum tilvikum
var um rúðubrot að ræða. í Bama-
skólanum, Gistihúsinu Hamri, að
Foldahrauni 42 og í vinnuskúr við
Löngulág. Þá vom unnar skemmdir
á reiðhjóli við Foldahraun 41 og
skemmdir urðu á bifreið við
Heimagötu þegar gijót lenti á henni.
Smábrunar
Tveir brunar voru tilkynntir lög-
reglu í vikunni. Á miðvikudag var
eldur laus í ruslageymslu við
Foldahraun 42 en búið var að
slökkva hann þegar lögregla kom á
staðinn og urðu skemmdir litlar sem
engar. Þá var tilkynnt um eld í
mslafötu í Norðursundi á laugardag
en litlar skemmdir urðu á öðm en
fötunni.
Stöðvið við Ijósin
Lögregla vill rninna ökumenn, sem
eiga leið um gatnamótin með
umferðarljósunum við Shandveg, á
að þar sem ekki er stöðvunarlína við
götuvitana, ber ökumönnum að
stöðva ekki nær gatnamótunum en
á móts við götuvitana. Allt of oft
hefur komið lyrir að ökumenn haft
stöðvað nokkmm metrum innar á
gatnamótunum en það þrengir þau
tU muna og tmflar umferð.
Bannað að leggja
við Týsvöllinn
Nú stendur yfir Shellmótið í
knattspyrnu og fjölgar þá gestum í
bænum. Mikil umferð gangandi og
akandi vegfarenda er í bænum yfir
mótsdagana og em ökumenn hvattir
til að ftira varlega og þá sérstaklega
kringum knattspymuvellina. Lög-
regla vill benda ökumönnum á að
bannað er að leggja ökutækjum á
Hásteinsvegi við Týsvöllinn, báð-
um megin. þar sem það þrengir
mjög að umferð og eykur slysa-
hættu, bæði hvað varðar gangandi
vegfarendur og eins vegna hugs-
anlegs hmns úr hlíðinni fyrir ofan
Týsvöllinn. Vonar lögregla að
ökumenn taki þessum tilmælum vel
en lögregla verður með heit eftirlit,
bæði hvað þetta varðar og eins hvað
varðar íjölda farþega í biireiðum en
borið hefur við að bifreiðir séu
yfírhlaðnar farþegum meðan á móti
stendur.
23 án aivinnu
Samkvæmt upplýsingum frá At-
vinnumiðlun Vestm. voru í gær 23
skráðir atvinnulausir í Eyjum. Er
það sex færri en var fyrir viku.
Vestmannaeyjalistinn samþykkir að auka skuldir bæjarins um 310 milljónir:
Vill um leið láta kanna
greiðsluþol bæjarsjóðs
Á bæjarstjórnarfundi þann 20. júní
lögðu fulltrúar minnihlutans fram
svohljóðandi bókun vegna fundar
bæjarráðs frá 13. júní:
„Á þessu kjörtímabili höfum við,
bæjarfulltrúar Vestmannaeyjalistans,
gagnrýnt harðlega fjármálastjóm
meirihluta sjálfstæðismanna í bæjar-
stjóm. Gagnrýni okkar byggist á
þeirri staðreynd að fjárhagur bæjar-
félagsins hefur versnað jafnt og þétt
undanfarin ár og nú er svo komið að í
mikil óefhi stefnir verði ekkert að gert.
Við höfum á undanfömum ámm lagt
fram ýmsar tillögur sem miða að því
að efla ljárhagsstöðu Vestmannaeyja-
bæjar. Þessar tillögur snúa flestar að
atvinnumálum með það fyrir augum
að fjölga hér atvinnutækifærum, fjölga
íbúum og þar með auka tekjur
bæjarfélagsins þannig að það geti
staðið undir eðlilegum rekstri og
íjárfestingu án þess að þurfa sífellt að
auka skuldir eins og raunin hefur verið
undanfarin ár. Því miður hafa þessar
tillögur fæstar náð fram að ganga og
teljum við það mjög til skaða fyrir
bæjarfélagið.
Þrátt fyrir erfiða fjárhagsstöðu
Vestmannaeyjabæjar samþykkjum við
á þessum fundi vemlega aukningu
fjárhagsskuldbindinga vegna nýs
íþróttahúss. Það gemm við meðal
annars í trausti þess að bæjarstjóm
breyti um stefnu í þá átt sem bæjar-
fulltrúar Vestmannaeyjalistans hafa
flutt tillögur um og stuðla m.a. að
auknum tekjum bæjarfélagsins, sbr.
það sem sagt er hér að framan. Við
teljum einnig nauðsynlegt að fenginn
verði hlutlaus aðili til þess að meta
skuldaþol bæjarfélagsins og fjárhags-
stöðu, sbr. tillögur okkar þar um.“
Undir þetta skrifa allir fulltrúar
minnihlutans sem fyrir skömmu
samþykktu smíði nýs íþróttasalar upp
á 310 milljónir króna. Þá fluttu sömu
aðilar tillögu um að leitað yrði til
hlutlauss aðila til að meta skuldaþol
bæjarins, fjárhagsstöðu og horfur í
fjárhagsstöðu næstu ára. Þeim aðila
yrði falið að gera tillögur um bætta
fjárhagsstöðu. Eftir nokkrar umræður
var tillagan felld með 4 atkvæðum
gegn 3.
Við spurðum Þorgerði Jóhannsdóttur
hvort ekki fælist í því missögn að
gagnrýna meirihlutann fyrir óstjóm í
fjármálum og samþykkja síðan vem-
legan skuldabagga til viðbótar vegna
íþróttahúss.
„Nei. Bygging nýs íþróttahúss hefur
alltaf verið á stefnuskrá Vestmanna-
eyjalistans og við viljum að bærinn
standi við þær skuldbindingar sínar.“
Er þetta ekki svipað og foreldri sem
ávítar bam sitt fyrir eyðslusemi og
endar svo ávítumar á því að bœta við
vasapeningana?
„Álls ekki. Við teljum þetta for-
gangsverkefhi og afla verði peninga til
þess annars staðar frá.“
Voruð þið undir þrýstingi frá íþrótta-
forystunni með að samþykkja þetta?
„Nei. Það hefur alltaf verið stefna
Vestmannaeyjalistans að byggja nýtt
íþróttahús og enginn þrýstingur vegna
þess frá einum eða neinum. Aftur á
móti höfum við gagnrýnt hvemig
staðið hefur verið að þessum málum,
m.a. þann mikla hönnunarkostnað
sem lagt var í. Okkar upphafstillögur
hefðu haft mun minni kostnað í för
með sér.“
Nú leggið þið til að hlutlaus aðili
verði fenginn til að meta fjárhags-
stöðu bœjarins. Hefði ekki verið
eðlilegt aðfá það samþykkt áður en
þið samþykktuð byggingu íþrótta-
hússins?
„Eins og ég hef áður bent á, þá
hefur þessi framkvæmd forgang og
það er vilji okkar að byggja nýtt
íþróttahús. Aftur á móti höfum við
margoft lagt til að fá hlutlausan aðila
til að kanna fjárhagsstöðu bæjarins og
teljum það nauðsynlegt til þess að geta
staðið við skuldbindingar okkar þó
svo að meirihlutinn vilji það ekki.“
Er fiski hent í stórum stíl?
-Sjómenn sverja slíkt athæfi af sér en grunar að slíkf sé stundað
Fiski er hent í stórum stfl á
íslandsmiðum ef marka má
umræðu síðustu daga. Sjómenn
fuiiyrða að fiski, aðallega þorski, sé
hent og magnið skipti tugum
þúsunda tonna á ári. En auðvitað
kannast menn ekki við slíkt,
aðspurðir. Eða eins og einn úr hópi
sjómanna sagði: „Það er vitað mál
að kókaínneytendur skipta hundr-
uðum, ef ekki þúsundum á Islandi.
En prófaðu að ganga á línuna og
spyrja hvort menn neyti kókaíns.
Það væri virkilega ruglaður maður
sem svaraði þeirri spurningu
játandi.“
Við slógum á þráðinn til nokkurra
starfandi sjómanna og í stað þess að
spyrja þá hinna venjubundnu
spuminga um aflabrögð og veður
spurðum við þá hvort þeir væm að
henda miklum fiski.
Gústaf Sigurlásson, Frá VE:
„Nei, við gemm það nú ekki. Það er
lítið að hafa eins og er, við emm að
toga í bræluskít við Péturseyna og það
litla sem kemur inn fer allt ofan í lest.“
Magnús Ríkharðsson, Drangavík VE:
„Nei, við þurfum þess ekki, við
höfum svo rúmar aflaheimildir. En ég
er ekki í vafa um að miklu er hent af
fiski. Það er ekki af góðu gert, menn
em bara nauðbeygðir til þess, kerfið er
þannig."
Jarl Sigurgeirsson, Björgu VE:
„Alla vega ekki þessa stundina, við
liggjum við bryggju og bíðum þess að
brælan gangi niður. En fiski er hent í
stómm stfl. Þegar Þorsteinn Pálsson
var sjávarútvegsráðherra var hann
spurður hvort hann teldi að sjómenn
hentu fiski. Þá svaraði hann: „Það er
bannað að henda fiski.“ Hans skiln-
ingur var sá að þar með gæti ekki
verið að slrkt væri gert fyrst það var
bannað. Svo fyrir ekki löngu hringdi
fjögurra ára gamall sonur kunningja
míns í föður sinn út í sjó og spurði
hvort þeir væm að fiska. Jú, faðirinn
sagði að þeir væm að fiska ufsa og ýsu
en mættu ekki veiða þorsk. „En pabbi
hvað gerið þið þá við þorskinn,"
spurði þá drengurinn. Þama skildi
íjögurra ára bam hvað var að gerast en
sjálfur ráðherrann skildi það ekki eða
vildi ekki skilja það.“
Sigurður Sigurjónsson, Smáey VE:
„Það er alltaf pláss fyrir aflann um
borð í Smáey, hér er engu hent. Við
höfum aldrei fiskað svo mikið að við
höfum þurft að henda fiski. Ég man
aldrei eftir að hafa hent fiski nema á
loðnu- og sfldveiðum þegar köstin
vom svo stór að búið var að fylla
Lýst eftir vitnum
Lögreglan lýsir eftir vitnum að tveimur líkamsárásum. Átti önnur þeirra
sér stað fyrir utan veitingastaðinn Lundann aðfaranótt 26. maí sl. en þar
var ráðist á mann og m.a. sparkað í höfuð hans. Munu einhverjir hafa
komið honum til aðstoðar og er þess óskað að þeir hafi samband við
lögreglu.
Hin árásin átti sér stað á sjómannadansleik í Týsheimilinu, aðfaranótt 4. júní.
Þar var kona slegin og féll í gólfið. Mun þetta hafa gerst á móts við barinn.
Lögregla óskar eftir því að þeir sem gætu gefið upplýsingar um þessa árás hafi
samband.
skipið, þá urðu menn að láta restina það sagt hvort slíkt er stundað en mig
gossa í sjóinn. Ég get því ekkert um gmnar að svo sé.“
KONUR í Vestmannaeyjum léti sig ekki vanta í Kvennahlaupið
2000. Að aflokinni upphitun þutu þær þvers og kruss um Heimaey
sem aldrei fyrr.
FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Omar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig i lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.