Fréttir - Eyjafréttir - 29.06.2000, Síða 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 29. júní 2000
Daggarmessuævintýri í Skvísusundi
Jón heitir reyndar Jóhannes
Árleg Jónsmessuhátíð IBV
var haldin í Skvísusundi
síðastliðið föstudagskvöld
með tilheyrandi gleði til anda
og efnis ef svo mætti að orði
komast. Jónsmessa, messa
Jóhannesar skírara, er 24.
júní. Hún kom í staðinn fyrir
forna sólhvarfahátíð í Róm,
en sólhvarfahátíð er þegar
sólin er í þeirri stöðu að
dagurinn fer annað hvort að
lengjast eða styttast. Hún
virðist einnig hafa komið í
stað slíkrar veislu á Norður-
löndum.
í Suður-Evrópu var Jónsmessan
talin vera miðsumarsnótt og var mikil
alþýðuhátíð með brennum, dansi og
nomamessum. Á íslandi var mun
minna um hátíðahöld þennan dag en í
nágrannalöndunum ef til vill vegna
þess að á þjóðveldistímanum lenti
dagurinn á miðjum alþingistímanum.
Jónsmessunótt, aðfaranótt 24. júní er
þó ein af fjóram mögnuðustu nóttum
ársins og fylgir henni ýmis þjóðtrú,
meðal annars að kýr tali og selir fari úr
hömum sínum. Þessa nótt er gott að
fara í töfragrasaleit og fmna náttúru-
steina og Jónsmessudöggin þykir
afskaplega heilnæm til lækninga ef
menn velta sér í henni allsberir.
Jónsmessa var numin úr tölu
helgidaga árið 1770, en er greinilega í
heiðri höfð víða um land enn þá og
ljóst að tilskipanir geistlegrar náttúra
hafa lítið að segja ef alþýða manna er
annarrar skoðunar.
Reyndar hefur Jónsmessuhátíðin í
Eyjum verið haldin inni í Herjólfsdal
fram til þessa, en sökum skriðufalla í
fjöllum Eyjanna sem afleiðing lands-
skjálftanna undanfama daga þótti ekki
forsvaranlegt að Eyjamenn veltu sér
upp úr Jónsmessudögginni á slíkum
háskastöðum. Þess vegna girtu þeir
ÍBV bændur Skvísusundið af í báða
enda og buðu upp á margvíslega
skemmtan og þá aðallega fyrir
hlustimar. Auglýst hafði verið grill-
veisla, en einhverra hluta vegna varð
skrifari þessara lína ekki var við hana
og kann að vera fullkomlega eðlileg
skýring á því, nefnilega að viðkom-
andi hafi ekki kennt hungurs innan
Jónsmessugirðingar ÍBV.
Eins og endranær eru Eyjamenn
ekki mikið fyrir að mæta snemma til
fagnaðar af téðu tagi, en samkvæmt
auglýsingu átti hátíðin að hefjast kl.
20.00. Munu fáir hafa verið mættir
svo snemma, enda fór svo að lítið fór
1 ■ :hli - !■ j . . . .VM;
II.. P : - 1 h 71 | . Æ ; ;7í ' ' H 1
* í. II i{ i| 1 , i
Eins og sjá má fjölgaði skyndilega undir hatti Jóns (Jóhannesar) og döggin flaut um allt hvort heldur
innanlíkama ellegar utan. Stuðkrappur dans í Skvísusundi.
200.000 naglbítar á
sokkabuxunum.
fyrir einhverjum skemmtikröftunum
sem áttu að troða upp. Eins og svo
oft áður kemur maður í manns stað,
reyndar samkvæmt auglýstri dagskrá,
en ekki verra fyrir það, þar sem var
Ámi Johnsen sem hélt uppi því fjöri
sem Eyjamenn eru annálaðir fyrir
hvort heldur heima eða að heiman
ásamt hljómsveitinni Dansi á rósum.
Hljómsveitin 200.000 naglbítarkom
fram við mikinn fögnuð í þar til
gerðum klæðnaði sem gestum hryllti
við utan þeim sem hugnast sæmilegur
perrismi.
Kaffí Timor var virkur þátttakandi,
ef hægt er að segja sem svo, því
gestum stóð til boða að tylla sér þar
inn við drykk og dans, spjall og sprell.
Þegar tíðindamaður kom þar við lék
j arðskj álftaframköl lunarhljóms vei ti n
Fjórir bjórar af miklu listfengi og allt
þóknanlegt þeim ágætu öflum sem
losa um hömlur manna og náttúru í
víðasta skilningi þess orðs. Mátti í
leik þeirra þetta kvöld kenna
miskunnar og nærgætni, enda mun
það vera liður í áfallaaðstoð að
þolendur skelfmgar horfist í augu við
ógn sína hvort heldur hún kemur að
innan eða utan. Var mikil líkn í leik
þeirra þetta kvöld.
Að öllu leyti fór hátíðin vel fram
eftir því sem unnendur sannleikans
segja. Jón og messa hans, sem er
reyndar engin Jónsmessa heldur
Jóhannesarmessa eins og segir hér að
framan og sagt er frá í fomum
bókum, var aðstandendum sínum til
sóma og Jóhannesi, sem þessi
daggarveltihátið er gjaman kennd við.
Að minnsta kosti láta aðstandendur
hátíðarinnar vel af henni og komu
ekki upp nein vandamál og
auðsjáanlegt að fólk hafði komið til
þess að skemmta sér, eins og sést á
meðfylgjandi myndum frá hátíðinni.
Þegar flest var munu alls um um
tvöhundruð manns hafa verið á
hátíðinni. Er það í samræmi og
nokkuð svipað og íyrri hátíðir að sögn
aðstandenda.
Þessar Jónsmessunæturdætur
/Jóhannesarmessunæturdætur
t.h. höguðu sér að sjálfsögðu í
anda þeirra beggja.
Mikið gaman og mikið grín og þetta góða fólk vildi mjög svo gjarna deila daggargleðinni með lesendum
Frétta, sem fara nú ekki í neinar grafgötur um hina góðu stemmningu
A gúmmíhvölum hafa
í myrkrinu misjafnleg kynni
Um síðustu helgi var opnuð sýning á gúmíhvölum í
fullri stærð í gamla vélasalnum við Vesturveg.
Sýningin er farandsýning sem ferðast hefur um mörg
lönd og hvarvetna hlotið mikla athygli og umtal. Það
er Ásbjöm Björgvinsson forstöðumaður Hvalamið-
stöðvarinnar á Húsavík, sem á heiðurinn af því að fá
sýninguna til Islands, en hugmyndasmiður og reyndar
sá sem dundar sér við að búa til gúmíhvalina er Andy
Peters sérlegur áhugamaður um hvali og velferð þeirra
í höfunum. Sýningin gengur undir nafninu The
Whale & Dolphin Roadshow, eða „Hvala og
höfrunga farandsýningin.“ Eins og segir á kynningar-
blaði með þessu framtaki er sýningin sögð vera
spennandi leið fyrir fólk til þess að kynnast sjávar-
spendýrum, því auk þess að sýna hvalina í eðlilegri
stærð, þá er og hvers kyns fróðleik annan að hafa um
lifnaðarhætti þeirra, auk þess meðal annars hvemig
bjarga má strönduðum hvölum.
Aðspurður sagðist Andy ekki gera út sýningu sína á
vegum hvalfriðunarsamtaka. Hann væri einungis
hugfanginn af þessum stærstu sjávarspendýmm
jarðarinnar. Hann sagist þó vera á móti hvalveiðum,
en á hinn bóginn tæki hann ekki pólitíska afstöðu til
þessara dýra. „Markmiðið hjá mér er að sýna hvalina
og við hvaða aðstæður þeir lifa. Þannig er starf mitt
fyrst og fremst fræðslustarf, sem ég vona að efli
skilning á þessum skepnum.“
Ásbjörn og Andy hampa hér sæli gúmmílíkingu af
háhyrningi