Fréttir - Eyjafréttir - 12.10.2000, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 12. október 2000
Fréttir
17
Knattspyrna: Njáll Eiðsson tekur við mfl. karla og Heimir Hallgrímsson áfram með stelpurnar
Geri eins vel 03 ég get
-segir hinn nýráðni þjálfari karlanna
SAMNINGURINN innsiglaður með handabandi. Njáll Eiðsson nýráðinn þjálfari ÍBV og Ásmundur
Friðriksson formaður knattspyrnudeildar.
Knattspyrnudeild IBV hefur ráðið
Njál Eiðsson, þjálfara ÍR undan-
farin fjögur ár, til að þjálfa meist-
araflokk IBV. Ekki verður sagt að
ÍB V fari ótroðnar slóðir í vali sínu á
þjálfara, síðustu þrír þjálfarar ÍBV
hafa átt það sameiginlegt að hafa
ekki sannað sig sem þjálfarar í efstu
deild þegar þeir voru ráðnir, en
Njáll hefur líklega mestu reynslu
fjórmenninganna, var með ÍR í
efstu deild 1998 og FH 1992.
A þriðjudaginn var samningurinn
undirritaður og haldinn blaðamanna-
fundur í tilefni af því þar sem voru
þeir Njáll, Ásmundur Friðriksson.
Eggert Garðarsson og Elías Bjöm
Angantýsson, formaður ÁTVR, sem
var ÍBV innan handar við ráðninguna.
Njáll Eiðsson er Austfirðingur, ætt-
aður úr Borgarfirði eystra en hann
hefur leikið m.a. með Þrótti Nes-
kaupstað, KA, Val og varð Islands-
meistari með Valsmönnum 1987.
Njáll á alls fjórtán ár að baki sem
þjálfari, hann hefur þjálfað FH, KA,
Víði Garði og ÍR. Njáll starfar sem
íþróttakennari og mun verða búsettur í
Reykjavík í vetur.
Á eftir aó kynna mér ungu
strákana
Njáll sagðist hafa séð til ÍBV liðsins
síðastliðið sumar en hann sagðist eiga
eftir að kynna sér yngri leikmenn
liðsins.
„Eg er nýkominn að liðinu þannig
að ég hef ekki séð ungu strákana í
hópnum. Eg sá liðið spila í sumar og
sá stráka eins og Hjalta Jónsson,
Bjama Geir Viðarsson og Pál
Almarsson en ég á eftir að skoða hina.
Ég er mjög spenntur íyrir þessu verk-
efni, enda hefði ég ekki tekið við
liðinu ef svo væri ekki. Ég geri mér
hins vegar grein fyrir að verkefnið
verður allt annað en auðvelt enda hafa
orðið miklar breytingar á leikmanna-
hópi ÍBV síðan ÍBV vann tvöfalt
þannig að ég sé fýrir mér mikla vinnu
næstu árin. Við höfum aðeins verið að
velta leikmannamálum íyrir okkur en
lengra er það ekki komið. Það er
reyndar ekki alveg ljóst ennþá hverjir
verða með okkur næsta sumar, það
mun skýrast á næstu dögum en ég veit
að það er mikill efniviður í yngri
flokkum ÍBV,“ sagði Njáll.
Kom á óvart þegar ÍBV hafði
samband
Hann sagði að það hefði komið sér á
óvart þegar ÍBV hafði samband við
hann. „Ég held að við verðum að gefa
þessu aðeins tækifæri. Það er ekki
nema tæp vika síðan þetta bar á góma
íyrst þannig að ég er svona að átta mig
á nýja starfinu. Þetta kom mjög
snöggt upp þannig að ég held að það
sé mjög erfitt fýrir mig að láta frá mér
einhverjar yfirlýsingar um hvað við
leggjum upp með. En það er ljóst að
þetta verður mikil vinna. Það er mikill
metnaður f fótboltanum í Eyjum og ég
hef fengið að kynnast því eftir að ég
kom hingað að allir fylgjast með
fótbolta og hafa skoðanir á honum
þannig að það er örugglega mikil
pressa á þjálfara liðsins. Ég er
meðvitaður um þetta en ég reyni að
sjálfsögðu bara að gera eins vel og ég
get. En ég geri þetta auðvitað ekki
einn. Það þarf margt svo að hlutimir
gangi upp. Það þarf að vera góður
leikmannahópur og góð stjóm og til
þess að árangur náist þá þarf þetta allt
að vinna saman.“
Njáll sagði að hann muni búa í
Reykjavík í vetur og vera með
aðstoðarmann hér í Eyjum eins og
hefur verið undanfarin ár.
„Það er ekki búið að ráða aðstoðar-
mann en ég verð í Reykjavík og mun
hafa aðstoðarmann hér í Eyjum sem
mun sjá um þjálfun liðsins hér. Þetta
hefur verið svona undanfarin ár enda
ekki hægt annað þar sem svo margir
leikmenn liðsins em á höfuðborgar-
svæðinu yfir vetrartímann,“ sagði
Njáll að lokum.
Ásmundur Friðriksson:
Steingrímur og
Baldur fara
Asmundur Friðriksson, formaður
knattspyrnudeildar, hóf fundinn og
renndi yfír nokkur atriði sem lúta
að ráðningu nýs þjálfara. Þar kom
m.a. fram að samningaviðræður
tóku skamman tíma.
ÍBV var í óformlegum viðræðum
við m.a. Zeljko Sankovic en þegar þær
strönduðu var rætt við Njál. „Það var
fyrst ákveðið að sjá hvað væri í boði
héma heima. Við vildum athuga
markaðinn í Eyjum áður en við fæmm
annað að leita að þjálfara. Ég er þeiirar
skoðunar að best sé að þurfa ekki að
fara langt yfir lækinn eftir einhverju
sem maður hefur í heimahögunum.
Við áttum tvo langa fundi með Zeljko
þar sem við fómm yfir málin og
lögðum fram okkar hugmyndir sem
em nákvæmlega þær sömu og við
lögðum fyrir Njál. Þær lúta að
uppbyggingu liðsins og að koma ungu
strákunum að í liðinu. Það var svo
okkar mat eftir þessa tvo fundi að
leiðir okkar og Zeljko lægju ekki
saman og við myndum ekki ná þeim
markmiðum sem við vildum með
honum, þrátt fyrir góðan meðbyr í
upphaft viðræðanna. Þeim viðræðum
var bara slitið í góðu og við fómm að
leita hófanna annars staðar. Eina
tilboðið sem var gert er það sem við
vomm að undirrita núna í dag.“
Varðandi rekstur IBV á næstu ámm
sagði Ásmundur m.a. að það kæmi
ekki niður á rekstri deildarinnar að
liðið verður ekki í Evrópukeppni
næsta ár. „Það em fyrst og fremst
mikil vonbrigði að vera ekki með í
Evrópukeppninni næsta sumar. Það
mun hins vegar ekki koma niður á
íjárhag deildarinnar fýrr en eftir tvö ár.
Við emm að fá greiðslu fýrir þáttöku í
Evrópukeppni undanfarinna ára á
næsta ári og þar næsta ári. Þannig að
við munum leggja alla áherslu á koma
upp sterku liði. Steingrímur Jóhannes-
son er vonandi eini Eyjamaðurinn sem
að fer frá félaginu en svo rann samn-
ingur Baldurs Bragasonar út í sumar
og hann er genginn til liðs við
Valsmenn. Mál Gorans og Momirs er
bara einn af þeim þáttum sem við
emm að skoða. Þeir em okkar ef við
viljum en samskipti við félag jreirra úú
hafa verið furðuleg. Formaðurinn vill
selja þá en eigandinn ekki. Þeir vilja
hins vegar ömgglega koma aftur til
okkar enda líkaði þeim mjög vel
héma, eins og reyndar flestum af þeim
leikmönnum sem við fáum. Við
höfum að sjálfsögðu haft samband við
ýmsa leikmenn með það í huga að
spila með IB V næsta sumar en eins og
staðan er í dag þá getum við ekkert
sagt til um hverjir þeir em enda væri
það mjög óheiðarlegt af okkur að fara
með það í fjölmiðla áður en skrifað er
undir. Við emm hins vegar ekkert að
draga saman seglin heldur viljum við
einfaldlega halda íjárhag deildarinnar
réttu megin við núllið. Við vitum
hvaða íjármagn við höfum og munum
spila út frá því.“
Evrópukeppnin í handknaitleik kvenna:
Sterkir mótherjar
Mótherjar ÍBV í Evrópukeppninni, BSV
Buxtehude eru mjög sterkir. Liðið varð
samkvæmt heimildum Frétta Evrópu-
meistari bikarhafa fyrir sex árum, eftir
að hafa unnið þýska bikarinn.
Fjórir þýskir landsliðsmenn em innan
raða liðsins en einnig spila með Iiðinu
pólskur landsliðsmaður, úkraíinskur lands-
liðsmaður og norskur landsliðsmaður.
Einnig hafa flestir aðrir leikmenn liðsins
spilað með yngri landsliðum Þýskalands.
Liðið er efst í þýsku deildinni þegar fimm
umferðir em búnar en Þorvarður Þor-
valdsson, formaður handknattleiksdeildar
kvenna ÍBV, sagði að líklega yrði reynt að
spila leikina með sama sniði og í fyrstu
umferðinni, þ.e. á öðmm hvomm staðnum
sömu helgina. Þorvarður sagði ennfremur
að líkumar væm meiri á að leikimir fæm
fram í Þýskalandi þar sem áhuginn hafi
verið frekar dapur í leikjunum tveimur gegn
búlgarska liðinu.
Marina send heim
Úkraínski leikmaðurinn sem gekk til liðs við
kvennalið IBV fyrir tímabilið, Marina
Bakulina hefur verið send heim. Marina
stóð ekki undir væntingum, sérstaklega í
sóknarleik liðsins og því var tekin sú
ákvörðun á mánudaginn að senda hana
heim.