Fréttir - Eyjafréttir - 12.10.2000, Side 20
f m' / fæ i
11
TÓNLISTARMESSA var haldin í safnaðarheimilinu á sunnudagskvöldið og þótti
takast vel. Sjá nánar á bls. 16.
Rútuferðir - Bus tours
Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa
ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM
<3)4811909-896 6810-fex 4811927
Sendibílaakstur - innanbæjar
Vilhjálmur E * 481-2943 * 897-1178 lergsteir SEMQÍPEI isson lÖABÍtt.
Herjólfsmálið í biðstöðu vegna kæru:
Semja við Samskip
Vegagerðin ákvað á mánudaginn að semja við Samskip um rekstur
Herjólfs, þrátt fyrir kæru stjórnar Herjólfs hf.
Stjóm Heijólfs hf. hefur kært útboðið til kærunefndar útboðsmála. Stjómin
telur útskýringar Vcgagerðarinnar á kostnaðaráætlun sinni ekki standast
útboðslýsinguna. Áætlað er að afgreiðsla nefndarinnar geti tekið 2 til 4 vikur.
Kæran heíbr þau áhrif að Vegagerðin má ekki ganga frá bindandi samningi á
meðan. Enn ríkir því óvissa um framtíðarskipan samgangna á sjó til Eyja en
trúlega er þetta aðeins gálgafrestur á því sem koma skal.
Höfnin fær 113 milliónir
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu
fyrir árið 2001 er gert ráð fyrir að
fjárveiting til hafnarmannvirkja
hækki um 744,8 milljónir króna
milli ára.
Samkvæmt þingsályktun um hafna-
áætlun fyrir árin 1999 til 2002 er gert
ráð fyrir að fjárveiting til nýfram-
kvæmda verði 783,3 milljónir kr. á
næsta ári og hækki um 370,9 milljónir
milli ára. Þá kemur 297 milljón kr.
frestun framkvæmda frá þessu ári inn
á nýjan leik.
Af 1.351,5 milljón kr. útgjöldum
ríkissjóðs vegna hafnarmannvirkja á
næsta ári eru 192,3 milljónir fjár-
magnaðar með sérstöku vörugjaldi
samkvæmt hafnalögum. Af þessu fé
fær Húsavík langhæst framlag en
Vestmannaeyingar mega vera þokka-
lega ánægðir með sinn hlut, a.m.k. sé
miðað við aðra. Hæstu framlögin fara
á þessa staði: Húsavík 216,3 milljón-
ir, Grindavík 138,5, Vestmannaeyjar
113,0 og Sandgerði 87,1.
Ráðstefnan Eyjar2010:
Frestað til 28. október
Vegna útfara Kristins Pálssonar frá Þing-
holti og Sigurðar Einarssonar forstjóra Is-
félagsins og bæjarfulltrúa, næstkomandi
laugardag, hefur framkvæmdanefnd ráð-
stefnunnar Eyjar 2010 ákveðið að fresta
henni um hálfan mánuð.
„Við vomm búin að ákveða halda ráðstefnuna
í Týsheimilinu næsta laugardag en strax eftir að
ljóst var að þeir Kristinn og Sigurður yrðu
jarðaðir þennan dag ákváðum við að fresta
henni,“ segir Þorsteinn Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri Eyja 2010. „Fyrst var hugmyndin
að fresta ráðstefnunni um eina viku en þá kom í
ljós að það hentaði frummælendum, sem ætluðu
að mæta, betur að mæta hálfum mánuði seinna.
Það er því ákveðið að ráðstefnan, Eyjar 2010,
verður laugardaginn 28. október nk.“
Þorsteinn segir að frestunin sé að mörgu leyti
af hinu góða því meiri tími gefist til
undirbúnings. „Það kom aldrei til greina að
halda ráðstefnuna við þessar aðstæður og fólk
gerði sér fulla grein fyrir því auk þess sem því
fannst viðeigandi að votta hinum látnu og
fjölskyldum þeirra virðingu sína með þessum
hætti. Undirbúningur er annars í fullum gangi
og á margt af því sem þemahópamir koma með
eftir að vekja athygli, bæði frá hópunum héma
og í Reykjavík. Það er greinilegt að fólk vill
spyma við fæti og snúa búsetuþróuninni við.
Ráðstefnan er öllum opin og hvet ég fólk til að
tjölmenna þann 28.,“ sagði Þorsteinn að lokum.
Þá hefur stjóm ÍBV-íþróttafélags ákveðið að
fresta fyrirhuguðu grilli til 28. október og það
sama gildir um dansleik sem ÍBV og Eyjar 2010
ætluðu að standa að á laugardagskvöldið.
Vikutilboð
vikuna 12.-18. okt.
Kelloggs Coco pops/Corn pops
kaupirtvopakkaogfærð
úr eða vekjaraklukku íkaupbæti
Tilboð |
Á-áfis
fin'isirfi.iist.l
TABSx30
iiiuirrrrrm
ULIM
Finishtöflur, Ipakkar
599,- áður 918,-
Filipinokex
99,- áður163,-
129,- áður168,-
Frá Bautabúrinu
Saltkjöt, 2 flokkur 168 pr. kg. áður 329 kr.
Svína helgarsteik 988 pr. kg. áður 1288 kr.
Chipsahoykex
88 kr. - aður 146,- 93^^,154,
y 139 kr.- áður 176,-
fíauðepli 149 kr. pr. kg. - áðuri98,-
Appelsínur 149 kr. pr. kg. - áður 198,-
Mán.-fös.8-19
Lau.9-19. og sun. 10-19