Vesturland - 23.10.2014, Side 11
1123. Október 2014
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga:
Heildaryfirsýn og langtímahugsun eru kjarnaatriði
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga var haldin á Hilton-hóteli í Reykjavík 9. og 10. október sl..
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
ræddi þar m.a. um samskipti ríkis og
sveitarfélaga og kynnt nýtt frumvarp til
laga um opinber fjármál sem lagt verður
fram á Alþingi á næstunni. Hann sagði
frumvarpið ekki bara varða fjárreiður
ríkisins heldur væri því einnig ætlað að
sauma betur saman samstarf ríkis og
sveitarfélaga. „Heildaryfirsýn og lang-
tímahugsun eru kjarnaatriði,“ sagði
fjármálaráðherra.
Hann sagði að grundvallarforsenda
nýrra laga um fjárreiður ríkisins og
um stefnumótun um þróun opin-
berra fjármála væri samkomulag
við sveitarfélögin. Grunngildin sem
stuðst er við í frumvarpinu eru að
sögn ráðherra: Sjálfbærni, varfærni,
að stefna undirbyggi stöðugleika og
gagnsæi.
Bergur Elías Ágústsson fyrrverandi
bæjarstjóri Norðurþings fjallaði um
áhættugrreiningu sveitarfélaga og
sagði m.a. ; „Við vitum að það er al-
veg sama hvað við gerum og hversu
mikið við vöndum okkur, áhætta er
og verður ávallt til staðar. Það sem
við getum gert er að fara kerfisbundið
í gegnum viðfangsefnið, takmarkað
áhættur og haft einhvers konar við-
bragðsáætlun tilbúna þegar hlutirnir
þróast með öðrum hætti en upphaf-
lega var gert ráð fyrir.“
Hann nefndi sérstaklega tvö við-
fangsefni sem æskilegt væri að leggja
áherslu á að lágmarka, en það eru
annars vegar fjárfestingar og hins
vegar yfirtaka verkefna frá ríkis-
valdinu. Varðandi fjárfestingar þá
hvetur hann meðal annars til þess að
gerð sé fjárfestingastefna sem tilgreini
ítarlega hvernig undirbúningi fyrir
ákvarðanatöku skuli háttað. Þetta á
ekki að vera flókið að sögn Bergs El-
íasar heldur þarf fyrst og fremst að
gæta formfestu og aðgæta skilyrði
sem uppfylla þarf áður en endanleg
ákvörðun er tekinn.
Kjarasamningar
starfsmanna sveitarfélaga
Alls eru 63 stéttarfélög með 39 kjara-
samninga við Samband íslenskra
sveitarfélaga en þar af eru 22 félög með
17 kjarasamninga við Reykjavíkurborg.
30 kjarasamningum við 54 stéttarfélög
lokið en samningum við 8 stéttarfélög
er enn ólokið. Stöðugildi hjá sveitarfé-
lögunum eru um 20 þúsund. Almenni
markaðurinn er um 70% vinnumark-
aðarins en opinberi og hálfopinber
geirinn eru um 30% og er hluti ríkisins
og sveitarfélaganna nokkuð jafn, eða
11% eftir að málefni fatlaðra færðust
yfir til sveitarfélaganna. Fylgst með umræðum.
VerkÍS var með kynningu á fjármálaráðstefnunni ásamt mörgum fleirum
fyrirtækjum. Þeir kynntu sveitarstjórnarmönnum sína starfsemi.
Þorsteinn Steinsson, bæjarstjóri í Grundarfirði og Sigurlaug r. Sævarsdóttir,
skrifstofustjóri bæjarins voru á fjármálaráðstefnunni.