Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.01.2003, Side 6

Fréttir - Eyjafréttir - 16.01.2003, Side 6
6 Fréttir Fimmtudagur 16. janúar 2003 GRETAR Mar og Magnús Þór takast á um 1. sæti Frjálslyndra í Suðurkjördæmi. Fulltrúar Frjálslynda flokksins voru á ferð í Eyjum í síðustu viku og héldu opinn stjórn- málafund á Lundanum sl. fimmtudagskvöld. Guðjón A. Kristjánsson alþingismaður fór fyrir sínum mönnum en auk hans mættu þeir Grétar Mar Jónsson fyrrum for- maður Farmanna- og fiski- mannasambandsins og Magnús Þór Hafsteinsson blaðamaður sem gefa báðir kost á sér í efsta sæti listans í Suðurkjördæmi. Gísli Helga- son tónlistarmaður og fram- bjóðandi Frjálslynda flokksins í borgarstjórnarkosningunum sl. vor mætti einnig sem og Þorsteinn Arnason, vélstjóri sem Eyjamenn þekkja frá því hann bjó hér. Um tíma veitti hann Fiskmarkaði Vest- mannaeyja forstöðu . Fundurinn á Lundanum fór nokkuð vel fram þó vissulega megi spyrja sig að því hvort pöbb sé rétti staðurinn fyrir svona samkomu. Guðjón A. Kristjánsson fór fyrstur í ræðustól og fór yfir starf flokksins og nýju kosningalögin. Kom þar meðal annars fram að ef flokkurinn eykur fylgi sitt um 0,8% séu þeir nánast öruggir með þrjá þingmenn inni. Með því fara þeir í 5% fylgi á landsvísu en það þarf til þess að eiga möguleika á uppbótarþingmanni. Guðjón bætti því við að ef kosið hefði verið eftir núgildandi lögum í kosningunum 1999 væri hann einn á þingi fyrir Frjálslynda flokkinn, hann hefði ekki dregið Sverri Hermannsson formann flokksins með sér inn. Frjálslyndi llokkurinn fékk um 17% atkvæða í Vestfjarðakjördæmi í síðustu kosningum en 4,2% á landsvísu. Miðað við skoðanakannanir sem hafa verið allmargar undanfamar vikur fer fylgi Frjálslyndra varla yfir 2% en Guðjón segir þó engan bilbug á þeim að finna. Hann sagði að þeir hafi alltaf sigrað skoðanakannanir þegar kemur að kosningum og benti á í því sambandi bæði kosningamar 1999 sem og borgarstjórnarkosningamar í vor þar sem Ólafur F. Magnússon náði kjöri undir nafni Frjálslyndra og óháðra. Gegn kvótakerfinu Fiskveiðistjómunarkerfið var Magnúsi ofarlega í huga í ræðu sinni en hann hefur lengi barist gegn kvótakerfmu og virðist hann helst hallast að sóknardagakerfi Færeyinga. Hann benti á að frá því Færeyingar tóku upp núverandi stjóm á fiskveiðum hafi þeir aukið þorskveiðar um tæp 40% en fiskifræðingar höfðu mælt með 35% samdrætti. Sama hefur gerst bæði með ufsa- og ýsuveiðar þar sem fiskifræðingar hafa mælt með sam- drætti í veiðum og jafnvel banni við ýsuveiðum. Færeyingar hafa aukið fiskveiðar sínar og samkvæmt Magn- úsi Þór þá er sjávarútvegur í miklum blóma hjá frændum okkar í Færeyjum. Grétar Mar, sem var í forsvari fyrir Farmanna- og fiskisambandið þar til á síðasta ári, sagði að eignamyndun í sjávarútvegi væri orðin hættuleg og sagði Vestmannaeyinga hafa sloppið nokkuð vel miðað við aðra staði og sjokkið kæmi ekki íyrr en meirihlutinn í ísfélaginu eða Vinnslustöðinni yrði keyptur suður eða norður í land. Eldskírn Magnúsar Þórs Þegar fulltrúar flokksins höfðu lokið máli sínu komu fyrirspumir frá fundargestum og eins og við mátti búast snérust þær að mestu um fiskveiðar, kvótakerfið og þær leiðir sem Frjálslyndi flokkurinn vill fara í breytingum á því. Magnús Þór var ánægður með fundinn. „Mér fróðari menn segja að það þyki gott að fá 25 manns á fund eins og var hjá okkur. Megnið af flotanum var á sjó og ég er sannfærður um að við hefðum fengið mun fleiri hefðu sjómenn verið í landi,“ sagði Magnús. Hann var þama að stíga sín fyrstu skref í pólitík og segir að þessi fundur muni líklega sitja lengi í minningunni. „Þetta var mín eldskím, ég hef aldrei verið í neinum flokki, tók aldrei þátt í starfi ungliðahreyfinga eða þess háttar, enda erfitt að vera starfandi frétta- og blaðamaður og taka þátt í pólitísku starfi." Hvers vegna þá núna? „I starfi mínu við fjölmiðla og vegna menntunar minnar þá hefur réttlætiskennd minni verið misboðið og ég tel að við séum að gera hlutina vitlaust. Þetta tengist líka byggðamálum en ég er mikill landsbyggðarmaður í mér, er fæddur og uppalinn á Skaganum og mér svíður að sjá hvemig sjávarplássum hefur hrakað að nauðsynjalausu," sagði Magnús og bætti við að staðir eins og Vestmannaeyjar, Vestfirðir og fleiri eigi sér fyllilega tilvemrétt. „Þessi byggðarlög eiga dúndrandi „séns“ ef þau fá að njóta sín. Ég get tekið sem dæmi að ég fór nýlega austur á firði og það var sláandi ástand. Sjómenn sögðu mér að það væm mjög góð aflabrögð á gmnnslóð, alveg einmuna góð tíð en menn fá ekkert að róa. Mönnum er alveg meinað að bjarga sér vegna kvóta- setningar. Það er blóðugt að horfa upp á þetta.“ Kvótakerfið ekki alslæmt Hann sagði vinsælt að tala um Fær- eyinga núna og þeirra fiskveiði- stjómunarkerfi. „Það em sláandi tölur sem berast frá frændum okkar, þeir em að ná út úr þessu miklum pen- ingum á meðan við sitjum hjá og látum fiskinn synda framhjá." Færeyingar tóku upp núverandi kerfi 1996 og er því komin sjö ára reynsla á það. Magnús telur kvóta- kerfið þó ekki að öllu slæmt. „Það virðist virka á einstaka veiðar, t.d. á sfld- og loðnuveiðar og úthafskarfaveiðar en kerfið virkar ekki í blönduðu botnfiskveiðikerfi, það er á hreinu enda þegar Færeyingum var sagt að þeir þyrftu að hætta ýsuveiðum fyrir tveimur árum sögðu þeir það ekki koma til greina, ýsan veiðist líka sem meðafli með þorski þannig að það er afskaplega erfitt að stjóma því.“ Magnús sagði Færeyinga ekki vera með þessu kerfi að bjóða upp á ótakmarkaða veiði. „Þeir hafa ýmsa möguleika til þess að stýra veiðunum, þeir geta fækkað dögum, lokað svæð- um og fleira til að stýra sókninni." Magnús sagði að mesta aukningin hafi verið hjá togurum en ekki hjá smábátum eins og margir halda fram. „Samkvæmt nýjustu tölum frá Fær- eyjum hefúr mesta aukningin verið hjá togurunum. Það er nú bara þannig að hjá krókabátunum er ekki pláss fyrir nema einn fisk á hverjum krók. Aftur á móti hefur afli hjá bátum sem veiða í troll verið meiri.“ Samkvæmt skoðanakönnunum undanfama daga virðist enn nokkuð í það að Frjálslyndir nái manni inn á þing en Magnús Þór óttast það ekki. „Við mælumst yfirleitt illa í skoðana- könnunum og skekkjumörkin geta verið tvö prósent í hvora átt. Sam- kvæmt könnun á mánudag vorum við með 3,3% fylgi þannig að við virðumst eitthvað vera á uppleið.“ Gefum ríkisstjóminni ffí Aðspurður um möguleikana á því að knýja fram breytingar á fiskveiði- stjómunarkerfinu segir hann það helst gerast með ríkisstjómarsamstarfi með Samfylkingunni. „Það væri örugglega hægt að ná lendingu með Samfylk- ingunni og Vinstri - grænum. Það er alveg ljóst að það verður að gefa núverandi stjómarflokkum frí. Það er alveg ótrúlegt hvað þeir geta lamið hausnum við steininn í þessum efnum og ég verð að segja að ég undrast langlundargeð fólks í sjávarbyggðum gagnvart þessu kerfi." Aðspurður hvers vegna hann hafi ákveðið að bjóða sig fram í Suður- kjördæmi sagði hann það einfaldlega vegna þess að fjöldi fólks hafði hvatt sig til þess. „I fyrstu var mér boðið að vera í öðm sæti á eftir Guðjóni A. Kristjánssyni í Norðvesturkjördæmi en ég ákvað að taka sénsinn á Suður- kjördæmi, maður kemst ekkert áfram í lífinu nema að taka áhættu annað slagið," sagði Magnús og bætti við að ef hann kæmist inn á þing fyrir Suðurkjördæmi myndi hann líklega flytja í kjördæmið. Magnús sagðist vonast til að listinn verði tilbúinn um næstu mánaðamót en sagðist þó ekkert vita meira um það mál. „Af þeim nöfnum sem ég hef séð þá líst mér vel á listann og mér sýnist hann ætla að verða frekar ungur listi og fólk úr öllum áttum og af báðum kynjum." Hann sagðist taka því ef niðurstaða uppstillinganefndar flokksins verði að Grétar Mar verði í 1. sæti. „Ég mun ekkert fara í neina fýlu eða skipta um flokk. Ég býð fram krafta mína og mun una lýðræðislegri niðurstöðu," sagði Magnús Þór að lokum. Námskeið um gerð viðskiptaáætlana -fyrsta námskeiðið í Eyjum 1 tengslum við verkefnið, Nýsköpun 2003, sem er samkeppni um við- skiptaáætlanir, verður boðið upp á námskeið mánudaginn 3. febrúar næstkomandi. Námskeiðið verður haldið í Höllinni og stendur frá klukkan 17.15 til 20.30. Fyrirlesari verður G. Ágúst Péturs- son, verkefnisstjóri samkeppninnar. Þátttakendur greiða kr. 1.500 og innifalið er kaffi og léttur málsverður. Einfaldast er að skrá sig á heimasíðu verkefnisins sem er www.nyskopun.is og fá skráðir þátttakendur sent leið- beiningahefti og geisladisk með reiknilíkani og ýmsum iyrirlestrum sér að kostnaðarlausu. Éinnig verður hægt að skrá sig í síma 481-1111. A námskeiðinu fer Ágúst yfir helstu atriði sem þarf að hyggja að við gerð viðskiptaáætlunar. Hann fjallar um lausnina (viðskiptahugmyndina) og þörf fyrir hana, markaðsgreiningu og markaðssetningu og sölu. Lítið er farið yfir fjármálin enda fá allir þátttakendur ítarleg gögn og líkan til stuðnings við fjárhagskafla viðskipta- áætlunar. Síðan er talsvert fjallað um undir- búning og verklag við gerð viðskipta- áætlana og að síðustu er fjallað lítillega um ferli fjármögnunar og fjárfestaumhverfi. Reynslan af fyrri námskeiðum hefur verið mjög góð. Þátttaka hefur oftast verið talsverð og reynt hefur verið að hafa námskeiðin lífleg og skemmtileg en forðast fræðilegar útleggingar. Við viljum undirstrika, að þátttaka í námskeiðum og raunar keppninni í heild kallar ekki á sérstaka reynslu eða menntun. Mestu skiptir áhugi og trú á hugmyndir sínar. Annað atriði sem við leggjum áherslu á er að hvetja fyrirtækin til að vera með. Það er vaxandi nauðsyn á þekkingu í gerð viðskiptaáætlana innan fyrirtækjanna því fjármálastofn- anir gera nú orðið rika kröfu um að fyrir liggi viðskiptaáætlun. Það er sérstök ástæða til að hvetja Eyjamenn til að vera með, sérstaklega vegna þeirra sjóða í Vestmannaeyjum sem ætlað er að styrkja atvinnulífið. Þá er ég að tala um Fjárfestingafélag Suðurlands og svo Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja. Þessi félög voru m.a. stofnuð til að styðja við hugmyndir til atvinnusköpunar í Eyjum og því upp- lagt fyrir fólk með góðar hugmyndir að senda inn umsóknir. Upplýsingar um þessa sjóði er hægt að fá hjá umsjónaraðilum eða hjá Þróunarfélagi Vestmannaeyja. Veitt eru vegleg peningaverðlaun fyrir bestu viðskiptaáætlanirnar sem berast í keppnina. Allir sem senda viðskiptaáætlun keppa jafnframt um að verða í hópi fjögurra aðila sem keppa fyrir íslands hönd í sérstakri Evrópukeppni hugmynda. Einnig geta keppendur sent stutta hugmynda- lýsingu og þannig freistað þess að komast fyrir Islands hönd í Évrópu- keppnina þótt ekki sé tími til að skrifa fullbúna viðskiptaáætlun. Að Nýsköpun 2003 standa Nýsköp- unarsjóður atvinnulífsins, KPMG, Háskólinn í Reykjavík, Morgun- blaðið, íslandsbanki, Byggðastofnun og atvinnuþróunarfélögin. Auk þess eru Síminn, Eimskip, Samherji og Nýherji stuðningsaðilar keppninnar. Skilafrestur viðskiptaáætlana og/eða hugmyndalýsinga er til 31. maí 2003. Nánari upplýsingar veitir G. Ágúst Pétursson, verkefiiisstjóri þjóðarátaks- ins, í síma 896 3055 (agustp @centrum.is). Heimasíða: www. nyskopun.is Egill Amgrímsson, Þróunarfélags Vm. og G. Agúst Pétursson, verkefnisstjóri

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.