Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.01.2003, Page 13

Fréttir - Eyjafréttir - 16.01.2003, Page 13
Fimmtudagur 16. janúar 2003 Fréttir 13 Kristján Bjarnason skrifar: Samgöngumál Vestmannaeyja Samgöngumál eru sígilt umræðuefni okkar Eyjamanna og verður svo enn um sinn. Hér fyrir neðan er stiklað á stóm í samgöngusögu Vestmannaeyja og aðallega stuðst við rit Haraldar Guðnasonar, Við Ægisdyr. Að því loknu er staða mála reifuð á þessu nýbyrjaða ári og loks rýnt fram í tímann og hugmyndir lagðar fram. Aðalleiðin var löngum upp í Landeyjasand á stómm áraskipum. 1776: HeQast reglulegar ferðir til og frá Kaupmannahöfn, ein á ári. 1858: Hófust gufuskipaferðir, þrjár ferðiráári. 1871: Bænaskrá Eyjamanna á þingi, óskað eftir að póstgufuskipið kæmi við í hverri ferð, en á því var mis- brestur. 1876: Hófust strandferðir til sjö hafna utan Reykjavíkur, þ.á.m. til Eyja. Gufuskipið Díana. 1877: Þingmaður Eyja kvartar undan því að skipin komi oft ekki við í Eyjum þrátt fyrir blíðuveður, einnig þóttu fargjöld óeðlilega há. 1897: Eyjamaður skrifar í janúar: „Engar samgöngur við meginlandið síðan í október sakir óþrotlegs brims og með síðustu ferðinni fengum við eigi póstinn. Þann 26. janúar varð loks brimlaust." Flöskupóstur talinn hinn algengi vetrarpóstur Eyjamanna til meginlandsins. 1915: Skip Eimskipafélagsins komu við í báðum ferðum til útlanda frá þessu ári. 1917-42: Skaftfellingur siglir með suðurströndinni, farþegar fá að fljóta með. 1917: Landssjóður kaupir þrjú skip til strandsiglinga. Fyrst Sterling, líka Esja eldri. 1920: Lýsing á ferð með Sterling austur á firði: „Það var heldur en ekki krökkt af farþegum... Þar við bættust margir Vestmannaeyingar; þeir voru alls staðar, þar sem ekkert var til að liggja á nema gólfið. Eg man það, að eg var nærri dottinn um eitthvað í göngunum fyrir utan klefadymar rnínar um nóttina...Hélt eg, að það væri stór hundur, sem hefði hringað sig þama saman, en við nánari að- gæzlu sá eg, að þetta var sofandi maður. Vestmannaeyingar teljast annars ekki til farþega, og eru heldur ekki skoðaðir sem flutningur eða vörur, því að þeim er ekkert pláss ætlað; þeim er stungið hingað og þangað, þar sem þeir em ekki fyrir neinum, bak við stiga. undir bekki og víðar. en í einu tilliti er þeim gert jafnt undir höfði og öðmm mönnum, og það mönnum af skárra taginu: þeir fá að borga fargjald eins og farþegar á fyrsta plássi. Svona er það á öllum stærri farþegaskipum, sem annars hafa getað fengið það af sér að koma við í Eyjum...“ 1923-38: Esjaeldri. 1928: Sjóflugvélin Súlan lendir í íyrsta sinn við Eyjar. einstaklingar legðu fram fé í stofn- kostnað. 1956: Þingfrumvarp um smíði ferða- skips. 1958: Skipaútgerð ríkisins semur um smíði strandferðaskips. 1959-1976: Herjólfur I. Reykjavík, Þorlákshöfn, 6 ferðir á viku á sumrin, en þó tvisvar í mánuði til Homa- fjarðar. 12 bílar í ferð, hífðir um borð. Lengd 44 m, breidd 9 m, tvær vélar 916 hö„ hraði um 14 sjómflur, farþegar 39 þar af 20 svefnrúm. 1962: Frumvarp um nýtt og stærra Eyjaskip. 1963: Bæjarstjóm krefst betri sam- gangna á sjó. Með nýrri tækni og aukinni velsæld gæti verið í augsýn sannkölluð samgöngubylting með tilheyrandi viðreisn í byggðarlaginu á fjölmörgum sviðum. Það er ekki verjandi að bíða í áraraðir eða áratugi eftir að röðin komi að okkur meðan hér ríkir viðvarandi atvinnuleysi og stöðug fækkun íbúanna. Haldi sleifarlag ríkisvaldsins áfram varðandi sómasam- legar, nútímalegar, samgöngubætur við Eyjar, er ekki nema eitt fyrir okkur Eyjamenn að gera og það er að stofna félag um bættar samgöngur sem hefði það að markmiði að hraða sem allra mest rannsóknum á þeim möguleikum sem eru í stöðunni og hefja síðan rekstur á viðunandi samgöngumannvirkjum í framhaldi af því. 1939: Fyrsta lending flugvélar í Eyjum, austan við Helgafell í túni Þorbjöms bónda. 1940-1959: Vélbátar í fömm, stopular ferðir. Skíðblaðnir, Hersteinn, Gísli Johnsen, Blátindur, Skógafoss, Helgi o.fl. Frá Reykjavík, Þorlákshöfn, Eyrarbakka og Stokkseyri. Vonar- stjaman sex daga vikunnar 1955-58. Laxfoss einnig á tímabili einu sinni í viku milli Reykjavíkur og Eyja 1946: Bæjarstjóm athugar kaup á ms. Laxfossi en frá því var horfið. Fullbúinn flugvöllur, áætlunarflug Loftleiða. 1952: Flugfélag íslands hefur flug til Eyja, síðar Eyjaflug, íslandsflug, Flugfélag Vestmannaeyja og Jórvík. Auk Reykjavíkur flogið á Selfoss, Hellu, Skóga, Beijanes og Bakka. 1954: Tillaga íbæjarstjóm: Þingmenn kjördæmisins hvattir til að fá sam- þykkta fjárveitingu til að halda úti siglingu farþegaskips. Bæjarstjóra falið að kanna kaup eða nýbyggingu skips. 1955: Borgarafundur um kaup á skipi. Flug stopult og vömkjótl með fiskibátum leifar löngu liðins tíma. Skipaverkfræðingi falið að teikna 300 tonna skip með 30-40 manna far- þegarými. Rætt um að bæjarfélagið og Áskorun: Atvinna fyrir alla! Við minnum á það böl sem at- vinnuleysið er, nú þegar um 140 manns em atvinnulausir í Eyjum. Við teljum það einfaldlega mann- réttindi hvers bæjarbúa að eiga kost á atvinnu. Hin sálrænu- og félagslegu vanda- mál sem fylgja atvinnuleysi em öllum kunn. Með því að viðhalda atvinnuleysi er bæjarfélagið aðeins að bjóða heim kostnaðarsömum heilbrigðisvandamálum og vanhæf- ara samfélagi þegar upp er staðið. Verkefnin í Eyjum em ærin hvert sem litið er og fyllilega réttlætanlegt að bæjarsjóður fjárfesti í atvinnu fyrir alla meðan kreppir að á vinnu- markaði. Við skomm á bæjaryfirvöld að taka hart á atvinnuleysisdraugnum og kveða hann niður sem allra fyrst og vera þannig fyrirmynd annarra bæjarfélaga um land allt. Baráttuhópur gegn atvirmuleysi 1966: Bæjarstjóm vill láta kanna smíði nýs skips. 1967: Svifskip í förum í nokkrar vikur til reynslu. 1972: Tillaga kemur fram á þingi um þyrluflug milli lands og Eyja. Onnur tillaga um smíði nýs skips. Borgara- fundur um nýja ferju í maí. 1974: Félag stofnað um rekstur skips, Herjólfur hl'. 433 bæjarbúar með 65 milljón króna stofnframlagi. Framlag bæjarsjóðs 60 milljónir, ríkissjóðs 90 milljónir. 1976-1992: Herjólfur II. Siglt til Þorlákshafnar 6 sinnum í viku, 7 sinnum á sumrin til að byija með. Vél 2400 hö„ 17 klefar, 34 rúm, 400 farþegar, bílum ekið um borð. 1978: Byrjað að lenda á Bakka í gömlum kartöflugarði. 1980: Ný flugstöð vígð. 1987: A lánsfjárlögum heimild til lántöku vegna hönnunar á nýrri ferju. 1989: Leit að notaðri ferju ber ekki árangur. 1990: Ríkisstjómin heimilar útboð á feiju. Flugmálastjóm tekur við rekstri Bakkaflugvallar. 1992: Herjólfur III. Teiknaður hjá Skipatækni hf„ smíðaður í Noregi. Tvær 2700 KW vélar, lengd 70 m, breidd 16 m, ganghraði 17 sjómílur, 500 farþegar, 70 fólksbflar, bflum ekið í gegnum skipið. 1998: Samþykkt þingsályktun um forkönnun á vegtengingu milli lands og Eyja. 2000: Tillaga samþykkt á þingi um rannsókn á feijuaðstöðu á Bakkaíjöm. I jarðgangaáætlun Vegagerðar er áætlaður kostnaður við göng til Eyja um 25 milljarðar og framkvæmdin ekki talin arðbær. 2001: Samskip tekur að sér rekstur Heijólfs eftir að hann var boðinn út. 2002: Kröfur um bættar samgöngur milli lands og Eyja þrátt fyrir íjölgun ferða Heijólfs, sem tengist samdrætti í flugi milli Reykjavíkur og Eyja og breyttu lífsmynsui. Þrír borgarafúndir, undirskriftasöfnun þar sem á þriðja þúsund bæjarbúa kreíjast tveggja ferða á dag og nýs skips. Skýrt kveðið á um nauðsyn þess að stórbæta samgöngur við Eyjar í byggðaáætlun ríkisstjómar til næstu þriggja ára. Ráðherra skipar nefnd sem leggur m.a. til fjölgun ferða Herjólfs og mikla uppbyggingu á Bakkaflugvelli. Þings- ályktunartillögur lagðar fram um könnun á loftpúðaskipi og kaup eða smíði á hraðskreiðri feiju. Hugmyndir um kaup á notaðri hraðfeiju. Samningur milli Vegagerðar og Samskipa framlengdur til ársloka 2005. Ekki gert ráð fyrir fjárveit- ingum til kaupa á ferju í tólf ára samgönguáætlun ríkisstjómarinnar sem lögð var fram í lok ársins. Svo sem sjá má hafa ferðir milli lands og Eyja ekki alltaf verið teknar út með sældinni og sérhver breyting virðist hafa átt sér langan aðdraganda. Trúlega er svipaða sögu að segja úr flestum landshomum ef að er gáð. En nú telja margir að við höfum dregist illilega aftur úr í samgöngu- málum miðað við aðra landshluta þar sem blasa við miklar samgöngubætur í formi jarðganga, vegagerðar, brúar- smíða o.s.frv. Mörgum blöskrar sá seinagangur sem við höfum orðið vitni að undan- farin ár þegar málin snúast um sam- göngur við Eyjar og bitnar nú beinlínis á samkeppnishæfni byggðarinnar og allri byggðaþróun hér, t.d. þegar lftilsháttar fjölgun ferða Herjólfs var kreist út úr ríkisvaldinu með miklum harmkvælum á síðastliðnu ári. Og einangrunarstefna yfirvalda birtist nú þessa dagana í því að fækka ferðum í 8 á viku í þrjá mánuði á ári. Fjölmennir borgarafundir, undir- skriftasöfnun og margítrekuð blaða- skrif virðast ekki hagga þeim sem með völdin fara í þjóðfélaginu. Nýj- um hugmyndum er rutt út af borðinu og þar sem menn sjá þó einhverja möguleika eins og með ferjulægi f Bakkafjöru, þar eru rannsóknir allar með hraða snigilsins og engar fjárveitingar eða vakandi vilji til þess að flýta þeim rannsóknum sem mest. Sama er að segja um jarðgöng, þó einhvem tíma hafi verið settur verð- miði á þau er það fráleitt einhver lokatala, svo mikil er framþróunin á sviði jarðgangagerðar. í nýrri byggðaáætlun er hin mikla þörf á samgöngubótum við Eyjar viðurkennd en framkvæmdin síðan öll í skötulíki. Með nýrri tækni og aukinni velsæld gæti verið í augsýn sannkölluð sam- göngubylting með tilheyrandi viðreisn í byggðarlaginu á ijölmörgum sviðum. Það er ekki verjandi að bíða í áraraðir eða áratugi eftir að röðin komi að okkur meðan hér ríkir viðvarandi atvinnuleysi og stöðug fækkun íbúanna. Haldi sleifarlag ríkisvaldsins áfram varðandi sómasamlegar, nútímalegar, samgöngubætur við Eyjar, er ekki nema eitt fyrir okkur Eyjamenn að gera og það er að stofna félag um bættar samgöngur sem hefði það að markmiði að hraða sem allra mest rannsóknum á þeim möguleikum sem eru í stöðunni og helja síðan rekstur á viðunandi samgöngumann- virkjum í framhaldi af því. Fordæmi höfum við fyrir slíku framtaki eins og þegar ráðist var í að sækja vatn upp á land og dæla í römm hingað út á hafsbotni. Vestmanna- eyjabær réðst í þá framkvæmd þó ríkisvaldið drægi lappimar sem endranær. Engum blandast hugur um að sú framkvæmd var fyllilega tíma- bær og hefur skipt miklu máli varðandi alla byggðaþróun hér í Eyjum. Krístján Bjamason Sigurgeir Scheving bíóeigandi -Mér fannst hann mjög góður, það var komið víða við og þátturinn var mjög áhrifamikill og þetta var mjög vel gert að mínu mati. Eg hef mikið verið að skoða myndbönd af gosinu og þarna kemur þó nokkuð fram sem ég hel ekki séð áður og það er hið besta mál. Eg bið spenntur eftir næsta þætti. Páll Marvin Jónsson forstöðu- inaður Háskólasctursins -Heyrðu, ég sa hann ekki en ég lifi samt. Eg hef heyrt margt gott um hann og ætla mér að sjá hann en ég er ekki með Stöð 2, ég kaupi Fjölsýn. Halldór B. Halldórsson hús- vörður -Ég var rosalega ánægður með þátt- inn. Hann er mjög áhugaverður. Ég man eftir þessu öllu saman en ég var harðnaður unglingur í gosinu og þetta vakti upp Ijúlsárar minningar. Ég held að allir Eyjamenn híði spenntir eftir að sjá næsla þátt. Nanna Þóra Áskelsdóttir for- stöðumaður Safnahússins -Mér fannstr"-----—| hann mjög l góður. Hann var tekin frá allt , öðru ll sjónarmiði en oft áður, mannlegi — þátturinn fékk að njóta sín betur. Hvað fólk gekk í gegnum fyrstu klukkutímana. Fékk fólk lil að upplifa stundina.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.