Fréttir - Eyjafréttir - 06.03.2003, Page 1
HERJÓL V FUR ETRARÁÆTLUN
Frá Frá Vcttm.cyjum Þorl.höfn Mánu-til laugardaaa 08.15 12.00 Aukaferö föstudaga 16.00 19.30 Sunnudaga 14 00 18 00 H ERJÓLFU R
LandjiiOmgar Upplýsingastmi: 481-2800 * www.harjolfur.it
30. árg. • 10. tbl. • Vestmannaeyjum 6. mars 2003 • Verð kr. 180 • Sími 481 1300 • Fax 481 1293 • www.eyjafrettir.is
Kristján
vill Grím
á listann
-og hann er að
hugleiða tilboðið
í vikunni tilkynnti Kristján
Pálsson. þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, úrsögn sína úr
flokknum og boðar sérframboð í
Suðurkjördæmi.
Samkvæmt heimildum Frétta
hefur Kristján boðið Grími
Gíslasyni, sem ekki hlaut náð
fyrir augum kjörnefndar flokks-
ins, annað sætið og mun hann
vera að hugsa málið.
Hrogna
vinnsla
er byrjuð
Hrognavinnsla hófst hjá ís-
félaginu síðasta mánudag að
sögn Oskars Olafssonar,
vinnslust jóra Isfélagsins.
„Við höfum verið að vinna
iðnaðarhrogn sem við seljum til
dæmis til Póllands. Við erum
búin að framleiða 250 tonn en
vatnsinnihald hrognanna er ekki
nægilegt ennþá fyrir Japans-
markað. Við teljum að það séu
tveir dagar í það ennþá,“ segir
Óskar.
Þorsteinn Magnússon, fram-
leiðslustjóri, Vinnslustöðvarinnar
segir að þar hafi hrognavinnsla
einnig hafist á mánudag. „Við
höfum unnið um 150 tonn og
vonumst til að þroski hrognanna
verði kominn á það stig eftir tvo
til þrjá daga að við getum hafið
framleiðslu á Japan,“ segir Þor-
steinn.
Ekki boðið út
Bæjarstjórn upplýsti á fundi
sínum 20. febrúar sl. að ekki
stæði til að bjóða út endurnýjun á
gólfi og lagfæringum á þaki
gamla íþróttasalarins. Þetta telja
fulltrúar V-listans í alla staði
óeðlilegt og lögðu til að verkið
verði boðið út. Málinu var vísað
til bæjarráðs og að þar verði
lagðar fram nánari upplýsingar.
Bilunin á vatnsleiðslunni enn ekki fundin:
Spara dropann
Þessar myndir af Andvara
VE voru teknar 27. febrúar
sl. þegar hann kom í land á
Nýfundnalandi eftir að hafa
verið þrjá sólarhringa að
berjast í gegnum mikla
ísingu. Að sögn Jóhanns
Halldórssonar útgerðar-
manns lentu þeir í tíu
gráðu frosti og vestan
stormi á leiðinni í land.
„Skipið er búið að vera tíu
ár á þessum slóðum en
hefur aldrei lent í slíku
áður.“
Andvari hélt aftur á veiðar
1. mars.
Enn hefur ekki tekist að tlnna
hilunina í vatnslögninni milli
lands og Eyja. Þrátt fyrir blíðu-
veður undanfarna daga hefur
köfurum ekki tekist að finna
bilunina með neðansjávar-
myndavél en á þriðjudag
skemmdist hún í brimi við Land-
eyjasand og komst ekki í lag fyrr
en seinni partinn í gær.
Friðrik Friðriksson, veitustjóri
Hitaveitu Suðurnesja í Eyjum, sagði
í gær að ef allt fer sem horfir séu
menn komnir yfir erfiðasta hjallann
hvað vatnsnotkun varðar. „En það
má lítið út af bregða."
Friðrik sagði ennfremur að ekki
væri ljóst hvar bilunin er enda eru
mælingar vísindamanna misvís-
andi, það eina sem þeir staðfesta er
að bilunin er einhvers staðar á milli
lands og Eyja. Friðrik vonaðist til
að bilunin fyndist í vikunni.
„Eyjamenn hafa staðið sig feiki-
lega vel í því að spara vatnið og eiga
hrós skilið.“ sagði Friðrik.
Vatnsmagnið í tönkum hefur hald-
ist nokkuð stöðugt þrátt fyrir að nú
hafi loðnuvinnsla verið í fullum
gangi undanfarið og sagði Friðrik í
Fréttaljósi á föstudaginn að það
magn sem tapaðist yfir daginn næði
að vinnast upp á nóttinni. Hann
sagði ennfremur að starfsmenn
Hitaveitu Suðurnesja sæju það
glöggt á mælum veitunnar að Eyja-
menn taka tillit til aðstæðna.
Ætlum að vinna
músíktilraunir
Unglingar fá mikið pláss í
blaðinu í dag og er m.a. við-
tal við hljómsveitina Brútal
sem er að gera það gott.
I BLS. 14&15
Gauragangur á
fjalirnar
Leikfélagið er nú að æfa leikritið
Gauragang eftir Olaf Hauk
Símonarson. Verður það frum-
sýnt 15. mars.
| BLS. 12
TM-ÖRYGGI
fyrir fjölskylduna
sameinar öll tryggingamálin
á einfaldan og hagkvæman hátt
■ .1 öllum sviöum!
Viðgerðir og smurstöð
Sími 481 3235
Réttingar og sprautun
. Sími 48.ÍJL525-.
Skip og bfll
EIMSKIP Œtf&m-Ei
sími: 481 3500
sími: 481 3500