Fréttir - Eyjafréttir - 20.03.2003, Blaðsíða 20
Frétta- og auglýsingasími: 481-3310 • Fax 481-1293
Enn
hársnyrtistofa
SÍMI 481 3666
LftRTERRff
VEITINGAHUS
BÁRUSTÍG 11
SÍMI 481 3393
Góður matur. Góð þjónusta.
Kostar minna en þú heldur.
Sendibílaakstur - innanbæjar
Vilhjálmur B * 481-2943 r it 897-1178 íL ergsteii l£MDÍm isson mmt
Hrópleg mismunun
á löggæslukostnaði
ÍBV-íþróttafélag hefur sent
dómsmálaráðherra bréf þar sem
farið er fram á sem gleggstar
upplýsingar um löggæslukostnað
og annað sem snýr að þjóðhátíð.
„Við hjá ÍBV-íþróttafélagi erum
mjög óánægðir með það ójafnrétti
sem á sér stað varðandi löggæslu-
kostnað á útihátíðum um verslunar-
mannahelgi. Þannig þurfa stórar há-
tíðir eins og Kántríhátíðin á Skaga-
strönd, Neistaflug á Neskaukstað
og Síldarævintýrið á Siglufirði ekki
að greiða löggæslukostnað en eru í
beinni samkeppni við Þjóðhátíð
Vestmannaeyja sem þarf að greiða
milljónir ár hvert. Þá er ógetið
stórra hátíða eins og Menningar-
nætur í Reykjavík og Landsmóts
hestamanna sem greiða engan lög-
gæslukostnað," segir í bréfinu.
Gerð er sú krafa að þjóðhátíðin
sitji við sama borð og aðrar útihá-
tíðir hvað varðar löggæslukostnað.
„Við óskum eftir skýrum svörum
við því hvernig búast megi við að
löggæslukostnaður verði innheimt-
ur á næstu þjóðhátíð og hvað megi
búast við mikilli endurgreiðslu frá
hinu opinbera vegna sjóðs sem
hefur að hluta greitt löggæslu-
kostnað síðustu tvö ár,“ eru lokaorð
bréfsins sem Páll Scheving, fram-
kvæmdastjóri ÍBV-íþróttafélags
skrifar undir.
Mótmæli
gegn stríði
Síðastliðinn laugardag
kom fólk saman til að mót-
mæla stríði víðs vegar um
heim. í Vestmannaeyjum
kom hópur saman við
vatnslistaverkið á
Stakkagerðistúni. Sr.
Þorvaldur Víðisson leiddi
bæn, sunginn var sálmur
og Hjálmar Guðnason lék
á trompet. Stundin var
látlaus og virðuleg en með
þessu vildi fólk mótmæla
stríðsátökum við írak og
sýna friðarvilja sinn.
Mun lakari loðnuverfíð en tvö síðustu ár:
Tæplega 90.000 tonn á land í Eyjum
Loðnuvertíð er um það bil að
Ijúka og samtals tóku Isfélag og
Vinnslustöð á móti 120.000 ton-
num, þar af tæplega 90.000 í
Eyjum. Isfélagið tók á móti
31.000 tonnum í Krossanesi.
Fryst voru samtals 2165 tonn og
unnin 1653 af hrognum.
Sighvatur Bjarnason VE 81 er eini
íslenski báturinn á loðnumiðunum
og er um það bil að klára kvótann.
Fiskimjölsverksmiðja Vinnslu-
stöðvarinnar tók á móti 42 þúsund
tonnum á vertíðinni og reiknað er
með að bræðslu Ijúki undir aðra
helgi. Tæp 200 tonn af loðnu voru
fryst á Japansmarkað og rúm 600
tonn á Rússlandsmarkað. Hrogna-
vinnsla gekk vel en um 1400 tonn
voru fryst hjá Vinnslustöðinni.
Stefán Friðriksson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri, segir það von-
brigði að afli til bræðslu var 15 til
20 þúsund tonnum minni en á
vertíðinni í fyiTa. „Skýringin felst í
því að loðnukvótinn var þrjú hundr-
uð þúsund tonnum minni í ár en á
síðasta ári. Einnig var minna fryst
af loðnu á Japan, stærð og gæði
hentuðu ekki á þann markað. Við
erum hins vegar ánægðir með
hrognavinnsluna en við frystum
meira af þeim en á síðasta ári. Þær
breytingar sem við gerðum á
hrognavinnslunni eru að skila til-
ætluðum árangri," segir Friðrik
Hjá Isfélaginu er það að frétta að í
Krossanesi var tekið á móti i 31.296
tonnum af loðnu. Þar voru fryst 123
tonn af hrognum í samvinnu við
Utgerðarfélagi Akureyrar. Fiski-
mjölsverksmiða Isfélagsins í
Vestmannaeyjum tók á móti 43.564
tonnum af loðnu. Fryst voru 1.365
tonn af loðnu að mestu fyrir Rússa-
markað og um það bil 1.300 tonn af
hrognum þar af um 400 tonn af
iðnaðarhrognum.
Jóhann Pétur Andersen, yfirmaður
uppsjávarsviðs, segir vertíðina hafa
farið vel af stað og afli fyrri hluta
hennar var meiri en á sama tíma í
fyrra. „Síðari hluta janúar og fyrri
hluta febrúar voru veiðar erfíðar
sökum veðurs en gengu þó þokka-
lega. Þegar upp er staðið er vertíðin
þó magnlega séð mun verri en í
fyrra og hitteðfyrra vegna þess að
kvótinn nú er mun minni en fyrri
árin. Var 1.076 þúsund tonn í fyrra
en 765 þúsund þessa vertíð," segir
Jóhann Pétur.
VIKUTILBOÐ
20. - 26. mars
Mars,Twix,Bounty Bisc
Uncel Bens sósur 2 steps
Uncel Bens krydd grjón
Uncel Bens pokagrjón 400
SS. Pizza bollur
SS. Bacon bollur
S London lamb
tmz, 1
v,
>e
Verð *
Aður
SS reykt. svínakót.
Verð
Nús 1259,- %, Aðut 1698,-