Fréttir - Eyjafréttir - 01.05.2003, Side 17
Fimmtudagur 1. maí 2003
Fréttir
17
Í
hann bœði við þorsk og lax.
„Varðandi sjúkdóma í eldi þá er
meiri hætta á smiti þegar fiski er
þjappað saman heldur en í villtri nátt-
úmnni.“
Nœsta spuming var til Lúðvíks. Það
er alltaf ákveðin áhœtta og óvissa
þeirra er fara í útgerð. Er ekki
metnaður stjómmálamannanna að
lágmarka óvissunafyrir þá sem starfa
í greininni?
Lúðvík sagði að menn hefðu
svolítið staldrað við hugmyndir um
stöðugleika í greininni og stöðugt
rekstrarumhverfi. „Arið 1984 var
þorskveiðin um 300.000 til 350.000
tonn og þá vom smábátamir að veiða
12.000 tonn. í dag er aflinn 170.000
tonn og þá em smábátarnir að taka
50.000 tonn. Hvaða stöðugleiki er
þetta? Hvaða stöðugleiki er í þessari
línutvöföldun? Hvaða stöðugleiki er
að færa sífellt fleiri tegundir í kvóta?
Um hvaða stöðugleika em menn
eiginlega að tala? Svo eru menn að
tala um leiguliða. Hafa menn ekki
verið að leigja til sín kvóta? Hvers-
konar umræða er þetta? Ég er
samfærður um það að þeir aðilar, sem
hér hafa tekið áhættu, gætu tekist á við
hvaða fiskveiðistjómunarkerfi sem er.
Það er enginn með þá hugmynd að
vega að byggðinni.“
Stóru útgerðimar
skuldsettastar
Nœst var það Magnús Þór sem var
spurður að því hvers vegna frysti-
togarar og uppsjávan’eiðiskip vœru
utan sóknardagakeifisins í tillögum
Frjálslyndra?
„Fyrir það fyrsta þá em þessi skip í
eigu stórútgerðarmanna þar sem
skuldimar eru mestar, fjármagns-
skuldbindingar em mest í skipum,
búnaði og kvótum. Við viðurkennum
að þessar útgerðir þurfa að búa við
stöðugleika og hafa þær óskað eftir
því. Við viljum leyfa þeim að vera í
þessu kerfi á meðan við erum að
einbeita okkur að strandveiðiflot-
anum, þetta er fyrri ástæðan. Sú síðari
er að mörg þessara skipa em að veiða
úr kvótum sem byggðir em á milli-
ríkjasamningum. Svo virðast einsleitar
veiðar ganga upp í kvótakerfi.“
Hvers vegna ívilnun fyrir
línuskip?
Lokaspurning til Guðjóns var:
„Hvað meinar Sjálfstœðisflokkurinn
með því að fara að vera með
einhverjar ívilnanir fyrir línuskipin
umfram það sem aðrir liafa er veiða
fisk?“
Guðjón svaraði því til að línu-
tvöföldunin var sett fram til að sætta
menn. „Það er ljóst að þetta verður
einhvers staðar tekið. Við viljum
halda núverandi kerfi svo til óbreyttu.
Menn sem hafa verið að ijárfesta í
greininni geta ekki búið við það að
handaflsaðgerðir breyti stöðu þeina.
Það er sama hvaða fiskveiðistjórn-
unarkerfi verður notað, það em ekki
fleiri fiskar í sjónum en vonandi eykst
hann.“
Einn sagði að ef tólf prósent kvóta-
þak dygði ekki þeim sem eru í
atvinnugreininni þá eigi þeir að finna
sér eitthvað annað að gera. Varðandi
aflamarkskerfið þá finnst mér vera
ákveðin hagrœðing í því og betri
umgengni. Það er gengið betur um
auðlindina þegarmenn hafa ákveðinn
kvóta. Hann sagði að skip lians hafi
daginn áður siglt 30 klukkustundir á
milli miða til þess að ná í hagkvœmari
fiskstœrð og þarmeð auka verðmœtin.
„Við stoppum bátinn í viku á milli
túra þar sem kvótinn er ekki nœgur,
þó svo að keyptur hafi verið kvótifyrir
hundruðir milljóna, “ sagði þessi.
Sá síðasti sem tók til máls sagði að
auðvitað vœri óvissa í sjávarútvegi.
„En menn búa þó við það að fá
ák\’eðna úthlutun í byrjun september
og að skipuleggja sigfram í tímann.
Ef það á að fara að reyta þennan
kvóta af okkur skipulega, þá hverfur
þessi vissa um það hvað við getum
gert á ruestu árum. Eg sé ekki hvernig
það á að geta gengið upp, “ sagði
hann.
Fréttir fengu að glugga í gögn af
fundinum og er greinin unnin upp úr
þeim.
Svenni@eyjafrettir. is
MAGNÚS og Bergey í verslun sinni sem er hin glæsilegasta.
Verslunin Axel Ó flutt:
A Bárustíginn eftir áratuga
veru á Vestmannabrautinni
í síðustu viku flutti Axel Ó verslun sína af
Vestmannabraut 23 yfir í húsnæði að Bárustíg 6. Við
þetta stækkar verslunin uni rúmlega helming og eins
fá þau Magnús Steindórsson og Bergey Edda
Eiríksdóttir, sem reka verslunina, talsvert meira pláss
undir sístækkandi lager verslunarinnar. Magnús
sagði í samtali við Fréttir að móttökurnar hefðu verið
gríðarlega góðar þegar þau opnuðu 22. aprfl sl. „Það
var í sjálfu sér engin sérstök ástæða fyrir
dagsetningunni, hugmyndin var að nota páskana í það
að fiytja enda rosalega stór lager sem þurfti að færa
til.“ Hann sagði helstu ástæðuna fyrir flutningunum
vera þann að sinna viðskiptavinum verslunarinnar
betur með stærri verslun og meira vöruúrvali. „Hin
verslunin var bara barn síns tíma og það var kominn
tími á þetta. Við munum áfram sinna
íþróttavörunum af miklum krafti og þar verður
vöruúrvalið aukið en eins hef ég verið að prufa mig
aðcins áfram í tískufatnaði og það er aldrei að vita
hvaða stefnu það tekur hjá okkur.“ Magnús sagði
ennfremur að mikill munur væri á staðsetningu
verslunarinnar. „Nú erum við komin niður í miðbæ
þar sem umferðin er meiri og vonandi fylgir því meiri
traftík. Við erum í góðum málum vegna bflastæða en
á bak við verslunina er fjöldi bflastæða sem ætluð eru
versluninni.“ Axel Ó hefur mest verið með
íþróttavörur frá Hummel, Nike og Adidas og skó frá
Ecco Skechers Diesel ásamt fleiru.
msm
ADSEND GREIN
Olafía Jakobsdóttir skrifar:
Fjölbreytni í atvinnu lykill að bættri byggðaþróun
Vinstrihreyf-
ingin - grænt
framboð
telur það
mikilvægt
grundvall-
aratriði í
hveiju vel-
ferðarsam-
félagi að
tryggja fulla
atvinnu og
störf við
hæfi.
Jafnframt er næg og fjölbreytt
atvinna, ásamt með öflugri velferðar-
þjónustu, traustu menningarlífi og
öruggu umhverfi, grundvöllur hverrar
lífvænlegrar byggðar og forsenda
farsællar byggðaþróunar. I þessum
málaflokkum, sem og öðmm, er
grundvallarstefna Vinstrihreyfing-
arinnar-græns framboðs mjög skýr.
Lögð er áhersla á sérstöðu hvers
byggðarlags og sjálfbæra nýtingu
auðlinda í þágu atvinnulífsins, þar
sem fjölbreytni er lykilinn að
blómlegu atvinnulífi.
Vinstrihreyfingin- grænt fram-
boð telur eflingu ferða- þjón-
ustunnar mjög vænlegan kost í
íslensku atvinnulífi og vaxtar-
möguleika mikla. Ferðaþjón-
ustan skapar tiltölulega mörg
störf, þau dreifast nokkuðjafnt
um landið og höfða til beggja
kynja, þannig að hún er ekki
skilgreind sem karla- eða
kvennastörf.
Sjálfbær atvinnustefna
1 sjálfbærri atvinnustefnu fara um-
hverfisvemd og atvinnuuppbygging
saman.
Að byggja upp atvir.nu í þeim anda
krefst aukins skilnings á þeim miklu
tækifæmm sem felast í metnaðarfullri
umhverfisvemd. Því miður líta sumir
á umhverfisvemd sem dragbít á
þróttmikið atvinnulíf og skilja ekki að
hún er í raun uppspretta tækifæranna
og auðlindabanki til framtíðar.
Ferðaþjónustan er vaxtarbroddur
í atvinnumálum
Vinstrihreyfingin- grænt framboð
telur eflingu ferðaþjónustunnar mjög
vænlegan kost í íslensku atvinnulífi
og vaxtarmöguleika mikla. Ferða-
þjónustan skapar tiltölulega mörg
störf, þau dreifast nokkuð jafnt um
landið og höfða til beggja kynja,
þannig að hún er ekki skilgreind sem
karla- eða kvennastörf. Tekjur af
þjónustu við erlenda ferðamenn hafa
margfaldast á undanfömum ámm.
Aðeins sjávarútvegurinn aflar nú
meiri gjaldeyristekna en ferðaþjón-
ustan, sem er þar með orðin ein af
undirstöðuatvinnugreinum lands-
Menningartengd ferðaþjónusta
Mikilvægt er að styðja vel við bakið á
menningartengdri ferðaþjónustu sem
er í ömm vexti víða um land og
gefur menningararfur þjóðarinnar þar
óteljandi sóknarfæri.
Eitt af forgangsverkefnum Vinstri-
grænna, ef við fáum til þess afl í
komandi kosningum verður að móta
framtíðarstefnu um uppbyggingu
ferðaþjónustu þar sem græn og
menningartengd ferðaþjónusta skipar
veglegan sess.
Náttúruvernd á að vera viður-
kennd leið til landnýtingar
Undirstaða ferðaþjónustu á Islandi er
og verður fjölbreytt náttúra landsins,
stórbrotið landslag og hálendið með
sínum óbyggðu víðernum, sem eiga
sér fáa sína líka. Brýnt er að tryggja
að sú ímynd sem við viljum að landið
hafi í okkar eigin og annarra augum
sé sannleikanum samkvæm. Þess
vegna er nauðsynlegt að efla náttúm-
vemd og tryggja góða umgengni um
landið og sjá til þess að ferða-
mennskan valdi ekki tjóni á við-
kvæmri náttúm landsins.
Samgöngur
Góðar og greiðar samgöngur em
mikilvægur þáttur við eflingu at-
vinnulífs á landsbyggðinni. Hér í
Suðurkjördæmi eru bættar sam-
göngur til Vestmannaeyja forgangs-
mál. Þar em jarðgöng milli lands og
Eyja mjög áhugaverður kostur ef
hægt reynist að tryggja nægilegt
öryggi. Úr því fæst skorið með með
rannsóknum sem tryggja þarf nægi-
legt frjármagn til. Góðar samgöngur
milli lands og Eyja eru hagsmuna-
mál allra landsmanna en þó sér-
staklega í Suðurkjördæmi með tilliti
til almennrar uppbyggingar og
aukinnar fjölbreytni í atvinnumálum.
Sjálfbær þróun, öflugt atvinnulíf
Öflugt atvinnulíf á að byggjast sem
mest á auðlindum sem til em á við-
komandi svæðum og tryggja á sem
ömggastan hátt lífsgmndvöll og
lífsgæði fyrir núverandi og komandi
kynslóðir í anda sjálfbærrar þróunar.
Stefna VG í atvinnumálum er fram-
tíðarstefna. Það skulum við hafa að
leiðarljósi í kjörklefanum þann 10.
maí nk.
Höf skipar 3. sœti áframboðslista VG í Súðurkjödivmi