Fréttir - Eyjafréttir - 08.05.2003, Síða 15
Fimmtudagur 8. maí 2003
Fréttir
15
Vinnum bæjar-
félaginu heilt
-og munum halda því áfram þó aðstæður breytist
-segir Guðríður Asta Halldórsdóttir sem skipar
annað sæti á lista Framsóknar og óháðra og telst
réttkjörin bæjarfulltrúi þó oddvitinn sé á öðru máli
Félagsmálaráðuneyti úrskurðaði
fyrir skömmu að Guðríður Asta
Halldórsdóttir sé réttkjörinn vara-
bæjarfulltrúi B-lista Framsóknar-
flokksins og óháðra í bæjarstjórn
Vestmannaeyja. Aður hafði And-
rés Sigmundsson tilnefnt Skæring
Georgsson sem varamann sinn eftir
að hann sleit meirihlutasamstarfi
við Sjálfstæðisflokk. Guðríður Ásta
er í 2. sæti listans en Skæringur í
því 12.
Ásta segist hafa leitað eftir áliti ráðu-
neytisins þar sent hún vildi vita hver
staða hennar væri sem varabæjar-
fulltrúi. „Eg er mjög ánægð með
niðurstöðuna, ekki eingöngu vegna
þess að þetta snýr að mér heldur öllu
sveitarstjómarfólki. Næsti maður á
eftir aðalmanni í bæjarstjórn er
sannarlega varamaður og röðun á lista
skiptir máli og gildir. Þetta er í fyrsta
skipti sem svona úrskurður fellur en
það hefur aldrei verið látið reyna á
þetta ákvæði sveitarstjómarlaga fyrr. I
framhaldi af úrskurðinum sendi ég
bréf til bæjarráðs þar sem ég óskaði
eftir því að verða áheyrnarfulltrúi í
bæjarráði fyrir Framsóknarflokk og
óháða með tillögurétt og málfrelsi.
Framsóknarflokkurinn sem slíkur
hefur engan fulltrúa inni í bæjarráði
því Andrés starfar sem einstaklingur
og er ekki á vegum B- lista.“
Læt málefnin ráða
Með hverjwn kemur þú til með að
starfa, komirþú inn sem varamaður?
„Ég kem til með að láta málefnin
ráða. Framsóknarflokkurinn rauf ekki
fyrrverandi samstarf, það var Andrés
sem klauf sig út úr meirihlutanum.
Samstafið var gott og Andrés fór í
meirihlutaviðræður við Vestmanna-
eyjalistann án samþykkis fulltrúa-
ráðsins. Hann ræddi aldrei ónægju
sína við mig, né að hann hefði áhuga á
að fara í samstarf við Vestmanna-
eyjalistann. I samstarfssamningi var
kveðið á um, að ef til ágreinings kæmi
færu tveir efstu menn úr hvorum
flokki ásamt bæjarstjóra í það að leysa
hann og ná sameiginlegri niðurstöðu.
Á þetta reyndi aldrei. Ég er þvf ekki
sátt við hvemig að slitum var staðið.
Ef ég kem inn sem varabæjarfulltrúi
læt ég málefnin ráða og greiði
atkvæði eins og ég tel hagsmunum
bæjarfélagsins best borgið. Ég vona
að núverandi meirihluti beri gæfu til
að halda Inga sem bæjarstjóra hann er
mjög samviskusamur og góður í því
embætti sem hann tók að sér. I
ráðningarsamningi sem gerður var við
Inga er ekkert óeðlilegt eins og nýr
meirihluti hefur verið að ýja að.
Svona uppákomur eru mjög dýrar
fyrir bæjarfélagið, nú er lítið að gerast
hjá nýja meirihlutanum og virðist eiga
að geyma afgreiðslu allra mála fram
yfir alþingiskosningar. “
Viss klofningur
Er ekki Framsóknarflokkurinn klof-
inn?
„Auðvitað hefur átt sér stað viss
klofningur, því er ekki að neita. Ég
lít samt sem áður þannig á að aðal- og
varabæjarfulltrúar, ásamt fólki í
nefndum, eigi allir að vinna að sama
markmiði með heill bæjarfélagsins í
huga og verði að standa sig sem slíkt.
Til þess vorum við kjörin í vor. Eftir
þessi læti var ákveðin óvissa um það
hvað tæki við. En framsóknarfólk og
óháðir hittast eins og áður á laugar-
dögum og við förum yfir atburði
vikunnar. Einnig hittumst við, sem
erum í nefndum á vegum Sjálfstæðis-
flokksins, fyrir bæjarráðs- og
bæjarstjórnarftindi auk þess sem við
erum í net- og símasambandi og erum
dugleg að miðla upplýsingum á milli.
Samstaðan er góð innan raða
framsóknarmanna hvort sem þeir
starfa með Sjálfstæðisflokknum eða
Vestmannaeyjalistanum."
Ásta vill taka fram að starfsfólk
Ráðhússins hafí verið mjög lipurt og
útvegað gögn og veitt allar upp-
lýsingar þegar eftir þeini hef'ur verið
leitað. Hún segist vona að menn snúi
bökum saman, vinni að uppbyggingu
bæjarfélagsins og því sem skipti máli
eins og atvinnu-, samgöngu- og skóla-
málum. „Ég var ánægð með þær
hugmyndir sem komu fram í viðtali
við Baldvin Kristjánsson, skóla-
meistara Framhaldsskólans um
ákveðna sérhæfingu á skólanum og tel
þær athyglisverðar. Allir flokkar
lofuðu að byggja nýjan leikskóla fýrir
bæjarstjómarkosningar og ég hef trú á
að það verði gert á kjörtímabilinu.
Hins vegar er Ijóst og það kom fram
við gerð síðustu fjárhagsáætlunar að
svigrúm er ekki mikið til fram-
kvæmda. Að lokum vil ég að það
komi fram að kjósendur völdu mig til
að starfa fyrir bæjarfélagið. Ég vil
vera trú því sem ég er valin til að gera
hvort sem það er í minni- eða
meirihluta og kem til með að vinna
heils hugar að því sem mér er treyst
fyrir. Ég geri mitt besta,“ sagði Ásta.
ADSENDAR GREINAR
s
Isólfur Gylfi Pálmason, alþingismaður, skrifar:
I kosningunum er valið er þitt
Stundum má
líkja stjóm-
málum við
íþróttir. Þó
komumst við
pólutíkusamir
aldrei í hálf-
kvisti við
kvennalið
ÍBV í hand-
knattleik sem |
varð Islands-
meistari í handknattleik á verka-
lýðsdaginn. Við getum verið stolt af
stelpunum og því mikla og góða
íþróttastarfi sem er hér í Vest-
mannaeyjum. Iþróttastarf er for-
varnarstarf og þjappar fólki saman.
Til hamingu með árangurinn.
Úrslitaviðureign í stjórnmálum á
sér stað á laugardaginn lOmaíþegar
gengið verður til kosninga á Islandi.
Ég býð fram krafta mína áfram sem
þriðji maður á lista Framsóknar-
flokksins í Suðurkjördæmi. Ég hef
kappkostað að vinna fyrir Vest-
mannaeyjar og reyndar kjördæmið í
Úrslitaviðureign í stjómmálum á
sér stað á laugardaginn lOmaí.
Þegar gengið verður til ko.Miinga
á Islandi. Ég býð fram krafta
mína áfram sent þriðji ntaður á
lista Framsóknarflokksins í
Suðurkjördæmi. Ég hef kapp-
kostað að vinna fyrir Vest-
mannaeyjar og reyndar kjör-
dæmið í heild og haft ánægju af.
heild og haft ánægju af. Enn og aftur
eru samgöngur mál málanna hér í
Vestmannaeyjum.
Til þess að mæta brýnni þörf strax
er nauðsynlegt er að Herjólfur sigli á
milli lands og Eyja einnig að nætur-
lagi þegar mest álag er, t.d. vegna
stærri íþróttaviðburða, þjóðhátíðar
o.s.frv. Það léttir á vöruflutningum
og eykur rými fyrir bíla og farþega.
Herjólfur er okkar þjóðvegur, um það
verður ekki deilt. Þá er nauðsynlegt
að fá botn í það hvort göng milli
lands og Eyja em raunhæfur mögu-
leiki. Hér er ekki einungis um um
hagsmunamál að ræða fyrir ykkur
heldur einnig okkur sem búum í
nágrenni við ykkur uppi á landi. Við
verðum að hafa opin augu fyrir öllu
sem getur treyst samgöngur milli
lands og Eyja. Atvinnumál og
samgöngumál eru samtvinnuð.
Stöðugleiki er orð sem mikið er
notað í dag. Stöðugleikinn þarf að
vera á sem flestum sviðum. Ókyrrð
hefur verið í bæjarmálum í Vest-
mannaeyjum um tíma - þar þarf að
komast kyrrð og ró á til þess að skapa
vinnufrið. Sú ró fæst ekki með því
að víkja nýráðnum bæjarstjóra eins
og einhverjir hafa verið að velta fyrir
sér. Stöndum vörð um Fram-
sóknarflokkinn í komandi alþingis-
kosningum; við viljum vinna með
ykkur og fyrir ykkur. Á það má
treysta.
Höf erí 3. sœti á framboðslista Framsóknar íSuflurkjödœmi
S
Hjálmar Arnason, alþingismaður, skrifar:
Vinna- Vöxtur - Velferð
Ágæti Eyja-
maður, nú líð-
ur að lokum
þessarrar
kosninga-
baráttu. Við
munum ganga
að kjörköss-
unum laugar-
daginn 10.
maí nk.
Framsóknarflokkurinn hefur alla
kosningabaráttuna kappkostað að
kynna sín góðu málefni enda teljum
við að þau skipti kjósendur mestu
máli. Þar hafa einkunnarorð okkar
verið Vinna-Vöxtur-Velferð.
Að gefnu tilefni langar mig að fara
yfir nokkur atriði sem snerta
Eyjamenn mikið og við í Fram-
sóknarflokknum munurn beita okkur
fyrir fáum við til þess styrk á kjördag.
Herjólfur Þjóðvegur
Herjólfur verði skilgreindur sem
þjóðvegur - þjónusta og verð taki mið
af því. Hraðskreiða ferju strax til
Auka veiðiskyldu í 75-80%.
Aukna áherslu á vistvænar
veiðar, sbr. línuívilnun. Aukinn
stuðning við fiskeldi. Auð-
lindagjaldið verður nýtt til að
efla nýsköpun í sjávarbyggð-
unum. Úttekt á færeyska
fiskveiðistjórnunarkerfmu lokið
á árinu. Afnema kvótasetningu á
meðafla, þ.á.m. keilu, löngu og
skötusel.
reynslu. Ferðum Herjólfs fjölgað
varanlega og verulega. Flugsam-
göngur verði bættar. Stefnt verði að
jarðgöngum á milli lands og Eyja
sem langtímalausn.
Sjávarútvegur
Auka veiðiskyldu í 75-80%. Aukna
áherslu á vistvænar veiðar, sbr. línu-
ívilnun. Aukinn stuðning við fiskeldi.
Auðlindagjaldið verður nýtt til að
efla nýsköpun í sjávarbyggðunum.
Úttekt á færeyska fiskveiðistjóm-
unarkerfínu lokið á árinu. Afnema
kvótasetningu á meðafla, þ.á.m.
keilu, löngu og skötusel.
Fiskeldi
Fiskeldi verður ein meginstöðu í
fískvinnslu okkar. Vestmannaeyjar
eiga að verða brautryðjendur í eldinu.
Sókniner hafin.
Nýheimar í Vestmannaeyjum
Ella enn frekar rannsóknarsetur í
Eyjum, útibú frá Nýsköpunarmið-
stöð, Byggðastofnun og Impru.
Áhættuljármagn fyrir nýsköpun í
atvinnulífi.
Unga fólkið og velferðin
90% lán í fyrstu íbúð. Bamakort fyrir
börn til og með 16 ára. Endurgreiðsla
námslána niður í 3,75%. Lækka
skatt á matvæli. Afnema virðis-
aukaskatt á bamaföt. Lækka tekju-
skatt niður í 35,2%.
Munið að merkja X við B á kjördag.
VINNA - VÖXTUR-VELFERÐ
Höf. er í 2. sæti á framboðslista Framsóknar í Suflurkjödæmi
Ingibjörg Jónsdóttir skrifar:
Veljum duglegan þingmann og örugga stjóm
Kosningamar
nk. laugardag
verða mjög
spennandi og
miðað við um-
ræðuna upp á
síðkastið snýst
valið um það
að fá vinstri
stjóm eða
halda áfram
stöðugleika og
hagvexti. Það er staðreynd að vinstri
stjórnum fylgja skattahækkanir og
verðbólga, það yrði skelfilegt. Ég
hvet alla Vestmannaeyinga til að
kjósa með hagsmuni Eyjanna í huga
Guðjón er laus við hroka og
yfirlæti og er tilbúinn að hlusta á
fólk, hann er duglegur pólitíkus
sem þekkir vel aðstæður í
Eyjum. Atkvæði gefíð öðrum
framboðum mun ekki auka vigt
okkar Eyjamanna á Alþingi.
og tryggja Sjálfstæðisflokkinn áfram
við stjóm. Þá er mikilvægt fyrir
okkur Eyjamenn að fá talsmann aftur
inn á þing en eini Eyjamaðurinn í
baráttusæti er Guðjón Hjörleifsson.
Guðjón hefur unnið að málefnum
Vestmannaeyja um langt skeið og
enginn flokkur státar af jafn ötulum
baráttumanni fyrir Eyjar.
Guðjón er laus við hroka og
yfirlæti og er tilbúinn að hlusta á
fólk, hann er duglegur pólitíkus sem
þekkir vel aðstæður í Eyjum.
Atkvæði gefíð öðmm framboðum
mun ekki auka vigt okkar Eyja-
manna á Alþingi. Oddvitar tveggja
flokka em ekki einu sinni með
lögheimili í öllu kjördæminu.
Kjósum okkur duglegan þingmann
og tryggjum áfram ömgga landstjóm
og setjum X við D á laugardaginn.
Höf. efi I /. sæti á framboðslista Sjálfstæðisjlokksins íSuðurkjödcemi