Fréttir - Eyjafréttir - 08.05.2003, Blaðsíða 22
22
I
Fréttir
Fimmtudagur 8. maí 2003
Landa-
KIRKJA
Fimmtudagur 8. maí
Kl. 10.00 Mömmumorgunn í
Safnaðarheimilinu. Kaffi á könn-
unni og þægilegt andrúmsloft.
Laugardagur 3. maí
Kl. 16.00 Útför Önnu Tómas-
dóttur frá Landakirkju.
Sunnudagur 4. maí
Kl. 14.00 Guðsþjónusta í Landa-
kirkju á mæðradegi. Kirkjudagur
Oddfellowstúkunnar Vilborgar.
Kór Landakirkju syngur undir
stjóm Guðmundar H Guðjóns-
sonar. Prestur sr. Þorvaldur
Víðisson.
Kl. 16.00 Guðsþjónustunni frá því
kl. 14 útvarpað á fm 104 hér í
Eyjum.
Miðvikudagur 9. aprfl
Kl. 20.00 Opið hús í KFUM&K
fyrir æskulýðsfélagið. Hulda
Líney Magnúsdóttir og leiðtog-
amir.
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Fimmtudagur 8. maí
Kl. 20.30 Biblíufræðsla. Hefur
Biblían eitthvað að segja um líkn-
ardráp eða líffæraflutninga ?
Allir velkomnir.
Föstudagur 9. maí
Kl. 20.30 Unglingakvöld, Teddi
lítur inn og hefur frá mörgu að
segja!
Laugardagur 10. maí
Kl. 12.00 VORHÁTÍÐ Sunnu-
dagaskólans, Leikir, grill og
gaman, allir velkomnir á hátíðina.
Kl. 20.30 Bænasamvera, land
okkar og þjóð þarf bænastuðning.
Sunnudagur 11. maí
Kl. 15.00 SAMKOMA
Gestir safnaðarins eru: Theodór
Birgisson og Katrín Þorsteins-
dóttir. Þau munu flytja okkur
lifandi vitnisburð og Guðsorð.
Lofgjörð og gleði rikir í húsi Guðs.
„Leitið Drottins og máttar hans.“
Sálm. 105:4.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Aðventkirkjan
Laugardagur 10. maí
Kl. 10.30 Biblíurannsókn.
Biblían
talar
Sími
481-1585
Handbolti kvenna úrslit: IBV náði titlinum í þremur leikjum - Jöfn keppni tveggja frábærra liða
íslandsmeistaratitillim
ÍSLANDSMEISTARAR ÍBV 2003 ásamt Unni þ jálfara og Michel Akbasev aðstoðarþjálfara sem öll fögnuðu innilega þegar titillinn var í höfn.
Besti árangur ÍBV frá upphafi
IBV tryggði sér á fimmtudaginn ís-
landsmeistaratitilinn þegar liðið mætti
Haukum í þriðja leik liðanna um
Islandsmeistaratitilinn.
ÍBV hafði unnið fyrstu tvo leikina
og átti því góða möguleika á að
tryggja sér titilinn í leiknunr. Það var
augljóst að hungrið var töluvert meira
í herbúðum IBV þvf þrátt fyrir að vera
oftar en ekki undir í leikjunum þremur
var það ÍBV sem sigraði á lokakafl-
anum. Lokatölur þriðja leiksins urðu
22-20 þar sem Álla Gorkorian og
Birgit Engl skoruðu tvö síðustu mörk
IB V og tryggðu þeim um leið Islands-
meistaratitilinn.
Sigurinn var ekki síst sætur fyrir
þær sakir að Haukar höfðu unnið IBV
í bikarúrslitum eftir dramatískar loka-
mínútur. Leikurinn sem slíkur var
ekki mikið fyrir augað, mikil barátta
og sterkur vamarleikur. Að öðrum
ólöstuðum var Vigdís Sigurðardóttir
lykillinn að sigri IBV í þessum leik.
Vigdís, sem hefur ákveðið að leggja
skóna á hilluna, átti sannkallaðan
stórleik og varði 25 skot í leiknum,
þar af þrjú víti. Seinni hálfleikur var
mun betri hjá ÍBV, liðið átti fleiri
hraðaupphlaup og leikurinn hraðari.
Stemmningin í nýja íþróttahúsinu
var hreint mögnuð, sérstaklega síðustu
fimmtán mínúturnar en þá áttu
leikmenn liðanna í mesta basli með að
koma skilaboðum sín á milli.
Mörk ÍBV: Alla Gorkorian 8/2,
Ingibjörg Jónsdóttir 3, Birgit Engl 3,
Sylvia Strass 3, Anna Yakova 3, Edda
Eggertsdóttir I, Ana Perez 1.
Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 25/3
ANNA og Alla fagna sínum fyrsta íslandsmeistaratitli.
FÁNI ÍBV blakti hátt meðan fylgst var með flugeldasýningu sem er orðin
fastur liður þegar IBV nær góðum árangri.
Heilsuóskorun
Frétta og Hreuó
Pálína 11,9 104,1
Heiða 11,0 97,7
Aldís 8,5 89,8
SAMTALS 31,4
FRÉytlR HResSÚ