Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2003, Side 2

Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2003, Side 2
2 Fréttir / Fimmtudagur 31. júlí 2003 Vill skoða heilsutengda ferðaþjónustu Ein tillagan í skýrslu atvinnumálahóps var rædd í bæjarráði á mánudaginn og var það tillaga hóps um heilsutengda ferðaþjónustu. Andrés Sigmundsson og Lúðvík Bergvinsson (V) lögðu fram tillögu um málið: „I framhaldi af tillögu í skýrslu atvinnumálahóps bæjarins um heilsutengda ferðaþjón- ustu og aukin atvinnutækifæri í heilbrigðisþjónustu í Vestmanna- eyjunt leggjum við til að stofnaður verði hópur fagaðila til að vinna að ítarlegri útfærslu ásamt viðskipta- áætlun varðandi einstaka þætti er koma þar fram. Sótt verði um styrk til heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins og viðskiptaráðuneytisins vegna kostnaðar af ofangreindri vinnu.“ Bæjarráð samþykkti tillöguna og fól bæjarstjóra framgang málsins. Þrjú vínveitingaleyfí Þrjár beiðnir um vínveilingaleyfi lágu Enn er hjakkað í sama farinu í bæjarstjórn: Af kjánaskap, dylgum og einkavinavæðingu Tillaga Sjálfstæðisflokksins frá síðasta bæjarstjórnarfundi um ráðningu starfsfólks til frumkvöðlaseturs eða nýsköpunarmiðstöðvar var tekin fyrir á fundi bæjarráðs á mánudag. Fjallaði tillagan um að jafnræðis verði gætt við ráðningu í störfm og að þau verði auglýst. „Við ráðningu verði þess gætt að menntun, reynsla og al- menn hæfni ráði því hver umsækjanda veljist til starfsins." Bæjarráð samþykkti að taka til- löguna til efnislegrar meðferðar þegar málið kemur til endanlegrar af- greiðslu. Guðjón Hjörleifsson (D) bókaði þá: „Tel mikilvægt að þessi staða verði auglýst sem og aðrar stöð- ur hjá Vestmannaeyjabæ í framtíð- inni.“ Lúðvík Bergvinsson (V) og Andrés Sigmundsson lögðu þá fram bókun: „Að fortíð skal hyggja er framtíð skal byggja. Það hefði verið rétt af fyrr- verandi meirihluta íhaldsins að hafa þessi sjónarmið að leiðarljósi undan- farin misseri.“ Guðjón sagði þá í bókun að enn á ný geti þeir félagar, það er Andrés og Lúðvík ekki tekið ákvörðun um auglýsingu á stöðu starfsmanns vænt- anlegs frumkvöðlaseturs. „Það er ljóst að stefna núverandi meirihluta virðist vera sú að brjóta allar jafnræðisreglur og ráða í stöður eftir geðþótta eða viðkomandi aðili sem ráðinn er þurfi að flagga flokkskírteini ákveðins stjómmálaflokks. Hinn almenni borg- ari á fullan rétt á því að allar stöður hjá Vestmannaeyjabæ og stofnunum hans skuli auglýstar." Lúðvík og Andrés vísuðu til fyrri bókunar. „Að öðm leyti er þessum kjánagangi vísað á bug.“ Guðjón sagði það lýsa hroka og ólýðræðislegum vinnubrögðum Lúð- víks og Andrésar að kalla það kjánagang þegar fulltrúi minnihlutans í bæjarráði er að leggja áherslu á að allir bæjarbúar sitji við sama borð og geti sótt um störf hjá bænum, ekki þröngur hópur. „Einkavinavæðingar- stefna meirihlutans er einsdæmi í mannaráðningum hjá Vestmanna- eyjabæ og stofnunum hans.“ Fulltrúar meirihlutans hörmuðu þá órökstuddar dylgjur minnihlutans. „Vísum að öðm leyti til fyrri bókana meirihlutans, en meginatriðið er það að hæfir og vel menntaðir einstak- lingar hafa verið ráðnir til bæjarins, sem án efa eiga eftir að skila bæjarfélaginu miklu í framtfðinni.“ Guðjón endaði svo þessar bókanir með því að vísa til fyrri bókana bæjarfiilltrúa minnihlutans í bæjarráði og bæjarstjóm um stöðuveitingar sem ekki vom auglýstar. Ráðningarsamningur bæjarstjóra: Fær 470 þúsund í föst laun -Sex mánaða uppsagnarfrestur Bergur Elías Agústsson, nýráðinn bæjarstjóri, fær 470 þúsund krónur í föst mánaðarlaun og taka þau breyt- ingum með hliðsjón af almennum launabreytingum sem verða hjá starfs- mönnum Vestmannaeyjabæjar á gildistíma ráðningarsamningsins. Ennfremur fær nýráðinn bæjarstjóri greidd sömu laun fyrir fundarsetur eins og kjörnir bæjarfulltrúar í bæjar- ráði og bæjarstjóm og kjömir fulltrúar í nefndum. Hann færgreiddan bifreið- arstyrk fyrir afnot af eigin bifreið og skal hann nema 860 km. á mánuði og greiðsla vera í samræmi við reglur ferðakostnaðamefndar ríkisins. Er þetta sams konar klásúla og var í ráðningarsamningi Inga Sigurðssonar fyrrverandi bæjarstjóra og þá hljóðaði bifreiðastyrkurinn upp á 46 þúsund krónur. Ferðakostnaður vegna erinda á vegum Vestntannaeyjabæjar og stofnana skal greiddur af bæjarsjóði og í sérstökum tilvikum skal bæjar- sjóður greiða reikninga vegna fæðis og gistingar, enda hafi þá formaður bæjarráðs samþykkt þá reikninga. Bæjarsjóður greiðir afnotagjöld fyrir farsíma bæjarstjóra og iðgjöld vegna gildandi sjúkra- og slysatryggingar bæjarstjóra. Bergur Elías á rétt á sex mánaða launum ef hann segir upp eða er sagt upp störfum eða ef hann er ekki endurráðinn í lok kjörtímabils. Mikið hefur verið að gera í Smart síðustu daga á verksmiðjusölu á skóm síðan á sunnudaginn. UN skórnir, sem boðnir eru á verksmiðjuverði, koma beint frá Kína. Verðið er frá tvö til þrjú þúsund krónur og hefur þetta fallið vel í kramið hjá Eyjamönnum og stanslaus straumur hefur verið í verslunina alla vikuna. Útsölunni lýkur svo á morgun og ættu þá flestir að vera vel skóaðir á þjóðhátíðinni. FRÉTTIR Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549 - Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Sigursveinn Þórðarson, Guðbjörg Sigurgeirsdóttir. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47. Símar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjafrettir.is. Veffang: http//www.eyjafrettir.is fyrir fundi bæjarráðs á mánudag. IBV-íþróttafélag sótti um leyfi fyrir bjór og skotum í Týsheimili yfir verslunarmannahelgina frá klukkan 10.00 til 20.00. Bæjarráð samþykkti sambærilegt leyfi og var í gildi á síðasta ári. Svanhildur Guðlaugsdóttir sótti um endurnýjun á léttvínsleyfi fyrir Skýlið og samþykkti ráðið erindið fyrir sitt leyti af því tilskildu að aðrir aðilar, sem um slík leyfi eiga að fjalla, sam- þykki það einnig. Loks sótti Þröstur Bjarnhéðinsson um vínveitingaleyfi fyrir Hótel Eyjar og samþykkti ráðið það einnig á sömu formerkjum og leyfi Svanhildar. BÖRKUR lét lyklavöldin í hendur Magnúsar síðasta föstudag en hann er á leið í árs námsleyfi. Fullur tilhlökkunar -segir Eyjamaðurinn Magnús Arngrímsson, nýr útibússtjóri íslandsbanka í Eyjum Magnús Amgrímsson tók við sem útibússtjóri Islandsbanka í Vest- mannaeyjum sl. mánudag en Börkur Grímsson hefur tekið sér námsleyfi í eitt ár. Magnús er Vestmannaeyingur í húð og hár, sonur hjónanna Amgríms Magnússonar og Þóru Hjördísar Egilsdóttur. Hann er svokallað gos- barn, fæddur 9. júní 1973 og því nýlega þrítugur. Magnús nam við- skiptafræði við Háskóla Islands og útskrifaðist þaðan í október 2000. Hann starfaði við útibúið hér í Eyjum frá 1. september 1999 fram til vorsins 2000, jafnframt því að vinna lokarit- gerð sfna við skólann. Magnús hóf störf hjá Fyrirtækjasviði Islandsbanka í september 2000 og hefur starfað þar þangaðtil nú. „Eg var í tengslum við fagfjárfesta vegna fjármögnunar á hlutabréfakaup- um,“ segir Magnús um starf sitt hjá Fyrirtækjasviði. „Ég var ánægður í því starfi og þar eignaðist ég marga af mínum bestu vinum enda vann hópurinn sem þar starfaði vel saman.“ Magnús var á leiðinni til London þegar framkvæmdastjóri útibúasviðs hringdi í hann og bauð honum starfið hér. „Ég tók nokkra daga í það að ráðfæra mig við mína menn hjá bank- anum og ákvað að grípa tækifærið," segir Magnús. „Ég þekki útlánahliðina mjög vel en starfsmannamálin em ný fyrir mér og reksturinn á útibúinu sem slíkur. Það hvílir á mínum herðum að skila góðum rekstri." Magnús segir að til standi að byggja við bankann og færa alla starfsemi hans á eina hæð þegar hann er spurður hvort vænta megi einhverra breytinga á starfseminni undir hans stjóm. „Ég mun ekki kollvarpa nokkru en ætla að nýta þessar fyrstu vikur til að kynna mér stöðu mála og hitta viðskiptavini og fleira. Það er oft rólegt í ágúst, Vestmannaeyingar fara oft í frí á þeim tíma og þá hægist svolílið um og gott að nota þann tíma til að kynna sér málin. Mér finnst þetta ögrandi og spennandi verkefni að takast á við, annars hefði ég ekki tekið þetta að mér. Ég kvíði því ekki að aðlagast samfélaginu hér þrátt fyrir að hafa verið alveg í burtu undanfarin þrjú ár og í heildina kannski í eitt og hálft af síðustu tíu ámm. Ég hef ekki áhyggjur, hér er fjölskylda mín og ég er fullur lilhlökkunar,“ sagði Magnús að lokum. Náttúru- og umhverfisverðlaun Akveðið hefur verið að sækja um Náttúm- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2003 vegna Náttúruvísindadagsins sem haldinn var á vegum skólanna í Eyjum þann 19. maí í vor. Þetta kemur m.a. fram í bréfi sem Jóhann Guðmundsson. verkefnisstjóri Globe á íslandi, hefur sent kennurum verkefnisins í hinum ýrnsu skólum landsins. Fréttir Ijölluðu ítarlega um verkefni dagsins en nemendur skólanna mynduðu einnig heimsins stærsta Globe merki. FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Krónunni, ísjakanum, Bónusvídeó, verslun 11-11, Skýlinu í Friðarhöfn og í Jolla í Hafnarfirði og afgreiðslu Hejrólfs í Þorlákshöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.