Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2003, Page 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 31. júlí 2003
Lögreglan fær
hjartastuðtæki
Lögreglunni f Vestmannaeyjum hefur
nú verið afhent nýtt hjartastuðtæki af
fullkomnustu gerð. Tækið er af
gerðinni LifePack-12 frá fyrirtækinu
Physio-Medtronic.
Rauði Kross íslands er eigandi
tækisins og verður það staðsett í
sjúkrabifreiðinni.
Sérfræðingur frá söluaðila tækisins,
A. Karlssyni h/f, kom til Eyja nú
nýverið og hélt hann námskeið fyrir
lögreglumenn í meðferð og notkun
þess. Einnig var tækið kynnt læknum
á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja.
Er það mikið öryggisatriði fyrir Vest-
mannaeyinga að hafa fengið slíkt tæki
og ber að þakka öllurn þeim er lögðu
þessu verkefni lið.
Umsjónarmaður sjúkrabifreiðar er
Hlynur Sigmundsson.
Fréttatilkynning.
Þökkum
stuðninginn
Þökkum öllum þeim fjölmörgu ein-
staklingum og fyrirtækjum sem
/ /
Ovíst að Arni Johnsen sjái um brekkusönginn:
Verð með ykkur í cindanum
-þó holdið verði íjarri, segir hann í einkaviðtali við Fréttir
ÁRNI: Það er bölvað að geta ekki verið með í atinu sem maður hefur verið
Þegar rætt var við Árna Johnsen í
gær, miðvikudag, lá ekki ljóst fyrir
hvort hann fengi leyfi
fangelsisyflrvalda til að mæta í
brekkuna á sunnudagskvöldið.
Sjálfur hafði hann ekki gefist upp
og víst er að hann hefur stuðning
flestra Eyjamanna til að svo geti
orðið.
Árni, sem afplánar dóm á
Kvíabryggju, sagði í samtali við
Fréttir að niðurstaða væri ekki
komin. „Eg er með öll rcttindi til
þcss að fá frí um helgina og
niðurstaðan gæti legið fyrir í dag
eða á morgun. Og eins og aðrir
Eyjamenn gefst ég aldrei upp á
þjóðhátíð. Allt sem ég geri í þessu
máli er byggt á bréfi þjóðhátíðar-
nefndar.“
Árni segist ekki sætta sig við
annað en að koma í brckkusönginn
en því miður sé það ekki í hans
höndum. „Það er bölvað að geta
ckki verið með í atinu sem maður
hefur verið svo lengi í með góðu
fólki. Það er grcinilcga verið að
taka mig öðrum tökum en aðra
menn. I því sambandi get ég bent á
mörg fordæmi sem eru miklu
opnari. En ég get lítið sagt út á við
til að gefa þcim ekki færi á að
hefna sín,“ sagði Árni án þess að
útskýra það frekar.
„En jirátt fyrir böl og
alheimsstríð stoppar ekkert
þjóðhátíð. Auðvitað er maður ekki
sáttur við að vera haldið hér í
lélegri útlegð á Islandi sem er
stærsta eyjan í
svo lengi í með goðu folki.
Vestmannaeyjaklasanum. Hvað
sem öllu líður þá hvet ég Eyjamenn
og gesti til að standa saman um
góða þjóðhátíð. Það er klárt að ég
verð með ykkur í andanum þó
holdið verði fjarri. Og gleðilega
þjóðhátíð,“ sagði Árni að lokum.
aðstoðuðu okkur við framkvæmd
Islandsmótsins í golfi 24. til 27. júlí.
með vinnu sinni eða lánum á tækjum.
Mótið tókst með eindæmum vel og
var sjónvarpað beint frá því laugardag
og sunnudag í um 8 klst. Þá er
bæjarbúum þökkuð sýnd tillitsemi við
akstur um Hamarsveg.
Golfklúbbur Vestmannaeyja.
Loksins, loksins segja væntanlega sumir nú þegar Ijóst er að ein stærsta
hljómsveit sem frá Vestmannaeyjum hefur koniið hyggur á endurkomu í
kvöld. Þarna er verið að ræða um hljómsveitina Almamalmahey sem sló
svo rækilega í gegn hér á árum áður á skemmtistaðnum Calypso. Þessi
hljómsveit var upphafið að frægðarferli tveggja meðlima hljóm-
sveitarinnar. Vals, sem síðar varð frægari fyrir söng sinn með
hljómsveitinni Buttercup og Gísla Elíassonar, trommara í Smack. Lofa
þeir félagar sama lagavali og þeir slógu svo eftirminnilega í gegn með hér
á árum áður og verður væntanlega fullt út úr dyrum á Prófastinum í
Löggan hefur í ýmsu að snúast
Tilkynnt var um skemmdaverk á öðrum hliðarspegli bifreiðar þar sem hún
stóð fyrir utan Hilmisgötu 5. Mun skemmdarverkið hafa verið framið
aðfaranótt sunnudagsins 27. júlí sl. Biður lögregla þá sem hafa einhverjar
upplýsingar um málið að hafa samband. Tvær tilkynningar bárust um þjófnað
á reiðhjólum á tímabilinu.
Við fíkniefnaleit í skipi hér í höfninni fann fíkniefnahundurinnTanja
lítilræði af ætluðum fíkniefnum hjá einum skipverja skipsins. Málið er í
rannsókn.
Af umferðinni er það að frétta að 19 aðilar voru kærðir fyrir að virða ekki
umferðarreglur en það er einum færra en á síðasta tímabili. Voru þrír aðilar
kærðir fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu og einn hafði ekki borgað fyrir
lögbundnar tryggingar á bifreið sinni. Þá voru þrettán ökumenn kærðir fyrir
að leggja bifreiðum sínum á röngum vegarhelmingi (á móti umferð).
Einhverjir aðilar höfðu gert það að leik sínum að breyta umferðarmerkjum
sem sýna hraðatakmarkanir með því að bæta einum fyrir framan
hámarkshraðann. Varþaðlagað.
Karl Gauti Hjaltason sýslumaður um þjóðhátíð:
Leggjum áherslu á sýnilegt eftirlit í Dalnum
ÚTLIT er fyrir gott veður á þjóðhátíð. í dag, fimmtudag, má búast við einhverri úrkomu en á fiistudag, laugardag,
sunnudag og mánudag er gert ráð fyrir stilltu og björtu veðri eins og þegar þessi mynd var tekin.
Að sögn Karls Gauta Hjaltasonar
verða tuttugu lögregluþjónar sem
munu sinna löggæslu í Eyjum yfir
þjóðhátíðina. Tólf aukamenn koma
inn, ýmist ofan af landi eða lög-
regluþjónar frá Vestmannaeyjum sem
eiga frívakt þessa helgi.
Tveir fíkniefnalögreglumenn koma
og munu, ásamt Heiðari Hinrikssyni
og hundinum Tönju, sinna fíkniefna-
gæslu. „Svo fáum við aðstoð uppi á
landi, ríkislögreglustjóri verður með
fíkniefnaleit, ýmist á Reykjavikur-
flugvelli, á Bakka eða í Þorlákshöfn."
Hann sagði að mikil áhersla sé lögð
á sýnilegt eftirlit í dalnum og um-
ferðareftirlit en eins og venjulega mun
vera lögreglumaður á bilbjóli á
Heimaey þessa helgi og sinna um-
ferðareftirliti.
Karl Gauti sagði að það hefði mikið
forvarnargildi að lögregluþjónar og
gæslumenn væru sýnilegir, sérstak-
lega á dimmustu stöðunum á tjald-
svæðum, t.d hvað varðar nauðganir
og þjófnaði. „Albrotum hefur fækkað
smám saman undanfarin ár og þá sér-
staklega líkamsárásum og þjófn-
uðum.“
Þjóðhátíðin í fyrra var með versta
móti veðurfarslega séð, en Karl Gauti
sagði að löggæslan hafi þó gengið
ágætlega. „Þetta var svolítið anna-
samara en oft áður en það var ekkert
meira um afbrot.“
Löggæslukostnaðurinn hefur mikið
verið ræddur undanfarið og segir Karl
Gauti að alls kyns misskilnings hafi
gætt í þeirri umfjöllun. „Menn vita oft
ekkert um hvað þeir eru að tala. Það er
verið að bera saman mjög ólíka hluti
og oft hluti sem eru ekki sambærilegir
og oft er greinilega ekki allt uppi á
borðinu í umræðunni."
Eitt af því sem hefur verið borið
saman við Þjóðhátíð er menningamótt
í Reykjavík. „Reykjavíkurlögreglan
hefur einfaldlega tekið á sig þessa
aukagæslu, enda eru þeir með mjög
Ijölmennt lið og telja sig ráða við það.
Annað er að þar er enginn aðgangs-
eyrir en löggæslugjaldið er tengt því.
A mörgum stöðum er það sveitar-
félagið sjálft sem stendur fyrir hátíð-
unum og einungis er rukkað fyrir
tjaldstæði."
I fyrra var hluti löggæslukostnaðar
greiddur af ráðuneytinu af sérstökum
fjárlagalið, en hann er ekki lengur til
staðar og því fellur kostnaðurinn
alfarið á ÍBV. „Á sumum hátíðum
hafa menn skipt á sig hluta kostn-
aðarins, t.d. á Skagaströnd. þar sem
kostnaðurinn hefur ekki lent á móts-
haldaranum nema að einum þriðja
hluta, því lögregluembættið hefur
tekið á sig hluta og svo restin af
fjárlagaliðnum. Svo er staðan sú núna
að ekki er unnt að halda Kántrýhátíð,
þegar mótshaldarinn þarf að fara að
opna budduna. Framkvæmdin hér
hefur verið óbreytt um árabil, móts-
haldarinn greiðir löggæslukostnaðinn
alfarið, nema þessi ár sem Ijárlaga-
liðurinn var við lýði, en embættið
tekur á sig hluta af löggæslunni í
bænum sjálfum og kostnað tengdum
fíkniefnaátaki fyrir og meðan á
þjóðhátíð stendur.“
Hann sagði ennfremur að sú skoðun
væri mjög útbreidd að þeir sem stæðu
fyrir svona samkomum ættu að greiða
löggæslukostnað fullum fetum, enda
hirtu þeir arð af þessu ef svo bæri
undir. Aðrir teldu að þjóðfélagið í
heild ætti að sinna löggæslunni alfarið,
hvar sem fólkið annars væri statt.
Þama á milli væri illbrúanlegt bil.
Loks sagði Karl Gauti að kostnaður
sem félli á skemmtanahaldara vegna
þjóðhátíðar í ár væri á bilinu þrjár og
hálf til tjórar milljónir króna.