Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2003, Qupperneq 8
8
Fréttir / Fimmtudagur 31. júlf 2003
Hvað kosta
breytingarnar
Elliði Vignisson (D) lagði fram
fyrirspurn á fundi bæjarstjómar á
miðvikudaginn í síðustu viku þar sem
hann spyr hvort fyrrverandi bæjar-
stjóra, Inga Sigurðssyni, hafi einhvem
tíma verið falið að skila greinagerð
um fjárhagsstöðu bæjarins af núver-
andi meirihluta líkt og Berg Elíasi
Agústssyni hafi nú verið falið að gera.
Einnig óskar Elliði eftir því að
Bergur geri sérstaka grein fyrir því
hvað það gæti kostað Vestmanna-
eyjabæ að lágmarki og svo að há-
marki þær uppsagnir sem komnar em
í framkvæmd svo og niðurlagning
starfa vegna skipulagsbreytinga.
Einnig segir Elliði:
„Þann 31. mars, tæpri viku eftir að
Andrés Sigmundsson og Lúðvík
Bergvinsson gengu í eina sæng, vom
árshlutareikningar gerðir. Þar kemur
glögglega fram hver staða mála er
þegar núverandi meirihluti tekur við.
Nú hljóta bæjarfulltrúar V-listans og
Andrés Sigmundsson að hafa kynnt
sér þessa árshlutareikninga og vera
meðvitaðir um það sem þar kemur
fram. Furða ég mig á að þeir telji
nauðsynlegt að bæjarstjóri mati þá á
þessum upplýsingum."
Bæjarstarfsmenn fá
útborgað í dag
Samþykkt var samhljóða í bæjarstjóm
í síðustu viku að greiða laun
bæjarstarfsmanna út í dag, degi fyrir
mánaðamót vegna þjóðhátíðarinnar.
Enn allt upp í loft í bæjarstjóm
MINNIHLUTINN, Arnar, Guðjón og Selma, Sjálfstæðisflokki, eru
óttalegir kjánar að mati meirihlutans.
Verkalýðsleiðtoginn
SPURÐUR ÚT ÚR
A maraþonfundi bæjarráðs í síðustu
viku lagði Guðjón Hjörleifsson fram
nokkrar fyrirspurnir til Guðrúnar
Erlingsdóttur, forseta bæjarstjórnar.
Fyrst spurði Guðjón um Inga Sigurðs-
son svohljóðandi:
„Nú hefur þú mikla reynslu af
kjaramálum, réttindamálum starfs-
manna og samskiptum fyrirtækja við
starfsmenn sína. Því óska ég eftir því
að þú svarir þessum spumingum
skilmerkilega á næsta fundi bæjarráðs.
A. Inga Sigurðssyni bæjarstjóra var
sagt upp störfum á síðasta bæjar-
stjórnarfundi, þrátt fyrir yfirlýsingar
bæjarfulltrúa í meirihluta bæjar-
stjórnar um að ekkert slíkt stæði til.
Finnst þér þetta trúverðugt og hvað
myndir þú ráðleggja Inga að gera,
værir þú formaður stéttarfélags hans?“
Ennfremur spyr Guðjón hvort hún,
ef hún væri formaður stéttarfélags
Inga, myndi una niðurstöðu Astráðs
Haraldssonar þrátt fyrir að annað álit
liggi fyrir eða hvort hún myndi hvetja
hann til að leita réttar síns og láta lög-
fræðing fara með málið í eðlilegan
farveg í dómskerfmu.
Eins spyr hann: „Værir þú tilbúin til
að taka málið að þér sem fulltrúi
stéttarfélags eins og þú hefur meðal
annars gert fyrir þína félagsmenn í
Eyjum?“
Næsta spurning fjallaði um hvernig
staðið var að tilkynningu til þeirra
starfsmanna sem störf verða lögð
niður hjá Vestmannaeyjabæ. Þar á
hann við þau Gunnar Stefán Jónsson,
bæjargjaldkera, Ólaf Ólafsson, bæjar-
tæknifræðing, Pál Einarsson, bæjar-
ritara, Sigurð Símonarson, skóla- og
menningarmálafulltrúa og Sigþóru
Guðmundsdóttur, forvarnafulltrúa.
Spyr hann hvort þau hafi fengið að
vita þetta fyrir blaðamannafundinn þar
sem skipulagsbreytingamar vom
kynntar, hvort þeim hafi verið afhent
eða sent bréf, tilkynnt þetta persónu-
lega, hvort þriðji aðili hafi verið
beðinn um að skila þessu til þeirra eða
hvort þeim hafi verið tilkynnt þetta í
SMS skilaboðum.
Ber að gæta hagsmuna
BÆJARINS
Óskaði Guðjón eftir því að fá sjálf-
stætt svar um hvem einstakling.
Guðrún svaraði þessu á síðasta fundi
bæjarstjómar og segir þar:
„Sem kjömum bæjarfulltrúa ber
mér líkt og öðmm bæjarfulltrúum að
gæta hagsmuna Vestmannaeyjabæjar.
Það vekur því furðu mína að eftir 13 ár
í bæjarstjóm þar af 12 ár í stóli bæjar-
stjóra virðist bæjarfulltrúinn Guðjón
Hjörleifsson ekki enn gera sér grein
fyrir hlutverki kjörinna bæjarfulltrúa. í
34. gr. samþykktar um stjórn Vest-
mannaeyjabæjar og fundarsköp bæjar-
stjómar segir orðrétt:
„Bæjarfulltrúa ber að gegna bæjar-
fulltrúastörfum sínum af alúð og sam-
viskusemi og gæta hagsmuna bæjar-
ins, en í störlúm sínum er bæjarfulltrúi
einungis bundinn af lögum og sann-
færingu sinni."
Fyrirspurn til forseta bæjarstjómar
varðandi ráð til handa fyrrverandi
bæjarstjóra sem hyggst leita réttar síns
fyrir dómstólum á engan veginn
heima á fundum bæjarstjómar, ekki
frekar en beiðni til bæjarfulltrúans
Guðjóns Hjörleifssonar um að ráð-
leggja starfsmanni Vestmannaeyja-
bæjar varðandi tryggingamál eða sölu
fasteigna.
Næst spurði Guðjón um réttindi
þeirra starfsmanna sem hafa lent í því
vegna skipulagsbreytinga að störf
þeirra verða lögð niður og segir hann
ljóst að aðilar eigi rétt á biðlaunum frá
sex til tólf mánuðum án tillits til þess
hvort viðkomandi fái annað starf hjá
bænum. Telur hann upp þá sömu og
hér að ofan og segir svo:
„Ef ofangreindum aðilum verður
boðin að fara í önnur störf hjá Vest-
mannaeyjabæ og þá væntanlega lenda
þeir í launalækkun, munt þú sem
forseti bæjarstjómar beita þér fyrir því
að réttindi þeirra verði virt og þeim
greidd full biðlaun, en ekki skert með
því að bjóða þeim önnur störf og falla
frá réttindum sínum að hluta eða öllu
leyti?“
Guðrún svaraði því til að hún muni
ekki svara fyrirspurnum um einstaka
starfsmenn. „Það er með öllu óeðlilegt
að ræða slík málefni einstakra
starfsmanna að þeim forspurðum á
fundum bæjarstjómar. Breytingar af
því tagi, sem nú eru í framkvæmd á
stjómskipulagi Vestmannaeyjabæjar,
leiða óhjákvæmilega til óþæginda,
óvissu og sársauka að einhverju leyti
hjá starfsmönnum bæjarins. Meiri-
hlutinn hefur leitast við að upplýsa
starfsmenn eftir bestu getu og veitt
þeim og Starfsmannafélagi Vest-
mannaeyja tækifæri til þess að koma
með ábendingar. Bæjarstjóri, sem
yfirmaður starfsmanna Vestmanna-
eyjabæjar, mun fara yfir þau mál sem
að starfsmönnum bæjarins lúta, upp
hafa komið og munu koma við þær
skipulagsbreytingar sem nú em
hafnar. Þær skipulagsbreytingar sem
nú standa fýrir dymm em liður í því að
snúa af braut stöðnunar inn á braut
framlara. Það má öllum vera ljóst að
slíkt gerist ekki áreynslulaust. Það er
því mikilvægt að bæjarfulltrúar og
starfsmenn Vestmannaeyjabæjar snúi
bökum saman og sameinist um að
takast á við þau vandamál sem við
blasa.“
Hagsmunir FYRRVERANDI
BÆJARSTJÓRA EINA MÁL
MINNIHLUTANS
A fundinum lagði meirihluti bæjar-
stjómar fram bókun þegar þrítugasta
mál fundargerðar bæjarráðs frá 21. júlí
var tekið fyrir. Það mál fjallaði um
bréf STAVEY til bæjarráðs þar sem
vinnubrögðum við skipulagsbreyt-
ingamar var mótmælt. „Allt frá því að
nýr meirihluti tók við í bæjarstjóm
Vestmannaeyja í mars sl. hefur minni-
hluti Sjálfstæðisflokks einbeitt sér að
einu máli, það er að gæta hagsmuna
fyrrverandi bæjarstjóra Inga Sigurðs-
sonar og mál því tengd. Annað hefur
vart komið á dagskrá. Þetta hefur
vakið mikla furðu. Bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins hafa algerlega
gleymt því hlutverki sem þeir vom
kosnir til að sinna, en það er að gæta
hagsmuna Vestmannaeyinga. Þetta
sprikl verður enn undarlegra ef það er
sett í það samhengi að fyrrverandi
bæjarstjóri, Guðjón Hjörleifsson, hefði
setið við meirihlutaskiptin í mars sl.
og flokkurinn hefði ólmast í því að
halda honum í stól bæjarstjóra; hvað
þá að það hefði þurft að greiða honum
laun út kjörtímabilið eins og Sjálf-
stæðisflokkurinn vill túlka hinn sér-
stæða ráðningarsamning við fyrr-
verandi bæjarstjóra.
Allir sjá hvflík firra þetta er. Er því
nema von að spurt sé, hvað skýrir
svona hegðun? Því er vandsvarað. Þó
er ljóst að nýráðinn bæjarstjóri hefur
fengið það hlutverk að fara vandlega
yfir fjárreiður bæjarins, fiskrétta-
verksmiðju og málefni Þróunarfélags
Vestmannaeyja o.fl. Málefni Þróunar-
félags Vestmannaeyja hafa t.d. ekki
enn verið send lögreglu eins og
samþykkt var að gera á bæjar-
ráðsfundi 28. apríl sl. og staðfest í
bæjarstjórn 29. aprfl sl. Hvort það er
ótti við að yfirferð yfir fjárreiður
bæjarins dragi fram í dagsljósið
upplýsingar sem íhaldið hefur viljað
halda leyndu, skal ósagt látið að sinni,
en það er eina mögulega skýringin
sem koma má auga á vegna alls þess
kjánaskapar sem flokkurinn hefur sýnt
af sér frá því að nýr meirihluti tók við.
Meirihlutinn hvetur því íhaldið og
fylgifiska hans til að taka sér tak og
snúa sér að því að vinna að hags-
munum bæjarfélagsins og láta af
persónulegri hagsmunagæslu og koma
sér út úr málefnum fyrrverandi
bæjarstjóra. Bæjarfulltrúar flokksins
voru kosnir til að gæta hagsmuna
bæjarfélagsins. Það er því löngu orðið
tímabært að Sjálfstæðisflokkurinn fari
að vinna samkvæmt því umboði. Enn
fremur lítur meirihlutinn svo á að
einstaklega vel hafi tekist til við
ráðningu nýrra framkvæmdastjóra,
enda eru þeir tilbúnir að leggja á sig
mikla vinnu svo snúa megi af vegi
þeirrar stöðnunar sem meirihluti Sjálf-
stæðisflokksins hefur haldið Vest-
mannaeyjum á undanfarin þrettán ár.
Það er mat meirihlutans að ekki þurfi
að auglýsa stöður framkvæmdastjóra.
Það er einnig mat meirihlutans að
þegar leitað hefur verið til fólks um að
taka störfin að sér, hefði það verið
mikill dónaskapur gagnvart öðrum að
auglýsa störfin. Sjálfstæðisflokkurinn
verður að finna vonbrigðum sínum,
yfir því að hafa misst meirihlutann í
bæjarstjórn Vestmannaeyja, annan
farveg en að hamast á mikilvægi
fyrrverandi bæjarstjóra og vöntun á
auglýsingum."
Undir þetta skrifa Jóhann O.
Guðmundsson, Guðrún Erlingsdóttir,
Stefán O. Jónasson og Andrés
Sigmundsson.
STAVEY KREFST AFSÖKUNAR-
BEIÐNIAF BÆJARSTJÓRN
Þessi bókun er mjög undarleg því
þama er verið að taka fyrir bréf frá
STAVEY sem er eftirfarandi:
„Stjóm STAVEY mótmælir harð-
lega þeim vinnubrögðum sem höfð
vom í garð félagsmanna sinna þegar
viðkomandi aðilum voru ekki til-
kynntar breytingar á störfum þeirra
bréflega við þær skipulagsbreytingar
er nú eiga sér stað hjá Vestmanna-
eyjabæ. Stjóm STAVEY gagnrýnir
jafnframt að störfin hafi ekki verið
auglýst en almenn regla er að auglýsa
laus störf.
Stjóm Starfsmannafélagsins harmar
þessi vinnubrögð og vill að formleg
afsökunarbeiðni verði send til þeirra
sem hlut eiga að máli, með von um að
slík vinnubrögð verði ekki höfð að
leiðarljósi í framtíðinni.
Ennfremur vill stjóm Starfsmanna-
félagsins gagnrýna þau orð sem höfð
vom um félagið á bæjarstjómarfundi
þann 10. júlí 2003 síðastliðinn. Starfs-
mannafélagið hefur ávallt haft það að
leiðarljósi að vinna að heilum hug
fyrir félagsmenn sína.“
Undir þetta skrifar Unnur Sigmars-
dóttir formaður.
Bæjarstjóri allra?
Ráðningarsamningur Bergs Elíasar
Agústssonar var lagður fyrir bæjar-
stjóm í síðustu viku og var hann
samþykktur með fjómm atkvæðum
gegn þremur. Minnihlutinn bókaði að
hann gæti ekki samþykkt fyrirliggj-
andi ráðningarsamning við nýráðinn
bæjarstjóra þar sem Vestmanna-
eyjabær verður með samningi þessum
líklega eina bæjarfélagið á landinu
sem mun þurfa að greiða tveimur
bæjarstjómm laun út kjörtímabilið.
Þessi gjörningur getur kostað skatt-
borgara bæjarins tugi milljóna á
kjörtímabilinu.
„Janfnframt hörmum við ummæli
og síðar bókun Lúðvíks Bergvins-
sonar og félaga á síðasta fundi
bæjarstjómar, en þar var bókað að
þeirra beiðni að nýráðinn bæjarstjóri
væri helsti trúnaðarmaður núverandi
meirihluta og þannig væri hagsmun-
um bæjarfélagsins best borgið. Þessu
erum við algjörlega ósammála og
teljum það afar mikilvægt að allir
bæjarfulltrúar og bæjarbúar geti leitað
til bæjarstjórans í Vestmannaeyjum
hverju sinni sem bæjarstjóra allra
bæjarbúa en ekki helsta trúnaðar-
manns núverandi meirihluta bæjar-
stjómar. Þessi afdráttarlausa bókun
meirihluta bæjarstjómar, sem er í
andstöðu við hlutverk og starfsskyldur
bæjarstjóra, er greinilega stefna
núuverandi meirihluta. Um leið
skerðir þetta möguleika nýráðins
bæjarstjóra til að sinna því starfi sem
hann var ráðinn til. Þar til þessi bókun
Lúðvíks og félaga hefur verið aftur-
kölluð með formlegum hætti í bæjar-
stjóm munu samskipti bæjarfulltrúa
minnihlutans við nýráðinn bæjarstjóra
taka mið af þessari bókun og stefnu
núverandi meirihluta bæjarstjómar."
Undir þetta skrifa Guðjón Hjörleifs-
son, Amar Sigurmundsson og Elliði
Vignisson.
Meirihlutinn bókaði þá: „Vísum
fullyrðingum er koma fram í bókun
Sjálfstæðisflokksins á bug. Bæjarstjóri
er bæjarstjóri allra bæjarbúa. Við
hvetjum sjálfstæðismenn til að starfa
af fullum einhug í bæjarstjóm."
Var leitað
tilboða í skipu-
lagsbreytingar?
Eins og greint var frá í Fréttum í
síðustu viku bárust tvö tilboð í að
annast fjárhagslegan aðskilnað þrek-
salar frá annarri starfsemi íþrótta-
miðstöðvar. Tvö tilboð bámst í verkið
og var samþykkt að taka tilboði
Deloitte&Touche í verkið en það
hljómaði upp á 94 þúsund krónur.
Hitt tilboðið var frá IBM Business
Consulting Serv. upp á 640 þúsund
krónur auk ferðakostnaðar. A fundi
bæjarstjómar á miðvikudaginn í síð-
ustu viku kom fram fyrirspum frá
Elliða Vignissyni og Guðjóni
Hjörleifssyni (D): „Nú er ljóst að það
er 580% munur á tilboðum. Vest-
mannaeyjabær lét IBM Business
Consulting Serv. taka að sér að gera
skipulagsbreytingar hjá bæjarsjóði
sem þegar hafa kostað milljónir
króna. Var leitað tilboða eða gerð
verðkönnun hjá öðmm sambæri-
legum fyrirtækjum í úttektina.“
Meirihlutinn svaraði engu og var lið-
urinn afgreiddur með sjö atkvæðum.
Kannaá
uppeldisskilyrði
Samþykkt var á fundi bæjarstjómar
að skipa starfshóp til að leggja mat á
þau uppeldisskilyrði sem bömum og
unglingum em búin í Eyjum. Elliði
Vignisson (D) fagnaði þessu sérstak-
lega en telur mikilvægt að fagfólk fari
með ferðina í þessari vinnu. Segir
hann pólitískar upphrópanir og leit
meirihlutans að blórabögglum vegna
samræmdra prófa engu skila.