Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2003, Qupperneq 9

Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2003, Qupperneq 9
Fréttir / Fimmtudagur 31. júli 2003 9 Af raunum þjóðhátíðarnefndarmanna á síðustu hátíð sem bauð upp á versta veður í manna minnum: Rífi einhver kjaft við mig fer ég að gráta -Við vorum eiginlega alveg búnir, á sál og líkama, segja Gústi Einars og Siggi Braga um íyrstu kynni sín af starfi í þjóðhátíðarnefnd árið 2002 - Þrátt fyrir mannraunirnar þá eru þeir mættir í slaginn Þriggja daga skemmtun eins og þjóðhátíð krefst mikils undirbúnings. Þjóðhátíðamefnd hefur því í mörg hom að líta. Það ræðst líka talsvert af veðri hvemig þjóðhátíðin sjálf fer fram og þegar illa viðrar bitnar það á nefndarmönnum. En og eins og kunnugt er var veðrið afleitt í fyrra, eitt það versta á þjóðhátíð í áratugi. Sigurður Bragason og Agúst Einars- son tóku sæti í nefndinni fyrir síðustu þjóðhátíð og mæddi mikið á þeim og félögum þeirra hátíðardagana. „Þetta var spuming um hvort við vildum taka að okkur smávinnu fyrir ÍBV. Það var talað um að við yrðum á vakt eitt kvöld á þjóðhátíðinni sjálfri en ætli við höfum ekki fengið frí í einn klukkutíma," segir Gústi. „Þetta hefur verið einhver misskilningur,“ bætir Siggi við. Undirbúningur hjá þjóðhátíðamefnd hófst í lok febrúar 2002 en þá var fyrsti fundurinn haldinn. Byrjað var á því að tala við skemmtikrafta og skipuleggja dagskrána og hún var eiginlega fullmótuð mánaðamótin júní júlí. Þá hófst undirbúningurinn í SIGGI og Gústi brosa í dag sínu breiðasta þó þeim hafi ekki verið hlátur í hug eftir síðustu hútíö.. dalnum. VEÐRIÐ hefur leikið við menn í þjóðhátíðarundirbúningi í ár og spáin fyrir hclgina er góð. Gústi, sem hér er í góðum hóp, á sér von um góða þjóðhátíð í ár og samkvæmt spánni á fátt að verða því til fyrirstöðu. Björgunarfélagið með öfluga gæslu á þjóðhátíð: Allt að 60 manns á næturvakt Ríkið hirðir „Menn em alltaf vakandi fyrir því hvar hægt er að skera niður en ríkið er að hirða hátt í tíu milljónir af félaginu með vaski, heilsugæslu og löggæslu," segir Siggi, hneykslaður á þessari óbilgimi hins opinbera. Þegar þeir em spurðir út í sjálfa þjóðhátíðina, glotta þeir báðir. „Við vomm á i'ullu að undirbúa hátíðina alla vikuna og fómm heim klukkan þrjú aðfaranótt föstudagsins í þjóð- hátíð í bongóblíðu Eg vaknaði svo upp kiukkan fimm, þá var komin þoka en sem betur rofaði til um morguninn og það var flogið allan daginn. Það var reyndar hávaðarok en það skiptir öllu máli að koma fólkinu hingað, “ segir Gústi. „Það komu um 2000 manns með flugi en ef það hefði verið ófært hefðum við ekki haft neitt út úr þessu öllu saman,“ segir Siggi. Þjóðhátíðamefndin hittist á fundi klukkan níu á föstudagsmorgun og skipti með sér verkum. Mönnum var raðað niður á daga en reyndin varð sú að þeir vom nánast á vakt þar til á hádegi á mánudag, með smáhléum. „Það var brjálað að gera alla dagana, tjöld vom að íjúka og allt á floti. Við þurftum að breiða yfir hátalara hjá hljómsveitunum o.fl. en það var sem betur fer allt í lagi með krakkana. Báturinn Elding kom með farþega og við þurftum að aðstoða við það og ýmislegt annað en ástandið var verst á sunnudeginum," segir Siggi. Neyðarfundur Vonir um batnandi veður urðu að engu því alltaf bætti í. Þjóðhátíðar- nefnd hélt neyðarfund klukkan ellefu á sunnudeginum en þá var dalurinn eitt dmllusvað. „Brekkan var alveg svakaleg, ef þetta hefði verið snjór hefði verið hægt að renna sér þar á skíðum," segir Gústi. „Það var ákveðið að skella gervigrasi á verstu kaflana," bætir Siggi við. „Þá var hringt í nokkra til að aðstoða okkur og eftir 20 mínútur vom komnir 40 til 50 manns. Menn mættu í sjóstökkum og vom komnir til að redda þessu.“ Töluvert af liði fór upp í Sorpu að ná í gervigrasið en það var geymt þar en þá kom það upp að enginn var með meirapróf til að keyra bílinn. „Eg skal keyra,“ sagði Jói Jóns, alltaf sami hugurinn í honum. Hann pældi samt ekkert í því að grasið stóð útaf bílpallinum og braut girðinguna og hliðið um leið og hann renndi frá Sorpu," segir Siggi. „Þegar við voram komnir langleið- ina inn í Dal sáum við stúlku á veginum sem var að tala í farsíma. I því keyrði Jói framhjá með mottumar og stelpan rétt náði að segja mömmu sinni að það væri allt væri í lagi hjá henni, áður en hún steinlá. Hún vankaðist aðeins en slapp alveg heil og er alveg ákveðin í að koma aftur á þjóðhátíð í ár. Gummi Rikka veit að hann getur fengið góðan bílstjóra frá ÍBV,“ segir Gústi glottandi. SÚPA í MANNSKAPINN Þegar mannskapurinn var búinn að setja gervigrasið á verstu staðina í Dalnum fóm þeir félagar heim til að fá sér kríu. Stuttu seinna var tekin ákvörðun um að opna íþróttamið- stöðina fyrir þjóðhátíðargesti. Stebbi í Þór, Sveinbjörg og fleiri komu með súpu handa fólkinu og upp úr því var þjóðhátíðamefndin ræst til að elda meira. „Það lá nú við að hún Sirrý, mamma eins í nefndinni, kæmi í eldamennskuna en þegar á reyndi tókst að ræsa alla. Við elduðum súpuna á litlum hellum og það tók einn og hálfan tíma að ná suðunni upp. Þáttur björgunarsveita er stór í gæslu á þjóðhátíð og svo verður nú. Björgun- aífélag Vestmannaeyja sér eins og venjulega um framkvæmdina en meira þarf til. Er gert ráð fyrir að milli 130 og 140 manns starfi við gæsluna í heild og kemur stór hluti þeirra ofan af landi. Armann Höskuldsson ber hitann og þungann af undirbúningi og stjómun gæslustarfsins og segir hann að það verði með hefðbundnum hætti en alltaf er reynt að gera betur. „í ár leggjum við aukna áherslu á það sem við köllum svörtu blettina í Dalnum," sagði Armann. „Þeir em við vatnspóstinn og svo bæði hjá aðkomutjöldunum og hvítu tjöldunum. Reynslan sýnir að á þess- um stöðum er helst von á slagsmálum, þjófnuðum og eiturlyfjaneyslu. Það verða 20 til 30 manns á vakt á daginn og 50 til 60 á nóttunni. Þeim verður dreift vel um svæðið og verða hreyfanlegir og em vel merktir." Hvað með hættu á nauðgunum? „Reynslan sýnir að þær gerast helst niðri í bæ en ekki á sjálfu hátíðar- svæðinu en að sjálfsögðu gemm við okkur grein fyrir hættunni og höfum augun opin.“ Björgunarsveitimar em með sjúkra- skýlið á sinni könnu en þar verða á vakt, auk lækna og hjúkmnarfólks, þrautþjálfaðir björgunarliðar sem hafa reynslu í skyndihjálp og aðhlynningu sjúkra og slasaða. „Einnig emm við með gæslu í Herjólfi alla hátíðina. Felst hún í því að við tökum á móti farangri sem við setjum í gáma og afhendum svo þegar í land er komið. Við sjáum líka um almenna gæslu í samstarfi við áhöfn.“ Armann leggur áherslu á gott samstarf við lögreglu. „Það hefur vaxið undanfarin ár og er í dag mjög gott. Við vinnum náið með þeim og leggjum áherslu á gott samstaif. Ég vil svo nota tækjfærið og óska öllum þjóðhátíðargestum góðrar og slysa- lausrar hátíðar. Við munum leggja okkar af mörkum til að svo geti orðið.“ sagði Ármann og bætti við. „Við sjáum að venju um flugelda- sýninguna og verður skotið upp um 1000 tívolíbombum auk þess sem tertur, blys og fleira verður til að auka ánægjuna.“ Seint og um síðir spurði einhver af hverju við kokkuðum ekki súpuna í eldhúsinu en enginn hafði fattað að í húsinu er ágætis eldhús. Við elduðum 100 lítra og krakkamir vom til íyrirmyndar í framkomu og umgengni í íþróttahúsinu," segir Gústi. Það er kviknað í hofinu Eftir eldamennskuna byrjaði fjörið aftur því þá var komið enn meira rok og grasmottumar famar að losna. „Ég ræsti Gústa hennar Eddu og við klipptum niður steypustyrktarjám og útbjuggum hæla,“ segir Gústi. „Þegar við vomm búnir að festa niður mottumar þá byrjuðu ljósaskreyting- amar í kringum tjömina að brotna eins og spilaborg. Við tókum þær niður og fómm með þær niður í kró og vomm passlega komnir í Dalinn aftur þegar við heyrðum einhvem garga, „það er kviknað í hofinu.“ Þegar Oskar Freyr var búinn að slá út rafmagninu kom í ljós að þetta var mest reykur en þá varð okkur litið yfir Dalinn og sáum eina mottuna takast á loft og á eitt tjaldið. „Einn maður lenti undiren slapp ómeiddur," segirSiggi. Þegar hér var komið sögu var farið að líða að brekkusöngnum og Gústi fór heim að skipta um föt og labbaði af stað með fjölskylduna í Dalinn. „Þegar ég kom að bfiastæðinu hitti ég Magga Sig. og hann bað mig um að aðstoða aðeins á bfiastæðinu sem var eitt drullusvað og bílar í vandræðum. Við vorum þarna í tvo tíma og komum eins og moldvörpur í dalinn aftur,“ segir Gústi og Siggi heldur áfram. Þurftu að halda HLJÓÐNEMANUM FYRIR ÁRNA „Brekkusöngurinn tókst ágætlega en við skiptumst á að halda hljóðnem- anum fyrir Áma, Þegar við vomm famir að sjá fyrir endann á þessu öllu saman sagði Gústi setningu sem oft er vitnað í, „ef einhver rífur kjaft við mig núna þá fer ég að gráta,“ við vorum eiginlega alveg búnir, á sál og lík- ama.“ Gústi var samt ekki alveg sloppinn því um tvöleytið aðfaranótt mánu- dagsins hringdi Björgunarfélagið í gemsann hans og honum var sagt að allt væri að fjúka á litla pallinum. „Ég bað Egil Egils að koma með mér en þegar við komum þangað sáum við að öll Ijós voru kveikt og allt uppi- standandi. Við fómm upp á svið til að athuga hvað væri að en þá var okkur sagt að það vantaði mjólk í kaffið hjá hljómsveitinni. Þá fór ég heim,“ segir Gústi. Biggi Gauja lenti í svipuðu þegar hann var á leið heim klukkan sex á sunnudagsmorguninn, alveg búinn eftir allt sem á undan var gengið. Þá hringdi umboðsmaður hljómsveitarinnar Jet Black Joe í hann og sagði að það vantaði pizzur og hamborgara í Týsheimilið," segir Siggi- Þeir em sammála um að þjóðhátíðin hafi öll verið í þessum dúr. Ófært var með fiugi á mánudagsmorgninum en komin blíða um hádegi. Þar með lauk vaktinni hjá þeim í þjóðhátíðar- nefndinni. „Við hétum á þjóðhá- tíðamefnd að ef það yrði slæmt veður á komandi þjóðhátíð þá væmm við hættir,“ segja þeir Siggi og Gústi að lokum. gudbjorg @ eyjafrettir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.