Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2003, Qupperneq 10

Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2003, Qupperneq 10
10 Fréttir / Fimmtudagur 31. júlí 2003 Fjórtán Eyjakonur í gönguferð á Austfjörðum: Ferð sem einkenndist af gleði, hlatri og vinarþeli Grenjandi rigning og rok, hann spáði þessu. Eins gott að vera í pollagalla. Regnið buldi á herðunum og lak niður eftir gallanum og maður nánast heyrði þegar droparnir smullu á honum. Ekki ósvipað og vera í tjaldi. Notalegt. Við vorum lagðar í hann, börðumst áfram í roki og rigningu. Ekki hundi út sigandi ef við værum heima. GÖNGUHÓPURINN, Guðbjörg Ósk, Sigga, Villa, Díana, Binna, Guðný Bjarna, Vera Björk, Kristín, Guðrún, Guðný Boga, Ágústa, Ragga og Svanhildur. Haldið austur á bóginn Við vomm fjórtán konumar sem lögð- um upp frá Borgarfirði eystri ásamt fararstjóranum þennan limmtudag í átt til Húsavíkur. Ferðalagið austur hafði gengið vel. Við lögðum af stað seinni part þriðjudags með Herjólfi til Þorlákshafnar. Vomm á fjómm bílum og gistum á Kirkjubæjarklaustri um nóttina. Styttum okkur leið um Öxi daginn eftir og borðuðum kvöldmat á Egilsstöðum. Pössuðum okkar reynd- ar á því að vera komnar nægilega snemma til að kaupa kost í Kaup- félaginu. Ókum síðan út í Borgarfjörð og hittum Skúla Sveinsson gestgjafa á Borg en hann sá einnig um trúss- flutninga í ferðinni. Gisturn í fínu húsi um nóttina sem við höfðum alveg fyrir okkur. Fórum í skoðunarferð um þorpið í Bakkagerði um morguninn og þrátt fyrir rigningu, rok og lélegt skyggni sáum við margt athyglisvert á staðnum. Sérstaklega fannst mér gaman að sjá höfnina sem hlotið hefur bláfánann, evrópsk umhverfis- verðlaun. Hægt er að ganga upp í tvo útsýnispalla, annan með um hundrað tröppum og pöllum þannig að þegar upp er komið blasir fuglabyggðin við. Gestir geta horft niður á syllur þar sem mávurinn og fýllinn sitja og lundinn spókar sig nánast fyrir framan nefið á manni. Gætu Vestmannaeyingartekið þetta sér til fyrirmyndar? Pöllunum haganlega fyrirkomið og falla vel að umhverfmu, frábærlega útfært. Meðan við Eyjakonumar virtum fyrir okkur lundann í fuglabjarginu á Borgarfirði eystri vom hjón frá Austurríki að staulast þama um í rokinu og rigningunni. Konan virtist hálfhrædd og hristi hausinn þegar ég benti henni á að koma nær. Við brost- um hins vegar upp í vindinn. Því næst skoðuðum við steiniðju Alfasteins. Nokkrar komu klyfjaðar út enda margt fallegra muna þar. Kristín keypti sér samt ekkert annað en kyn- tröll. Þá fómm við í Bakkagerðis- kirkju en þar er einstök altaristafla eftir Kjarval. Fararstjórinn, Þorsteinn Bergsson, bóndi í Unaósi í Hjaltastaðaþinghá var kominn til okkar, hann ætlaði að vera við slátt urn morguninn en hætti við enda veðurspáin afleit. Hann hafði reyndar litið við hjá okkur kvöldið áður. Meðal annars var hann spurður um hvað konunni fyndist um að hann færi einn með kvennaskarann. Hann gaf nú lítið út á það enda ylirvegaður maður en þá sagði Guðrún að það liti betur út að vera með fjórtán konum en einn á fjöllum. Skvass, skvass í hverju SKREFI Um hádegi lögðum við bílunum við Hvannstóð og gengum eftir Þverár- eyrum, suður Desjarmýrarafrétt í átt að Hvítserk. Síðan áfram vestan Hvítserks upp á Húsavíkurheiði en hún er hæst um 500 metmm yfir sjávarmáli. Og það rigndi og rigndi. Rigndi eftir pollagallanum niður í skóna mína. Skvass, skvass heyrðist í hverju skrefi og ég var hálfpartinn far- in að sjá eftir því að hafa ekki splæst í nýja skó en trúlega hefði ekkert dugað annað en stígvél. Það sá varla út úr augum en ég heyrði Svanhildi segja uppörvandi, „nei, sjáið hvað dýja- mosinn er fallcgur," og það var alveg satt eins fagurgrænn og hann er. Eg vissi líka að Ágústa með sinn frábæra húmor var ekki langt undan. Hún er sérlegur aðstoðarmaður minn í þess- um ferðum, jafnt gengur yfir báðar. Þar af leiðandi sólbrenn ég ef hún gleymir að taka upp sólarvörnina o.s.frv. „Nú er nóg komið,“ sagði hún á Klaustri og dreif mig yfir í næstu skólastofu klukkan fjögur um nóttina þegar hún gat ekki sofið fyrir hrotum í hinum. Eftir það vomm við kallaðar flóttamennimir. Naglakul og heitt kakó Um það bil er við náðum háheiðinni fór Vera Björk að tala um hvort við ættum ekki að fara að fá okkur nesti. Hún er mesta matargatið í hópnum jafnframt því að vera grennst. Við reyndum að setjast niður, urðum frá að hverfa vegna veðurs en fundum seinna blett til að setjast á. Það var óneitanlega gott að fá sér heitt kakó og ég vatt fingravettlingana um leið og ég tók þá af mér. Það var samt ekki langt í naglakulið þegar maður fór að bögglast við að smyrja brauðið þannig að ég flýtti mér allt hvað ég gat að klára máltíðina. Það var rétt á mörk- unum að ég kæmi vettlingunum á mig aftur. Sú hlið Hvítserks sem veit að Húsavík er ævintýraleg ásýndum í góðu veðri þegar gengið er niður Gunnhildardal í átt að skálanum sem stendur við veginn innan til í víkinni. Hann var hins vegar hulinn þoku að þessu sinni og ekkert við því að gera. Planið var að ganga að Húsavíkur- bænum en þar sem veðrið var svo leiðinlegt var ákveðið að fara beint í skála en þá höfðum við gengið í tæplega íjóra tíma. Guðný Boga hafði farið með Skúla á trússbílnum en hún var með hitavellu kvöldið áður. Þegar við komum í skála tók hún á móti okkur með kaffi, nýbökuðum lummum og þeyttum rjóma. Það voru því glaðar konur sem settust að borð- um, komnar í þurr föt og höfðu hengt gallana í þurrkklefann en margar voru gegnblautar þegar áfangastað var náð. Biuóstbirta og Megas Tveir karlmenn og ein kona voru fyrir í skálanum en þau höfðu haldið kyrru fyrir um daginn vegna veðurs. Skálinn í Húsavík er sá glæsilegasti sem við RAGGA og Díana slappa af. LAGT’IANN í mígandi rigningu. I>ORSTEINN heillaði Siggu og Svanhildi með söng sínuni.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.