Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2003, Side 11

Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2003, Side 11
Fréttir / Fimmtudagur 31. júlí 2003 11 HÓPURINN átti notalegan dag í Loðmundartirði. ÞAÐ var oft gaman í þcssari frábæru ferð. höfum gist í, reistur af Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs, það fór vel um okkur á loftinu. Við borðuðum góða súpu og Þorsteinn fararstjóri sýndi á sér nýja hlið því hann hélt uppi fjörinu um kvöldið með gítarspili og söng, sér í lagi þegar hann flutti lög og texta Megasar. Það var því ekki ónýtt að fá sér örlitla brjóstbirtu áður en farið var að sofa. Daginn eftir var ákveðið að fara að Húsavíkurbænum enda komið ágætis- veður. Húsavík fór í eyði 1974 en þar bjuggu níutíu manns þegar mest var. Þar em nokkur hús uppi standandi og lítil snotur kirkja og er bæði henni og sumum húsanna vel við haldið enda dvelur fólk oft þarna á sumrin. Þegar við komum í kirkjuna þyrmdi ein- hvern veginn yfir mig og ég spurði hvenær hún hefði verið byggð og hafði orð á því hvað fólk hefði verið trúrækið á árum áður. Það væri varla til byggt ból öðruvísi en þar væri kirkja. Eg var að reyna að rifja upp hvenær ég sótti messu síðast þegar Þorsteinn sagði að líklega væri hún byggð upp úr 1930 en það hefði komið fyrir að kirkjan hefði verið notuð sem geymsla. Stuttu áður en Húsavík fór í eyði bárust þær fréttir að von væri á biskupnum í heimsókn sem þá var að vísitera Austurland. Tóku menn þá til í flýti en þegar biskup kom í hlað voru víst nokkrir önglar í skímarfontinum og haglabyssan ennþá í ræðustólnum. Aðdráttaraflið hennar SVANHILDAR Bratt er niður í fjömna fyrir neðan Húsavíkurbæina en þó vel fært og þar má finna ógrynni sjávarslípaðra glerhalla og fleiri skrautlega steina. Við tókum okkur góðan tíma og lögðum af stað til baka með fulla vasa af grjóti. Þá tók við óvenjuleg atburðarás. Við sáum hest, u.þ.b. veturgamlan fola, sem var einn á ferð. Við reyndum að lokka greyið til okkar og Svanhildi var skipað að gefa honum kleinu sem allir vissu að hún var með. Eftir það fylgdi hann okkur ekki bara eftir, heldur skellti sér í gönguhópinn. Ekki var nokkur leið að losna við hann, ábyggilega einhverjar hugsað með sér að þetta hefði nú verið meira ruglið í henni Svanhildi. Þetta var ótrúlega skondið allt saman, farar- stjórinn fremstur, konumar hver á eftir annarri og hrossið þriðja aftast. Svona gekk þetta fyrir sig þar til við komum í skálann þar sem Díana og Binna biðu eftir okkur með kaffi. Þá fór hrossið sína leið. Eftir að við höfðum tekið farang- urinn saman héldum við af stað í átt til Loðmundarfjarðar. Leiðin liggur um Nesháls, uppi á honum er gengið meðfram Skælingi, háum og form- fögrum tindi yst á fjallsröðinni milli Húsavíkur og Loðmundarfjarðar. Útsýnið var frábært þegar við sáum mynni Seyðistjarðar og inn eftir Loð- mundarfirði. Þegar lengra var haldið sáum við til Dalatanga. A þessari leið vom blómaáhugakonur í essinu sínu því flóran er mjög fjölbreytt og finna má sjaldséðar plöntur eins og blá- klukkulyng, bláklukku, gulltopp, meyjarauga og allt ætlaði vitlaust að verða þegar fjandafælan fannst. Hún þótti gagnleg til þess að fæla frá drauga á ámm áður og er í alla staði sérstök jurt. Þetta var því skenimtileg leið með sínum fögm blómabreiðum. ÍSLANDSMEISTARI í PLÖNTUGREININGU Við fengum okkur nesti tvisvar á leiðinni enda veður gott. Gengið var inn ströndina fram hjá eyðibýlunum Nesi og Seljamýri að Stakkahlíð þar sem við gistum. Þegar við komum þangað höfðum við verið á göngu í nær átta tíma þegar allt er talið þ.e. ferðin um morguninn til Húsavíkur og svo aftur til Loðmundarfjarðar. Eg var orðin hálfþreytt síðasta spölinn, þreytt á þessum endalausa blóma- og steinaáhuga. Þetta gekk svo langt að það var líka spáð í fléttur og skófir. Saknaði hálfvegis kyrrðarinnar frá deginum áður, rennblaut í pollagall- anum. Þá rifjuðust upp einhverjar gamlar minningar frá því ég var lítil, gat allt eins átt von á því að verða bráðum kölluð inn. Kannski var ég bara hálffúl að muna ekki allar þessar tegundir en sem betur fer sagðist Guðbjörg Jónsdóttir ekki heldur hafa pláss fyrir þetta á harða diskinum sínum. Fararstjórinn upplýsti göngugarp- ana um hvað öll blómin hétu á leiðinni en hann hefur unnið Islandsmeist- aratitil í plöntugreiningu á landsmóti UMFÍ, tvisvar. Guðný Bjarna, Guðrún og Kristín höfðu farið frá Húsavík með Skúla í trússbflnum. Þær tóku að sér að grilla fyrir mannskapinn og reiddu fram dýrindis máltíð sem skolað var niður með eðalvíni. Það færðist því fljótt fjör í mannskapinn og ekki leið á löngu þar til söngur og gítarspil hljómuðu um húsið. Við áttum rólegan dag fyrir höndum og þá var um að gera að hafa góða kvöldvöku. Af tillitssemi við aðra ferðamenn færðum við okkur út. Einhverjum varð þá að orði að nú væri komin upp undarleg staða, hundurinn inni en við úti, í Loðmundarfirði. Fjörið undir hlöðuveggnum hélt áfram enda erfitt að hafa sig inn, veðrið frábært og sumamóttin töfrandi. KyNJAHLJÓÐ f NÓTTINNI A laugardeginum tókum við það rólega og fómm inn að Klyppstað og skoðuðum kirkjuna en þangað er um klukkustundar gangur. Þar settumst við niður og tókum langa kaffipásu enda sólin farin að skína. Þar var mikið hlegið og eftir það var það aldrei nefnt annað en stoppið á Kirkjukaffi við Klyppstað. Innan við Klyppstað skiplir hið svipmikla Herfell dalnum. Sunnan megin er dalur sem ýmist er kallaður Bárð- arstaða- eða Amastaðadalur en hinum megin Norðurdalur, Miðdalur og Hraundalur. Við gengum líka að fall- egum fossi sem er í Fjarðará sem fellur eftir miðjum dalnum. A leiðinni fundum við mjög merkilegt blóm sem er ýmist nefnt dýragras eða karl- mannstryggð. Það hefur þann eiginleika að blómið lokast um leið og sólin hættir að skína. Um kvöldið borðuðum við góða máltíð saman og desertinn var sérstaklega ljúffengur sem þær Villa, Sigga Braga og Guðný Boga sáu um. Um kvöldið fóm allir í háttinn klukkan tíu því framundan var langur og strangur dagur. Guðný Bjama, sem sér hópnum fyrir andlegri næringu, las sögu fyrir svefninn og fyrr en varði var komin kyrrð í skálann. Eg svaf eins og steinn, vaknaði glöð og hress þegar Ragga kallaði á okkur í morgunmat. Hún þykir hafa svo þægilega rödd að hún var eftir það kosinn yfirkallari hópsins. Eg spurði þá sem voru í næsta nágrenni hvemig þau hefðu sofið. Ágústa svaf við hliðina á mér vinstra megin og Þor- steinn var næstur mér hægra megin. Díana og Binna voru í fleti gegnt okkur. Þær eru svipaðar og við Ágústa, jafnt gengur yfir báðar. Ákaflega traustar og ef mann vantar einhverja úrlausn, íbófen, hvort sem er á nóttu eða degi, plástur eða slíkt, fer maður til þeirra. Díana sagðist ekki hafa sofið neitt sérstaklega vel, það hefði mátt heyra ýmis kynjahljóð um nóttina. Bóndinn á Unaósi tók undir það. Það fóm að renna á mig tvær gn'mur. Ég hafði gert samkomulag við Ágústu um að hún ýtti við mér ef ég hryli og ég sömuleiðis við henni ef svo bæri undir. Var það svona, sagði ég og líkti eftir hrotuhljóði eða svona og líkti eftir háu hrotuhljóði. „Nær því fyrra," sagði Þorsteinn. Þetta var að verða vandræðalegt en ég hélt í vonina og spurði hvort það hefði ekki bara verið Ágústa. Hann svaraði því neitandi. Ég sagði snöggt, „þú hefðir nú getað ýtt við mér." Hann sagðist hafa verið að hugsa um það, en náð að sofna á milli. Þokkalegt. Adeins komist á eina KERLINGU f LóÐMUNDARFIRÐI Hópurinn hélt að stað frá Stakkahlíð snemma um morguninn. Skyggni var gott, veðrið frábært og við gengum um á stuttbuxum og ermalausum bol. Ákveðið var að Skúli færi með þær sem vildu eins langt og hægt væri á trússbflnum. Hann beið eftir okkur efst í Stakkarhlíðarhrauni og allur hóput- inn gekk að greni sem hann hefur legið á. Það var forvitnilegt að sjá hvar hann liggur í leyni og hvar tófan heldur sig. Hann sýndi okkur hvar ylfingamir leika sér, eftir að þeir komast á legg, en rebbi veiðir í matinn og færir þeim. Hann fer í langar ferðir og snertir ekki við fuglum næst greninu fyrr en hann fer að kenna ungviðinu veiðiaðferðir. Áfram var haldið upp eftir Loðmundarskriðum og aftur sam- einaðist hópurinn við Fitjar í Hraundal. Þama fóru einhverjar að draga fram kosti Eyjanna og m.a. hvað pysjutíminn væri skemmtilegur og það hefði ekki verið minna gaman að eltast við þær á unglingsárunum en sem bam. Skúli, sem er laus og liðugur sagði þá svona eins og uppi úr eins manns hljóði, „þið emð nú óttalegar pysjur." Á leiðinni höfðum við gengið með fjalli sem heitir Karl en nú blasti Kerling við innarlega í Hraundalnum. Áður en Skúli skildi við okkur sagði hann þessi fleygu orð: „Þetta er nú eina kerlingin sem ég hef farið upp á í Loðmundarfirði," og benti á fjallið. Hópurinn hélt því næst upp Orustu- kamb áleiðis í Kækjuskörð. Reyndar fékk hópurinn sér nesti á leiðinni og staðurinn umsvifalaust nefndur Kaffi Tjöm eftir nánasta umhverfi. Þetta var talsvert á brattann og tekin regluleg öndunarstopp en okkur sóttist ferðin engu að síður vel. Leiðin liggur eftir snjófönnum og stórgrýti upp í tæplega 750 metra hæð á háskarðinu og þaðan er hið besta útsýni, bæði á hinn skiýtna tind Skúmhött sem þama er skammt undan og sömuleiðis yfir Borgarfjörð og reyndar til ýmissa átta. Við fengum fínt útsýni en stuttu eftir að við lögðum af stað niður í Kækjudal lagðist þoka yfir þannig að við vorum sérlega heppnar, á réttum stað á réttum tíma. Á leiðinni fundum við blómið sem ég dáist hvað mest að, jöklasóley með sínum hvítu og bleiku blómum. Þvflík elja. Við héldum niður gamla hestagötu niður Kækjudal fengum okkur bita á Kaffi Grjót á leiðinni, héldum áfram hjá höfuðbóli álfa í Kækjusteini og síðar Állakirkju. Því næst komum við niður á Þverár- eyramar og rétt áður en við komum að Hvannastóði eftir níu tíma göngu óðum við á og þar sýndi Svanhildur frábæra takta eins lipur og létt og hún er. Leiðarlok Göngunni var lokið og við ókum af stað niður í Borgarfjörð þar sem við hittum Skúla aftur á Borg. Áður en hann gaf sér tíma til að heilsa heyrðum við hann segja eins og hálf afsakandi í síma, „þær eru komnar, konumar." Við kvöddum hann og Þorstein sem var orðin hálfþreytulegur eftir allt glamrið í okkur. Ferðin til baka gekk vel, gistum eina nótt í Bemfirði og síðan lá leiðin til Þorlákshafnar. Við komum þvf heim með seinni ferð Herjólfs eftir tæplega viku ferð. Ferð sem einkenndist af gleði, hlátri og vinarþeli. Svei mér þá ef við nöfnur höfðum ekki lært fullt af nýjum blómaheitum. Daglega lífið að taka við og ég hálfpartinn farin að sakna karlanna á Fréttum. gudbjörg @ eyjafrettir. is Myndir: Guðbjörg ogAgústa Guðna. GUÐNÝ í fótaaðgerð hjá Ágústu. GUÐNÝ, Sigga og Villa með desertinn góða. SIGGA, Ágústa og Guðný í steinalcit.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.