Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2003, Page 13

Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2003, Page 13
Fréttir / Fimmtudagur 31. júlí 2003 13 Nýsköpunarsjóð- ur ekki með í frumkvöðlasetri Bæjarráði barst bréf frá Nýsköp- unarsjóði þar sem kemur fram að sjóðurinn sjái sér ekki fært að koma að stofnun frumkvöðlaseturs í Eyjum að svo stöddu. Röksemd sjóðsins er sú að nú þegar taki hann þátt í rekstri tveggja frum- kvöðlasetra og em það tilrauna- verkefni til fimm ára. Setrin em á Norðurlandi og Austurlandi, á Akureyri og Homaftrði. I ljósi reynsl- unnar er ætlunin að meta árangurinn og í framhaldi af því hugsanlega aðkomu sjóðsins að fleiri frum- kvöðlasetmm. Ef árangur er í samræmi við væntingar verður afstaða sjóðsins til frekari þáttöku í frumkvöðlasetrum annars staðar á landinu endurskoðuð. Bæjarráð mun leita til Nýsköp- unarsjóðs á ný þegar vinna við stofnun frumkvöðlaseturs er lengra á leið komin. / Anægðir Á fundi bæjarráðs á mánudaginn lýsti ráðið yfir almennri ánægju sinni með starf íþróttafélaganna í bænum og með mót sem þau hafa staðið fyrir í sumar sem hafa dregið fjölda fólks til Vestmannaeyja. „Starfsemi þessara félaga skiptir miklu máli fyrir bæjar- félagið í heild sinni.“ Halla Júlía Andersen skrifar lesendabréf: Nám er vinna - Agi er uppeldi -Fullorðnir eru fyrirmyndir Ég get ekki lengur orða bundist vegna umijöllunar um árangur 10. bekkinga í skólanum mínum í vor. Bæjar- stjómar- og bæjarráðsmenn virðast enn ekki vita hvað gerðist og í dag (fimmtudagur 24.7.) las ég í Fréttum að krafist er svara og útskýringa skóla- stjóra og aðstoðarskólastjóra. Getur verið að það sé verið að nota unglingana okkar og árangur þeirra í pólitískum tilgangi? Skólafulltrúinn er búinn að svara, þannig að þið, sem við kusum til að stjóma bænum okkar, hvar í flokki sem þið standið, ættuð nú að fara að sameina krafta ykkar, bjarga því sem bjargað verður í rekstri bæjarins og hætta þessum nomaveiðum. Þeir sem þetta kemur við, þ.e. nemendur, for- eldrar og kennarar, vita ástæðu árangursins og vita einnig hvað þarf til til þess að ná árangri. Eg kenndi þessum krökkum dönsku í 4 ár og þykir afar vænt um þau. Ég er bundin trúnaði gagnvart þeim og foreldrum þeirra sem og skólastjóri og aðstoðar- Annað sem ég er ekki sátt við er hvað Barnaskólinn virðist alltaf fá umfjöllun í fjölmiðlum árin sem árangur þar er verri en í Hamarsskóla. Skól- arnir skiptast nefnilega nokkuð reglulega á að vera „betri skólinn" á samræmdum prófum. Hvernig stendur á þessu? Hverjir stuðla að þessu? Við erum með tvo grunnskóla í bænum sem eru hér fyrir nemendur sína, hvor í sínu íbúðarhverfi. skólastjóri. Þess vegna er ég á móti þessari opinbem umijöllun. Mérfinnst hún ganga út á að ,,hengja“ einhvem. í þessum árgangi vom margir nem- endur sem stóðu sig ágætlega. Það virðist gleymast. Er þessi umljöllun réttlát gagnvart þeim? Skólasamfélagið samanstendur af nemendum, heimilum þeirra og skóla. Gott samband milli þessara aðila er lykill að velgengni og árangri nem- endanna. Sá farvegur sem umíjöllunin er í stuðlar ekki að samheldni þessara aðila, heldur sundmngu. Skólastjórar gmnnskólanna okkar vom í opnuviðtali Frétta í byrjun júní og tjáðu sig þar um námsárangur almennt. Þessi mál hafa einnig verið tekin fyrir í skólamálaráði. Ef hvert bam fær svo umönnun, aðhald og aga hjá fjölskyldu sinni, eru þessi mál í réttum farvegi. Þá geta þeir, sem málið varðar, stuðlað að bættum árangri hvers bams fyrir sig. Annað sem ég er ekki sátt við er hvað Bamaskólinn virðist alltaf fá um- fjöllun í ijölmiðlum árin sem árangur þar er verri en í Hamarsskóla. Skól- amir skiptast nefnilega nokkuð reglulega á að vera „betri skólinn“ á samræmdum prófum. Hvemig stendur á þessu? Hverjir stuðla að þessu? Við emm með tvo gmnnskóla í bænum sem em hér fyrir nemendur sína, hvor í sínu íbúðarhverfi. Báðir búa yftr kostum og göllum, styrkleikum og veikleikum. Að vísu er aðbúnaður skólanna ekki eins, en verður vonandi einhvem tíma, þannig að nemenda- fjöldi í bekkjardeildum verði svipaður og jafnvel að allir bekkir fái sérstaka kennslustofu til að vinna í. Getur verið að þetta skipti máli? Nú er þjóðhátíð framundan. Þetta er fjölskylduskemmtun okkar Eyja- manna. Sýnum gott fordæmi og vemdum unglingana okkar fyrir öllu vondu!!!! Gleöilega liátíð Halla Júlía Andersen kennari við Bamaskóla Vestmannaeyja. Viðbygging Safnaðarheimilis í burðarliðnum A síðasta fundi skipulags- og bygginganefndar var tekin fyrir umsókn safnaðarnef ridar Landakirkju um leyfí fyrir viðbyggingu við Safnaðar- heimili. Nefndin frestaði afgreiðslu umsóknarinnar en fól skipulags- og bygginga- fulltrúa bæjarins að kynna málið fyrir bæjarbúum. Viðbyggingin er fyrirhuguð vestan við núverandi safnaðar- heimili en Jökull Pálmar Jónsson, skipulags- og byggingafulltrúi, sagði í samtali við Fréttir að mænishæð fyrirhugaðrar viðbyggingar sé rúmum metra hærri en mænishæð núverandi safnaðar- heimilis enda er áætlað að viðbyggingin verði á tveimur hæðum. Gengið veður inn í viðbyggingu á efri hæð og í viðbyggingunni er lyfta, þannig að samgangur milli kirkju og safnaðarheimilis er auðveld- aður til muna fyrir hreyfí- hamlaða. „Þá er einnig fyrirhuguð ný innkeyrsla frá Vallargötu og verða staðsett tvö bflastæði fyrir fatlaða vestan við fyrirhugaða viðbyggingu,“ sagði Jökull. Þeim sem vilja kynna sér málið nánar er bent á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa að Tangagötu 1, en þar geta áhugasamir skoðað teikningar og komið á framfæri athuga- semdum til skipulags- og bygginganefndar. VIÐBYGGING Safnaðarhcimilisins verður vestan við núverandi safnaðarheimili og verður heldur hærri. Lögreglan í Eyjum: Stendur sig vel í barátt- unni gegn fíkniefnum LÖGREGLAN á vakt í Dalnum á þjóðhátíð. Ef tölur um heildarmagn fíkniefna sem hald var lagt á, og skipting þess milli embætta árið 2002 eru skoðaðar kemur fram að í Vest- mannaeyjum var lagt hald á 425,43 gr af hassi sem er næst mesta magn á landinu. Reykjavík er með mesta magnið eða 55.902.13 gr en á Akureyri var lagt hald á 316,86 gr, á Keflavíkur- flugvelli 283,77 gr og 252,18 gr í Hafnarfirði. Sáralítið fannst hins vegar af marihuana í Eyjum eða 0,15 gr á móti 449,64 gr. í Reyka- jvík en hafa ber í huga, vegna brota í Reykjavík, að hluti þeirra kemur til vegna mála sem eiga upphaf sitt hjá embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli og tollstjóranum í Reykjavík. Mesta magn af amfetamíni var tekið í Reykjavík eða 6.425,07 gr, á Keflavíkurflugvelli voru tekin 233.1 gr, í Hafnarfirði 96 gr, Vest- mannaeyjar eru í fjórða sæti með 71,67 gr, og Akureyri í því fímmta með 59,98 gr. Ef tölur um magn á kókaíni eru skoðaðar kemur fram að Vest- mannaeyjar eru í öðru sæti með 36,20 gr, Reykjavík í þvf fyrsta með 1802,08 gr en á Akureyri náðust 19,88 gr, Hafnarfjörður var með 5,47 gr og Kópavogur með 4,84. í Vestmannaeyjum var lagt hald á 23 E-töflur og þar eru Vestmannaeyjar í fimmta sæti, Reykjavík lagði hald á flestar töflur eða 470, Hafnarfjörður 126,5, Akureyri 113 og Kópavogur 39. Hafa ber í huga, vegna brota í Reykjavík, að hluti þeirra kemur til vegna mála sem eiga upphaf sitt hjá embætti sýslumannsins á Kefla- víkurllugvelli og tollstjóranum í Reykjavík.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.