Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2003, Side 14

Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2003, Side 14
14 Fréttir / Fimmtudagur 31. júlí 2003 ADDA vonast til að Húsið breyti aðstöðu ungs fólks í Eyjum til hins betra. Husið verður til mikilla bóta - og ég vona að við séum ekki að fara úti eitthvað sem enginn vill sækja, segir Adda sem fór Þjóðveg 2 í sumar til að kynna sér starfsemi menningar- og kaffihúsa víða um land Guðlaug Amþrúður Guðinundsdóttir, 18 ára framhaldsskólanemi, verður í stjóm samtaka um ungmennahús sem ákveðið er að stofna. Fór hún ásamt, krökkum víðs vegar að af landinu í heimsókn til allra ungmennahúsa sem em starfandi og vhr leiðangurinn kallaður Þjóðvegur 2. Guðlaug Amþrúður, eða Adda eins og hún er kölluð venjulega, er á nátt- úrufræðibraut í Framhaldsskólanum og stefnir hún á að útskrifast næsta vor. Þegar Adda er spurð um félagslíf unglinga í Vestmannaeyjum, stendur ekki á svarinu. „Það hefur farið versnandi á þeim tíma sem ég þekki til. Krakkamir hanga meira heima hjá sér yftr tölvum og öðm og eru ekki á ferðinni niðri í bæ eins og var þegar ég var í gmnnskóla. Við vomm ekki mjög lengi úti á kvöldin en við komum saman sem mér finnst skipta máli. Það hefur vantað eitthvað til að draga krakkana út og að þau haft eitthvað við að vera,“ segir Adda og fagnar því að menningar- og ung- mennahús sé nú að komast á koppinn. „I Húsinu getum við verið með spilakvöld og aðra starfsemi fyrir ungt fólk og þá mæta krakkarnir. Féló er fyrir krakka í 7. til IÓ. bekk, eða 12 til 16 ára en það hefur vantað eitthvað fyrir þá eldri og nú er það loks að koma.“ Þó Húsið sé enn ekki tekið starfa em Vestmannaeyjar aðilar að sam- tökum ungmennahúsa sem tekið hafa til starfa víða á landinu í undanfömum ámm. Það em Hitt húsið í Reykjavík sem Adda segir að sé frekar upp- lýsingamiðstöð en samkomuhús en þaðan er stjómað mjög öflugu starfí á vegum Reykjavíkurborgar. Á Akra- nesi er Hvíta húsið, Mímir í Borgamesi, Garnla apótekið á ísafirði, Geymslan á Sauðárkróki, Kompaníið á Akureyri og Tún á Húsavík. „Við heimsóttum alla þessa staði og eru húsin mjög misjöfn. Aðsóknin er mest í bestu húsin og best er Gamla apótekið á ísafirði. Misjafnt er hvaða starfsemi er í húsunum, sums staðar em haldin námskeið í myndlist, frír aðgangur að tölvum eða Netkaffi. Annars staðar eru billjarðborð og pílu- kast og á tveimur eða þremur stöðum er æfingaaðstaða fyrir hljómsveitir. Það gengur alveg ef vel er einangrað. Á tveimur stöðum' var framhalds- skólaútvarp." Ferðin stóð frá föstudegi til þriðju- dags og kallaðist hún Þjóðvegur 2 og stofnuðu þau samtök sem eiga að heita Húsfélagið. Farið var um í lítilli rútu og vom þau 13 með bfistjóra. „Hannes frá Hinu húsinu og Halldór frá Isafirði fóm fyrir hópnum í ferðinni sem var mjög skemmtileg. Eftir að hafa kynnst þessari starfsemi annars staðar líst mér ágætlega á það sem á að fara að gera hér. Húsnæðið er ágætt þó það sé ekki eins stórt og Gamla apótekið en á sumum stöðum er það minna. Það verður gaman að fá kaffihús fyrir okkur með tölvum, billjarð, pfiukasti og sjónvarpi. Þama gætu hljómsveitir líka troðið upp einu sinni í viku. Húsið verður til mikilla bóta og ég vona að við séum ekki að fara út í eitthvað sem enginn vill sækja," sagði Adda að endingu. Menningar- og kaffihús verður að veruleika: Ahugahópur um menningar- og kaffi- hús ungs fólks, sem komið var á fót að frumkvæði Barkar Grímssonar bankastjóra íslandsbanka í Eyjum nokkrum dögum fyrir bæjarstjómar- kosningarnar vorið 2002, er nú að sjá fyrir endann á starfi sínu. Upphalið var að Börkur kallaði til sín fulltrúa allra framboða auk forsvarsmanna Frétta og var hugmyndin þá að ráðast í húsnæðið að Bárustíg 1, áður Calypso, og útbúa þar kaffihús fyrir ungt fólk á aldrinum 16 til 25 ára. Það gekk ekki en nú er komin lausn því Islandsbanki hefur lánað húsnæðið að Vestmannabraut 36, áður Eyjablóm, undir starfsemina. „I upphafi höfðum við fyrirmyndir frá Gamla apótekinu á Isafirði, Hinu húsinu í Reykjavík og þá nýlega Hvíta húsinu á Akranesi. Allt em þetta ungmennahús fyrir 16 til 25 ára,“ sagði Selma Ragnarsdóttir sem farið hefur fyrir hópnum. „Rauði krossinn hefur komið að verkefninu á öðrum stöðum á landinu ásamt stómm aðilum úr atvinnulífinu og öðmm velunnumm." Selma sagði að með styrk Islands- banka í formi leigu á húsnæðinu við Vestmannabraut 36 til tveggja ára væri bankinn að koma mjög myndar- lega að forvömum unglinga í bænum. Einnig hefur verið óskað eftir við- ræðum við bæinn um málið „Við vonum svo að fleiri fyrirtæki og félagasamtök fylgi þeirra fordæmi með sams konar styrkjum í formi beinna rekstrarstyrkja, innanhússmuna eða vinnuframlags að einhverju tagi.“ Húsnæðið er á mjög góðum stað í miðbænum. er 118 fermetrar á einni hæð og skráð sem verslunarhúsnæði. „Talsverðar breytingar þarf' að gera og kaupa þarf stóla og borð, sófa, tölvur, sjónvarp, dvd/videó tæki, eldhústæki og áhöld, ísskáp og kaffivél svo eitthvað sé nefnt. Ekki er gert ráð fyrir fullkomnu eldhúsi á staðnum því starfsemin er ekki hugsuð sem veit- ingarekstur heldur að hægt verði að fá sér kaffí, sýna sig og sjá aðra. Húsnæðið er tilvalið fyrir starfsemina og þökkum við Islandsbanka fyrir að ríða á vaðið og styrkja okkur,“ sagði Selma. Reksirarfyrirkomulag Talið er heppilegast að reksturinn verði í höndum hóps eða rekstrar- félags, sem samanstendur af forstöðu- manni sem væri fastur starfsmaður og fimm til sex manna húsráði, skipuðu af því fólki sem staðurinn er ætlaður. „Starfsemin verður með sjálfstæðan fjárhag og stjóm. Hugmyndin er einnig að stofnað verði hollvinafélag sem samanstendur af þeirra sem starfa að forvömum, lögreglu, læknum, prestum, kennumm, foreldmm og jafnvel fleirum. Eðlilegast væri að bjóða veitingareksturinn út. Líklega yrði að selja inn á námskeið, fyrir- lestra, sérstök kvöld eða tónleika til að það stæði undir sér en umframtekjur rynnu beint í rekstur og viðhald. Hugsanlegt er að koma starfi nemenda Framhaldsskólans í húsinu inn í ein- ingakerfi skólans. Geri ég ráð fyrir nánu samstarfi við skólann og nem- endafélag hans.“ Opnunartími Lagt er til að starfsemi hússins verði öflug yfir vetrartímann, ffá september til loka maí, en minna verði um að vera á sumrin. „Samkvæmt upplýs- ingum og reynslu annars staðar teljum við eðlilegt að yfir vetrar- tímann sé opið 16.00 til 23.00 á mánud.-fimmtud., 15.00 til 01.00 á föstud. og laugard. og 20.00 til 23.00 á sunnudögum." Starfsemin „Hugmynd okkar er að stofna hér menningar- og kaffihús þar sem ung- lingarnir eiga sér sameiginlegan stað til tómstunda- og félagsstarfa eða bara koma saman. Hér sárvantar aðstöðu fyrir unglinga eldri en 16 ára. Listsköpun og ýmis klúbbastarfsemi yrði aðalviðfangsefnið auk ýmissa uppákoma og fyrirlestra. Möguleik- amir eru í raun óendanlegir þegar ungt fólk á í hlut enda er það ætlunin að fólkið sem sækir staðinn móti starfið og Húsið sjálft. Eitt skilyrði er þó að staðurinn verði algjörlega vímuefna- og reyklaus. Við lítum svo á að verið sé að koma upp húsi fyrir ungt fólk sem sé hluti af enn stærra forvama- starfi í bænum." Stofn- og REKSTRARKOSTNAÐUR Gróflega áætlaður stofnkostnaður er á bilinu 3 til 4 milljónir. I þeirri upphæð er gert ráð fyrir að allt sé borgað en í reynd má gera ráð fyrir að fyrirtæki, félagasamtök eða einstaklingar taki á sig hluta kostnaðar til að mynda með gjöfum eða vinnuframlagi. „Gróflega áætlað er rekstarkostnaður verði sam- tals um fimm milljónir króna. Nafnið á kofanum „Margir hafa sýnt þessu áhuga og ekki síst unga fólkið sjálft sem hefur þurft að bíða lengi og óþreyjufullt eftir þessu. Nú er mál til komið að svona hús verði opnað. Því teljum við auðsótt að fá aðila til hjálpar og styrki til að koma þessu á laggirnar. I dag em starfandi sjö ungmennahús á landinu, sex sem em í bígerð og Ijórir stáðir sem em með málið í athugun. Við vonum að þessi orð varpi nokkru ljósi á fyrirhugaða starfsemi og kostnað við að koma henni á fót og reka hana. Ljóst er að undirbúningur og kostnaður er mikill en við teljum að með jákvæðu hugarfari og sam- vinnu getum við unnið þetta mikilvæga verkefni saman og þannig lagt okkar af mörkum fyrir ungt fólk í Vestmannaeyjum. Flest húsin bera nöfn sem enda á húsið, s.s. Hitt húsið og Hvíta húsið. Við fómm þá leið að leggja til að menningar- og kaffihúsið yrði ein- faldlega kallað Húsið. Við stefnumn að því að opna Húsið í september og auglýst verður staða forstöðumanns og annars starfsfólks fljótlega," sagði Selma sem að lokum vildi leggja áherslu á að allir sameinist í þessu brýna verkefni sem sé hafið yfir alla fjokkspólitík. Áhugahópurinn samanstendur af þessum: Selma Ragnarsdóttir Jóhann O. Guðmundsson Smári Jökull Jónsson Ema Ósk Grímsdóttir Börkur Grímsson Ómar Garðarsson Aðrir sem hafa lagt okkur lið em: Sigurjón Pálsson Sigursveinn Þórðarson Bjami Ólafur Magnússon Ivar Bergsson Sigurður Páll Ásmundsson Víkingur Smárason Sigþóra Guðmundsdóttir Guðlaug Arnþrúður Guðmundsdóttir. Þeir sem hafa álniga á að kynna sér skýrslu hópsins nánar geta nálgast hana í Ráðhúsinu. HÚSIÐ ufhent. Smári Jökull, Erna, Jóhunn Ólafur, Selma, Börkur og Maghús Arngrímsson, nýr útibússtjóri Islandsbanka í Eyjum. Húsið skal það heita

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.