Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2003, Blaðsíða 15
Fréttir / Fimmtudagur 31. júlí 2003
15
Gætir hagsmuna
bæjarins
Meirihluti bæjarstjómar hafði lagt
fram tillögu þess efnis að Astráði
Haraldssyni lögfræðingi yrði falið að
verja hagsmuni bæjarins vegna
uppsagnar Inga Sigurðssonar,
fyrrverandi bæjarstjóra. Ingi hefur
sjálfur falið lögfræðingi sínum,
Ragnari Hall að sjá um öll samskipti
sín við núverandi meirihluta.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
bæjarstjóm lögðu fram tillögu á
fundi bæjarstjómar í síðustu viku að
leitað yrði frekar til lögfræðinga
innanbæjar frekar en Ástráðs. Segir í
lok tillögunnar: „...lögmenn í Eyjum
hafa töluverða reynslu af málum er
varðar ráðningarsamninga." Tillagan
var felld með íjómm atkvæðum gegn
þremur.
Vill svör skólastjóra
Guðjón Hjörleifsson (D) ítrekaði,
ásamt félögum sínum í minnihluta
bæjarstjómar. lillögu sína um að
skólastjóri og aðstoðarskólastjóri
Bamaskólans í Vestmannaeyjum
skili áliti sínu um ástæður
niðurstaðna samræmdra prófa 10.
bekkinga í Bamaskólanum.
Oskað er eftir að bæjarstjóm, skóla-
málaráði og foreldmm gmnn-
Jonna Hamilton, bandanskur háskolanemi:
Rannsakar hegðun og atferli
lunda
JONNA segist vera að reyna finna út hvaða hegðunarmynstri lundinn fylgi og nýleg rannsóknartæki geri það
mögulegt. „Tækin eru það lítil að ég get límt þau á bakið á fuglinum. Eg næ lundanum við holuna og tækið safnar
upplýsingum í u.þ.b. 24 til 36 tíma.
Jonna Hamilton, bandarískur háskóla-
nemi, hefur dvalið í Eyjum síðan um
miðjan maí við rannsóknir á hegðun
og atferli lunda. Hún er á öðm ári við
Brown University, Providence. RI og
hlaut styrki til rannsóknanna frá
Fulbright-Ambassador and Mrs. Day
Olin Mount Scholarship sem komið
var á fót af dr. Þorsteini Inga Sigfús-
syni en sjóðurinn er samstarf Fulbright
stofnunarinnar og Rannsóknaseturs
Vestmannaeyja.
Styrkir á vegum Fulbright em til að
auka alþjóðleg samskipti milli Banda-
ríkajanna og annarra þjóða. Ameri-
can- Scandinavian Foundation kostar
síðan stærstan hluta rannsóknar-
búnaðarins sem hún vinnur með í
Eyjum.
„Eg er að rannsaka hvemig lundinn
hreyfir sig og hvemig hann notar
vængina bæði í vatni og lofti. Ég er
einnig að rannsaka hvemig lundinn
syndir en mörgum spumingum þar að
lútandi er enn ósvarað. Páll Marvin
hefur rannsakað hvemig hann kafar en
við viljum safha frekari upplýsingum
þ.e hversu lengi, hversu djúpt og
hversu oft hann kafar.“
Jonna segist vera að reyna ftnna út
hvaða hegðunarmynstri lundinn fylgi
og nýleg rannsóknartæki geri það
mögulegt. „Tækin eru það lítil að ég
get límt þau á bakið á fuglinum. Ég
næ lundanum við holuna og tækið
safnar upplýsingum í u.þ.b. 24 til 36
ti'ma. Ég þarf hins vegar að sitja um
fuglinn og ná honum aftur og það
getur verið þrautin þyngri. Tækið
mælir hita og þrýsting og út frá því má
reikna hversu djúpt fuglinn kafar.
Þetta krefst mikils tíma, útsjónarsemi
og þolinmæði. Palli hefur upplýsingar
um tvö til þrjú dýr en rannsóknir sem
þessar hafa ekki verið gerðar áður í
heiminum."
Rannsóknimar sem Jonna vinnur að
snúa einnig að hegðun og atferli
lundans. ÉghorfiáupptökurfráYsta-
kletti en þar er myndavél tengd
örbylgjusendi þannig að ég get fylgst
með á Náttúrugripasafninu og reyni ég
að fylgjast með daglegri hegðun
lundans. Hvenær þeir sitja á eggjum,
færa unganum fisk o.s.frv. Ég er enn
að safna upplýsingum en hef ekki
unnið nægilega úr þeim þannig að ég
geti sagt til um heildarmynstrið."
Þegar Jonna er spurð um hvað sé
mest heillandi við lundann segir hún
það vera þegar þeir koma af sjónum
og lenda akkúrat hjá sinni holu. Þeir
virðast þekkja sitt nágrenni og ef nýr
fugl kemur inn á þeirra svæði, hrekja
þeir hann í burtu. Þeir eru mjög varir
um sig um þessar mundir, ungi
fuglinn er að komast upp og þá veijast
þeir miskunnarlaust. Lundinn liggur á
eggjum í 30 til 40 daga og unginn er í
38 til 45 daga í holunni. Það er sérstætt
við lundann að þegar hann yfirgefur
ungana eru þeir sjálfstæðir og fúllfærir
um að bjarga sér. Langvían fæðir
ungann og fylgir honum eftir eins og
aðrar fuglategundir."
Jonna segir tímann hér hafa verið
ánægjulegan og allir hafi tekið henni
afskaplega vel. „Ég var hér fyrir
tveimur árum með kennara mínum.
Síðasta daginn hér í Eyjum fékk ég á
tilfmninguna að ég yrði að koma aftur
Við vorum hér við athuganir og
tókum með okkur lundaegg en ung-
amir höfðu það ekki af. Við emm hins
vegar með langvíu sem var flutt inn
frá Alaska og getum rannsakað
hegðun hennar í skólanum. Rann-
sóknimar hér gefa mér tækifæri til að
skoða lundann í sínu náttúrulega
umhverfi í stærstu lundabyggð
heimsins."
Jonna hefur að hluta til unnið við
rannsóknimarí Ystakletti. Páll Marvin
og starfsmenn hafnarinnar hafa séð
um að flytja hana þangað út með bát
og hún segir lundakarlana hafa tekið
sér vel. „Þeir buðu mér í kaffi og köku
og mig langar að sjá hvemig þeir bera
sig að við veiðamar. Ég er ekki á móti
veiðunum, fullorðni fuglinn er ekki
tekinn og ef veiða á lunda þá er þetta
rétta aðferðin. Það er gömul hefð fyrir
veiðunum og ég virði hana."
Jonna tekur fram að margir hafi spurt
sig hvort hún hafi borðað lunda en hún
segist ekki hafa gert það ennþá.
„Margir vísindamenn hafa þá skoðun
að maður eigi að borða viðfangsefni
sín ef þau em á annað borð æt, þeir
sem rannsaka fisk borða fisk, snigla
o.s.frv. Þess vegna verð ég að prófa og
smakka á lunda,“ segir þessi við-
kunnanlega stúlka en hún dvelur hér
fram í miðjan ágúst. Hún vonast til að
koma aftur seinna enda finnst henni
fólkið hér yndislegt og náttúran
stórkostleg.
Bæjarstjórn:
Enginn sameiginlegur fundur með Inga
Málefni Inga Sigurðssonar fyrrverandi
bæjarstjóra vom áberandi á fundi
bæjarstjómar í síðustu viku.
Tekin var fyrir fundargerð bæjar-
ráðs frá 21. júlí þar sem Guðjón Hjör-
leifsson (D) spurði meirihlutann
hversu oft bæjarfulltrúar meirihlutans
höfðu allir lundað saman með frá-
farandi bæjarstjóra. Andrés Sig-
mundsson bókaði í bæjarráði að
fyrirspurnin þjóni engum tilgangi.
Si'ðar, eftir bókun Guðjóns um að slíkt
svar sé útúrsnúningur og f raun
viðurkenning á því að aldrei hafi
slíkur fundur farið fram, sagði Andrés
í bókun að framkoma og vinnubrögð
sjálfstæðismanna gagnvart fyrrverandi
bæjarstjóra sé það sem skaðað hefur
hann mest.
Guðjón bókaði svo á bæjar-
stjómarfundinum þar sem hann lýsti
undmn sinni á bókun Andrésar. „Nú
er öllum Ijóst að Ingi naut trausts og
trúnaðar Sjálfstæðisflokksins og er
það okkar mat að hvergi hafi fallið
skuggi á störf hans fyrir bæjarfélagið.
Ber að skilja orð formanns bæjarráðs
svo að ef Bergur Elías Ágústsson
vinnur sér inn traust bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins með störfum
sínum þá komi það til með að skaða
hann í starfi?“
Talsverð umræða var um málið og
eftir hana kom önnur bókun. „Guðjón
Hjörleifsson óskar að bóka að Guðrún
Erlingsdóttir, forseti bæjarstjómar,
hafi játað það að á meðan Ingi Sig-
urðsson var bæjarstjóri, eftir að
meirihluti V-listans og Andrésar Sig-
mundssonar tók við, hafi kjömir
bæjarfulltrúar meirihlutans, það er
Lúðvík, Andrés, Guðrún og Stefán
aldrei átt sameiginlegan fund með
Inga Sigurðssyni þáverandi bæjar-
stjóra.
Guðjón VILL fá svör um
STARFSREGLUR BÆJARINS
Tekist var á um ráðningu fjögurra
nýrra framkvæmdarstjóra hjá bænum
á síðasta fundi bæjarstjómar og þar
svaraði Guðjón Hjörleifsson meiri-
hlutanum sem vildi að hann sýndi
hvar það sé að finna að lausar stöður
hjá bænum skulu auglýstar.
Guðjón lagði fram samhljóða
samþykkt bæjarráðs frá 12. október
1978 sem síðan var samþykkt í
bæjarstjóm. Þar segir: „Aðilar em
sammála um að áður en bæjarráð
tekur afstöðu til mannaráðninga skuli
ætíð haft fullt samráð við, eða leitað
umsagnar Starfsmannafélagsins."
Guðjón kom svo með fyrirspum í
framhaldi af útskriftinni af fundi
bæjarráðs síðan 1978 þar sem óskað er
eftir upplýsingum um hvort farið hafi
verið eftir þessari samþykkt þegar
ráðið var í stöður framkvæmdastjóra
hjá bænum.
Einnig kom bókun frá honum. „I
bókun meirihlutans segja Andrés
Sigmundsson og Stefán O. Jónasson
að það hafi verið farið eftir lögum og
reglum. Óskað er eftir skriflegu svari
frá Stefáni Jónassyni hvaða lögum og
reglum hafi verið farið eftir í þessu
máli og hvort þetta sé með sama hætti
og þegar hann var í stjóm Starfs-
mannafélags Vestmannaeyjabæjar, en
þá var hann manna ötulastur að verja
rétt starfsmanna í félaginu."
skólabama í 10. bekk Bamaskólans í
Vestmannaeyjum verði send afrit af
álitinu sem skal lokið fyrir 31. ágúst
n.k.“ Fram kom afgreiðslutillaga um
að vísa málinu til skólamálaráðs og
var hún samþykkt.
Oskað eftir
stefnu
meiri-
hlutans
Á fundi bæjarráðs í síðustu viku var
lagður fram undirskriftalisti vegna
aðstöðuleysis unglinga í bænum.
Þar eru bæjaryfirvöld hvött til að
koma upp nýrri félagsmiðstöð fyrir
unglinga.
Kom fram í afgreiðslu bæjarráðs
að unnið sé að endurskipulagningu
á tómstunda- og æskulýðsstarfsemi
á vegum bæjarins og munu niður-
stöður verða birtar síðar. Á fundi
bæjarstjórnar í síðustu viku barst
svo fyrirspum frá minnihluta Sjálf-
stæðisflokksins. „Ljóst er að nú-
verandi meirihluti hefur horfið frá
fyrirhugaðri uppbyggingu síðustu
bæjarstjómar á Éélagsmiðstöð í
Týsheimili. Slíkt hefði samþætt á
einum stað þá æskulýðs- og tóm-
stundastarfsemi sem fram fer á
vegum Vestmannaeyjabæjar annars
vegar og IBV íþróttafélags hins
vegar. Af þessum sökum ítrekum
við fyrirspurn Guðjóns Hjörleifs-
sonar um stefnu V-listans og
Andrésar Sigmundssonar í upp-
byggingu fyrir æskulýðsstarfsemi í
Vestmannaeyjum. Svör um að
unnið sé að endurskipulagningu
svara því ekki hver stefnan er.
Endurskipulagningin hlýtur að taka
mið af einhverri stefnu, nema V-
listinn og Andrés Sigmundsson hafi
ekki stefnu í þessum mikilvæga
málaflokki og endurskipulagning
sú sem þegar er unnið að taki mið
af því.“
Sakar meiri-
hlutann um
valdahroka
Lögfræðiálit Ragnars Hall vegna
Inga Sigurðssonar fyrrverandi
bæjarstjóra fékst ekki lagt fram á
fundi bæjarráðs í síðustu viku og
sagði meirihlutinn að álitið hafi
verið lagt fram á fundi bæjar-
stjómar lO.júlíþegar uppsögn Inga
var lögð fram.
Bókað var á víxl í bæjarráði eins
og greint var frá í Fréttum í síðustu
viku og ein bókun enn var lögð
fram á bæjarstjómarfundinum þann
23. júlí sl. frá Elliða Vignissyni (D)
„Bókun Andrésar Sigmunds-
sonar og Stefáns Jónassonar í
bæjarráði, þar sem rætt var um
málefni fyrrverandi bæjarstjóra,
lýsir glögglega þeim valdhroka sem
núverandi meirihluti viðhefur. Að
láta hafa eftir sér í opinberri bókun
að bæjarstjóri sé eða hati verið
„bæjarstjóri núverandi meirihluta,
V-listans og Andrésar Sigmunds-
sonar" lýsir annaðhvort fádæma
valdhroka eða vanþekkingu á
stjórnkerfi Vestmannaeyjabæjar.
Að sjálfsögðu skal bæjarstjóri vera
fulltrúi allra bæjarbúa sama hvar í
stjómmálum þeir standa.“
Samþykkt var svo með Ijórum
atkvæðum gegn þremur að álitið
skyldi ekki lagt fram.