Fréttir - Eyjafréttir - 02.10.2003, Blaðsíða 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 2. október 2003
jfcSfSS;
EYJAMAÐUR VIKUNNAR
Hefði verið gaman að hitta Einstein
Á þriðjudaginn var Hrund Scheving
Sigurðardóttir ráðin sem forstöðu-
maður Hússins, menningar- og
kaffihúss fyrir ungt fólk í Vest-
mannaeyjum. Fyrirhugað er að
starfsemin hefjist um miðjan mán-
uðinn. Hrund er Eyjamaður vikunnar
að þessu sinni.
Nafn: Hrund Scheving Sigurðardóttir.
Fæðingardagur: 12. febrúar 1978.
Fæðingarstaður: Ég fæddist í
höfuðborginni.
Fjölskylda: Ég er í sambúð með Jóni
Helga Sveinssyni.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór: Leikari, og ég er ekki enn
orðin stór þannig að ég á enn
möguleika.
Draumabíllinn: Honda Accord, bara
flottur.
Uppáhaldsmatur: Humarinn hjá
ömmu og afa á áramótunum, mmm.
Versti matur: Eg borða allt nema
lifur.
Uppáhaldsvefsíða: Leit.is.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Bara góð popptónlist.
Hvaða mann/konu myndir þú helst
vilja hitta í mannkynssögunni: Það
er spurning. Það hefði örugglega
verið gaman að hitta Einstein.
Aðaláhugamál: íþróttir, skemmtanir
og fjölskyldan.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Hyde Park í London á
fallegu kvöldí.
Uppáhaldsíþróttamaður eða
íþróttafélag: ÍBV er uppáhalds
íþróttafélagið mitt en ég spilaði lengi
með Stjörnunni og held svolítið upp á
það félag líka.
Stundar þú einhverja íþrótt: Ekki
eins og er. Ég hef æft handbolta í
mörg ár en hef lagt skóna á hilluna
um sinn.
Ertu hjátrúarfull: Nei, ég er ekki
mjög hjátrúarfull en ég er mjög
óheppin og er mér ekki sama þegar
13. kemur upp á föstudegi.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég er
mikið fyrir raunverluleika sjónvarps-
þætti eins og Survivor og Bachelor.
Besta bíómynd sem þú hefur séð:
Ég sá nýju myndina með Jim Carey
um daginn og fannst hún mjög fyndin.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir: Að skemmta mér í góðra
vina hópi.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
gerir: Að gera ekki neitt.
Hvernig leggst nýja starfið í þig?
Starfið leggst mjög vel í mig. Þetta er
mjög spenndi verkefni og það er
mjög gaman að fá að vera með frá
byrjun og koma þessu öllu í gang.
Hvað verður helst um að vera fyrir
krakkana? Um er að ræða kaffihús
þar sem ungt fólk getur hist og
spjallað saman. Alls kyns klúbba-
starfsemi og menningarviðburðir
munu koma til en starfsemin mun
velta mikið á því hvað unga fólkið vill
gera. Húsið á að vera staður fyrir þau
og er það þeirra að koma með
hugmyndir og framkvæma þær.
Verður Húsið tilbúið 15. október?
Já það ætla ég að vona. En til þess
að það geti gengið þurfum við hjálp.
Það er ýmislegt sem á eftir að gera
og vonumst við til þess að unga fólkið
taki til hendinni og hjálpi okkur að ná
því markmiði.
Eitthvað að lokum: Já ég hvet alla
til að mæta niður í Hús um helgina að
vinna. Við munum verða þar á
föstudaginn frá 20 til 23 og á
laugardag og sunnudag frá 14 til 18.
Margar hendur vinna létt verk.
H5*.'
t,t y
>]'.
MATGÆÐINGUR VIKUNNAR
Hátíðarfiskur og eplakaka
Ég /xikka Ingu fyrir áskorunina.
Hátíðarfiskur
Eplakaka með Toblerone
Hafnarvörður
Vestmannaeyjahöfn auglýsir
lausa stöðu hafnarvarðar.
Launakjör samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmanna-
eyjabæjar. Umsóknum skal skilað á skrifstofu hafnarstjóra í síðasta lagi
20. október2003. Nánari upplýsingar fást hjá hafnarstjóra í símum 481-
3115 og 893-4708.
Hafnarstjóri
Fyrir4-5
800 gr skötuselur
2 saxaðar paprikur
1 sneiddur blaðlaukur
2 saxaðir sellerístönglar
150 gr Búri (ostur), rijinn
2 dl muldar kartöfluflögur m/papriku
2 ‘h cll rjómi
4 msk hveiti
I cll ananassaji eða hvítvín
4 msk. smjör
2 msk. ólífuolía
1-2 tsk. tómatkraftur
'á tsk. turmeric
'A tsk. karrí
1 tsk. Italian seasoning
'h tsk. þriðja kryddið
1 tsk. salt
V2 tsk. svartur pipcir
1 fiskteningur
Látið grœnmetið krauma í 2 msk. afsmjöri þar til það
verður meyrt. Bœtið 1 msk. afliveiti út í ásamt
ananassafa, rjóma, tómatkrafti og örlitlu afvatni efsósan
er ofþykk. Kryddið með turmeric, karríi, þriðja kryddinu,
Italian seasoning ogfiskteningnum. Látið krauma við
vægan hita í nokkrar mínútur og hrœrið íafog til. Skerið
skötuselinn í um það bil 4 cm þykkar sneiðar. Blandið
saman 3 msk. af hveiti, 1 tsk. afsalti og '/2 tsk. afpipar.
Hitið á pönnu 2 msk. afsmjöri og 3 msk. ctf olíu. Veltið
skötuselnum upp úr hveitinu og steikið ftskinn í 2-3
mínútur á livorri hlið. Hellið grcenmetissósunni ísmurt,
eldfast fcit og raðið flskbitunum þar ofan á. Blandið
saman osti og muldum kartöfluflögum og stráiðyfir
fiskinn. Bregðið undirglóð í nokkrar mínútur eða þartil
osturinn er bráðrtaður. Með þessu er gott að hafaferskt
salat og hrísgrjón.
2 grœn epli
marsipan eftir smekk
2 egg
150 g Toblerone
1 tsk. lyftiduft
2 dl sykur
1 dl kókosmjöl
2 dl hveiti
kanilsykur
Eplin eru sneidd, sett í eldfast mót. Marsipanið riflð
niður og stráð yfir. Toblerone er saxað og sett yfir.
Sykurinn og eggin þeytt vel saman og lyftidufti bcett út í.
Þessu er hellt yfir eplin, marsipanið og Tobleronið. Að
endingu er kókosmjöli og kanilsykri hrcert saman og því
stráð yfir. Bakað við 180° C í30 - 40 mín. Boriðfram
með þeyttum rjóma og ís.
Sigríður Þórarinsdóttir er
matgæðingur vikunnar
Störf stuðningsfulltrúa
í Hamarsskóla eru laus 3 hlutastörf stuðnings- og uppeldisfulltrúa.
Leitað er eftir fólki sem á gott með að vinna með öðrum jafnt börnum
og fullorðnum. Starfið krefst þess að viðkomandi sé þolinmóður,
staðfastur og úrræðagóður og tilbúinn til að takast á við fjölbreytt
verkefni.
Óskað er eftir að viðkomandi hefji störf sem fyrst. Umsóknum skal
skilað til skólastjóra eða aðstoðarskólastjóra sem jafnframt gefa nánari
upplýsingar um störfin í síma 481 -2644 á skrifstofutíma.
Fyrri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Skólastjóri
Tilkynning frá bæjarskrifstofunum
Frá 1. október verður öll afgreiðsla við bæjarbúa og viðskiptavini á
miðhæð Ráðhússins og er gengið inn um aðalinngang hússins,
sama tíma verður inngangi á jarðhæð lokað.
á döfinni
Október
Ég ætla að skora á Júlíu Tryggva, vinkonu mína sem næsta matgæðing.
eyjafréttir.is - Fréttir á milli Frétta
4. Skítamórall í Höllinni.
3.-4. Hljómsveitin Smack á Lundanum.
3.-4. íl Puerco og Bjartmar með tónleika í Höllinni.
5. Opera í Höllinni.
10. -11. Obbósíí á Lundanum.
11. Höllin: Perlur Ellýjar Vilhjálms í flutningi Guðrúnar Gunnarsdóttur.