Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2004, Qupperneq 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 12. júlí 2004
Rólegt eftir
þjóðhátíð
Það er ekki hægt að segja annað en
rólegt hafi verið hjá lögreglu í vikunni
sem leið enda fólk greinilega að jafna
sig eftir átök helgarinnar á undan.
Einn þjófnaður var tilkynntur
lögreglu en hann átti sér stað á
tjaldstæðinu í Herjólfsdal yfir Þjóð-
hátíðina. Farið hafði verið inn í tjald
og tveimur töskum stolið.
Tvö skemmdarverk vom tilkynnt
lögreglu í vikunni. í fyrra tilvikinu var
um að ræða rúðubrot í Bjamaborg en
gmnur leikur á hver þar var að verki.
Seinna tilvikið varð á Kirkjubæjar-
braut en þar hafði verið gert gat á
vinnuskúr sem þar er. Ekki er vitað
hver þama var að verki en þeir sem
hafa einhveijar upplýsingar sem
gagnast gætu við að upplýsa málið em
beðnir um að hafa samband við
lögreglu.
Af umferðarlagabrotum er það að
frétta að ein kæra liggur fyrir vegna
áreksturs og brottfarar en atvikið átti
sér stað á Vestmannabraut sl.
laugardag um kl. 14:00. Leikur gmnur
á hver þama var að verki og er málið í
rannsókn. Þá liggja þrjár kæmr fyrir
vegna ólöglegrar lagninga.
Eitt umferðaróhapp var dlkynnt
lögreglu en það átti sér stað á
Garðavegi þann 3. águst sl. Ekki var
um slys á fólki að ræða og h'tíð tjón á
ökutækjum.
Nú þegar pysjutíminn er að komast
á fulla ferð er rétt að ítreka það við
foreldra og forráðamenn bama að
setja endurskinsmerki á bömin þegar
þau fara til pysjuleitar. Þá er rétt að
benda ökumönnum á að fara varlega
þar sem umferð gangandi vegfarenda
eykst á þessum tíma. Einnig er rétt að
ítreka það að útivistarreglumar gilda
þrátt fýrir að pysjutíminn sé bytjaður.
S
Volare á Islandi færir sig um set:
Eyjafólk sem vill vera hér
-segir Guðmunda Hjörleifsdóttir um þá ákvörðun íjölskyldunnar að
reka verslunina, sem teygir anga sína um allt land, í Vestmannaeyjum
Verslunin Volare á íslandi opnar í dag
í nýju húsnæði að Vestmannabraut 36.
Reyndar var ekki flutt langt því gamla
verslunin var að Vestmannabraut 38.
Miklar framkvæmdir hafa verið
undanfarið í nýja húsnæðinu sem áður
hýsti starfsemi Hússins, menningarhús
fyrir ungt fólk.
Guðmunda Hjörleifsdóttir hefur
rekið Volare síðan 1997 og sagði hún
vöxt fyrirtækisins hafa verið góðan.
„Það var svo komið að gamla hús-
næðið var einfaldlega orðið of lítið
fyrir okkur. Við emm að taka inn nýja
förðunarlínu frá Volare sem ber heitið
Unique. Þetta er nýjasta afurð Dr.
Melumad sem framleiðir allar vör-
umar og mikið verður lagt upp úr
förðunarlínunni."
Guðmunda upplýstí að til að mynda
hafi svæðis- og hópstjórar Volare á
lslandi farið til Parísar fyrir skömmu
til að kynna sér nýju vömmar. Sölu-
menn Volare em um 100 víðs vegar
um landið. Frá stofnun fyrirtækisins
hefur sala um allan heim farið fram í
gegnum heimakynningar. Það er
ekkert öðmvísi hér en viðbótin er
Volare verslunin sem er sú eina í
heiminum.
„Við bjóðum upp á heimakynn-
ingar á vömnum og það em góðar
gjafir í boði fýrir gestgjafa. Eins er 45
daga skilafrestur á öllum vömm ef
fólk hefúr ofnæmi fyrir þeim.“
Hingað til hafa sölumenn nánast
allir verið kvenkyns og fáir karlmenn
hafa mætt á kynningar. Guðmunda
sagði þetta þó vera að breytast. „Það
hefur færst í aukana að karlmenn leiti
eftir góðum kremum og er það skref í
rétta átt. Þeir þurfa ekki síður á þeim
að halda en við,“ sagði hún og vildi
sérstaklega ráðleggja strákum sem
vinna á vélaverkstæðum og við
smíðar að fá sér krem. „Þá mæli ég
með kreminu okkar í stóm dósinni."
Guðmunda sagði fyrirtækið sann-
kallað ljölskylduíýrirtæki. „Við hjónin
störfum bæði við þetta sem og báðar
dætumar en þær vinna hjá Volare í
Svíþjóð. Önnur tengdadóttirin vinnur
hjá Volare í Eyjum og hin ásamt
sonunum er til aðstoðar. Svo er Jóný
systir að vinna hjá mér og Þorkatla
Ólafsdóttir er að byija en ég tala nú oft
um hana sem fósturdóttur mína, enda
kom hún tíl Eyja 13 ára gömul til að
passa hjá okkur hjónunum."
Af hverju í Eyjum?
Hún sagði að þau hafi eignast marga
góða vini um allt land við það að
starfrækja fyrirtækið en auk þess hafa
sölumenn nokkmm sinnum farið í
ferðir erlendis. Aðspurð hvers vegna
hún sé með íýrirtækið staðsett í Eyjum
segir hún að hér hafi hún nánast alltaf
búið og hér sé gott að vera. „Það getur
samt verið erfitt að halda úti verslun
héma. Fólk sækir í ríkari mæli til
Reykjavíkur. Við emm aftur á móti
Eyjafólk og viljum vera hér,“ sagði
Guðmunda. Þó Volare vömmar séu
lýrirferðarmestar í versluninni em það
síður en svo einu vörutegundimar.
„Við erum með mikið af fallegri
gjafavöm á mjög góðu verði. Einnig
er hún Jóný systír með sína fram-
leiðslu hér en leirvörumar hjá henni
hafa vakið mikla athygli," sagði hún
og skemmst er að minnast þess að
markahrókurinn Thierre Henry fékk
leirskál frá henni sem verðlaun frá
Arsenal klúbbnum á Islandi á síðasta
ári.
„Eg mun opna formlega á fimmtu-
daginn kl. 14.00 og vil bjóða alla
velkomna í nýju verslunina," sagði
Guðmunda um leið og hún rauk aftur
af stað að leggja lokahönd á versl-
unina.
MARGRÉT Rós Andrésdóttir, Guðmunda Hjörleifsdóttir og Jónína Björk Hjörleifsdóttir vinna hjá Volare ásamt
Þorkötlu Olafsdóttur sem vantar á myndina.
ttjjmu m wOTrnwxj.'tyiwKw.Bjgjjma;
Draumalið Eyjafrétta
Bygglr é Aiaxi vclstjita
----------------- 1
N«í»ng | Lykiloií | Fara inn I
■ Glcyrnt lykilurð Nýskrónino
íða I Reglur ng stig I Vinningar I Annað I
| Lagfsrlngar á hópum
1 Athugið að það eru f gangi
| lagfænngar á hópum f
j draumaliðsleiknum og mun það
] verða komið f lag strax f
j fyrramáliðll
[Leta meira..]
| Emkl boltlnn á SkjáElnum
I Útsondingorftcur fri «nsku
j úrvslsdsildinni I knsttspymu sr msAsl
j sftirtdttssts sg dýrssts tidnvsrpssfni I
iKlÁRflMH mun sýns um 230 Islkl fri
tnsku úrvslsdsildinni í vstur. Alllr
Isiklrnlr vtrðs í opinnl dsgskri. Dsnnig
munu 90% Héðsrlnnsrfi frisn tdgtng ti
btssu vlnsais sjdnvsrpstfnl. Til t» þstts
sd klslft hsfur SKlÁR/’/A'nr fsngia Qdgur
fyrlrtaki til lids vid tig sn þsu vsrds
Vlnsamloga athugið að slðan or onn
vinnslu II
Unnið or að lagfosrlngum á hópurri á
leiknumll
ÍTTIIIJI hll I —
LID UMFR.
Aríenal 0
Aston Vills 0
Birmmgham 0
Bljckb'jm 0
Bolton 0
Chsrlton 0
Chelsea 0
C Palace 0
Everton 0
Fulham 0
Liverpool 0
Man Citv 0
Man Utd 0
M'brough 0
Newcastle 0
Norwicfi 0
Portsmouth 0
Southampton 0 .
Tottenham 0
West Brom 0
Psssi fyiirtaki tru: Actsvls. Fijilsl
^irfsstlngsrbsnkinn. Icslsndslrog Viss.
[Lesa meira..]
Þessl vefur rnun verða tilhúln á
fústiidaginnl
Ef það eru spiirnlngnr sendið þá tdlvupóst
á tolvunCSitolvun.is
Draumalið Eyjafrétta af stað:
Móttökurnar ótrúlegar
-segir hönnuður vefsins
Nú eru Fréttir og eyjafrettír.is að
hleypa af stokkunum einu af sínum
stærstu verkefnum sem er Draumalið
eyjafretta.is og Tölvunar. Eins og
nafnið bendir tíl er þama átt við léttan
leik í knattspymu og fer hann fram á
eyjaffettir.is.
Ekki er ráðist á garðinn þar sem
hann er lægstur því nú gefst áhuga-
fólki um ensku úrvalsdeildina
tækifæri á að koma sér upp sínu
draumaliði. Leikurinn fer af stað um
helgina um leið og fyrsta umferðin í
ensku úrvalsdeildinni. Slóðin er
eyjafrettir.is/draumalid og þrátt fýrir
að enn sé ekki farið að kynna leikinn
nema á spjallrásum em viðtökumar
mjög góðar. Tölvun kemur að þessu
verkefni með Fréttum.
Hönnuður vefsins, Guðmundur S.
Jónsson, segir að þama sé um mjög
spennandi leik að ræða og viðbrögðin
séu alveg ótrúleg. „Vefurinn, sem við
köllum Draumalið Eyjafrétta, byggir á
Aicon-vefstjóranum, þeim sama og
eyjafréttir.is byggir á,“ sagði Guð-
mundur.
„Okkur hjá Tölvun finnst mjög
gaman að koma að þessu verkefni,
bæði vegna þess að Draumaliðið er
faglega mjög ögrandi verkefni og svo
emm við líka allir miklir áhugamenn
um enska knattspymu. Eg var aldrei í
vafa um að Draumaliðið myndi hitta í
mark en viðtökumar em hreint
ótrúlegar. Eg sagði frá þessu á spjall-
síðum nokkurra enskra liða og við-
brögðin em mildu meiri en ég gerði
mér nokkum grein fýrir. Strax á fýrstu
klukkutímunum vom komin hátt í 500
lið og það athyglisverða var að ekkert
þeirra kom frá Vestmannaeyjum,"
sagði Guðmundur.
Nú er unnið að því að kynna leikinn
og verið að leita eftir samstarfsaðilum.
Stefnt er að því að veita myndarleg
verðlaun fyrir þá sem ná bestum
árangri. Þegar liggur fyrir að
Draumalið Eyjafrétta verður tekið
fyrir í spjallþáttum fyrir leiki á Skjá
einum.
Pysjur eru heldur fyrr á ferðinni en venjulega og Pálmi Freyr Ókarsson,
aðstoðarvitavörður, segir þær myndarlegar og gerðarlegar. Þeir feðgar
Pálmi Freyr og Óskar Sigurson í Stórhöfða hafa um árabil fylgst með og
merkt pysjur. Þeir hafa veitt því eftirtekt undanfarin ár, að ár sem er á
sléttri tölu hafa komið betur út en á stakri. Pysjur komu seint í fyrra. 2003
en 2002 var gott ár með tilliti til ástands pysja. Sömuleiðis virðist þetta ár
ætla að koma vel ÚL
Eignarhaldsfélag
Brunabótafélagsins:
Bærinn fékk
12 milljónir
Fyrir bæjarráði á mánudaginn lá bréf
frá eignarhaldsfélagi Bmnabótafélagi
íslands þar sem tilkynnt var um
ágóðahluta Vestmannaeyja fyrir árið
2003.
í ljósi góðrar afkomu félagsins á
síðasta ári og það sem af er þessu
ákvað stjómin að hækka ágóðahlutinn
um helming. Hlutdeild Vestmanna-
eyja í Bmnabótafélaginu er 4,013%
og er hlutur bæjarins því 12.039.000
af þeim 300 milljónum sem ákveðið
var að greiða út að þessu sinni.
Arni Johnsen og
Alexander Jarl í
Kerinu
Tónleikar verða í Kerinu í Grímsnesi
klukkan 14.00 á laugardaginn þar sem
koma fram margir af okkar bestu
söngvumm. Skipuleggjandi er Ami
Johnsen.
Fram koma söngvaramir Sigrún
Hjálmtýsdóttir sópran, Jóhann Frið-
geir Valdimarsson tenór, Davíð
Ólafsson bassi og Ólafur Kjartan
Sigurðarson barítón. „Svo mun
hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar
koma fram með söngvumnum og
leikurunum Helga Bjömssyni og
Jóhanni Sigurðarsyni. Loks mun tíu
ára Eyjapeyi, Alexander Jarl Þor-
steinsson, syngja O sole mio,“ segir
Ami í samtali við Morgunblaðið um
tónleikana.
Tónleikamir em á vegum félaga
hestamanna á Suðurlandi.
Tónleikar vom í Kerinu, fyrir 17
ámm. „Það er alveg einstakur hljóm-
burður í Kerinu Það verða bundnir
saman bátar útí á vatninu og þar stíga
listamennimir á stokk."