Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2004, Blaðsíða 9

Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2004, Blaðsíða 9
Frcttir / Fimmtudagur 12. ágúst 2004 9 GUNNAR getur verið fastur fyrir í leik en þrátt fyrir það hefur hann ekki fengið spjaid í þrjú ár. Ekki fengið spjald í þrjú ár Eins og Gunnar segir þá gekk fyrsta árið ágætlega hjá honum en ekkert mikið meira en það. Honum fannst breytingin úr öðrum flokki og upp í meistaraflokk mikil en Gunnar var í raun enn í öðrum flokki þegar hann var orðinn fastamaður í meistara- flokki. „Já, þetta var gríðarlega mikið stökk að fara upp í meistaraflokk í efstu deild. Við fengum auðvitað smá undirbúning í deildarbikamum en á sumrin er auðvitað allt annar hraði. Svo er aginn miklu meiri í leik liðsins. I öðmm flokki vom menn jafnvel að leika sér að því að sparka andstæð- inginn niður en það er ekkert svoleiðis í meistaraflokki. Þó ég telji mig ekki hafa verið einn af þeim þá náði ég því samt að komast í leikbann fyrsta árið, fékk fjögur gul spjöld en hef ekki fengið spjald síðan,“ segir Gunnar og hlær. Leggur þú mikið upp úr því að fá ekki spjald? „Nei, ekkert sérstaklega. Ég reyni bara að leika heiðarlega og einbeita mér að mínum leik. Svo á það auð- vitað ekki að gerast að sóknarmenn fái gult spjald, hvað þá rautt,“ segir Gunnar og glottir. Fær að heyra það þegar illa gengur Þeir sem leika og hafa leikið knatt- spymu með ÍBV vita að bæjarbúar og fleiri fylgjast vel með hðinu. Efþaðer hægt að taia um að vera frægur í Vest- mannaeyjum þá em knattspymumenn flestir hveijir frægir og oft kemur það fyrir að ókunnugir vinda sér upp að þeim til að gefa þeim góð ráð. Gunnar Heiðar segir það bara vera vinalegt, þetta sé hluti af því að spila fótbolta. „Það er oft kallað inn á völlinn á leikjum og sumt af því er ekki mjög fallegt. Annars hef ég lært að útiloka það þannig að það tmflar mig ekki lengur. Ég hef líka oft fengið að heyra það úti í bæ þegar illa gengur en þetta er ekki þannig að fólk sé að skamma mann. Frekar að fólk sé að gefa manni góð ráð, misgóð reyndar en þetta er bara hluti af þessu. Maður fer t.d. ekki út á lífið án þess að vera tilbúinn að ræða fótbolta. Annars er þetta ekki svo slæmt. Á Þjóð- hátíðinni í ár fékk ég t.d. bara jákvæð viðbrögð frá fólki, allir vom ánægðir og auðvitað styrkir það sjálfstraustið hjá mér að heyra þetta.“ Fáránlegt að spá ÍBV falli Gengi IBV í sumar hefur verið mjög gott það sem af er en Lands- bankadeildin er jafnari sem aldrei fyrr og stutt niður í neðri hluta deildarinnar. Reyndar má segja að það þyrfti slys til þess að ÍBV falli niður í 1. deild en fyrir tímabilið vom margir sem spáðu liðinu einmitt falli. Gunnar segir að þeir spádómar hafi kannski ekki komið á óvart en hann hafi ekki haft trú á því að IBV myndi falla. „Mér fannst fáránlegt að spá liðinu falli. Við emm með mun betri mannskap í ár en í fyrra og ég hafði trú á að við myndum verða í efri hluta deildarinnar. Ég átti kannski ekki von á því að við myndum verða í baráttunni um íslandsmeistaratitilinn en við ætluðum bara að taka einn leik fyrir í einu. Það er líka mikil sam- keppni í hópnum um sæti í liðinu og Maggi (Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV) er alveg ófeiminn við að taka menn úr liðinu ef þeir standa sig ekki. Það gerir auðvitað bara liðið betra ef menn þurfa alltaf að vera á tánum.“ En þú segir að þið takið bara einn leik fyrir í einu. Þið hljótið að velta stöðunni í deildinni fyrir ykkur. „Já, auðvitað getur maður ekki annað þegar maður kíkir á Texta- varpið. Við emm komnir í þessa stöðu og ég segi að fyrst við emm komnir þama þá eigum við bara að stefna á toppinn." Þið fáið tækifæri til þess í næsta leik, gegn FH á sunnudaginn. Hvemig líst þér á þann leik? „FH-ingar em að mínu mati með eitt besta liðið í deildinni og þeir em að spila besta boltann. Við lentum í því að spila einum færri gegn þeim í Hafnarfirðinum og samt var leikurinn jafn. En þeim hefur gengið vel að undanfömu og sjálfstraustið er í góðu lagi hjá þcim. Það á líka við um okkur, ÍBV hefur gengið vel að undanfömu og það er mikið sjálfs- traust. Við teljum að við getum unnið hvaða lið sem er og af hveiju ekki FH á sunnudaginn? Efþaðkemurfulltaf fólki, stemmningin verður góð þá á ég ekki von á öðm en að við náum góðum leik.“ Léleg aðsókn hefur áhrif Þú segir fullt af fólki, það hefur ekki verið góð aðsókn á Hásteinsvöllinn í sumar. Tmflar það ykkur leik- mennina? , Já, auðvitað. Það er hundleiðinlegt að hlaupa niður brekkuna og geta talið þá sem em í stúkunni, þannig að þetta hefur auðvitað áhrif. En svo fáum við líka góðan stuðning, t.d. á móti KR í síðasta leik. Sá stuðningur var ómetanlegur enda voram við leik- mennimir mjög þreyttir eftir erfiðan bikarleik og ég lýg engu þegar ég segi að Eyjamenn á KR-vellinum hafi náð í þetta stig, bæði leikmenn og áhorfendur. Fyrir þennan stuðning emm við mjög þakklátir. Þess vegna segi ég að stuðningur á sunnudaginn getur ráðið úrslitum í leiknum. Nú vonum við bara að Eyjamenn standi sig því okkur finnst við vera að standa okkur." Gunnar Heiðar stendur lika í annarri baráttu, sem hann segist reyndar leggja lítið upp úr. Markakóngs- titillinn er eftirsóknarverður titill en Gunnar hefur síðustu tvö ár verið að fikra sig upp listann yfir marka- skorara, endaði í þriðja sæti árið 2002 og í öðm sæti í fyrra. En er stefnan sett á gullskóinn í ár? „Ég er nú ekkert sérstaklega að velta þessu fyrir mér. Ég sagði reyndar við Ása í Adidas umboðinu að ég ætlaði að ná í gullskóinn í ár og ég hef alltaf stefnt að því að vinna gullskóinn. Ég hugsa samt alltaf fyrst og fremst um liðið, ef annar er í betra færi en ég þá gef ég boltann frekar en að reyna sjálfur. Svo stend ég ekkert einn að þessum mörkum, ég er í frábæm liði sem skapar tækifærin fyrir mig.“ Þú hefur aldrei skorað fleiri en ellefu mörk, bíður þú ekki spenntur eftir næsta marki? „Nei ég er ekkert að velt mér upp úr þessu. Ef tólfta markið kemur í síðasta leik, sigurmark gegn IA þá verð ég sáttur." íslenskl draumurinn Frammistaða Gunnars hefur vakið verðskuldaða athygh. Á dögunum var hann valinn besti leikmaður sjöundu til tólftu umferðar hjá KSÍ og sömu- leiðis hjá DV. Stærsta viðurkenningin kom hins vegar í vikunni þegar hann var valinn í íslenska A-landsliðið sem mætir Itölum í næstu viku. Gunnar segir að hann hafi frétt þetta af hálfgerðri tilviljun. „Já. Við Ester kíktum á netið á þriðjudaginn og þá sá ég á einni síðunni að ég hafi verið valinn í íslenska A-landsliðið og við Ester htum bara á hvort annað, vissum varla hvað við áttum að gera,“ segir Gunnar og heldur áfram. „Þetta hefur auðvitað verið draumurinn frá því að maður var peyi, að spila með íslenska landsliðinu en það var samt svolítið fyndið að sjá nafnið mitt með öllum þessum stóm nöftium. Ég keyri lyftara í Kinn og er með mínar tekjur en það tekur suma þama einn dag að vinna sér inn það sem ég hef á mánuði. En ég er alveg rosalega sáttur við þetta, ég hef upplifað það að spila fyrir íslands hönd í yngri landsliðum og það er eitt af því besta sem maður gerir.“ Islenski hópurinn samanstendur af 22 leikmönnum en þeim verður fækk- að niður í 18 á næstunni. Gunnar segist auðvitað vonast til þess að komast í lokahópinn enda sé hann mikill aðdáandi ítalska landsliðsins. „Ég hef lengi fylgst með þeim. Við Jón Helgi Gíslason höfum verið miklir aðdáendur og það væri ekki leiðinlegt að fá að klobba Nesta á Laugar- dalsvellinum. Þá held ég að ég myndi bara hætta í fótbolta með bros á vör,“ segir Gunnar og hlær. Stefni á atvinnumennskuna Hvað með framtíðina. Er stefnan sett á atvinnumennskuna? ,Já, það hefur alltaf verið draum- urinn og mig langar að reyna fyrir mér erlendis." Er eitthvað að gerast í þeim málum? „Ef ég á að segja eins og er þá veit ég það ekki. Þetta hefur nefnilega verið þannig síðustu tvö ár að ég hef verið að stressa mig á þessu fyrir hvem leik, reynt að standa mig ef einhver skyldi vera að fylgjast með sem opnaði mér leið til að komast út. í ár tókum við pabbi hins vegar þá ákvörðun að fá einn umboðsmann sem myndi alfarið sjá um þetta þannig að ég gæti bara einbeitt mér að því að spila fótbolta með IBV. Við hringjum auðvitað í hann og fáum fréttir en höfum ekki gert það í nokkum tíma þannig að ég veit eiginlega ekkert hvað er að gerast. Enda hef ég um nóg annað að hugsa núna með ÍBV.“ KR-ingar reyndu að fá þig í sumar. Nú ertu samningslaus hjá IBV eftir sumarið, gætirðu hugsað þér að skipta yfir j KR næsta sumar? „Ég veit eiginlega ekki hverju ég á að svara. Eins og staðan er í dag þá gæti ég ekki hugsað mér að spila með KR enda lítill kærleikur milli ÍB V og KR. En maður á aldrei að útiloka nokkum hlut. Þetta kemur ekki til með að snúast um peninga heldur metnað hjá liðum og leikmanna- hópum. Knattspymuráðið sem nú er við völd tók ákvörðun um að notast við Eyjamenn sem mest og við höfum staðið undir því. Þeir hafa líka staðið sig vel í allri umgjörð um liðið og eiga heiður skilið fyrir sín störf." En hvar sérðu þig eftir tíu ár? „Liggjandi einhvers staðar á sólar- strönd með bumbuna út í loftið eftir vel heppnaðan feril í atvinnu- mennskunni," segir Gunnar og hlær. „Ne, ég vona bara að ég verði hamingjusamur einhversstaðar með fjölskyldunni." julius @ eyjafrettir. is Hvað segja þeir um knattspyrnumanninn Gunnar Heiðar? Logi Ólafsson, sem sér um þjálfun íslenska karlalandsliðsins ásamt Eyjamanninum Ásgeiri Sigurvins- syni segir að Gunnar Heiðar hafi allt það sem góður markaskorari þarf til að bera. „Gunnar er mjög efnilegur og spennandi kostur í landsliðið. Hann er marksækinn, áræðinn upp við markið og virkar mjög tekn- ískur og virðist hafa það sem þarf til að standa sig sem markaskorari. Við Ásgeir höfum auðvitað fylgst með honum undanfarin misseri, kannski ekki séð eins mikið af honum úti í Eyjum og maður vildi en við höfum séð upptökur af leikjum þar og svo nokkra leiki hér á fastalandinu. Auk þess fylgdist ég vel með honum með U-21 árs landsliðinu og var mjög hrifinn af honum, sérstaklega í leiknum gegn Þjóðverjum úti þar sem hann stóð sig mjög vel. Við teljum hann vera tilbúinn í verkefhi með landsliðinu, viðvöldum hann í hópinn þar sem hann hefur staðið sig vel í sumar. Ég er á þeirri skoðun að hann geti vel náð langt ef hann heldur rétt á spöðunum en hann þarf að fá einhvem reynslumikinn til að leiðbeina sér ef hann stefnir á atvinnumennsku." Bjarni Jóhannsson, þjálfari Breiðabliks og fyrrverandi þjálfari IB V, gaf Gunnari fyrsta tækifærið með meistaraflokki. Það var árið 1999 á Ólafsfjarðarvelli að Gunnar kom inn á gegn Leiftri en út af fór fyrsti þjálfari Gunnars, Ingi Sigurðsson. Bjami var með það á hreinu að Gunnar ætti eftir að ná langt. „Ég er á því að Gunnar hafi lengi haft hæfileika til þess að ná langt í knattspymu, það sýndi hann strax í yngri flokkunum. Ég er líka mjög ánægður með að hann skuli ekki hafa fallið í þá gildm að hlaupa strax í eitthvað annað lið. Hjá ÍBV hefur hann fengið að þroskast mikið sem leikmaður og í dag er hann orðinn mjög reynslumikill. Við höfum horft á nokkra af okkar efnilegustu knatt- spymumönnum verða að engu hjá erlendum stórliðum en ég tel að í dag sé Gunnar tilbúinn í stærri hluti. Val hans í 22ja manna landsliðshópinn kom ekkert á óvart, hann á þetta sæti fyllilega skilið og ég tel það bara vera tímaspursmál hvenær hann fari í atvinnumennskuna. Hann er enn í stöðugri framfor og virðist bara verða betri með hveijum leik.“ Gunnar Heiðar var valinn leikmaður 7. til 12. umferðar hjá DV. Óskar Hrafn Þorvaldsson, blaðamaður hjá DV sagði í samtali við Fréttir að það hefði einfaldlega ekki verið hægt að ganga framhjá kappanum í valinu. „Gunnar skoraði fimm mörk í tveimur leikjum og lagði upp nokkur þannig að valið var í raun auðvelt. Hann hefur bætt sig mikið í sumar sem leikmaður og að okkar mati er hann ein af aðalástæðum fyrir góðu gengi ÍBV. Val okkar snerist ekkert endilega um 7. til 12. umferðimar heldur vomm við einfald- lega að velja þá leikmenn sem okkur fannst standa upp úr þegar komið var fram í tólftu umferð. Mér persónulega finnst Gunnar hafa bætt sig mikið frá því í fyrra, hann hefur styrkt sig, hefur meiri kraft og sjálfstraustið er í botni. Hann hefur líka bætt leikskilning sinn og staðsetningar hans á vellinum em orðnar mjög góðar. Það er í raun mjög skrítið að hann hafi bætt leikskilninginn svona mikið. Hann æfir við mjög slæmar aðstæður yfir vetrar- tímann, með ungum og óreyndum knattspymumönnum en þetta hefur honum samt tekist og hann er vel að titlinum kominn."

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.