Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2004, Side 8

Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2004, Side 8
8/ Fréttir / Fimmtudagur 12. júlí 2004 Frábært lið skapar tækifærin -segir markamaskínan Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem nú hefur verið valinn í 22 manna æfingahóp landsliðsins sem mætir ítölum - Hann stendur líka í ströngu með ÍBV sem nú er í toppbaráttunni og sjálfur er hann langmarkahæstur í deildinni GUNNAR Heiðar: Það var gríðarlega mikið stökk að fara upp í meistaraflokk í efstu deild. Við fengum auðvitað smá undirbúning í deildarbikarnum en á sumrin er auðvitað allt annar hraði. Svo er aginn miklu meiri í leik liðsins. Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sóknarmaður IBV, hefur heldur betur staðið undir væntingum í sumar. Gott gengi hans hefur haldist í hendur við góðan órangur IBV enda er knattspyrnan liðsíþrótt þar sem hæfileikar einstaklinga njóta sín best þegar vel gengur. IBV hefur skorað flest mörk allra liða í Landsbankadeildinni, 22 talsins og hefur Gunnar skor- að helming þeirra eða ellefu. Hann er auk þess lang- markahæstur í deildinni og stefnir hraðbyri ó gullskóinn sem markahæsti leikmað- urinn hlýtur. Nýjasta afrek Gunnars er svo að vera valinn í 22 manna æf- ingahóp A-landsliðsins sem mætir Itölum ó Laugardals- vellinum í næstu viku. Gunnar ólst upp við íþróttir, enda kemur hann af íþróttasinnuðu heimili og eins og svo mörg börn og unglingar, þó prófaði Gunnar handbolta, fótbolta og frjólsar íþróttir. Ætlaði ekki að spila fyrsta leikinn „Ég held ég hafi verið sex ára þegar ég var dreginn á mína fyrstu æfingu. Það var Grettir Jóhannesson sem gerði það og ég man bara að ég var langminnstur á æfingunni. Það var reyndar alltaf þannig að ég var alltaf titturinn í hópnum alveg upp í þriðja flokk,“ segir Gunnar. Og Gunnari er ferskt í minni þegar kom að fyrsta leiknum. „Eg man það að við áttum að fara spila en þá lenti ég í svaka rifrildi, fór að gráta og allt það. Ég var ekki að rífast við þjálfarann __ eða samherjana heldur mömmu. Ég var líklega svo hræddur að ég ætlaði ekki að þora að keppa en mamma var að ýta mér áfram,“ segir Gunnar og hlær. „Þetta situr mjög fast í minningunni.11 Eins og áður segir var Gunnar í handbolta, fótbolta og frjálsum og hann segist búa að þeirri reynslu að hafa prófað þessar íþróttir. Reyndar finnst honum leiðinlegt að horfa upp á unga krakka í dag, sem jafnvel æfa ekkert og eru bara í tölvunni. „Ég valdi fótbolta fimmtán ára gamall og held að það hafi verið sterkur leikur fyrir mig. Fyrir þann aldur held ég að krakkar eigi að vera í sem flestu, prófa sem flestar íþróttir því þau hafa bara gott af því. Ég man einmitt vel eftir því að ef maður var ekki að æfa, þá var farið út í Hamarsskóla að leika sér í fótbolta. Það var verið að leika sér í öllum görðum, búin til ný lið og mikið í gangi hjá okkur krökkunum.“ Cantona goðið Af hverju varð fótboltinn fyrir valinu? „Ég veit það eiginlega ekki. Mér líkaði vel í fótbolta og eins og ég sagði þá var maður alltaf að leika sér í fótbolta á milli æfinga. Pabbi fylgdist vel með enska boltanum, spilaði líka sjálfur fótbolta á sínum yngri árum og auðvitað smitaðist maður af áhug- anum. Þannig byrjaði ég auðvitað að halda með United og Cantona var mitt goð á mínum yngri árum. Svo hélt ég líka mikið upp á Maradona og Pele.“ Þú hefur varla séð mikið til Pele? „Nei, og ekki Maradona heldur en mamma og pabbi keyptu spólu þar sem sýndar voru myndir af öllum gömlu hetjunum. Ég skoðaði þá spólu fram og til baka. Þannig að fótboltinn var Kklega alltaf í efsta sæti hjá mér þó svo að mér hafi líkað mjög vel bæði í handbolta og í frjálsum." Spilað á móti framtíð- arstjörnum Englands Gunnar hefur ávallt verið mjög markheppinn en í upphafi lék hann á miðjunni. En fljótlega færði hann sig framar á völlinn enda fannst honum alltaf skemmtilegast að fylgjast með því hverjir skoruðu mörkin í meistara- flokki og vildi verðaeinnafþeim. Eitt af afrekum Gunnars var í þriðja flokki þegar hann skoraði yfir fimmtíu mörk í íjórtán leikjum. „Okkur gekk mjög vel þama og Einar Friðþjófsson sendi mig og Olgeir Sigurgeirsson út til Tottenham. Það var auðvitað alveg meiriháttar fyrir okkur að komast þama út og við æfðum þama með U- 17 ára liðinu. Okkur gekk líka vel, ég var búinn að setja nokkur mörk á æfingunni og þá kallaði þjálfarinn á vamarmann úr eldra liðinu til að prófa mig gegn sterkari manni. Sá var þeldökkur, stór og sterkur og miklu erfiðari. Ég náði samt að plata hann nokkram sinnum og þjálfarinn var mjög ánægður með mig. Seinna komst ég að því að þessi vamarmaður var enginn annar en Ledley King, framtíðarmiðheiji enska landsliðsins," segir Gunnar og glottir. „Svo vora fleiri þama. Ég kynntist Peter Crouch ágætlega enda er hann léttur náungi og mikill húmoristi. Ég vissi reyndar ekkert hvar hann væri í dag og þess vegna var mjög fyndið að sjá hann síðasta vetur með Aston Villa en hann er núna kominn í South- ampton." Gunnar fékk sitt uppeldi hjá Þór en spilaði líka með Tý þar sem Þórarar náðu ekki í lið í fjórða flokki. Hann segist vera Þórari inn við beinið en umfram allt IBV-ari. Gunnar segir að þegar hann var í yngri flokkunum þurftu Eyjamenn ekki að hafa neina minnimáttarkennd gagnvart öðram krökkum. „Ég man líka eftir því í frjálsum þá vorum við að gera ágæta hluti og þurftum ekkert að skammast okkar íyrirþað. Viðvorumauðvitaðlíkaað gera fína hluti í fótboltanum, sérstaklega eftir að Týr og Þór voru sameinuð en mér finnst þetta hafa dottið aðeins niður núna, annar flokkur kominn niður í C-deild og þriðji flokkur í B-deild. ÍBV er allt of gott félag til þess að vera þama í neðri deildunum.“ Þú talaðir áðan um Cantona, Pele og Maradona sem hafa verið goðin á þínum yngri áram. En vora einhverjir fleiri sem höfðu áhrif á þig sem knattspymumann? „Já, það var þjálfari hjá okkur einu sinni sem heitir Kristján Kristjánsson og spilaði einu sinni með ÍBV. Mér fannst hann vera toppþjálfari en þeir vora fleiri, t.d. bræðumir Ingi og Maggi Sig. sem báðir era frábærir þjálfarar. Það var svo óneitanlega mjög sérstakt að fara að spila með Inga síðar. Það var algjör snilld.“ Númer eitt að komast í ÍBV Gunnar segir að fljótlega upp úr fermingu hafi hann farið að sjá ffam á að jafnvel geta spilað með meist- araflokki. „Það var númer eitt að komast í ÍBV. Ég fór snemma að æfa með meistaraflokki, fimmtán eða sextán ára og ég held að það hafi gert mér mjög gott. Þegar þú æfir með stærri, sterkari og betri leikmönnum þá hlýtur þú að taka framföram. Svo þegar Njáll Eiðsson kom fóra hlutimir að gerast, ég komst í hópinn og svo í byijunarliðið,“ segir Gunnar og bætir því við að hann hafi ekkert verið neitt sérlega markheppinn fyrsta árið. Þá var ég settur á kantinn þegar við spiluðum 4-5-1 og þegar við voram með boltann færðum við okkur upp í 4-3-3. Ég get vel spilað á kantinum en mér líkar best uppi á toppnum, fá stungumar inn fyrir vömina og fá tækifæri upp við markið. Ég var bara svo heppinn að spila með Tómasi Inga (Tómassyni) því hann var duglegur að senda reglulega á mann svo ég fengi í það minnsta tækifæri til að skora.“ Manstu eftir fyrsta leiknum? „Nei, ekkert sérstaklega. Ég man samt eftir því eitt sinn þegar við spiluðum á móti Grindavík héma á heima og þurftum að vinna. Þetta var síðasti leikurinn fyrir bikarúrslitaleik og aðalmennimir vora að spara sig fyrir stóra leikinn. Við Atli Jóh. fengum tækifæri en því miður töpuðum við, 1-2. Þama fékk maður að kynnast því áfalli að tapa á heimavelli, nokkuð sem IBV hafði ekki gert í einhver ár en þama kom að því. Ég held reyndar að jxtta hafi ekki verið fyrsti leikurinn hjá mér en öragglega einn af þeim fyrstu.“

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.