Fréttir - Eyjafréttir - 21.04.2005, Side 1
Áætlun Herjólfs
Brottfarartímar
Vor 1.3,-30.4. Frá Vestmannaeyjum Frá Þorlákshöfn
Þri., mið. og lau. 8.15 12.00
Mán., fim., fós og sun. 8.15/16.00 12.00/19.30
Bókanir fyrir kojur, klefa og bíla þarf aö staðfesta með
fullnaðargreiðslu fyrir kl.12.00 daginn fyrlr brottför.
Nánari upplýsingar er að finna á www.herjolfur.is
og á síðu 415 í Textavarpi RÚV, auk þess sem
upplýsingar eru veíttar í síma 481 2800.
32. árg. / 16. tbl. / Vestmannaeyjum 21. aprO 2005 / Verð kr. 200 / Sími 481-1300 / Fax 481-1293 / www.eyjafrettir.is
FÁTT minnir meira á vorkomuna en blessuð lömbin og hér eru þau Hjálmar Karl og Elísabet með tvö nýfædd.
Fiskvinnslan í vandræðum vegna skorts á vinnuafli:
Spurning um að flytja inn fólk
Fiskvinnslufyrirtæki í Vestmanna-
eyjum bæjarins hafa verið í miklum
vandræðum með að manna vinnsl-
una hjá sér á vertíðinni.
Godthaab í Nöf hefur verið að
auka við sig og hefur verið að
auglýsa eftir vönum konum í
vinnsluna. Daði Pálsson sagði að þá
vantaði tíu vanar konur í heils-
dagsvinnu. Hann sagði nokkra hafa
haft samband eftir auglýsinguna en
ekkert af vönu fólki. Hann hafi samt
ráðið tvær en ítrekar að enn vanti
fólk. „Megnið af starfsfólkinu hjá
mér vill bara vinna hálfan daginn en
okkur bráðvantar fólk sem vill
vinna meira.“
Hann segir skort á vinnuafli mikið
áhyggjuefni. „Það er ekki hægt að
reka fiskvinnslu hér ef vinnuafl
vantar og það verður eitthvað að
fara að gerast í þeim efnum,“ sagði
hann og velti fyrir sér innflutningi á
vinnuafli.
Viðar Elíasson hjá Fiskvinnslunni
Narfa ehf. segir vandamálið
árstíðabundið, erfitt sé að manna
yfir vertíðina en ekkert mál yfir
sumarið þegar skólakrakkarnir
koma á vinnumarkaðinn. „Við
hefðum vel getað bætt við okkur
fólki í vetur og þá erum við að tala
um fólk sem er tilbúið að vinna,
þessi fyrirtæki eru ekki félags-
málastofnanir,“ sagði Viðar og bætti
við aðspurður að hann hafi orðið
var við að fólk réði sig í vinnu en
væri ekki tilbúið að leggja á sig þá
vinnu sem því ber.
„Ef það á að halda uppi fisk-
vinnslufyrirtækjum í Eyjum, þá
verður að vera framboð af fólki til
vinnu.“
Magnús Freyr Valsson hjá Kinn
ehf. sagði að hann hafi ioks verið
með fullmannað hjá sér tveimur
vikum áður en vertíð kláraðist.
Hann bætti við vinnu þeirra sem
fyrir voru þannig að á tímabili var
unnið til sjö á kvöldin alla daga
vikunnar. „Þetta er árleg barátta og
hingað vantar fleira fólk sem er
tilbúið að vinna erfiða vinnu og
hefur úthald og heilsufar í það.
Skólakrakkarnir hafa komið sterkir
inn en þetta er ekkert sér vest-
manneyskt vandamál, heldur
vandamál á landsvísu."
Sextíu
manns
á atvinnu-
leysisskrá
Margo Renner hjá Vinnumiðlun
sagði að í gær hafi um sextíu
manns skráð sig á atvinnuleysis-
skrá.
„Helmingurinn af þessu fólki er
í íhlaupavinnu eða hlutastörfum
sem eru óregluleg. Til dæmis uppi
á Sjúkrahúsi, á Hraunbúðum eða í
vaktavinnu annars staðar. Sumir
sem skrá sig eru aðeins 25%
skráðir atvinnulausir. Þar erum
við að tala um fólk sem var í full-
ri vinnu en var sagt upp og fékk
aðeins hlutastarf aftur."
Hún segir þetta vera mestmegnis
verkafólk en einnig sjómenn.
„Stíganda VE var lagt fyrir sköm-
mu og komu þá nokkrir sjómenn á
skrá hjá okkur en sjómenn eru
dugiegir að finna sér afleysin-
gapláss en koma svo aftur til
okkar þess á milli."
Margo segir um það bil 25%
þeirra sem skráðir eru atvinnu-
lausir vera fólk með skerta starfs-
getu. „Þar erum við að tala um
fólk með gigt, bakveiki og fleira í
þeim dúr. Þetta er fólk sem vantar
létta vinnu og treystir sér ekki í
erfiða fiskvinnslu. Síðan eru
önnur 25% sem eru með loforð
um vinnu á næstunni, fólk sem
var á loðnuvertíð og er að bíða
eftir næsta verkefni eða fólk sem
er á leið héðan.“
Margo segist kannast við kvart-
anir um að ekki fáist fólk í
ftskvinnslu en bendir á að
Vinnumiðlun sé dugleg að senda
fólk í viðtöl í stöðvarnar. Hún
segir þó ekki einfalt fyrir konur
með börn að fara í vinnu í
fiskvinnslu. „Við getum tekið
Godthaab sem dæmi. Þau vilja
bara heilsdagsfólk sem getur byrj-
að klukkan sjö á morgnanna. Ef
þessar konur eru með börn koma
þær ekki til greina, enda eru leik-
skólamir ekki opnir hér klukkan
sjö á morgnana. Það eru líka
ákveðnar grunsemdir um að þes-
sar ástæður séu stundum notaðar
sem afsökun til að losa sig við
barnafólk.“
Að lokum sagði Margo að þau
væru mjög ánægð með þróun
atvinnuleysisskrár um þessar
mundir en atvinnulausum hefur
fækkað umtalsvert. „Við erum nú
með færra fólk á skrá heldur en
Selfoss og vill ég sérstaklega
hrósa Vestmannaeyjabæ sem
hefur verið duglegur að sækja um
átaksverkefni og eru nokkur slík
að fara af stað í sumar.“
Fegurðardrottning Hefur alla tíð
I Vestmannaeyja 1985 fí . neitað sök
Halla Einarsdóttir lítur Mál Sigurðar fyrir
yfir farinn veg Mannréttindadómstól
Miðopna Blaðsíða 16.
TM-Öryggi
fyrir fjölskylduna
www.tmhf.is
Sameinaöu allar tryggingar á
einfaldan og hagkvæman hátt.
'tw
ORYGGI
Bílaverkstæðið
Bragginn s.f.
Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð
Sími 481 3235 ,
Rettmgar og sprautun
SímÍA8lJL535-
Áætlun Landsflugs
gildirfra lö.februar frá RVK frá VEY
mán-fös 07:30 08:15
miö-sun 12:00 12:45
fös 18:45 19:30
lau 16:45 17:30
sun-fim 17:30 18:15 P*'
Kynntu þér nettilboðin á LANDSFLUG
www.flugfelag.is ) 481 3300/570 3030