Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.04.2005, Síða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 21.04.2005, Síða 2
2 Fréttir / Fimmtudagur 21. apríl 2005 Helga Björk opnar Heilsuverið: Vil ná til þeirra sem ekki stunda líkamsrækt Helga Björk Óskarsdóttir opnaði Heilsuver ehf. miðstöð heilbrigðis og næringar að lllugagötu 10 á föstu- daginn. Hún lærði hjúkrun, heil- brigðis- og næringarfræði í Danmörku og hefur auk þess lært nudd og spjaldhryggjarmeðferð og hefur kennt leikfimi um árabil. Helga segir að markmiðið með opnun miðstöðvarinnar sé að ná í þann hóp fólks sem ekki stundar líkamsrækt. „Eg vil að allir hreyfi sig því það er lífsspursmál og markmiðið er að ná til þess fólk sem ekki fer inn á hinar stöðvamar. Eg er ekki með stöð þar sem fólk getur komið og farið heldur miðast starfíð hér við persónu- lega einkaþjálfun eftir óskum hvers og eins Það verða ekki fleiri en tveir í salnum hjá mér í einu, þ.e. ég tek fólk í einkaþjálfun og hins vegar geta tveir og tveir tekið sig saman eins og hjón, vinkonur o.s.frv. Ég vil fá hingað fólk á öllum aldri, böm, unglinga og fullorðna.“ Heilsuverið er vel búið tækjum sem miða að vöðvauppbygginu og brennslu. „Ég er með fjölþjálfa sem er tæki sem fær brennsluna upp hjá fólki, þetta er eins konar gönguskíðatæki og það er sniðugt að því leyti að fólk verður ekki fyrir álagi á hnén eins og oft vill verða þegar fólk æftr á göngu- bretti. Spinning hjólið er frábært fyrir hjarta og brennslu á fitu og þriðja tækið býður upp á íjölbreyttar æftngar eins og upptog, niðurtog, fótapressu, ælingar fyrir alla stóm vöðvahópana. Ég er líka með box og rope yoga og það er mikill áhugi fyrir því. Box er alveg frábær þjálfun. Éyrir utan það að veita útrás fyrir innri reiði þá er þetta frábær þjálfun fyrir hjarta, vöðva og bein. Box hentar ekki bara körlum heldur líka konum en ég kenndi Tai- box í mörg ár í Danmörku. Rope yoga er líka mjög vinsælt og það hafa ótrúlega margir sýnt því áhuga. Ég er með eitt sett og gæti hugsanlega bætt við mig fleiri settum það fer eftir eftirspuminni." Helga leggur mikið upp úr næringu og býður upp á ráðgjöf fyrir fólk sem er að berjast við sjúkdóma, einstak- linga sem þurfa létta sig og fólk sem vill bæta sína líðan og er með sértæk vandamál. „Mataræði skiplir mjög miklu máli, þú ert það sem þú borðar. Ef fólk borðar til dæmis ekki grænmeti og ávexti þá vantar stóran hluta af næringarefnum í líkamann eins og steinefni, vítamín og ekki síst treijar. Ég er með fitumælingatæki og mæli blóðsykur og blóðþrýsting hjá fólki. Eins athuga ég úthald hjá fólki og það þarf oft ótrúlega lítið til að auka það. Einnig skiptir mataræði miklu máli fyrir fólk sem stundar keppnisíþróttir og ég hef verið með fyrirlestra um lífsstíl og mataræði." Helga er að ljúka BS námi í nær- ingarfræði og setti upp sérstakt átaksverkefni í tengslum við loka- ritgerð sem hún vinnur að. „Ég fékk góðan hóp á öllum aldri til samstarfs við mig. Þetta var allt fólk í áhættuhóp vegna sykursýki II, hárrar blóðfitu og hjartasjúkdóma. I upphafi og lok átaksins var fólk vigtað og blóðsykur og blóðþrýstingur mældur. Þessi fimm einstaklingar sem voru athugaðir sér- staklega héldu matardagbók og lýstu því hvernig þeim leið. Hópurinn fór í göngu þrisvar í viku og eftr þrjár vikur hafði úthaldið aukist til muna. Allir stóðu sig vel og öll gildi lækkuðu, Tók fyrir 31 tilkynningu vegna 47 barna Á fundi fjölskylduráðs í síðustu viku lá mánaðarlegt yfirlit til Barna- verndarstofu vegna barnaverndartil- kynninga í mars 2005. Félags- og fjölskyldusviði bárust níu tilkynningar vegna 21 bams, ein tilkynning barst vegna vanrækslu bama, ein vegna ofbeldis og sjö vegna áhættuhegðunar bama. Frá áramótum hefur félags- og fjölskyldusviði borist 31 tilkynning vegna 47 barna, ftmm vegna van- rækslu bama, fjórar vegna ofbeldis og 23 vegna áhættuhegðunar bama. Samkvæmt upplýsingum frá Heru Einarsdóttur, framkvæmdastjóra fé- lags og fjölskyldusviðs, berast til- kynningar um áhættuhegðun barna víða að, þær geta komið frá for- eldrum, lögreglu, heilsugæslu, ná- grönnum o.s.frv. Þær tilkynningar snúast um hegðun bamsins en tilkynningar vegna van- rækslu og ofbeldis gagnvart börnum snúa að fullorðnu fólki þ.e.a.s. foreldrum eða forráðamönnum barna. Af þeim níu tilkynningum sem bárast í marsmánuði voru þrjár frá for- eldram, tvær frá skóla og fræðslu- yftrvöldum, tvær frá lögreglu og tvær frá öðrum. Ef tölur frá árinu 2003 era skoðaðar bárast 88 lilkynningar vegna 67 bama. Þrjátíu tilkynningar bárust frá lög- reglu vegna áhættuhegðunar barna, tilkynningar vegna gruns um van- rækslu barna voru 19 og 13 vegna áfengis/vímuefnaneyslu foreldra. Átta tilkynningar bárast frá heilsugæslu og 18 tilkynningar frá foreldrum og eða aðstandendum. Hluti tilkynninga vora vegna ofbeldis gagnvart bömum, líkamlegt, andlegt, kynferðislegt og vegna heimilisofbeldis og sjálfsvígs- tilrauna. Snmskip buðu helstu viðskipta- vinum til veislu í HöIIinni á föstudagskvöldið. Þar mættu um 130 manns, Hippabandið spilaði og boðið var upp á sjávarrétta- hlaðborð sem Grímur kokkur töfraði f'ram. „Fyrirtækið hef'ur átt velgengni að fagna í Vestmanna- eyjum, flutningar hafa stóraukist. Nýlega endurnýjaði endurnýjaði Samskip áætlunarskipin Arnarfell og Helgafell, sem þjónusta Vestmannaeyjar, en þau eru að mörgu leyti sérsniðin að þörfum Eyjanna. Meginstoðin í starfsemi okkar í Eyjum er inn- og útflutningur, Landllutningar í daglegum áætlunarferðum, rekstur Herjólfs og stórflutningar og þjónusta við Siglu sem annast stórtlutninga fyrir okkur,“ sagði Guðfinnur rekstrarstjóri í Eyjum. Á myndinn eru Hólmar Svansson deildarstjóri afgreiðslustaða, Haukur Sigurvinsson í útflutningsdeild, Guðfinnur Pálsson rekstrarstjóri Vestmannaeyjum og Jóhann Bogason stórflutningadeild. FRÉTTIR Utgí'fandi: Eyjasýn elif. 480378-054!) - Vestmannaeyjuin. ltitstjóri: Ómar (íarðarsson. Bladanipnn: Sigiirsveinn Þórðarson, (iiiðbjiiig Siguigeii'sdóttir. íþiVittii' .liilius Ingason. Abyrgðannenii: Omarbaidarsson&(iísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjasýn Eyjaprent. Vestinannaeyjuin. Aðsetur ritstjórnnr: Slrandvegi 47. Simar: 481 l.«H)& 481 3310. Myndriti: 481-1393. NetfangAafpóstar: frettir@eyjafrettir.is. Veffang; litfp/Avww.eyjafrettir.is HELGA Björk og sambýlismaðurinn, Páll Viðar, við opnun Heilsuvers. kílóin fuku, blóðsykur lækkaði og blóðþrýstingurinn varð betri. Þátttak- endur töluðu um að þeim liði betur bæði líkamlega og andlega en best af öllu er að við ætlum að halda áfram. Við eram búin að stofna morgunhóp sem fer í göngu klukkan 06.30 en ef fólk hreyfir sig áður en það hefur borðað þá brennir það helst fitu. Við hittumst á mánudögum, miðviku- dögum og föstudögum á gatnamótum Illugagötu og Kirkjuvegar við Blátind. Annar hópur fer í göngur klukkan 18,00 þriðjudaga og fimmtudaga og á laugardögum klukkan 10.00. en sá hópur hittist fyrir utan Sjúkrahúsið," sagði Helga en það er öllum velkomið að slást í hópinn með göngufólkinu. BEKKURINN var þéttsetinn á leiknum og var framkoma áhorfenda til fyrirmyndar. HSÍ njósnar í Eyjum ✓ Myndatökumaður á vegum HSI myndaði áhorfendur á IR-leiknum Það vakti athygli blaðamanns að á leik ÍBV og ÍR í undanúrslitum íslands- móts karla í handknattleik, var ung kona með myndbandsupptökuvél í norðvesturhluta salarins og beindi hún myndavélinni aðallega upp í áhorf- endastúku. Eftirlitsdómari í leik ÍBV og Stjömunnar í kvennaboltanum stöðv- aði leik liðanna á dögunum vegna lúðrasveitar sem spilaði á pöllunum og auk þess hefur áhorfendum í undanfömum leikjum verið vísað til sætis norðan megin í salnum. Sam- kvæmt öruggum heimildum Frétta var þama á ferðinni dóttir Einars Þorvarðarsonar, framkvæmdastjóra HSÍ og því leit allt út fyrir að sambandið væri að njósna í Eyjum. Fréttir leituðu eftir svöram hjá Einari um málið. „Við eram ein- faldlega að skoða umgjörð leikja á vegum HSI. Hjá sambandinu era einungis tveir starfsmenn að mér meðtöldum og við höfum einfaldlega ekki tök á því að fara á alla leiki. En við erum að skoða umgjörð leikja vegna fækkunar áhorfenda og eftír því sem ég heyrði þá var vel mætt og góð stemmning í Eyjum. Hlynur Sig- marsson spurði okkur hvort ekki væri í lagi að vera með litla lúðrasveit á pöllunum og það var kannski fyrst og fremst þess vegna sem ég vildi fá myndir af umgjörðinni. Þetta byijaði allt fyrir nokkram áram þegar Stalla Hú var á pöllunum en þeir voru famir að spilajarðarfararstef þegar hitt liðið átti leik. Það var reyndar fyrir minn tíma sem framkvæmdastjóra HSI en þetta var bannað í framhaldinu. Ef þetta er hins vegar smekklega gert þá er ekkert að því að reyna búa til skemmtilegri umgjörð en nú er. í framhaldinu af þessari vinnu ætlum við svo að funda með formönnum deildanna og þá munum við væntanlega finna einhverjar vinnu- reglur í þessum efnum," sagði Einar að lokum. FHÉTTIH koma út alla fiinmtudaga. liladiðerselt i áskrift ogeinnig i laiisasölu á Kletti, 'IVistinuni, Toppnuin, Vöruval, Herjólfi, Fliigliafnarversliiiiiiini, Kniniiiini, Ísjakaniini, Bónnstidei), verslun 11-11, Skýlinn í Friðarliöfn og i Jolla i Hafnarfirði og afgreiðsln IIejnilfs í Þorláksliiifn. FHE'ITI 11 eni prentaðar i 3(KK)eintiikuin. FHÉiTIHeru aðilar að Saintiikiini liajar- og héraifefréttablaðiL Eftirprentnn, liljóðritun, notkun ljósniynda og airnað er óheimilt nema lieiniilila sé gctið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.