Fréttir - Eyjafréttir - 21.04.2005, Blaðsíða 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 21. apnl 2005
KAFFIHÚSAKÓRINN hef ur stækkað með hverju árinu og framundan er Færeyjaferð, tónleikar og kaffihúsamessa. Ósvaldur er lengst til hægri á myndinni.
Kaffihúsakórinn með tónleika á sumardaginn fyrsta:
Að finna sína eigin rödd
Meirihluti bæjar-
stjórnar óstarfhæfur
-segir Andrés Sigmundsson
Kaffihúsakór Landakirkju stendur
fyrir tónleikum í Höilinni á
sumardaginn fyrsta. Tónleikamir
hefjast klukkan 21.00 en húsið verður
opnað klukkutíma fyrr til þess að
gefa tónleikagestum kost á að koma
sér vel fyrir og fá sér kaffi áður en
dagskráin hefst.
Tónleikamir á fimmtudag em liður
í fjáröflun en Kaffihúsakórinn ætlar
að leggja land undir fót og fara í
tónleikaferð til Færeyja um næstu
mánaðamót.
Um þijátíu manns em í kómum en
Ósvaldur Freyr Guðjónsson,
kórstjómandi og Jarl Sigurgeirsson
segja að mikið hafi fjölgað í kómum
síðasta ár og nýlt fólk komið inn.
„Við byrjuðum sem sönghópur
fyrir um þremur ámm sem hefur
verið að dafna og stækka síðasta árið.
Við fómm í tónleikaferð til Kefla-
víkur og á Alftanes fyrir um ári síðan
og þá fjölgaði hjá okkur og það komu
mörg ný andlit inn fyrir Menningar-
nóttina í Reykjavík en þá sungum við
í Ráðhúsinu,“ segir Ósvaldur eða
Obbi eins og hann er alltaf kallaður.
„Kórinn varð til í kring um Kaffi-
húsamessur í Safnaðarheimilinu og
tengingin er því sterk við kirkjuna,"
bætir Jarl við.
„Við flytjum dægurlög, popp og
gospel þannig að efnisskráin er
fjölbreytt og ég held að það skili sér
til áheyrenda ef fólk er að syngja lög
sem það hefur gaman af.“
Þeir segja Halldór B. Halldórsson
hafa komið með hugmyndina að
Færeyjaferðinni sem lagt verði upp í
29. apríl nk. „Við vomm að hugsa
um að fara norður í land en þá kom
þessi skemmtilega hugmynd upp hjá
Halldóri og það fer íjömtíu manna
hópur til Færeyja undir dyggri hand-
leiðslu Áma Johnsen," segir Obbi.
Mæli með kórstarfi
„Dagskráin verður þannig að við
verðum með tónleika í Norræna
húsinu á föstudeginum og kaffi-
húsamessu í safnaðarheimilinu í
Götu á laugardeginum. Við komum
svo fram við messu í Þórshöfn á
sunnudeginum og höldum heim á
leið daginn eftir,“ segir Jarl.
Kaffihúsakórinn verður með
kaffihúsamessu í Safnaðarheimilinu
miðvikudaginn 27. apríl klukkan
20:30 og þeir Obbi og Jarl hvetja alla
til að mæta enda verði kórinn í
fantaformi svona rétt fyrir Færeyja-
ferðina.
„Við emm búnir að æfa stíft,“
segir Obbi en bætir því við að hjá
Kaffihúsakómum sé annað form en í
hefðbundnu kórastarfi. „Þama er
hver og einn að syngja meira með
hjartanu. Kannski er meira lagt upp
úr því að fólk hafi gaman af þessu og
að menn finni sína rödd,“ segir Jarl.
og bætir því við að það sé mjög
skemmtilegt að vera í kórastarfi. Auk
þess að syngja með Kaffihúsa-
kómum hefur hann sungið nokkmm
sinnum með Kirkjukór Landakirkju.
„Eg hef gaman af hvom tveggja en
þetta er ólíkt, annað klassík og hitt
dægurlög. Bæði þessi form em
krefjandi og ég mæli með kórastarfi
fyrir alla sem hafa áhuga á söng og
tónlist.“
Þeir félagar segja móralinn í
hópnum góðan og kórfélaga ná vel
saman. „Þetta er breiður hópur og
ólíkir einstaklingar og það kemur vel
út. Fólk er að syngja lög sem það
þekkir og það hefur mikið að segja.
Obbi heldur utan um þetta og
stjómar með styrkri hendi,“ segir
Jarl.
Þeir vildu að lokum koma á
framfæri þakklæti til allra sem hafa
styrkt kórinn til fararinnar til
Færeyja.
Á fundi skólamálaráðs í síðustu viku
var lögð fram fyrirspum frá Unu
Þóru Ingimarsdóttur, foreldri á
leikskólanum Sóla, um hver staðan
sé þar varðandi fjölda deilda, fyrir-
hugaðan byggingartíma og fleira.
I svari meirihluta ráðsins kom
fram að innan bæjarstjómar væri
samstaða um byggingu nýs leikskóla
og þann 7. mars sl. hafi undir-
búningsnefnd um byggingu nýs
leikskóla komið á fund bæjarráðs og
kynnt teikningar og kostnaðaráætlun.
Á fundinum komu fram spum-
ingar um annars vegar fermetrastærð
per bam, samanburður á bygginga-
kostnaði miðað við tvo aðra
sambærilega skóla og var bæjarstjóra
falið að afla nánari upplýsinga um
málið.
Una Þóra óskaði eftir að bóka
óánægju sína með að ekki liggi fyrir
niðurstaða með nýbyggingu leik-
skóla á Sólalóðinni.
Andrés Sigmundsson lagði einnig
fram bókun: „Mikil óánægja kom
fram á fundinum með þróun mála
varðandi fyrirhugaðan nýjan leik-
skóla og m.a. að núverandi húsnæði
ANDRÉS: Mikil óánægja með
þróun mála.
Sóla væri óviðunandi. Meirihluti
bæjarstjómar getur ekki komið sér
saman um stærð fyrirhugaðs nýs
leikskóla. Illvígar deilur innan
meirihlutans um þetta mál og
reyndar mörg önnur hefur lamandi
áhrif á starfsemi bæjarfélagsins.
Spurning er hvort meirihlutinn sé
almennt starfshæfur við þessar að-
stæður.“
Samstarfsnefnd um málefni lögreglunnar:
Aukinn kraft í forvarnir
f síðustu viku fundaði samstarfsnefnd
um málefni lögreglunnar og var farið
yfir nokkur mál er varða lögregluna í
Eyjum.
Mættir vom Karl Gauti Hjaltason
sýslumaður, Jóhannes Olafsson yfir-
lögregluþjónn, Amar Sigurmundsson
bæjarfulltrúi og Viktor St. Pálsson
sem sat fundinn fyrir hönd Lúðvíks
Bergvinssonar.
Fyrst var farið yfir lista áfengis-
veitingahúsa í bænum og kom fram að
nokkrir staðir eiga eftir að ganga frá
sínum málum.
Upplýst var á fundinum að Kristín
Eva Sveinsdóttir lögregluþjónn taki
við forvamamálum í grunnskólum og
leikskólum bæjarins. Ætlunin er að
setja aukinn kraft í forvamir lögreglu í
skólunum. Oskað var eftir samstarfí
við fræðslu- og félagsmálasvið bæjar-
ins í þeim efnum.
Rætt var um aldur gesta á skemmti-
stöðum bæjarins, unglingapartý í
heimahúsum og útivistartíma. Kom
fram að lögreglan hafi unnið mikið að
þessum málum undanfarið og ávallt
heyrast raddir um að unglingadrykkja
sé áberandi og of mikil.
Einnig var farið yfir umferðarmál
og hundamálefni en þar kom fram að
KARL Gauti sýslumaður
ný samþykkt um hundahald í Vest-
mannaeyjum væri í smíðum og
bærinn hefði ráðið umsjónarmann
dýrahalds í bænum sem ætti einnig að
sjá um lausa hunda. Ákveðið var að
halda næsta samráðsfund nokkru fyrir
þjóðhátíð.
Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður,
segir að nefndin sé nú að fara af stað
en samkvæmt lögum um lögreglu ber
sveitarfélagi og lögregluembættum að
hafa samráð sín á milli. Hann segir
þetta mjög gott fyrir báða aðila og
löngu tímabært. „Þetta getur bara
verið til góðs en þess ber þó að geta að
samvinna sveitarfélagsins og lögreglu
hefur verið mjög gott í gegnum tíðina
hér í Eyjum. Sjálfur hef ég reynslu frá
Selfossi og þar voru lítil samskipti.
Samt má alltaf gera betur og við emm
að fara lengra í þeim efnum."
Ný flugstöð rís við Bakkaflugvöll
Á fóstudaginn hélt Flugmálastjórn reisugildi á Bakkaflugvelli og tilefnið var að risin er ný flugstöð sem á að verða
tiibúin til notkunar 1. júlí í sumar. Nýja flugstöðin er 450 fermetrar og kemur í staðinn fyrir þá gömlu sem fyrir
löngu er orðin of lítil enda ekki nema 45 fermetrar. Það kom fram að hátt í 30.000 farþegar fara um Bakkaflugvöll
og fara fleiri þessa leið til Vestmannaeyja en um Reykjavíkurflugvöll.