Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.04.2005, Qupperneq 10

Fréttir - Eyjafréttir - 21.04.2005, Qupperneq 10
10 Fréttir / Fimmtudagur 21. apríl 2005 Halla Einarsdóttir var kjörin Ungfrú Vestmannaeyjar 1985 og varð númer fimm í keppninni 1 Innri fegurð og fric Halla Einarsdóttir, Ijós- myndari, hefur í nógu að snúast, en hún er starfsmaður Safnahúss Vestmannaeyja og starfar sem Ijósmyndari ó eigin stofu. Hún lærði Ijósmyndun í Bandaríkjunum og ókvað að snúa heim að nómi loknu og býr nú hér ósamt fimm óra dóttur sinni. Hún hefur mikinn óhuga ó andlegum mólefnum, hefur m.a. lært heilun og leggur sig fram um að starfa með fólki með svipuð óhugamól. Nú eru liðin tuttugu ór síðan Halla var kjörin Ungfrú Vestmannaeyjar við mikinn fögnuð viðstaddra. Það er ekki hægt að spjalla við Höllu ón þess að rifja þann kafla í lífi hennar upp. Hélt hún væri að ruglast Keppnin fór fram á Skansinum sem þá var helsti skemmtistaður Eyjanna og öll umgjörð um hana hin gíæsi- legasta og skemmtileg. „Þetta var 1985 en árið eftir var byrjað með Sumarstúlkukeppnina og ekki keppt um Ungfrú Vestmanna- eyjar aftur fyrr en árið 1992. Ég hélt titlinum því í nokkur ár,“ segir Halla stríðnislega. „Keppnin Ungfrú Vestmannaeyjar var tengd Ungfrú íslands keppninni og ég man að Ólafur Laufdal, Unnur Steinsson, Ema Jóhannesdóttir og Margrét Klara Jóhannsdóttir voru í dómnefndinni héma heima. Það kom mér verulega á óvart þegar ég var beðin um að vera með í keppninni, varð alveg steinhissa. Kristjana Geirsdóttir kom hingað til að frnna stúlkur í keppnina og hringdi í mig. Ég spurði hana hvorl hún væri ekki eitthvað að ruglast, mér datt ekki annað í hug, þetta var eitthvað svo íjarstæðukennt. Hún bað mig um að koma og spjalla við sig og þar vom fleiri stelpur mættar. Hún talaði okkur til og það endaði með því að við vomm komnar í fegurðar- samkeppni. Mérfannst undirbúningurinn mjög skemmtilegur og auðvitað var þetta allt saman spennandi. Mamma tók mikinn þátt í þessu með mér og studdi mig á allan hátt. Ég var á sautjánda ári þegar þetta var, auð- vitað er það fullungt og árið eftir var þessu breytt og stelpurnar urðu að vera átján ára gamlar til að fara í Ungfrú Island keppnina. Við Ragnheiður Borgþórsdóttir fómm svo í Ungfrú Island keppnina til Reykjavíkur," segir Halla og þegar hún er spurð segir hún ýmislegt hafa breyst við þetta. Allir þekktu mann „Auðvitað fékk maður mikla athygli út á þetta og allt í einu þekktu mann allir. Við vomm eins og prinsessur á bauninni á milli æfinga og það var voða gaman. Ég var með svaka skvísum og lenti í 5. sæti f Ungfrú íslands keppninni. Hólmfríður Karls- dóttir, sem varð alheimsfegurðar- drottning, lenti í öðm sæti og Sif Sigfúsdóttir var í þriðja sæti en hún varð svo Ungfrú Skandinavía. Stelpumar vom allar flottar og höfðu mikla reynslu af því að koma fram. Þannig að ég var mjög ánægð með að ná fimmta sætinu innan um allar þessar skvísur. Davíð Oddsson, sem þá var borgarstjóri, krýndi fegurðar- drottningu Reykjavfkur og sagði eitthvað á þá leið að það væri rnunur ef allar Kvennalistakonurnar væm svona fallegar. Það féll ekki í góðan jarðveg hjá kvenréttindakonum og olli talsverðu uppnámi og þær mótmæltu hástöfum. Mættu þær m.a. á þing og í vinnu uppstrílaðar með borða með einhverjum áletrunum á. I framhaldinu var mikið talað um gripasýningar. Það vakti líka athygli og gerði kvöldið skemmtilegt að poppstjaman Rod Stewart var meðal skemmti- krafta kvöldsins þannig að það var heilmikið í þetta lagt.“ Halla segir það skemmtilega tilviljun að systurdóttir hennar, Guðbjörg Erla Ríkharðsdóttir skyldi taka þátt í fegurðarsamkeppni tuttugu ámm seinna. „Ég er auðvitað stolt af stelpunni og hún lenti í öðm sæti í Ungfrú Suðurland og keppir í Ungfrú ísland keppninni 20 maí. Ég fór á Hótel Selfoss og fylgdist með keppninni. Það var glæsilegt kvöld og mjög gaman, ekki síst fyrir það að stelpumar frá Eyjum röðuðu sér í þrjú efstu sætin. Ég ætla auðvitað að mæta á Ungfrú íslands keppnina og ég var meira að segja búin að panta far út en ég er búin að breyta miðanum, annað kemur ekki til greina." Ljósmyndanám 1 Banda- ríkjaríkjunum Árið eftir hleypti Halla heimdrag- anum og flutli til Reykjavíkur ásamt tveimur vinkonum sínum. „Við fómm þrjár stelpur í borgina til að vinna og skipta um umhverfi. Ég var þar í eitt ár en 1989 fluttist ég til Bandaríkjanna í skóla sem heitir University of Alabama. Égfór þangað með strák sem þá var kærastinn minn en hann hafði verið skiptinemi þama úti og ætlaði alltaf í nám í Bandaríkjunum. Hann fór í tjölmiðlafræði og ég í ljósmyndanám en það var auðvitað alveg kjörið og allt planað því við ætluðum að vinna saman í framtíðinni. En þetta gekk ekki alveg upp hjá okkur skötuhjúunum, við hættum að vera saman og hann fór heim og ég varð ein í Ameríku. Þetta var svona Palli var einn í heiminum dæmi,“ segir Halla og gerir góðlátlegt grín að öllu saman. „í skólanum byrjaði ég á því að fara í undirbúning eins og allir gera og þar tók ég teikningu og grafíska hönnun. Ljósmyndunin heillaði mig alveg þannig að ég ákvað að leggja hana fyrir mig eftir undirbúnings- námið. Það er hægt að læra Ijósmyndun á tveimur til þremur árum en ég vildi ná mér í BA gráðu og ég var í háskólanámi þama úti í fjögur og hálft ár. Ég lærði auðvitað allt um ljósmyndun á þessum tíma en það hefur auðvitað mikið breyst og orðið mikil þróun síðan.“ Miklar tækniframfarir „Ég er í Ljósmyndarafélagi Islands því það er nauðsynlegt að hitta aðra fagaðila og kynna sér nýja tækni. Þegar ég var að vinna í söludeild Hans Petersen kynntist ég mörgum Ijósmyndurum og það er auðvitað alltaf gott að ræða við aðra um það sem hver og einn er að fást við hveiju sinni. Ljósmyndun er kennd í Iðnskólanum en hann hefur hingað til verið lokaður neina fyrir nemendum skólans. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að opna einhverja kúrsa sem

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.