Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.04.2005, Qupperneq 11

Fréttir - Eyjafréttir - 21.04.2005, Qupperneq 11
Fréttir / Fimmtudagur21. aprfl 2005 11 jm titilinn Ungfrú Island - Tuttugu árum seinna fylgir hún systudóttur sinni þessa sömu leið: iur skipta líka máli ljósmyndarar geta sótt og mér finnst sjálfsagt að opna þetta þannig að starfandi ljósmyndarar komist í betri tengsl við skólann og fái endur- menntun. Ég hef tekið námskeið sem í boði hafa verið og þannig haldið við minni þekkingu en það er í þessu eins og öðm nauðsynlegt að halda henni við og miklai' breytingar hafa orðið í þessu starfí.“ Höllu fmnst nýja digital tæknin mjög spennandi en liefur áhyggjur af því að myndir geymist ekki eins lengi í stafrænu formi eins og filmur. „Stafrænar myndir varðveitast ekki eins vel og filmur og ég tala nú ekki um svarthvítar filmur. Samt sem áður eru sumar ljósmyndastofur alveg komnar með digital tæknina í sína þjónustu og taka eingöngu stafrænar myndir en svo eru aðrir með filmur þannig að þetta er misjafnt. Tækninni fleygir hratt fram og vonandi fínnst lausn á þessu, ég á frekar von á því að þess verði ekki langt að bíða.“ Svarthvítar skemmtílegar Halla segir auðvitað dálítið mis- skemmtilegt að vinna myndir og það fari dálítið eftir vinnsluformi. „Mér finnst voða gaman að vinna svart- hvítar myndir, sérstaklega listrænar en mig vantar tíma til þess. Mér fmnst allt skemmtilegt við svarthvítu myndimar í myrkraherberginu, lyktin þegar maður er vinna þær og það er hægt að fylgjast með og sjá hvemig myndin kemur fram og verður til. Litvinnslan er allt öðruvísi og flóknari. Efnin eru sterkari og þar af leiðandi varhugaverðari og það er miklu auðveldara að vinna myndir í photoshop, það er auðvitað alveg draumur. Maður þarf ekki að vera að vinna í rnyrkri og þarf þar af leiðandi ekki að þreifa fyrir sér eins og þegar maður er að vinna myndir í myrkraherbergjum," segir Halla en tekur fram að allt við myndavinnslu hafi sinn sjarma. Myndirfrá 1900 til 1950 Eins og fyrr segir starfar Halla við Safnahúsið. „Mér finnst ég vera heppin að hafa fasta vinnu á safninu, eitthvað fast og ömggt enda er ég í samstarfi við skemmtilegt fólk. Starfið við Safnahúsið er tvískipt. Halla er í hlutastarfi við upplýsinga- miðlun á bókasafninu og aðstoðar fólk við leit á safninu. „Starfið felst m.a. í því að koma þeim sem þurfa að nota safnið mikið, t.d. háskóla- nemum, inn í það hvemig safnið er uppbyggt, hvemigá að leita á Gegnir.is o.s.frv. A Gegnir.is er hægt að sjá allt það efni sem til er á safninu og öðmm söfnum á landinu. Það er líka hægt að sjá hvað er inni á safninu hér og annars staðar en kerfið er mjög aðgengilegt og fínt. Fólk getur sótt þessar upplýsingar úr tölvunni heima hjá sér og það er auðvitað mjög þægilegt." Hitt hlutastarfið er við Ljós- myndasafn Vestmannaeyja en vinnan felst í því að flokka og skipuleggja safnið. „Draumurinn er að númera allar myndir en það á eftir að skrá allt safnið. Þetta em mest glerplötur og í þeim liggja mikil verðmæti og þar af leiðandi mikilvægt að þetta sé passað og komið í viðunandi geymslu. I fyrsta lagi þarf að setja plötumar í sýmfrí umslög til að vama því að þær skemmist. Plötumar em í mismun- andi ástandi og sumt liggur undir HALLA með frænkunni, Guðbjörgu Erlu sem nú fetar í fótspor stóru frænku. skemmdum. Safnið sem við emm að vinna er frá ámnum 1900 til 1950og þessar myndir hafa mikið heimildagildi." Halla segir að forsvarsmenn Ljósmyndasafns Akraness hafi gert myndir hjá sér aðgengilegar almenningi með því að setja myndimar á Netið. „ Ef við gætum komið þessu í framkvæmd þá getur fólk sent okkur upplýsingar um það hveijir em á myndunum og við safnað upplýsingum sem vantar. Eftir því sem tíminn líður þá er erfiðara að fá upplýsingar um fólkið á mynd- unum og við þyrftum að fá fleira fólk til að yfirfara safnið en ég er einungis í 30 prósent stöðu við Ljósmynda- safnið. Ég hef líka verið að skanna myndir og setja í albúm sem fólk getur skoðað og það hjálpar mjög mikið ef fólk gefur sér tíma til að líta á þetta. Ég er í samstarfi við Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Þjóðminjasafnið og hef leitað mér upplýsinga þar því það þarf að vinna safnið hér að miklu leyti frá gmnni. Við vomm að fá skráningarkerfi en þetta er langtímaverkefni og þyrfti meiri mannskap og tíma í þetta.“ Hef glímt við þunglyndi Halla er líka að vinna sjálfstætt og tekur myndir af fólki á ljósmynda- stofu sinni. „Það er í rauninni orðin aukavinna en margir em að spyrja af hverju ég vinni ekki eingöngu við ljósmyndun. Satt að segja var álagið mikið þegar ég var alfarið við þetta. Ég vinn alein og það þarf ákveðnar tekjur til að standa undir rekstri. Það má segja að ég hafi unnið yfir mig, þegar ég var eingöngu í sjálfstæðum II FRÉTTIR J s /A Halla Einarsdóttir: UNGFRU VESTMANNAEYJAR ‘85 Fvrstu æfingaleikirnir hjáÍBV Franinnlan I lUOjmkuin! (dynbil- 'clU i *»n«l toíjuiuui Iraiii **««ii) 4 llui|«ltiíit h]l tBV. A-Mi Unu. •Hit «ttti I doldathði Euhcrja Irt IBV htfur «11 il ItJu UAul I bytiu« HEFUll 1»Ú SÉÐ LAMPAÚRVALIÐ HJÁOKKÚR? Opiö luiigurdag 10-12. Kertalampar Kúlulampar Styttulampar Keramiklampar Luxolampar Stækkunarglerslampar ' Gormalampar Standlampar Svo eru þeir að koma aftur: Kuðungalamparnir frábæru (slðast soldusi þeir slra« upp) Flasslínan er að seijast upp. Úrval af fermingar og gjafavörum (eda þannigsko) KOMDUBARA OG SJÁÐUf HALLA prýddi forsíðu Frétta þegar hún var kjörin Ungfrú Vestmannaeyjar. rekstri og hef átt við veikindi að stríða í kjölfarið. Ég hef glímt við þunglyndi síðan en verstu fordóm- arnir eru manns eigin fordómar. Það fylgir þessu svo mikil skömm að maður talar ekki um það við neinn og leitar sér ekki hjálpar. Það er svo skrítið að það virðist miklu auð- veldara að leita sér læknis ef það er eitthvað líkamlegt að manni. Ég var jafnvel fegin ef eitthvað annað var að plaga mig. Þá gat ég farið til læknis og fengið smá samúð út á það. Það eiga allir að leita sér hjálpar sem eiga við þunglyndi að stríða. Það er hægt að fá hjálp í Vestmannaeyjum eins og í Reykjavík. Fólk verður að vinna gegn fordómnumu því oft stafar þunglyndi af lrkamlegum orsökum sem enginn ræður við. Lyf og samtalsmeðferðir hjálpa mikið og það hafa orðið miklar framfarir og aukinn skilningur á sjúkdóntnum síðustu árin. Svefntruflanir valda fólki oft miklum erfiðleikum og það skiptir höfuðmáli að koma reglu á hann og yfirleitt að lifa reglubundnu lífi, hreyfing og útivera hjálpar mikið til. Fjöiskyldan hefur staðið þétt við bakið á mér og hjálpað mér mikið í gegn um þessa erfiðleika Nú er ég að byggja mig upp.“ Lærir heilun og sinnir andlegum málefnum Halla hefur seinni árin látið sig andleg málefni varða og lætur svokallaða Kærleiksdaga sjaldan framhjá sér fara en það er Vigdís Steinþórsdóttir sem stendur fyrir þeim. „Þetta er hópur fólks sem kemur saman og hefur andleg málefni og óhefðbundnar lækningar í fyrirrúmi. Kærleiksdagar voru haldnir hér í Eyjum í fyrsta skipti veturoglukkuðustmjögvel, Mér finnst þessar helgar alveg yndislegar en þessa daga kemur fólk saman, byggir sig upp og lætur allt stress lönd og leið. Það er ekki sagt neikvætt orð þessa daga og allir glaðir og kátir. Við hugleiðum og maður hreinsar sig út og áhyggjurnar hverfa á bak og burt. Ég er að læra og tileinka mér heilun en hef ekki mikla reynslu ennþá en er nýbúin að fá mér bekk til að nota í reikiheilun." Halla segir að hún hafi farið á námskeið og lært viss tákn, eins og hún orðar það. Þegar hún er spurð hvort það fari ekki mikil orka í að heila fólk segir hún það misskilning en hins vegar fari mikil orka í gegn. „Við höfum verið þrjú saman í þessu og oft verið að heila hvert annað. Við erum líka í bænahring, hittumst reglulega, biðjum fyrir fólki og bæjarfélaginu og það gerir engum nema gott. Eg er líka búin að fara í gegn um í 12 spora vinnu sem er andlegt ferðalag. Það er farið í gegn um hvert spor og það er mikil sjálfs- skoðun og fólk þarf að leggja heilmikið á sig til að ná árangri. Fólk uppsker líka mikið á því að fara í gegnum þetta prógramm sem skilar sér í betri líðan. Trúin hefur hjálpað mér mjög mikið. Andlegt jafnvægi skiptir miklu og þá er maður hæfari til að sinna öllum í kringum sig. Litla stelpan mín skiptir auðvitað höfuðmáli í mínu lífi og hún er bæði sjálfstæð og dugleg,“ sagði Halla að lokum. gudbjörg @ eyjafrettir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.