Fréttir - Eyjafréttir - 21.04.2005, Side 13
Fréttir / Fimmtudagur 21. apnl 2005
13
P"
41
Handboltinn:
Tite bestur
Blað, sem HSI gefur út. hefur valið
Tite Kalandaze besta leikmann ársins.
Þrír aðrir leikmenn frá ÍBV í liði
ársins, þar af tvær hjá konunum.
HSÍ gaf út blað í tilefni úrslita-
keppni karla- og kvenna í hand-
knattleik sem nú stendur sem hæst. í
blaðinu voru forráðamenn liðanna
sem komust í úrslit fengnir til að velja
lið ársins, bæði í karla- og kvenna-
flokki. Eyjamenn eiga tvo fulltrúa í
hvorum flokki fyrir sig.
Tite Kalandaze er í liði ársins sem
leikmaður ársins og sóknarmaður
ársins. Roland Eradze er markvörður
ársins og fékk Florentina Grecu sömu
tilnefningu. Einnig var vinstri
hornamaður ÍBV, Guðbjörg Guð-
mannsdóttir, í liði ársins .
Uppgangur hjá BM-Ráðgjöf í Eyjum:
Vantar fleira fólk til starfa
SIGURÐUR og Sigrún með starfsfólki BM-ráðgjafar í Eyjum. Nú er svo komið að þrettán starfsmenn eru hjá
fyrirtækinu, þar af fjórir í fullu starfi.
Síðasta hálfa árið hefur fyrirtækið
BM-Ráðgjöf verið með útstöð í
Vestmannaeyjum sem sífellt hefur
verið að vaxa. Nú er svo komið að
þrettán starfsmenn eru hjá fyrirtækinu,
þar af fjórir í fullu starfi.
Fyrirtækið skiptist í þrjá megin-
þætti, samskiptayer, ráðgjafasvið og
fnjminnheimtu. I Vestmannaeyjum er
samskiptaver og nýverið var ráðinn
nýr yfirmaður, Sigurður Guðmunds-
son og tók hann við 1. apríl sl. og
stýrir þessu ásamt eiginkonu sinni,
Sigrúnu Sigmarsdóttur.
Sigurður segir þetta vera úthringiver
fyrir félagasamtök, líknarfélög og
fyrirtæki. „Við sinnum ýmiss konar
markaðsstarfsemi fyrir þessa aðila og
það er sífellt að aukast að fyrirtæki
leiti til BM-ráðgjafar til að sinna
þessum hlutum fyrir sig. Við sinnum
beinni markaðssókn og leitum beint til
kúnnans en mörg fyrirtæki bíða eftir
að kúnninn komi til þeirra,“ sagði
Sigurður og bætti við að nú væru
þrettán á launaskrá hjá þeim og enn
vantar fólk enda fjölgi verkefnum.
Hingað til hefur þetta verið kvöld-
vinna en nú eru þau að byija fyrr, eða
klukkan eitt eftir hádegi og býðst fólki
nú hálfsdagsvinna. Aðspurður hvemig
það kom til að þau tóku þetta að sér
sagði Sigurður að haft haft verið
samband við þau í marsmánuði. „Við
þurftum að svara strax en þá var ég í
vinnu í FES á vöktum og þær
kláruðust ekki fyrr en í síðustu viku.
Við tókum þetta að okkur og eftir
mánaðamótin fór Sigrún að koma
meira og meira inn í þetta með mér.“
Hann segir að þetta starf eigi vel við
sig enda haft hann starfað við sölustörf
nánast allan sinn starfsferil og sé
menntaður á því sviði.
BM-Ráðgjöf hefur höfuðstöðvar í
Reykjavík þar sem starfa um tuttugu
og fimm starfsmenn og í síðustu viku
var opnað útibú í Keflavík. Níu
símstöðvar hafa verið virkar í Eyjum
frá þvf í nóvember en nú á að fjölga
þeim upp í ellefu. Þau hafa verið að
auglýsa eftir starfsfólki og horfir
Sigurður þá helst til fólks á aldurs-
bilinu þrjátíu til sextíu ára.
„Við höfum verið með mikið af
ungu fólki sem hefur staðið sig vel en
við viljum auka hlul þeirra sem eldri
eru enda getur dagvinnuverkefnið
hentað þeim vel. Launin eru sam-
bærileg því sem gerist í höfuðborginni
en allir fá fast tímakaup en síðan er
árangurstengt ofan á það og þau sem
eru dugleg eru að hafa mjög gott út úr
þessu, jafnvel allt upp í 1500 krónur á
tímann."
Gamla myndin af stað á nýjan leik
Birting þessara vinsælu mynda hefur
nú göngu sína á ný á síðum Frétta.
Að þessu sinni barst okkur myndin
frá Kjartani Mássyni frá Valhöll. Hún
er af 4. flokki íþróttafélagsins Þórs
árið 1961. Af þessum hópi 12
Eyjapeyja eru þrír þeirra látnir, en
þeir fórust allir í slysum örfáum
árum eftir að þessi mynd var tekin.
Efri röð frá vinstri, Alexander
Guðmundsson þjálfari og þáverandi
formaður félagsins, þá búsettur við
Grænuhlíð, götu í austurbænum, sem
fór undir hraun í gosinu, Örlygur
Haraldsson, áður til heimilis að
Túngötu 16, hann féll í höfnina og
drukknaði árið 1965, Amfnð
Bjömsson frá Gerði, Örn Ólafsson
kenndur við SIS, Þorsteinn
Ingólfsson frá Laufási, Ólafur Öm
Kristjánsson áður til heimilis að
Kirkjuvegi 26, og Sverrir Jónsson,
áður til heimilis að Boðaslóð 22,
hann lést í mótorhjólaslysi. Neðri
röð frá vinstri: Sævar Tryggvason,
áður til heimilis að Helgafellsbraut
20, Leifur Gunnarsson frá Gerði,
Gunnar Finnbogason, áðurtil
heimilis að Höfðavegi 4, hann
dmkknaði við Teistuhelli í
Ofanleitishamri árið 1964, Magnús
Axelsson, áður til heimilis að
Kirkjuvegi 67 og Valur Andersen frá
Sandprýði.
Ef lesendur Frétta hafa undir höndum
myndir og upplýsingar um þær, sem
átt gætu heima í þessum efnisflokki,
væru þær vel þegnar.
Spurt er:
Ætlar þú ó
Hippahótíð?
Enima Vido
Já hvort ég ætla. Ég á þennan fiotta
galla og auk þess er að koma fólk
ofan af landi sem ætlar með mér.
Við verðum sextán manna hópur
sem fer saman.
Diljá Magnúsdóttir
Já það gæti alveg farið svo. Ég er
búin að fara tvisvar á Hippaball og
þetta er alveg rnega sluð.
Magnús Sigurðsson
Að sjálfsögðu. Ég ætla að
sjálfsögðu á Hippaballið og líklega
líka að kíkja við í Listaskólanum.
Baldvin Þór Sigurbjörnsson
Nei því miður kemst ég ekki. Ég er
á leið á Higbury að horfa á
meistarana taka Tottenham í
bakaríið.*