Fréttir - Eyjafréttir - 21.04.2005, Side 14
14
Fréttir / Fimmtudagur 21. apríl 2005
Lögreglan:
Skemmtistað-
ír stóðust
prófið
Vikan var frekar í rólegri kantinum
hjá lögreglu og ekkert alvarlegt sem
kom upp. Lögreglan fór í sérstakt
eftirlit á skemmtistaði bæjarins um
helgina og virtist sem allt færi vel
fram og þurfti lögregla ekki að hafa
afskipti af gestum eða gera
athugasemd við verta. Eins voru
nokkrar bifreiðar stöðvaðar vegna
eftirlits með ökumönnum m.a. með
tilliti til ölvunaraksturs en ökumenn
reyndust allir vera í lagi. Alls voru
stöðvaðar 11 bifreiðar.
Lögreglu var tilkynnt um að brotist
hafi verið inn í Guðrúnu VE þar sem
skipið lá við bryggju í Friðarhöfn.
Talið er að brotist hafi verið inn í
skipið á tímabilinu 15. aprfl til 17.
apríl. Ekki var að sjá að nokkru hafi
verið stolið en brotin hafði verið upp
hurð að klefa skipstjóra. Ekki er vitað
hver þarna var að verki og eru allar
upplýsingar um hver þama gæti hafa
verið að verki vel þegnar.
Tveir ökumenn voru sektaðir vegna
brota á umferðarlögum en um var að
FÍV hyggur á landvinninga í Rangárþingi:
Hugmyndin að reka
fjarnámsdeild á Hvolsvelli
Hreyft hefur verið þeirri hugmynd að
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
reki fjarnámsdeild á Hvolsvelli sem
gerir nemendum þar kleift að stunda
nám við skólann í tvær annir án þess
að þurfa að flytja. Nemendur myndu
þá hetja framhaldsskólanám sitt í
sinni heimabyggð en Ijúka því við
FIV eða annan framhaldsskóla. A
námstíma eru nemendur, sem mundu
stunda nám við fjamámsdeildina á
Hvolsvelli, fullgildir nemendur FÍV
með þeim skyldum og réttindum sem
því fylgja.
Elliði Vignisson, bæjarfulltrúi í
Vestmannaeyjum og kennari við FÍV,
segist hafa leikið sér með þessa hug-
mynd í nokkum tíma núna sem felst í
að Framhaldsskólinn hér bjóði upp á
framhaldsskólakennslu í gegnum
stofnun útibús á Hvolsvelli. „Hug-
myndin er sú að nemendur geti lokið
fyrsta árinu í gegnum fjamám og
standi svo til boða að koma hingað í
áframhaldandi nám eða fara í annan
skóla. Hugmyndin fæddist þegar ég
átti samtal við Ólaf Eggertsson bónda
á Þorvaldseyri um skólamál í Rang-
árþingi eystra. Síðan þá hef ég rætl
við lykilaðila hér heima og á
Hvolsvelli og málinu hvarvetna verið
vel tekið,“ sagði Elliði.
Á föstudaginn fundaði hann ásamt
Bergi Elíasi Agústssyni bæjarstjóra og
Ólali Hreini Sigurjónssyni skóla-
meistara með skólafólki á Hvolsvelli.
„Em menn einróma um að láta reyna
á hvort mögulegt sé að hrinda þessu í
framkvæmd í haust. Málið var kynnt
í sveitarstjóm í Rangárþingi á fimmtu-
daginn.“
Elliði segir að hugmyndin sé að
FÍV, Vestmannaeyjabær og Rang-
árþing geri með sér samkomulag um
að FÍV reki fjamámsdeild á Hvolsvelli
sem gerir nemendum á því skólasvæði
kleift að stunda nám við skólann í
tvær annir án þess að þurfa að flytja af
svæðinu. „Nemendur hefja þá fram-
haldsskólanám sitt í heimabyggð en
Ijúka náminu hjá okkur eða í öðrum
framhaldsskólum. Á námstímanum
em þeir fullgildir nemendur FIV með
þeim skyldum og réttindum sem því
fylgja," sagði Elliði.
Hann sagði að þama væri verið að
bregðast við hugsanlegri fækkun nem-
enda FÍV bæði vegna styttingar á
námi til stúdentsprófs og vegna íbúa-
þróunar í Vestmannaeyjum eins og
hún hefur verið. „Það em því líkur á
auknu svigrúmi innan núverandi
ramma FÍV til að þjónusta nemendur
annarstaðar frá og þá eðlilegt að horfa
fyrst og fremst til nærliggjandi
svæða.“
Elliði sagði mikilvægt að horfa til
þess að þarna væri verið að stórauka
þjónustu við nemendur í Rangárþingi.
„Núna þurfa nemendur að llylja frá
heimilum sínum 16 ára með til-
heyrandi óhagræði og álagi. Slíkt er
sérstaklega slæmt þegar nemendur em
að skipta um skólastig og takast á við
nýjar og ólíkar kröfur í námi. Ef af
þessari framkvæmd verður er nem-
endum gert kleift að hefja fram-
haldsskólanám án þess að flytja frá
heimilum sínum. Að loknu fyrsta
árinu stæði nemendum síðan til boða
að hefja nám við FÍV sem staðar-
nemendur, og þá ef til vill á heimavist,
eða flytja sig í annan framhaldsskóla."
Elliði sagði að til þess að þetta yrði
að vemleika þyrfti samstillt átak
sveitastjóma beggja sveitarfélaga, FIV
og Hvolsskóla auk stuðnings frá
aðilum svo sem Visku, menntamála-
ráðuneytinu og öðmm.
I dag em fjórir framhaldsskólar á
Suðurlandi, Fjölbrautaskóli Suður-
lands Selfossi með 744 nemendur,
Framhaldsskólinn í Austur-Skafta-
fellssýslu Homafirði með 98 nem-
endur, FÍV með 204 nemendur og
Menntaskólinn Laugarvatni með 132
nemendur. „Mörgum spurningum er
ósvarað enda mál þetta á algeru
byrjunarstigi. Mikilvægt er að
skilgreina nákvæmlega þjónustuþörf
Rangárþingssvæðisins. Eftir er að
kortleggja væntingar og þarfir þeirra
nemenda sem hugsanlega myndu nýta
sér íjamámið. Sérstaklega þarf að
meta væntanlega útkomu á sam-
ræmdum prófum með tilliti til þess
hvort nemendur koma til með að
notfæra sér hraðferðar- eða hæg-
ferðaráfanga í kjamagreinum og
sömuleiðis þörfina fyrir stuðnings-
áfanga,“ sagði Elliði.
Fyrsta skrefið var fundur forystu-
manna beggja vegna þar sem
hugmyndin var mótuð. Þar var
staðfestur sameiginlegur vilji til að
vinna áfram að þessari hugmynd.
Næsti fundur hefur verið boðaður
miðvikudaginn 27. apríl en þá munu
Rangæingar heimsækja okkur hingað
til Vestmannaeyja, skoða skólann og
svo framvegis. I kjölfarið verður svo
rætt áfram um málið og vonandi
verður hægt að stofna fjamámsdeild
við FÍV á Hvolsvelli innan fárra vikna
og bjóða upp á fullgilt nám strax
næsta haust.“
ræða vanrækslu á að nota öryggisbelti
við akstur bifreiðar.
Lögreglu var tilkynnt um sl. helgi
að skemmdir hafi orðið á bifreið á
Búastaðabraut þegar göngubrú yftr
skurð sem þar er fauk á bifreiðina.
Lögreglan vill minna eigendur
ökutækja að tími nagladekkjanna er
liðinn á þessu vori og eru ökumenn
hvattir til að skipta yfir á sumar-
hjólbarða. Lögreglan mun hins vegar
ekki byrja að sekta strax þar sem enn
gæti verið von á kuldakasti. Þá vill
lögreglan benda ökumönnum á að
leggja ekki á Kirkjuvegi og Vest-
mannabraut við Islandsbanka, heldur
leggja á bifreiðastæði sem er sunnan
bankans. Lagning á þessum götum,
sérstaklega Kirkjuvegi, þrengir mjög
að umferð og því vill lögreglan beina
því lil ökumanna að nota bifreiða-
stæðið sunnan bankans.
Sumardagurinn fyrsti:
Skátar og ferða-
þjónustan slá saman
Dagskrá sumardagsins fyrsta hefst
klukkan 11.00 með því að tilkynnt
verður í Safnahúsinu hver verður
Bæjarlistamaður Vestmannaeyja
2005. Hefðbundin skrúðganga skáta
verður frá Ráðhúsinu kl. 13.30 og
klukkan 14.00 hefst skemmtidagskrá
undir stjórn skáta í Iþróttamið-
stöðinni. Fimleikafélagið Rán,
Hressó og leikskólamir rnunu
skemmta þar.
Nýnæmi er Ferðalangur á heima-
slóð, þar sem aðilar í ferðaþjónustu
munu kynna bæjarbúum og öðrum
hvað þeir hafa upp á að bjóða. I
tengslum við þessa kynningu verður
myndasýning í Flugstöðinni þar sem
saga hennar og flugs í Vest-
mannaeyjum verður rakin. Auk þess
munu Hestaleigan í Lukku, Fjólan,
Café María og Hótel Þórshamar
kynna þjónustu sína á sérstöku
kynningarverði.
Kristín Jóhannsdóttir, markaðsfull-
trúi bæjarins, segir að Reykja-
víkurborg hafi riðið á vaðið með
Ferðalang á heimaslóð sem er hugsuð
til að kynna það sem hún hefur upp á
að bjóða. „Nú var ákveðið að
landsbyggðin yrði með líka og er
dagskráin hugsuð til að kynna
heimamönnum víðs vegar um landið
eitthvað af því sem þeirra eigin
ferðaþjónusta hefur upp á að bjóða.
Nokkur ferðaþjónustufyrirtæki í
Vestmannaeyjum gripu gæsina og
ætla að vera með kynningu eða
sértilboð í tilefni dagsins. Hápunkt-
urinn verður örugglega í Flugstöðinni
þar sem verður sýning á gömlum og
nýjum myndum úr fluginu allt frá
dögum Bjama Jónassonar fram til
þess að núverandi vélakostur
Flugfélags Vestmannaeyja tók við.
Þetta verður kannski smátt í sniðum
til að byrja með. Allir í ferðaþjón-
ustunni fengu tilkynningu um
dagskrána og vonandi verða fleiri
með næst,“ sagði Kristín en hægt er
að fá upplýsingar um Ferðalanginn á
ferdalangurinn.is.
Kristín sagðist hafa rætt þetta við
skátana sem strax voru til í samstarf
um dagskrána á Sumardaginn fyrsta.
„Við auglýsum saman, þeir verða
með sína hefðbundnu dagskrá og
hægt verður að fá skátakakó hjá þeim
að henni lokinni."
r ' '11 JWL i
gk
: ■ WSl H
Surtseyjarraðstefna
gæti orðið í
Undirbúningur að ráðstefnu um
Surtsey er í fullum gangi ásamt því að
hér verði sett upp Surtseyjarstofa.
Hugmyndin er að þar verði safnað
saman öllum þeim upplýsingum og
gögnum sem til eru um Surtsey og að
rannsóknum á eynni yrði stjómað
héðan.
Bergur Elías Ágústsson, bæjar-
stjóri, hefur unnið að málinu ásamt
Amari Sigurmundssyni formanni
bæjarráðs og Lúðvík Bergvinssyni
bæjarfulltrúa og þingmanni. „Við
byijun júní
höfum verið að undirbúa ráðstefnuna
í samráði við Sigríði Önnu Þórðar-
dóttur umhverfisráðherra. Hún verður
haldin í Vestmannaeyjum og gæti
orðið 2. eða 3. júní þó er það ekki
endanlega ákveðið," sagði Bergur.
Um leið er unnið að stofnun
Surtseyjarstofnunar í Vestmanna-
eyjum og er hugmyndin að hún verði
starfrækt í tengslum við Náttúmstofu
Suðurlands í Vestmannaeyjum. „Við
sjáum fyrir okkur að þama gæti skap-
ast eitt starf að minnsta kosti.“
Sinueldur
ógnaði
Höfðabóli
Lögreglu var tilkynnt um tveiuu
sinuelda í vikunni. Annars vegar var
kveikt í sinu á Nýjahrauni en ekki
urðu miklar skemmdir á gróðri þar
sem tókst að slökkva eldinn það fljótt.
Hins vegar var tilkynnt um að sinu-
eldur ógnaði Höfðabóli og þurfti að
kalla út slökkvilið til að ráða
niðurlögum eldsins. Hins vegar urðu
engar skemmdir á Höfðabóli.
Tvö slys úti
ásjó
Tvö vinnuslys vom tilkynnt lögreglu
í vikunni og áttu þau sér bæði stað um
borð í Snorra Sturlusyni VE. Fyrra
slysið átti sér stað þann 10. aprfl sl.
þegar skipverji utn borð fékk gilskrók
í sig og slasaðist alvarlega. Hann var
fluttur með þyrlu vamaliðsins á
sjúkrahús í Reykjavík. Tildrög
slyssins em í rannsókn. Seinna slysið
átti sér stað þann 12. apríl sl. þegar
skipverji sem var að vinna í lest
klemmdist þannig að fingur fór úr
liði. Hann var fluttur í land með
Vestmannaey VE.