Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.04.2005, Page 16

Fréttir - Eyjafréttir - 21.04.2005, Page 16
16 Fréttir / Fimmtudagur21. apríl 2005 Með fullan poka af þolinmæði Mál Sigurðar Guðmundssonar, sem sakfelldur var fyrir að hafa valdið dauða níu mánaða gamals barns, verður tekið fyrir hjá Mannréttindadómstóli Evrópu SIGURÐUR: Það er klárt mannréttindabrot og auk þess var ekki tekið tillit til þess að móðirin er flogaveik og tók lyf alla meðgönguna og á meðan á brjóstagjöf stóð. Það getur leitt til þess að æðakerfið hrynur og barnið var með auka milta. Um síðustu helgi bárust þau tíðindi írá Strassborg að mál Sigurðar Guð- mundssonar, sem sakfelldur var fyrir tveimur ámm fyrir að hafa valdið dauða níu mánaða gamals bams, yrði tekið fyrir hjá Mannréttindadómstóli Evrópu. Talið var sannað í málinu að barnið hafi dáið eftir að hafa verið hrist harkalega. Þetta gerðist 2. maí árið 2001 og var Sigurður handtekinn 10. september sama ár og hnepptur í varðhald. Hann fékk síðar þriggja ára fangelsisdóm í undirrétti sem var styttur í 18 mánaða fangelsisvist í Hæstarétti. Hann hefur nú afplánað tólf mánuði og er á skilorði til 28. júní nk. Sigurður hefur frá fyrstu tíð haldið fram sakleysi sínu og telur margt athugavert við málsmeðferðina. Sú ákvörðun mannréttindadómstólsins að taka málið upp er mikill áfangasigur fyrir Sigurð enda er níu af hverjum tíu málum vísað frá dómi. Segir Sigurður að þeir hefðu ekki tekið málið fyrir nema þeir hefðu séð ákveðin mann- réttindabrot í málsmeðferðinni. Málið er einstakt á Islandi og raunar hefur slíkt mál aldrei áður komið upp á Norðurlöndum. Þess vegna er um ákveðið prófmál að ræða og hefur Sigurður fengið gjafsókn hjá Mann- réttindadómstólnum. Hann hefur gagnrýnt málsmeðferðina alla, til að mynda fékk verjandi hans, Sveinn Andri Sveinsson, ekki að spyrja læknaráðið beint og sama fólk var í ráðinu í bæði undir- og yfirrétti. Hann segir hvort tveggja klár mannréttinda- brot sem og ákvörðun Hæstaréttar að vísa frá erindi átta erlendra sér- fræðinga sem sögðu allir að það væri útilokað að bamið hafi verið hrist. „Það er klárt mannréttindabrot og auk þess var ekki tekið tillit til þess að móðirin er flogaveik og tók lyf alla meðgönguna og á meðan á brjóstagjöf stóð. Það getur leitt til þess að æða- kerfið hrynur og bamið var með auka milta. Það var aðeins einn meina- fræðingur fyrir dómi en ekki var tekið tillit til þeirra átta sem lögðu fram álit eftir að hafa lesið kmfningaskýrsluna. Sú heitir Þóra Stephensen og hún í raun giskar á hvað hafi gerst og leitast núna við að sanna þá ágiskun sína.“ Til að mynda segir Sigurður að hún hafi sjálf sent út sýni til Bandaríkjanna til að fá úr þessu skorið en þegar á reyndi hafi hún neitað að láta verjanda hans fá aðgang að þeim gögnum. „Við þurftum að leita beint út til Banda- ríkjanna til að fá að sjá niðurstöður þeirra og þær vom á þá leið að það gætu verið þrjár ástæður fyrir láti bamsins, shaking baby syndrom, C- vítamínskortur og ofnæmi." Sigurður bendir einnig á að ef bamið hafi dáið úr „shaking baby syndrorrí* þá hafi þau verið tvö að vinna þama en alltaf var aðeins horft til hans. „Síðan er annað sem var ekki litið til en það er sú staðreynd að ef barn er hrist þá geta liðið allt að 72 tímar þangað til það missir með- vitund." VIII fá uppreisn æru Sigurður bætti við að bamið hafi verið veikt heima hjá sér nóttina áður en það deyr þannig að margt er óvíst í þessu máli en hæstiréttur komst þó að þeirri niðurstöðu að Sigurður bæri ábyrgð á dauða bamsins. Hann tók út sinn dóm á Kvía- bryggju mestallan tímann en dvaldist síðustu þrjá mánuðina á Vemd þar sem hann þurfti meðal annars að fara í áfengismeðferð, þó hann hafi alla tíð verið bindindismaður. Aður en Sigurður hóf afplánun hafði hann kynnst núverandi eiginkonu sinni, Sigrúnu Sigmarsdóttur og eru þau búin að koma sér vel fyrir í Eyjum. Baráttan heldur áfram enda segir Sigurður að erfitt sé að sætta sig við að vera dæmdur fyrir eitthvað sem hann gerði ekki. „Við höfum fullan poka af þolin- mæði og það veitir ekki af enda má búast við að málið taki allt að sjö ár í meðferð úti í Strassborg. Nú em komin tvö ár frá því ég kærði og þvf fimm ár eftir.“ Sigurður vill fá uppreisn æm. Hann hefur lent í vandræðum með að fá vinnu vegna dómsins og margt hefur gengið honum í óhag eftir að ósköpin dundu yfir. Hann segir lögfræðing sinn nú þegar vera farinn að vinna að skaðabótakröfu á hendur ríkinu en erfitt sé að meta í fjárhæðum hvaða áhrif dómurinn hefur haft. Það er ekkj nóg með að hann berjist við íslenska ríkið lyrir mannréttindadómstólnum í Strassborg heldur hefur hann einnig kært sýslumanninn í Kópavogi. „Þannig var að þegar ég var hand- tekinn var gerð húsleit heima hjá mér. Þeir skemmdu þar tölvuna mína og týndu ýmsu sem þeir tóku. Til dæmis týndu þeir öllu bókhaldinu mínu sem og bamavagni. Þeir bmtu líka á mér varðandi bömin mín,“ sagði hann og útskýrði það nánar. „Eftir dóminn yfir mér þá átti fyrr- verandi kona mín erfitt og það þurfti að taka bömin af henni. Tvö þeirra vom sett í fóstur til ömmu sinnar og afa en tvö önnur vom sett til ókunnugs fólks. Það mátti ekki gera án þess að ræða við mig enda vomm við með sameiginlegt forræði. Sigrún gerði sér ferð í Kópavoginn og ræddi við yfirvöld þar og bauðst til að taka bömin hingað til Eyja. Því var ekki sinnt og ég tel þau, ásamt félagsyfir- völdum í Kópavogi, hafa brotið illa á mér.“ Síðastí vettvangur baráttu Sigurðar er við sýslumannsembættið í Eyjum sem hefur lagt inn ósk um að Sigurður verði gerður gjaldþrota vegna ó- greidds sakarkostnaðar. Nemur hann tæpum fimm milljónum króna. Sigurður hefur staðið í stappi vegna þessa þar sem ekki má gera hann gjaldþrota vegna opinberra gjalda svona skömmu eftir afplánun. Hafa menn deilt um hvort um opinber gjöld sé að ræða eða ekki. Niðurstaðan var sú að fresta málinu fram á sumar en eftir bréf mannréttindadómstólsins þar sem ljóst er að málið verður tekið fyrir hefur Sigurður farið fram á að gjaldþrotsbeiðninni verði frestað fram yfir úrskurð dómstólsins. Það á enn eftir að koma í ljós hvort yfirvöld verða við beiðni hans. svermi @ eyjafrettir. is Hippahátíðin verður um helgina: Ballið verður frá klukkan sjö til eitt Nú er blásið til fjórðu Hippahátíðar- innar í Eyjum en hún verður með nokkuð breyttu sniði því nú mega böll í Höllinni ekki standa lengur en til klukkan eitt á nóttunni. Við þessu er brugðist með því að byija fyrr og þeir sem mæta tímanlega fá glaðning. Sjálf hátíðin hefst á föstudaginn með Hátíð hippans og þjóðlagakvöldi. Aðstandendur eru bjartsýnir á aðsókn og vísa til þess að hippamir tóku því sem að höndum bar og höfðu mikla aðlögunarhæfileika. „Við vitum minnst um það,“ sagði Helga Jónsdóttir, talsmaður Hippa- hátíðarinnar, þegar hún var spurð hver staðan væri um bann við böllum eftir klukkan eitt í Höllinni. „Hallarbændur ætla að bregðast myndarlega við þessum aðstæðum og á hátíðin að byija klukkan sjö á laugardaginn. Aðgangur er 2000 krónur en þeir sem mæta fyrir ldukkan átta fá mat í kaupbæti auk hamingjustundar á bamum til klukkan hálf níu,“ sagði Helga. Sjálf Hippahátíðin hefst strax á föstudagsmorguninn klukkan tíu þegar Hippabandið fer um bæinn með tónlist sína og heimsækir fyrirtæki, stofnanir og velunnara. „Klukkan átta er svo Listahátíð hippans í Vélasal Listaskólans þar sem er að finna bíl og herbergi hippans. Auk þess sýnum við eftirprentanir frá hippatímanum sem em til sölu. Þama verður líka nytja- sýning, fatnaður og fylgihlutir eins og skartgripir og töskur sem em svo stór hluti af ímyndinni. Um klukkan níu verður þjóðlagahátíð hippans sem gæti staðið fram á nótt því mér vitanlega em engin tímamörk á þessum tónleikum. A laugardaginn HIPPABANDIÐ: Helga, Hrafnhildur, Arnór, Grímur, Jóhann Ágúst, Sæþór, Páll Viðar og Ágúst. verða sýningamar opnar og þar verður allt tíl sölu.“ Helga segir að hápunkturinn verði í Höllinni um kvöldið og hún óttast ekki að breyttur tími á skemmtuninni hafi áhrif á aðsóknina. „Hippamir tóku því sem að höndum bar og nýttu það sem náttúran bauð hverju sinni. Þeir höfðu einnig ótrúlega aðlögunar- hæfni og nú er tækifæri til að sanna það. Útspil Hallarbænda er líka myndarlegt og ég held að þetta sé tilraun sem enginn vill missa af." Helga segist hafa orðið vör við áhuga á fastalandinu og nokkrir hafi þegar meldað sig. „Það hringdi einn sem sagðist alls ekki vilja missa af þessu veseni öllu og hlakkar til að mæta. Það ganga ýmsar sögur um bæinn og ein er að einhveijir ætli að slá upp stóm tjaldi fyrir ofan Höllina og þar gæti gleðin staðið fram á morgun,“ sagði Helga að lokum. Hippabandið skipa Amór Hermannsson rytmagítar og söngur, Ágúst Ingvarsson ásláttur, Grímur Þór Gíslason trommur, Helga Jónsdóttirsöngur, Hrafnhildur Helgadóttir söngur og trompet, Jóhann Ágúst Tórshamar bassi, Páll Viðar hljómborð og Sæþór Vídó sólógítar og söngur. Og lagalistinn telur 70 lög.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.