Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.04.2005, Qupperneq 19

Fréttir - Eyjafréttir - 21.04.2005, Qupperneq 19
Fréttir / Fimmtudagur 21. apríl 2005 19 n sem hefst á sigur á Stjörnunni í oddaleik Batnandi mönnum er best að lifa, stendur einhvers staðar og að mörgu leyti má heimfæra það upp á kvenna- lið IBV því leikur þess hefur heldur betur legið upp á við í undanfömum leikjum. Sérstaklega hefur varnar- leikurinn tekið stakkaskiptum en IBV spilaði sinn besta leik í langan tíma í þriðja og síðasta leik gegn Stjömunni í undanúrslitunum. Eyjastúlkur vom í raun betra liðið í öllum þremur leikj- unum en ótrúlegur klaufaskapur og óheppni varð til þess að útileikurinn í Garðabæ tapaðist. En stelpurnar sýndu það í oddaleiknum að þar er á ferð lið sem Haukar ættu að varast. Eins og við var að búast var fyrsti leikur liðanna jafn og spennandi. Aldrei rnunaði meira en tveimur mörkum á liðunum en yfirleitt var jafnt og liðin skiptust á að skora. Þegar rétt um hálf mínúta var eftir var staðan jöfn, 19:19 og Eyjastúlkur í sókn. Eva Björk Hlöðversdóttir braust þá í gegn, fiskaði víti sem hún tók sjálf og tryggði IBV um leið sigurinn, 20:19. , Mörk ÍBV: Alla Gokorian 6/3, Eva Björk Hlöðversdóttir 5/4, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4, Darinka Stefano- vic 2, Tatjana Zukovska 2, Anastasia Patsiou 1. Varin skot: Florentina Grecu 20/1. Leikurinn í Garðabænum þróaðist til að byrja með á svipaðan hátt, liðin skiptust á að skora og var jafnt framan af fyrri hálfleik. En í síðari hálfleik tóku Eyjastúlkur öll völd á vellinum og fljótlega fór að draga í sundur með liðunum. Mestur varð munurinn sex mörk en þegar fjórar mínútur vom eftir af leiknum var hann kominn niður í íjögur mörk. Þá tók við ótrúlegur leikkafli þar sem Eyjastúlkur voru um tíma aðeins þrjár á móti sex. Auk þess fóm leikmenn hreinlega á taugum, tóku rangar ákvarðanir og vissulega mátti deila um nokkra vafasama dóma á lokakaflanum. Þannig var boltinn t.d. dæmdur af ÍBV þegar tíu sekúndur vom eftir en þá átti IBV að fá aukakast í stað þess að missa boltann. Stjömu- stúlkur þökkuðu svo pent fyrir sig, skomðu sigurmarkið þegar aðeins tvær sekúndur vom eftir og lokatölur urðu 24:23. Mörk ÍBV: Alla Gokorian 8/1, Anastasia Patsiou 6, Eva Björk Hlöð- versdóttir 4/1, Darinka Stefanovic 3, Guðbjörg Guðmannsdóttir 2. Varin skot: Florentina Grecu 26/3. En með tapið í Garðabænum á bakinu, mættu leikmenn ÍBV til leiks í oddaleikinn staðráðnar í að sanna sig fyrir alþjóð. Reyndar byrjaði Stjaman betur í leiknum en um miðjan fyrri hálfleikinn tóku Eyjastúlkur við sér, komust í fyrsta sinn yfir og litu ekki um öxl eftir það. Mestur varð mun- urinn átta mörk og lokatölur 32:24. Vonandi að toppa á réttum tíma Alfreð Finnsson, þjálfari ÍBV var kátur í leikslok. „Eigum við ekki bara að segja að þetta hafi verið með okkar betri leikjum í vetur. Við byrjuðum reyndar illa en náðum okkur svo á strik og mér fannst við spila fanta- góðan handbolta í 45 mínútur. Við leystum það líka betur núna þegar Alla var tekin úr umferð, notuðum meira breiddina á vellinum og losuðum svo reglulega um Öllu enda stoppar hana enginn þegar hún kemst á strik. Vamarleikurinn hefur verið vaxandi hjá okkur og markvarslan er líka svakaleg. Þegar við leikum svona góða vörn þá ver Florentina yfir tuttugu skol enda er Flora mikil stemmningsmanneskja. Þetta var mjög skemmtilegur leikur, stórgóð stemmning í húsinu og leikmenn hreinlega nærast á svoleiðis stemmningu." Er liðið að toppa á réttum tíma? „Auðvitað vona ég það en ég ætla ekki að fullyrða neitt um það. Eg þarf að nota Ingibjörgu og Önu Perez meira, þær komu inn á í dag og spiluðu vel. En við höfum verið afar óheppin með meiðsli, höfum fengið okkar skammt af þeim og ég vona að við verðum laus við þau það sem eftir lifir tímabilsins." Mörk ÍBV: Anastasia Patsiou 10, Eva Björk Hlöðversdóttir 8/5, Tatjana Zukovska 4, Alla Gokorian 3, Ingibjörg Jónsdóttir 1, Guðbjörg Guðmannsdóttir 1. Varin skot: Florentina Grecu 29/1. | Undanúrslit karla - Fyrsti leikur: ÍBV 30 - Stjarnan 29 Enn munaði aðeins einu marki -Sigurður Ari átti stórleik og hefur aldrei staðið sig betur á ferlinum SIGUÐUR Ari skorar hér eitt af átta mörkum sínum í leiknum á þriðjudaginn. Eyjamenn unnu fyrsta leikinn í viðureign sinni gegn IR í undan- úrslitum Islandsmótsins í Eyjum á þriðjudaginn. Munurinn var aðeins eitt mark eins og í leikjunum þremur gegn Fram í átta liða úrslitunum. Heima- menn voru mun sterkari lengst af, leiddu að meðaltali með fimm mörk- um en staðan í hálfleik var 15:10. Það leit út fyrir rólegan leik allt þar til tæpar tíu mínútur voru eftir en þá tókst IR-ingum að saxa á forskotið og jöfnuðu á lokamínútunni í fyrsta sinn. Zoltan Belanyi tryggði ÍBV hins vegar sigurinn með marki úr víti þegar rétt tæp mínúta var eftir og lokatölur 30:29 fyrirÍBV. ÍBV fór mjög vel af stað, tók landsliðsmanninn Ingimund Ingi- mundarson nánast úr umferð og fyrir vikið náði hann sér engan veginn á strik í sóknarleiknum. Heimamenn skoruðu fyrstu tvö mörkin og náðu strax góðu forskoti. Mestur varð munurinn í fyrri hálfleik sex mörk en undir lok hálfleiksins náðu IR-ingar aðeins að laga stöðuna enda voru leikmenn IBV um tíma aðeins þrír inni á vellinum, þar af tveir úti- leikmenn. Munurinn var kominn niður í þrjú mörk en góður lokakafli hjá IBV varð til þess að í hálfleik munaði fimm mörkum. Framan af síðari hálfleik skiptust liðin á að skora, ÍR-ingar minnkuðu muninn en Eyjamenn juku hann aftur. Þannig gekk þar til um tíu mínútur voru eftir. Þá brugðu IR-ingar á það ráð að taka þá Sigurð Ara Stefánsson og Tite Kalandaze úr umferð en reyndar höfðu þeir tekið Tite úr umferð frá fyrstu mínútu. Við það riðlaðist sóknarleikur ÍBV, ÍR-ingar nýttu sér það og jöfnuðu 29:29 þegar aðeins tæpar tvær mínútur voru eftir. Eyjamenn fengu svo víti þegar um 50 sekúndur voru eftir og úr því skoraði Zoltan Belanyi. Síðasta orðið átti hins vegar Roland Eradze sem toppaði stórleik sinn með því að verja síðasta skot ÍR-inga. Það sem stendur upp úr eftir leikinn er góður vamarleikur ÍBV, sérstaklega í fyrri hálfleik enda skoruðu IR-ingar aðeins tíu mörk í hálfleiknum. Mark- varslan var á heimsmælikvarða og stuðningur áhorfenda minnti á gömlu „góðu“ tímana, þegar gamli salurinn var troðfullur og stemmningin eftir því. Sigurður Ari Stefánsson átti stórleik fyrir IBV, skoraði átta mörk og gaf nokkrar fínar stoðsendingar. „Eg var ákveðinn í að það væri kominn tími til að láta til mín taka í þessari úrslitakeppni. Eg var ekki sáttur við sjálfan mig í leikjunum gegn Fram og það var kominn tími til að sýna hvað ég get. En þetta var fínn leikur hjá okkur og þó þeir hafi jafnað þama undir lokin verður maður bara að halda haus og klára leikinn. Næst er það bara að taka IR-ingana á útivelli," sagði Sigurður að lokum. Zoltan Belanyi, hinn reyndi homa- maður var þyngdar sinnar virði á lokakaflanum, skoraði mikilvæg mörk, m.a. síðasta mark IBV. „Við vomm að klúðra svolítið á loka- kaflanum og gerðum sóknarmistök. Við vomm svolítið stressaðir og nýir leikmenn vom að koma inn þannig að við náðum aldrei góðum sóknarleik síðustu mínútumar. Vömin í leiknum var frábær allan tímann og Roland varði mjög vel. Við náðum að stoppa Ingimund í leiknum og það er aðal- atriðið gegn ÍR. Vamarleikurinn er aðalatriðið því við skomm alltaf nóg af mörkum. Svo var líka frábært að fá svona góðan stuðning í kvöld. Áhorfendur vom okkar áttundi maður og við óskum bara eftir því í næsta leik að fá sama stuðning og kannski aðeins meiri." En var ekkert erfitt að fara á vítalínuna undir lokin ? ,Jú, það var mjög erfitt. Strákamir spurðu mig hvort ég væri ekki til í að taka þetta og ég var það. Sem betur fer skoraði ég.“ Mörk IBV: Sigurður Ari Stefánsson 8, Tite Kalandaze 7, Samúel ívar Ámason 5, Zoltan Belanyi 4, Robert Bognar 3, Grétar Eyþórsson 2, Svavar Vignisson I. Varin skot: Roland Eradze 23. Töpuðu íótta marka leik KFS lék á laugardaginn þegar strák- amirmættu Leikni R. íEgilshöll. KFS féll sem kunnugt er úr 2. deild sfðasta sumar en á sama tíma enduðu Leiknismenn í 3. sæti sömu deildar og því nokkur styrkleika- munur á liðunum. Leiknismenn vom sterkari framan af og skomðu fyrsta markið á 14. mínútu og bættu svo við öðm aðeins tveimur mín- útum síðar og í hálfleik var staðan 2:0. Leiknismenn byrjuðu svo á að komast í 3:0 í upphafi síðari hálf- leiks en lokakafii leiksins var skrautlegur. Víðir Róbertsson byrjaði á að minnka muninn fyrir Eyjamenn en Leiknismenn svömðu stuttu síðar og staðan orðin 4:1. Leiknismenn skoruðu svo fimmta markið fimm mínútum fyrir leikslok en KFS bætti svo við tveimur mörkum undir blálokin, það gerðu þeir Trausti Hjaltason og Ivar Róbertsson og lokatölur því 5:3 fyrir Leikni. Fyrstaopna golfmótið Fyrsta opna Hole in One mótið í sumar fer fram í Vestmannaeyjum á sunnudaginn. Leikin verður punktakeppni og verða verðlaun fyrir fimm efstu sætin auk þess verða verðlaun fyrir besta skor og nándarverðlaun verða á öllum par 3 holunum. Þátttökugjald er 2.500.- og einnig er hægt að kaupa pakka á 6.000,- sem er flug fram og til baka frá Bakka með Flugfélagi Vestmanna- eyja og mótsgjald. Skráning í mótið er á golf.is og hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja í síma 481-2363. Völlurinn í Eyjum lítur mjög vel út og því er um að gera að skella sér í fyrsta mót sumarsins næsta sunnudag. Framundan Fimmtudagur 21. apríl Kl. 14.00 Grindavík-ÍBV D.bikar karla. Kl. 19.40 ÍR-ÍBV Undanúrslit karla. Laugardagur 23. apríl Kl. 15.00 ÍBV-KR D.bikar kvenna. Kl. 16.00 HK-ÍBV F.mót, 3. fl. kvenna. Kl. 16.15 Haukar-ÍBV Úrslit kvenna. Kl. 18.00 Grótta-ÍBV F.mót, 3. fl. karla. Sunnudagur 24. aprfl Kl. 12.00 Afturelding-ÍBV F.mót, 3. fl. kvenna. Kl. 13.00 Grindavík-ÍB V

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.