Harmoníkan - 28.02.1996, Blaðsíða 8

Harmoníkan - 28.02.1996, Blaðsíða 8
Af haustfundi S.Í.H.U. Haustfundur Sambands Islenskra Harmoníkuunnenda (S.Í.H.U.) var hald- inn á Varmalandi í Borgarfirði 7. október s.l. í boði Harmoníkuunnenda Vestur- lands. Auk stjórnar S.Í.H.U. voru þarna saman komnir formenn og fulltrúar að- ildarfélaganna alls 29 manns og var það met þátttaka. Ur skýrslu stjórnar: í upphafi minntist Ásgeir formaður Rósu Jónsdóttur frá Akureyri, en hún lést í gær (6/10) á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Rósa var með okkur á vel flest- um haustfundum ásamt manni sínum Sigurði Indriðasyni og þekktum mörg okkar þau mjög vel. Fundarmenn risu úr sætum. Verður nú vikið að helstu málum sem stjóm S.f.H.U. hefur verið falið að vinna að: Síðasti haustfundur samþykkti að reynt yrði að fá hingað erlendan harm- oníkusnilling til tónleikahalds. Ásgeir frétti af því að Héraðsbúar væru að fá hingað Tatu Kantomaa sem væri okkur að góðu kunnur og því talið ástæðulaust að hugsa um einhvem annan ef Tatu væri til í slaginn. Það sannaðist líka enn frekar á tónleikum hans um landið að þetta er mikill snillingur og voru Héraðsbúum færðar sérstakar þakkir fyrir framtakið. Nótur frá lagakeppninni á Egilsstöð- um: í lok ágúst s.l. bárust (loksins) síðustu nóturnar að keppnislögunum. Unnið er að því á ísafirði að tölvusetja þessi lög. Lögin verða síðan send til höfundanna til yfirlestrar, þannig að þegar þau verða gefin út verða höfundarnir búnir að fara yfir þessar tölvusetningar þannig að allt sé þetta nú rétt. Það er vonandi að þetta nótnahefti verði komið út fyrir landsmót- ið. Áætlað er að prenta í fyrstu minnst 100 hefti. Þann 14. apríl s.l. varð Harmoníkufé- lag Rangæinga 10 ára og var haldið upp á þau tímamót 29. apríl. Ásgeir þáði boð Rangæinga fyrir hönd S.Í.H.U. og færði þeim við það tækifæri fána S.Í.H.U. á áletraðri stöng >Það var eftirminnileg og ánægjuleg hátíð<. Félag Harmoníkuunn- enda á Suðumesjum varð 5 ára þann 21. janúar 1995 og í tilefni dagsins voru þeim sendar ámaðaróskir og blómvönd- ur. Á stjórnarfundi S.Í.H.U. á Hellu var samþykkt að veita íslenskum harmoníku- leikara styrk til harmoníkunáms kr. 50.000,- og hefur fjárhæðin verið afhent. Á síðasta sumri gisti hjá Ásgeiri og Messíönu á Isafirði ung stúlka sem er pí- anókennari frá Kýpur. Faðir hennar kenndi við tónlistarskóla þar, m.a. á harmoníku. Að skilnaði var henni afhent- ur fáni S.Í.H.U. Fyrir ári síðan var forsvarsmönnum félaganna sent bréf, þar sem óskað var eftir upplýsingum um fjölda þeirra nem- enda sem stunduðu nám í harmoníkuleik við tónlistarskóla í þeirra heimabyggð. Því miður bárust aðeins bréf frá 11 félög- um. í framtíðinni væri það mjög æskilegt að hafa einhverjar upplýsingar um fjölda nemenda í harmoníkuleik, svo hægt sé að bera þetta saman eftirá. Ætlunin er að senda samskonar bréf í vetur og eru for- svarsmenn félaganna beðnir að svara bréfinu því þessar upplýsingar gætu orð- ið þýðingarmiklar fyrir S.I.H.U. Frá haustfundinum 1994, hafa þrjú ný félög gengið í S.Í.H.U., Harmoníkufélag Homafjarðar, Félag harmoníkuunnenda á Siglufirði og Nikkan - Félag harmoníku- áhugafólks í Vestmannaeyjum. Var klappað fyrir þessum nýju félögum og fulltrúum þeirra og þeir boðnir hjartan- lega velkomnir í hópinn. Eitt félag er ekki í S.I.H.U. en það er "Spor í rétta átt" frá Vík í Mýrdal. Harmoníkuunnendur Hveragerðis hættu starfsemi á árinu. Gísli Brynjólfs- son frá Hveragerði var sérstakur heiðurs- gestur á þessum fundi, en hann hefur sennilega verið á öllum haustfundum frá upphafi og því „eiginlega ekki hægt að halda fund án Gísla“ sagði Ásgeir og menn hlógu mikið. Þar með er skýrslu formannsins Ásgeirs S. Sigurðssonar lok- ið. Reikningar skýrðir Guðrún Jóhannsdóttir gjaldkeri Lagður var fram endurskoðaður rekstrar- og efnahagsreikningur eins og venja er. Því miður varð rekstrarhalli á árinu um 130.000,- krónur, því að tekjur urðu 120.000,- en gjöldin um 250.000,-. Eignir eru metnar á um 1.040.000,- krón- ur. Höfuðstóllinn er um 937.000,- krón- ur. Mönnum fannst styrkurinn til Harm- oníkunnar lítill en hann hljóðaði uppá 70.000,- krónur. Liðurinn „Ritföng og Stœrstur hluti fundarmanna 8

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.