Harmoníkan - 28.02.1996, Blaðsíða 19
Léttsveit Harmoníkufélags Reykjavíkitr
Harmoníkufélag Reykjavíkur
í október s.l. byrjaði Harmoníkufélag
Reykjavíkur með skemmtanir í Danshús-
inu í Glæsibæ. Þær voru haldnar á
tveggja vikna fresti á sunnudögum milli
kl. 15 og 17, og á efnisskránni einleikur
eða samleikur misstórra hópa. Flestir
sem fram komu voru félagar úr H.R. en
einnig einhver eða einhverjir úr öðrum
harmoníkufélögum. Margir eru núver-
andi eða fyrrverandi nemendur Karls
Jónatanssonar, á öllum aldri, allt frá byij-
endum til vel sjóaðra hljóðfæraleikara.
Um miðbik samkomunnar var gert kaffi-
hlé en á eftir var svo stiginn dans þar
sem á annan tug félaga H.R., í svo-
nefndri Léttsveit léku fyrir dansi. Reikn-
að hafði verið með að halda þessar sam-
komur reglulega út veturinn í Danshús-
inu, en einhverra hluta vegna verður ekki
af því. Eftir því sem heyrst hefur, er
ástæðan sú að húsráðendur töldu sig ekki
hafa næg viðskipti hjá samkomugestum.
Vonandi tekst stjóm H.R. að ráða fram úr
þessum vanda og finna annað húsnæði.
Þ.Þ.
Oddur Þorkell Jóakimsson, 9 ára var yngsti
einleikari dagsins.
Söngdansar
NótuÚtgáfan sendi nýlega frá sér
nótnahefti með 15 lögum Jóns Múla
Amasonar í útsetningu Magnúsar Ingi-
marssonar. Lögin eru úr tveimur söng-
leikjum, Rjúkandi ráði og Járnhausnum
og útsett fyrir píanó, en má vel nota fyrir
harmoníku þar sem bókstafahljómar eru
einnig skráðir á nóturnar. Þá fylgja með
textamir sem em eftir bróður Jóns, Jónas
Ámason. Mörg laganna hafa náð miklum
vinsældum eins og t.d. Fröken Reykja-
vík, og I hjarta þér, úr Rjúkandi ráði, og
Án þín, Sjómenn íslenskir erum við, og
Við heimtum aukavinnu, úr Járnhausn-
um. Heftið, sem nefnist Söngdansar er
alls 33 tölusettar blaðsíður (A4) prýði-
lega aðgengilegt, og ekki spillir útsetn-
ing Magnúsar.
Þ.Þ.
19