Harmoníkan - 28.02.1996, Blaðsíða 21
SMÁFRÉTTASÍÐAN
Af dægurlagakeppni á
Héraði
Eins og lesendum Harmoníkunnar er
kunnugt hefur Harmoníkufélag Héraðs-
búa gengist fyrir þremur dægurlaga-
keppnum á liðnum árum, 1992, 1993 og
1994 þar sem þátttökuréttur var takmark-
aður við Austurland. Nú hefur verið
ákveðið að fjórða lagakeppnin fari fram
13. apríl n.k. í Valaskjálf á árshátíð
Harmoníkufélagsins. Þessi keppni er að
því leyti frábrugðin þeim fyrri að í þetta
sinn var öllum félagsmönnum S.I.H.U
gefinn kostur á að senda lög í keppnina.
Tuttugu og sex lög bárust frá félags-
mönnum úr fimm aðildarfélögum,
þriggja manna dómnefnd sem til var
kvödd hefur lokið störfum og valið tólf
lög til úrslitakeppni á fyrmefndri árshá-
tíð. Ákveðið er að hljómsveitin XD3
annist flutning laganna ásamt söngvurum
og finnska harmoníkusnillingnum Tatu
Kantomaa sem er harmoníkuunnendum
vel kunnur frá liðnum vetri. Þeir sem hug
hafa á að vera viðstaddir margnefnda
lagakeppni á árshátið H.F.H. eru hvattir
til að tryggja sér miða í tíma því að eftir-
spurn er mikil nú þegar og er bent á að
hafa samband við formann félagsins,
Guttorm Sigfússon í síma 4172484.
Með harmoníkukveðju
Guttormur Sigfússon.
Látum þá ekki
sleppa...
Ennþá einu sinni talandi um fjölmiðla
sem fjölgað hefur sem arfaklóm á haug.
Að þessu sinni beini ég aðallega spjótum
mínum að hljóðvarpi og sjónvarpsrásum
ríkissjónvarpsins og stöðvar tvö, en auð-
vitað mega aðrir miðlar vera opnari fyrir
okkar starfi í harmoníkufélögunum. Svo
sýnist miðað við allt þetta úrval rása að
auðveldara hljóti vera að koma efni að.
Hvað um verðandi landsmót SÍHU að
Laugalandi á sumri komanda, væri til of
mikils ætlast að ríkissjónvarpið eða stöð
2 létu sjá sig á svæðinu til að velja og
safna efni til birtingar fyrir áhorfendur
sína. Brýnt er að leggja inn pöntun sem
fyrst, látum þá ekki sleppa lengur. Nægur
tími og peningar eru til að mynda hverja
hreyfingu fyrir hand-, körfu- eða fót-
boltaunnendur í nánast hvaða heimshluta
sem er, ekki ósjaldan í beinni útsendingu.
Þessu efni er þröngvað með á öllum sýn-
ingartímum svo ekki sé talað um stóran
hluta helgannaþ Allt er best í hófi. Hreint
út sagt er óþolandi að minnsta kosti ríkis-
fjölmiðlarnir sem eru eign þjóðarinnar
sinni ekki meir en raun ber vitni ýmsu
því menningarstarfi sem áhugafélög
vinna að,hvað þá heldur harmoníkunni
þar sem að standa félög um allt landið og
vitað að fólk hungrar í létta tónlistarþætti.
Landssambandsfélögin ættu að hafa
margt frambærilegt og sýningarhæft á
næsta landsmóti, því trúi ég og treysti.
Ugglaust yrði margt misheppnaðra en
nota símann í tíma og kanna undirtektir,
það verður að suða þetta í gegn, með
góðu eða illu, ekkert verður víst skilið
fyrr en skellur í tönnum. Harmoníkuunn-
endur hljóta orðið að eiga inni nokkra at-
hygli.
H.H.
Á þorrablóti...
Ekki ætti endilega að vera í frásögur
færandi þótt par nokkurthafi brugðið sér
á þorrablót fyrirtækis eins hér í borginni.
Og þó, lát heyra. Blótið var haldið í
Naustinu einum þekktasta veitingastað
borgarinnar og brautryðjanda í Reykjavík
að halda þorrablót. Súrsuðu pungarnir
hákarlinn og sviðakjammarnir reyndust
óaðfmnanlegir sem og annað er heyrir til
hefðbundnu þorrablóti að rammíslensk-
um sið. Ekki dró úr að skemmtiatriði
heimagerð hittu í mark. öllu þessu var
síðan skolað niður með nokkrum svarta-
dauðasnöfsum til að fullkomna stemmn-
inguna. En svo var einn liður sem alls
ekki féll að hinu vanabundna blóti og
nærri rústaði áðurnefnda stemmningu.
Ykkur dettur trúlega í hug að veislustjór-
anum hafi orðið á í messunni? Nei, öðru
nær hann bullaði enga vitleysu. Tölum
heldur um tónlistina er leikin var fyrir
gestina með borðhaldi sem öðru, hún átti
hreint ekki við tilefnið. Ekki eitt einasta
íslenskt lag, ekkert sem minnti á þorra og
styrkurinn eins og fyrir heyrnarskerta.
Gestimir mótmæltu að vonum og marg-
báðu um að breyta þessu og spila ís-
lenskt. Ekkert íslenskt efni var til í hús-
inu. Að lokum fékkst í gegn að slökkva á
græjunum. Von að spurt sé, hvernig
stendur á að þekkt veitingahús sem held-
ur þorrablót með réttum mat og miði
þyki íslensk tónlist ekki lengur frambæri-
Að vekja til lífs á ný..
Ætlar okkur að takast nokkurn
veginn að gleyma tvöföldu harm-
oníkunni? Það má ekki gerast. Vekj-
um hana til lífs á ný. I einstaka grein-
arkorni blaðsins eða í formi tilvitnana
hef ég hangið eins og hundur á roði
að minna á tvöföldu harmoníkuna.
Hún er líka hljóðfæri. Svo undarlegt
sem það er að enn þann dag í dag
skuli svo fáir sýna þessu lipra hljóð-
færi áhuga hér á landi. Enginn kennir
á hana hér svo ég viti til. Segjum svo
að ef 10-15 manna hópur jarmaði sig
saman tilbúinn í slaginn að læra á
slíkt hljóðfæri væri hægt að ég tel
með stuttum fyrirvara að panta er-
lendan kennara, t.d. norskan til lands-
ins og kippa þessu í lag. Það eru
nokkur veigamikil undirstöðuatriði
sem nauðsyn er að tileinka sér frá
byrjun ef vel á að fara. í Danmörku
og Svíþjóð er áhuginn mikið stígandi.
í Noregi sem án efa er í fararbroddi á
þessu sviði, er mikið af ungu fólki að
læra á hljóðfærið, fyrir utan alla þá
sem þegar spila. Til að benda á annan
möguleika er hægt að panta sér
kennslubækur að utan, þá fylgir
gjarnan hljómsnælda með til að
einfalda lærdóminn. Fyrir þá sem
hafa áhuga vil ég benda á tvo aðila
sem kenna á tvöfalda harmoníku og
gefa út kennsluefni. (Ingebrigt Rygg
5714 Oppheim Norge, sími
004756520192) (Lillebror Musikk
Sentrumsgarden 2310 Stange Norge,
sími 004762573131) Á tvöföldu
harmoníkunni hafa verið gerðar tölu-
verðar endurbætur frá eldri gerðum.
Vel get ég hugsað mér að vera þeim
innanhandar er ekki treysta sér til að
panta kennsluefni sjálfir. Brettið nú
upp ermamar og látið til skarar skríða
að læra á þetta bráðskemmtilega
hljóðfæri.
H.H.
leg, heldur helli yfir gestina amerísku
kántrí í fleyri klukkutíma? Spyr sá sem
ekki veit. Maður skal rétt vona að önnur
veitingahús brenni sig ekki á sama soð-
inu. Að vonum voru margir súrir yfir
þessu og vonandi einsdæmi, tjáði parið
mér að lokum. H.H.
21