Harmoníkan - 28.02.1996, Side 17
Portatíve
bónorðstilfæringum í Bengal (Cheng), í
nunnuklaustrum sem undirleikshljóðfæri
fyrir söng, á 12. öld á Englandi (að kon-
unglegri fyrirmynd) sem veraldlegt
hljóðfæri (portative) og að síðustu fékk
það samþykki Pius páfa 12. sem harm-
oníka.
Snúum okkur aftur að Cheng með
lausum tónfjöðrum og fylgjum því til
Evrópu. Cheng hafði nógu fagra tóna til
að heilla flest gagnrýnin evrópsk tóneyru.
A einfalt Cheng er hægt að leika einn,
eða tvo tóna samtímis og einnig fram-
kalla örlítinn hristing. Það hefur fjarræn-
an, afar fagran og nákvæman tón, í lík-
ingu við það sem heyrist í litlu pípuorg-
eli. Cheng var talið búa yfir miklum
krafti, og útnefnt sem heilagt hljóðfæri í
musterum Konfúsíusar í trúarlegum at-
höfnum og notað sem leiðandi hljóðfæri
á öllum tyllidögum. Aður en við fylgjum
Cheng út úr Kína, er vert að geta þess að
tónfjaðrirnar í því voru gerðar úr afar
mismunandi málmum, og í sumum til-
fellum notuð gullblanda. Þá var lögun
þeirra einnig afar mismunandi. Það er
álitið að Cheng hafi verið að finna víða í
löndum Asíu og gæti hafa borist með trú-
boðum eða fyrr, á tímum krossferða eða
jafnvel enn fyrr með asískum kaup-
mannalestum sem fóru þúsundir mílna í
verslunarferðum sínum. Við vitum samt
sem áður að tónfjöðrin berst til Rússlands
á 18. öld þar sem hún berst í hendur tón-
listarmanns að nafni Johann Wilde. Jo-
hann þessi er þekktur fyrir að finna upp
ákveðna fiðlutegund, varð sér úti um eða
var gefið Cheng í St. Pétursborg, og lærði
að spila á það. Þegar Kratzenstein, eðlis-
fræðingur frá Kaupmannahöfn heyrði í
honum og rannsakaði tónfjaðrimar, lagði
hann til við orgelsmiðinn Kirschnik í St.
Pétursborg að setja slíka tóna í orgel. Sá
síðarnefndi smíðaði engin slík orgel.
Hann bjó aðeins til orgel-píanó. Það var
hinn velþekkti Georg Joseph Vogler frá
Dramstadt sem smíðaði fyrsta orgelið
með slíkum tónfjöðrum, og út frá því
þróaðist stór fjölskylda hljóðfæra með
tónfjöðrum eins og harmóníum, munn-
hörpur og harmoníkur. Allt þetta gerðist
eftir 1800.
Aður en við höldum inn í 19. öldina
þegar harmoníkan varð til, skulum við
líta á hvaða aðrir hlutar harmoníkunnar
voru fyrir í notkun. Það er vert að rekja
hugmyndina um færanleika hljóðfærisins
og einnig um þróun belgsins. Notkun
herja Egypta og Grikkja á belgjum fyrir
um 1500 fyrir Krist er kunn. Til eru
skýrslur um lítil, færanleg orgel í líkingu
við harmoníku, sem hafa verið grafnar
upp úr rústum. Eldri heimildir er að finna
á tveim leirmyndum sem voru grafnar
upp í Susa í Persíu. Þessar leirmyndir eru
taldar vera frá 800 f/Krist og sýna hljóð-
færaleikara með orgel sem líkist harm-
oníku. Einnig eru til leifar af styttu af
hljóðfæraleikara að spila á lítið færanlegt
hljóðfæri, spennt á brjóstkassann þar sem
önnur höndin stjómar belg. Var hún graf-
in upp í Tarsus á Sikiley og er frá um 200
f/Krist. I kínverska hluta Turkestan í
fornum hluta Khotan var einnig önnur
stytta fundin af litlu orgeli sem spennt er
á brjóstkassa spilarans. Lítil loftdrifin
orgel sem hægt var að bera á sér og með
handdrifinn belg, virðast hafa verið í
notkun meðal Islam-trúarmanna.
Framhald í nœsta blaði
Landsmót
S.Í.H.U. 1996
Nýlega sendi framkvæmdastjórn
landsmóts S.Í.H.U. frá sér fréttatil-
kynningu til allra formanna sam-
bandsfélaga um tímasetningu mótsins
og tímalengd hvers félags á tónleik-
um. Bréfið var dagsett 8. febrúar og
höfðu þá 13 félög tilkynnt þátttöku en
skráningu lýkur í lok febrúar sam-
kvæmt bréfi þessu.
Dagskráin verður eins og lýst er af
ritara S.I.H.U. í pistli frá haustfundi,
tónleikar hefjast kl. 14:00 og dans-
leikir kl. 22:00.
I bréfinu er gefið upp verð á gist-
ingu og tjaldstæðum og tekið er fram
að gistingu á staðnum þurfi að panta
hjá framkvæmdastjóra fyrir 15. maí
n.k. Þeim sem kjósa að gista á hóteli,
er bent á Hótel Mosfell Hellu sem
einnig hefur smáhýsi til leigu. Vissara
er að hafa tímanlega samband við
hótelið en frá Laugalandi að Hellu eru
14 km.
Matur verður seldur landsmótsdag-
ana á Laugalandi og er gefið upp verð
sem hér segir: Morgunverður kr. 500,
hádegisréttur kr. 600, miðdegiskaffi
kr. 400 og kvöldverður kr. 1.300.
Matur verður á hlaðborði og er ætlast
til að hver og einn sæki sér mat sjálf-
ur.
Þegar er búið að ákveða matseðil í
stórum dráttum og fást nánari upplýs-
ingar hjá formönnum félaganna eða
hjá framkvæmdastjórn. Æskilegt er
að matur sé pantaður fyrirfram og
reiknað með að seldir verði matar-
miðar til að auðvelda innheimtu.
Framkvæmdastjórn landsmóts
S.Í.H.U. er þannig skipuð: Jóhann
Bjarnason framkvæmdastjóri, sími
487 58155 Sigrún Bjarnadóttir for-
maður H.F.R., sími 487 5882 og Stef-
án Ármann Þórðarson gjaldkeri, sími
482 1170
Þ.Þ.
17