Harmoníkan - 01.10.1996, Blaðsíða 3
FRÆDSLU, UPPLYSINGA OG
HEIMILDARIT FELAGA S.I.H.U.
OG ANNARRA AHUGAMANNA
STOFNAÐ 14. APRIL 1986
*
Ábyrgð:
Hilmar Hjartarson,
Ásbúð 17,
210 Garðabæ,
sími 565 6385
Prentvinnsla: Prenttækni hf.
Blaðið kemur út þrisvar á ári
í október, febrúar og maí.
Gíróreikningur nr. 61090-9.
Meðal innihalds blaðsins:
Fyrsta konan .............. 4
Landsmótið................. 5
Vatnavextir ................ 6
Kynning: Jenni Jóns ....... 7
Aðalfundur ................. 9
Landsmótsþankar............ 9
Heimsmethafi...............10
Heimsins stærsta...........11
Krummarnir utan ...........13
Dansað að Borg ............14
Plötudómar ................15
Handrit fyrir næsta blað þurfa að
berast fyrir febrúarlok 1997.
Auglýsingaverð:
1/1 síða kr. 9.500
1/2 síða kr. 6.500
1/4 síða kr. 3.500
1/8 síða kr. 2.500
AUGLÝSIÐ í HARM0NÍKUNNI
Breyttir
tímar
Kæri Iesandi
Eins og fyrirsögn greinarinnar ber
með sér eru framundan breyttir tímar
hvað blaðið Harmoníkuna varðar. Þor-
steinn Þorsteinsson sem ásamt mér hef-
ur staðið að útgáfu blaðsins umliðin 10
ár hefur ákveðið að hætta starfi sínu við
blaðaútgáfuna. Þessi tilhögun er gerð í
góðu samkomulagi og í mestu vinsemd
af hálfu okkar beggja. Um tíma velti ég
í alvöru fyrir mér að hætta líka en eftir
ítarlegar vangaveltur fannst mér ég
bregðast áskrifendum og lesendum
blaðsins á tímum þegar jafnvel mest ríð-
ur á að halda úti blaði. Mér finnst eins
og mörgum öðrum sem ígrunda þessi
blaðamál að blaðið sé ómissandi í harm-
oníkustarfinu. Stjórn S.I.H.U. tjáði sig
rækilega um þetta mál á aðalfundinum í
sumar ásamt fulltrúum landssambands-
félaganna og tel ég ekki vert að hætta
útgáfu nú. Eg lýsti vangaveltum mínum
fyrir nokkrum útgefendum harmoníku-
blaða á Norðurlöndum í sumar. Þeir eru
á einu máli um að félagsstarf og móts-
hald ásamt ótalmörgu öðru tengdu
harmoníkunni væri skugginn einn af því
sem annars er án útgáfu blaðs.
Það er ljóst að útgáfa blaðsins verður
ekki einfaldari við það að útgefandi er
einn í stað tveggja. Því ætla ég mér að
minnka blaðið í 16 síður. Þó mun ég
leggja mig fram við að hafa efnisval
þannig að ekki komi mikið niður á
áskrifendum. Megin markmið blaðsins
er enn hið sama þ.e. að taka púlsinn á
því helsta sem er að gerast í harmoníku-
lífi í landinu og öðru sem varðar menn
og málefni í harmoníkubransanum.
Áskriftargjaldið mun jafnframt lækka úr
2000 kr í 1500 á ári. Ég vil taka fram að
lagahöfundar sem vilja láta birta lag eft-
ir sig í blaðinu munu nú beðnir um að
senda það fullskapað og frágengið til
blaðsins. Einnig vil ég eindregið hvetja
lesendur til að senda blaðinu efni.
Eins og sjá má hefur ásjóna blaðsins
breyst töluvert og er það von mín að það
falli ykkur í geð. Ég vona að þið takið
þessum breyttu aðstæðunr með bros á
brá og að ég öðlist traust ykkar og
stuðning í að halda úti harmonikublaði
á Islandi. Það ætti að vera hagur allra
unnenda harmoníkunnar hér á landi.
Mér hefur komið til hugar að bjóða
uppá að auki efni óskylt harmoníkunni
ef svo ber undir. Ymsan fróðleik, þjóð-
legan og annars konar og meira gaman-
mál en áður ef smuga er fyrir það. Það
er því mikilvægt að þú lesandi góður
tjáir hug þinn til blaðsins um hvernig
efni þér þætti spennandi að sjá í nýju
Harmoníkunni.
Harmoníkuunnendur, lítum björtum
augum til framtíöar.
Hilmar Hjartarson
Harmoníkan geymir
minningarnar!
Ábending til áskrifenda,
áhugamanna og safnara. Tii eru
flestir árgangar þlaðsins frá upp-
hafi ef ykkur vantar inn í blöð.
Hver árgangur kostar kr. 1000.-
en hvert blað kr. 350.-
Símar: 565 6385 & 896 5440
3