Harmoníkan - 01.10.1996, Blaðsíða 12

Harmoníkan - 01.10.1996, Blaðsíða 12
Harmoníkuleikararnir á þessari inynd erufrá u Anders Larsson og Lxirs Karlsson. LEFFES HOT-BAND. Takid eftir harmoníkunum sem ent hvorttveggja í senn hnappa- og pí- anóharmoníkur. Allt fór saman góð spilamennska, klteðnaður glœsileg söngkona. Frá v. Kent Torbjörn Olafsen Glasö 11 ára, Ronny Daniel O. Glasö 9 ára og móðir þeirra 33 ára. Eiginmaðurinn, faðirinn og harmoníkuleikarinn varlátinn, á dánarbeði sagði lumn sína heitustu ósk vera að synirnir lœrðu á harmoníku. Honum varð að ósk sinni. samið sérstakan óð um harmoníkuna og þá hamingju sem skapast við nærveru hennar og fór með hann við athöfnina. Þessi gifting var sú sjötta á Ransátermót- inu frá upphafi. Stórgoðið Roland Sedermark lék þarna við hrifningu enda er túlkun hans og stíll með eindæmum. Ungir sent aldn- ir biðu í röðum eftir tónleikana til að fá hjá honum eiginhandaráritun. Fleiri þekkt nöfn voru þarna: Skogsby Lasse norski munnhörpuleikarinn, Anders Lars- son og Annika Andersson, Sigmund Dehli, Eddi Lyshaug, John Kullberg, Sigrid Öfjelt, Oke Bengtson, Janne og Lennart, Lars Karlsson otl. ofl. Úti á mótssvæðinu var allsstaðar verið að spila og syngja í stórum og sntáurn hópum. Dansað var á sjö dansgólfum sem sum voru í gömlum hlöðum eða fjósum, þarna var mikil fjölbreytni og endalaust fjör. Svo eru tónlistarmenn að selja afurðir sínar um allt; snældur, plöt- ur, geisladiska og merki. Dóttir Walter Erikson leiddi söng og spilamennsku á mótslaginu Hilsen til Ransáter eftir Norðmanninn Finn Halvársen. Walter Erikson sagði að Ransáter væri himnaríki harmoníkunnar. Það eru eflaust orð að sönnu en það ætti að vera hvatning fyrir íslendinga að prófa þennan stað enda hafa mótshaldarar mikinn áhuga á að fá fleiri Islendinga á mótið. Það var erfítt að slíta sig frá svæðinu og þeim góða hópi kunningja sem hafa heimsótt okkur á Islandi eða við höfðum kynnst f gegnum samskipti harm- oníkunnar. Öll ævintýri taka þó enda og svo var einnig með þetta. Smástund með goðiiut Roland Sedermark 12

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.