Harmoníkan - 01.10.1996, Qupperneq 5
Sjötta landsmót Sambands Islenskra
Harmoníkuunnenda var haldið að Lauga-
landi í Holtum dagana 20.-23. júni síð-
astliðinn. Skipulögðum við Rangæingar
helgina eftir bestu getu og báðum mátt-
arvöldin unt að sunnlenska rigningin yrði
víðs fjarri mótsdagana.
Og viti ntenn! Fimmtudagurinn rann
upp og veðrið lofaði góðu. Fleyg eru þau
orð formanns Harmoníkuunnenda í
Reykjavík er hann sagði á aðalfundinum
á fimmtudagskvöldið: „Eg vissi nú að
hún Sigrún væri valdamikil, en mig grun-
aði ekki að völdin næðu svona langt“.
Sautján harmoníkufélög voru skráð til
leiks að tónleikum félaganna og tuttugu
hljómsveitir höfðu tilkynnt þátttöku á
böllunum. Er skemmst frá því að segja
að enginn hópur féll úr og sannar það
einu sinni enn hversu orðheldnir og
traustir menn skipa harmoníkufélögin í
landinu.
Eftir setningarathöfn opnaði 16 ára
Rangæingur, Svanur Bjarki Ulfarsson
mótið og stóðst þá eldraun með mikilli
prýði.
Tónleikar félaganna gengu mjög vel
báða dagana og var ánægjulegt að sjá og
heyra hversu vel félögin stóðu sig. Unga
Hiiin 16 ára gamli nemandi Grétars Geirs-
sonarfrá Áshóli, Svanur Bjarki Úlfarsson
frá Stóru-Mörk sést hér ákveðinn á svip
leika Florette Pietro Frosinis við opnun
mótsins. Svanurfékk afhentan sérstskan
minningarskjöld sem staðfestingu á að hafa
komið fyrstur fram á landsmótinu.
fólkið hefur aldrei mætt fleira til leiks á
landsmóti og er það gleðiefni.
Dansleikirnir föstudags- og laugar-
dagskvöld fóru vel fram og var ekki ann-
að að sjá en allir skemmtu sér hið besta.
Það er nú einu sinni svo að þar sent
harmoníkufélagar eru á ferð er gleðin við
völd og þar sannast málshátturinn að
„maður er manns gaman“. Landsmótin
eru nefnilega ekki aðeins tónleikar og
dans, heldur líka vettvangur fyrir fólk að
hittast. Fólk sem hefur sama áhugamál
og eru flestir orðnir góðir vinir í gegnum
harmoníkufélögin.
Með mínum leikmannsaugum fæ ég
ekki betur séð en félögin séu í mikilli
framför og áhuginn fari síst dofnandi.
Það er því von mín að orð þeirra manna
er gera lítið úr íslenskum harmonikuleik
séu ekki tekin allt of hátíðlega. Ekki eru
allir fæddir til að verða snillingar en allir
gera sitt besta og það er aðalatriðið.
Einleikara fengum við alla leið frá
Austur-Slóvakíu. Hugsunin bak við þá
ákvörðun var sú að fá að heyra og njóta
tónlistar sem er ólík því sem við heyrunt
oftast. Vladimír Chuchran sýndi okkur
snilldartakta á harmoníkuna, það fór ekki
á milli mála. Og þó einhverjum hafi
fundist prógrammið heldur þungt, þá
voru þeir þó fleiri sem sátu með stjörnur í
augum eftir mjög eftirminnilega tónleika.
Skömmu eftir Landsmót sendi Vladimir
póstkort með góðum kveðjum og þökk-
um fyrir bráðskemmtilega heimsókn til
Islands. Er þeim kveðjunt hér með komið
á framfæri.
Að lokum vil ég þakka öllunt þátttak-
endum Landsmótsins drengilega fram-
komu og hversu mikla alúð allir lögðu í
verk sín. Einnig vil ég þakka félögum
mfnum úr Harmoníkufélagi Rangæinga
alla þá vinnu sem þeir lögðu fram til að
gera framkvæmd mótsins mögulega.
Hópspilamennska allra harmoníkuleikaranna
Salurinn var alltaf fullskipaður áhoifendwn.
Landsmót 1996
Sigrún Bjarnadóttir
5