Harmoníkan - 01.10.1996, Qupperneq 9

Harmoníkan - 01.10.1996, Qupperneq 9
Með landsmót í huga Hilmar Hjartarson Þegar sólin reis hæst á Islandi og sum- ir veltu sér upp úr dögginni um Jóns- messuna, sameinuðust harmoníkuleikarar og áhugafólk um hljóðfæri sitt að Lauga- landi í Holtum á sjötta landsmóti S.I.H.U. Ætli nokkru sinni hafi fleiri manns notið þeirrar gleði og ánægju sem á sér stað á landsmóti. Skipulagningin var aðdáunarverð á þessu móti án þess að vera fyrri skipuleggjendum til lítillækk- unar segi ég að aldrei fyrr hafi svo vel tekist til með skipulagningu alla. Það er þróunin að hver lærir af öðrum og yfir því megum við gleðjast. Ohemjumikil breyting hefur á orðið milli móta umliðinna ára og umsjónar- menn hvers um sig lagt sig alla fram um að gera þau sem best úr garði. Hlutirnir gengu svo einstaklega vel í ár, góður kynnir, góðir hljóðmenn á senu, aðstoð- armaður á senu gætti þess nákvæmlega að fjöldi stóla væri í samræmi við fjölda flytjenda og allar skiptingar tóku skamma stund og fumlausar. Litið inn Aðalfundur S.Í.H.U. 1996 hófst 20. júní. Þessa lengstu nótt ársins blöktu fánar í golunni, sól var á lofti og hljóð frá svamli sundlaugargesta barst upp í fund- arsalinn. Það var Asgeir S.Sigurðsson þáver- andi formaður sambandsins sem setti fundinn, fundarstjóri var Jónas Þór Jón- asson frá Egilsstöðum. Ásgeir minntist í upphafi látinna félaga frá síðasta aðal- fundi. Hinir látnu eru: Jósteinn Finnbogason frá Húsavík, dáinn 17. nóvember 1995. Haraldur Björnsson frá Húsavík, dáinn 2. mars 1996. Kristinn Erlendsson Kaldal frá Keflavík, dáinn 6. júní 1996. Gissur Geirsson frá Selfossi, dáinn 8. júní 1996. Eg vil cinnig geta Steinars Eiríks Sigurðssonar frá Þingeyri sem lést 20. júlí 1996 langt um aldur fram. Margir harmoníkuunnendur þekktu Steinar að góðu frá Samkomum harm- oníkuunnenda (H.H.). Menn risu úr sætum til að minnast þessara félaga. Að sitja lungann úr degi tvo daga í röð á tónleikum var leikur einn, jafnvel fyrir menn sem helst aldrei setjast niður, og tíminn leið ótrúlega fljótt enda var um að ræða gæða spilamennsku og gott lagaval. Tónleikar Vladimir Chuchran voru fyrir minn smekk of iangir vegna þungs laga- vals en snilld tónlistarmannsins og gott vald á tækni leyndist engum. I hliðarsal inn af anddyri að Laugalandi var ítalskur harmoníkuleikari Renso Ruggieri að aug- lýsa harmoníkur fyrir hljóðfæraverslun Leifs H. Magnússonar. Sá var ekki af verri endanum og náði hann að heilla mótsgesti upp úr öllu valdi. Eg missti af aðaltónleikum þarna í salnum er Vla- dimir Chuchran og Italinn stilltu saman og gerðu óhemju lukku. Þá vissi ég til að tveir Bretar ásamt íslenskum fylgdar- mönnum voru á mótinu. OlafurTh Olafs- son vissi allt um þá og tjáði hann mér að þeir hefðu skemmt sér hið besta, hrein- lega ekki upplifað annað eins. Það er sorglegt til þess að hugsa að Lög sambandsins sem lengi höfðu taf- ið fundi voru nú loks samþykkt ásamt reglugerð um verðlaunaveitingar. Stjórn- arkjör fór þannig að Ásgeir gaf ekki kost á sér í formannssætið áfram en Sigrún Bjarnadóttir sem hafði verið varaformað- ur var kosin formaður og er hún fyrsta konan til að verina það sæti hér á landi. Heilmiklar breytingar aðrar urðu á stjóm- inni og munu nafnabirtingar nýrrar stjórnar koma fram í næsta blaði. Já- kvæður andi ríkti á aðalfundinum. Fyrir lágu upplýsingar um að 144 nemendur væru í harmoníkunámi í tónlistarskólum landsins en álit stjórnar var að hátt í 200 manns stunduðu nám þar sem nokkrar upplýsingar skorti frá nokkrum tónlistar- skólum. Formaður H.F.R. Sigrún Bjarnadóttir skýrði frá því að fjölmiðlar hafi reynst gjörsamlega áhugalausir fyrir mótinu, sagðist alls staðar hafa rekið sig á steinveggi. í lok þessa litla yfirlits langar mig að geta þeirra manna er stóðu í eldlínunni við framkvæmd og skipulagningu móts- ins. fjölmiðlar sýndu mótinu engan áhuga, örfá orð án myndar sá ég í einu blaði. En ekki stóð á blöðunum að eyða hálfri opnu með stríðsfyrirsögn í neikvæða frétt um atburð sem gerst hafði. Hvað sem því líð- ur var blásið út að fólk hafi verið svo drukkið að ekki hafi verið hægt að yfir- heyra það. Ég dreg þessar staðhæfingar mjög í efa því þvert á móti tel ég harm- oníkuunnendur enn einu sinni hafi sann- að að þeir kunna að skemmta sér á heil- briggðan hátt og nota vín í hófi. Ég get staðhæft þar sem ég hef verið á öllum landsmótum frá upphafi að ég veit ekki til að nein stór vandamál hafi skapast til hnjóðs fyrir harmoníkuna. Meira mætti sjást á prenti um allan vinskapinn og gleðistundirnar sem fólk minnist eftir hvert landsmót. Eins og svo oft áður í lok landsmóts var ég upptendraður af inni- legri gleði og góðvild og hafði a til- finningu að vera jafnvel fallegur að inn- an. Jóhann Bjarnason framkvæmdastjóri, sá um verklega hlið mótsins. Sigrún Bjarnadóttir sá um tónlistar- flutning og skipulagningu á honum. Stefán Ármann Þórðarson var gjald- keri mótsins. Kynnir: Bragi Gunnarsson Hljóðmenn: Báðir frá Selfossi. Helgi Kristjánsson og Oðinn B. Helgason. Myndataka: Mega fílm Reykjavík Sviðsstjóri: Valur Haraldsson Sigrún Bjarnadóttir sá um að hljóm- sveitir væru klárar bæði á tónleikum og dansleikjum. H.H. Úr íslenskri fyndni Halldór hét íslendingur í Vestur- heimi. Hann hafði atvinnu af því að hlaða hús. Kona Halldórs hét Ósk. Þau voru barnlaus. Um Halldór sagði kýmniskáldið K.N. „Halldór er grunn-hygginn og fær aldrei ósk sína uppfyllta." á aðalfund S.Í.H.U. 9

x

Harmoníkan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.